Þjóðviljinn - 10.04.1988, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 10.04.1988, Blaðsíða 14
MORRISSEY- „Viva Hate“ Nú eru u.þ.b. 1 ár frá því að uppúr sauð í samstarfi Morrissey og Johnny Marr í hljómsveitinni Smiths, einni vinsælustu ný- bylgjuhljómsveit vorra daga. Margar sögur komust á kreik, m.a; að Morrissey og félagar hans væru að leita sér að nýjum gítarleikara og ætluðu að halda áfram samstarfi eins og ekkert hefði í skorist. En allt fór á annan veg og fyrr en varði var upplausn Smiths orðin eitt vinsælasta um- fjöllunarefni tónlistartímarita um víða veröld. Fljótlega eftir slitin fór Johnny Marr að starfa með alls kyns tónlistarfólki og má þar telja nöfn eins og Paul McCartney, Talking Hcads og Bryan Ferry. Ekki leið heldur að löngu þar til Morrissey fór að hugsa sér til hreyfings með fyrrum aðstoðar- og upptöku- manni Smiths, Stephcn Street. Fyrsti afrakstur þeirra félaga var smáskífa er kallaðist „Suedehe- ad“ og kom á markað ekki alls fyrir löngu. Laginu svipar nokk- uð til þess sem Morrissey hafði áður verið að gera í samvinnu við Marr, og fór þá fólk að óttast um að þessi tilraun kappans væri að- eins dauðateygjurnar af Smiths samstarfinu, en sem betur fer fór allt á aðra leið. Nú er nýútkomin breiðskífan „Viva Hate“ eða „Lifi hatur“, sú fyrsta en vonandi ekki sú síðasta sem Morrissey og Stephen Street vinna í sameiningu. Þessi plata kom mér satt best að segj a á ó vart því hér er alls engin venjuleg poppplata á ferðinni, heldur vandaðra, tormeltara og inni- haldsríkara verk en áður hafði komið frá gæjanum. Textar Morrissey hafa tekið þónokkrum framförum, að vísu fjalla þeir ennþá um eymdarlegar hliðar til- veru hans og annarra en ein- hvernveginn ná textarnir sterkari tökum á manni en undangengnir Smiths-textar, þeir eru ef til vill raunsærri en við höfum áður átt að venjast frá Morrissey. „Viva Hate“ hefst á „Alsatian Cousin", lagi þar sem skerandi gítarleikurinn leiðir kröftugan og taktfastan bassa- og trommuleik svo útkoman verður sterkt, óvenjulegt og eftirminnilegt popplag og ekki er laust við að stemmningin sé dálítið dularfull. Eitt aðgengilegasta lagið á plötu- nni, lagið „Everyday Is Like Sun- day“, er melódískt popplag, sem er þó ekki laust við hið drunga- lega þema plötunnar, enda er texti þess með afbrigðum þungur og eftirminnilegur eins og glöggt má sjá í stuttri tilvitnun: „How I dearly wish I was not here" in the seaside town ... that they forgot to bomb. Come. Come. Come, nuclear bomb. Everyday is like Sunday everyday is silent and gray. Þó nokkuð er notast við strengjahljóðfæri á plötunni og tekst þeim kumpánum þannig að undirstrika yfirbragð verksins. í þessari umfjöllun má ekki gleyma að minnast á þátt Step- hens Street á plötunni, því þó Morrissey sé skrifaður fyrir henni á sá fyrrnefndi skilinn a.m.k. hálfan heiðurinn af verkinu því auk þess að annast allar iagas- míðar, spilar hann á gítar og bassa ásamt því að hljóðblanda plötuna, en einmitt sá hluti verks- ins er sérstaklega vel af hendi leystur. Þegar á heildina er litið er „Viva Hate“ óvenjuleg, einlæg, drungaleg, áhrifaraík, vönduð og skapandi plata, enda verður nið- urstaðan sú að hér er á ferðinni ógleymanlegt listaverk. Aldni hippinn Paul McCartney ætlar víst að reyna að hleypa nýju blóði í tónlist sína því hann hefur fengið sjálfan konung ný- bylgjunnar, Elvis Costello, til liðs við sig við gerð nýjustu breið- skífu sinnar. Mun Costello hafa hjálpað eitthvað við upptöku- stjórnina ásamt því að ritskoða eilítið textagerðina, enda ekki vanþörf á. Lítið hefur heyrst í söngkon- unni Patti Smith uppá síðkastið, eða nánar tiltekið frá árinu 1979 er hún gaf út plötuna „Wave“. Nú er aftur á móti svo komið að telp- an er búin að taka upp nýja breið- skífu sem á að koma út í næsta mánuði og heita eitthvað. Hljómsveitin James sem sendi frá sér LP-plötuna „Stutt- er“ fyrir tveim árum og hefur lítið sem ekkert látið í sér heyra síðan, sendi um daginn frá sér splunk- unýtt lag sem heitir „What For“. Svo virðist sem hljómsveitin sé gengin aftur því hún er um þessar mundir að leika fyrir f rændur okk- ar Breta. írska rokksveitin U2 ætlar að gefa út tvöfalda plötu í nóvemb- ermánuði næstkomandi og ku u.þ.b. helmingur efnisins vera tónleikaupptökur sem hljóðritað- ar voru á undangengnu tónleika- ferðalagi piltanna. Hinn helming- urinn mun vera glænýtt efni sem þeir kumpánar hyggjast taka upp eftir að hafa lokið við gerð kvik- myndar sem var tekin af hljóm- sveitinni á nýafstöðnu hljóm- leikaferðalagi. Hobbbsassa! Martin Step- henson and the Daintees er einn þeirra drauga sem nú rísa upp í poppinu með nýja breið- skífu í farteskinu. Platan sem kom út 4. apríl heitir víst „Glad- stone Humour And Blue“ og er hér um mjög áhugaverðan grip að ræða ef dæma má af fyrri verkum sveitarinnar en gagnrýnendur kepptust þá eftir- minnilega við að slefa (af hrifn- ingu) hver í kapp við annan. Irskar hljómsveitir hafa verið iðnar við kolann síðustu árin og That Petrol Emotion er ein þeirra sem hafa vakið á sér at- hygli undanfarin tvö ár. Nú er sveitin að hefja stutta hljómleika- ferð um írland og Skotland, en eftir það mun hún þramma í hljóðver að hljóðrita nýja plötu. Þunglyndispönkararnir . í Swans ætla sér að endurbæta eitthvað gamla Joy Division lagið „Love Will Tear Us Apart“ og munu senda það frá sér í smá- skífuformi þann 25. þessa mán- aöar. Tom Waits er nýbúinn að klára tónleikakvikmynd (alveg eins og jú tú?) sem heitir „Big Time“ og í kjölfarið á að fylgja hljómplata með tónlist myndar- innar sem væntanlega mun bera sama nafn. Útgáfufyrirtækið ERÐANÚM- ÚSÍK er eitt það afkastamesta á landinu um þessar mundir og á mánudaginn næsta mun fyrir- tækið senda frá sér tvær hljóm- snældur með hljómsveitunum SH. Draumur og Mússólíní. SH. Draumur er fremsta rokksveit landsins þessa stundina og verð- ur því 22 laga snælda þeirra feitur biti fyrir íslenska tónlistarunn- endur. Spóla þessi hefur hlotið hið rómaða nafn „Bútaðir Leggir" og ku nafnið vera sletta af enska orðinu „bootlega", sem fyrir tón- listarunnendur myndi útleggjast sem „sjóræningjaupptökur". Þessi kasetta mun innihalda efni sem sveitin hefur samið frá upp- hafi ferils síns til ársins 1986 og hefur ekkert af lögunum áður sést á hljómplötu. Hin hljóm- snældan er með hljómsveit að nafni Mússólíní eins og ég nefndi áðan, og mun hún heita „Slys“. Fljótlega er svo væntaleg 4- laga smáskífa frá gæjonum (Da- isy Hill Puppy farm, einnig út- gefin á Erðanúmúsík. í kjölfar þessa tónlistarháflæðis verða haldnir tónleikar á Hótel Borg fimmtudaginn 14. apríl kl. 21 þar sem fram koma allar þessar hljómsveitir ásamt sveitinni E-X, en sú sveit er einmitt um þessar mundir að senda frá sér smáskífu og verður þeim grip dreift meðal allra tónleikagesta. Það má svo geta þess hér í lokin að breska bandið Shark Taboo mun halda seinni tónleika sína hér á landi á morgun mánu- dag ásamt íslensku sveitinni Tí- bet Tabú í Duus húsi. 14 SIÐA - ÞJÖÐVILJINN Sunnudagur 10. apríl 1988 Ein mest umtalaða nýbylgju- sveit Breta um þessar mundir er án efa hljómsveitin The Jesus And Mary Chain, en hljóm- sveitin sendi í síðustu viku frá sér nýja smáskífu sem ber heitið „Si- dewalking". Segja þeir sem til þekkja að lagið sé nokkurt aftur- hvarf til fyrri verka sveitarinnar og munu vafalaust margir gleðjast yfir því. í kjölfarið á að fylgja LP- platan „Barbed Wire Kisses" sem ku innihalda lög sem hafa áður prýtt svokallaðar B-hliðar á smáskífum sveitarinnar.auk nokkurra laga sem hafa aldrei áður litið dagsins Ijós. Nýju Prince plötunni, „Love- sexy" mun víst seinka eitthvað og mun hún ekki koma út fyrr en 16. maí. Óstaðfestar fregnir herma að prinsinn muni senda frá sér undanfara í dvergskífu- formi og herma þessar sömu óst- aðfestu fregnir að lagið muni heita „Alphabet Street“.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.