Þjóðviljinn - 10.04.1988, Side 15
Pelíkanar í St. James garði: Þeir hafa ekki verpt síðan á dögum Jakobs fyrsta...
Lávarðadeildin breska
og tfmgun pelíkana
dart lávarður fram fyrirspurn í
deildinni um það hve margir pel-
íkanar væru nú í garðinum og hve
margir þeirra karlkyns og hve
margir kvenkyns. Hann fékk svo-
hljóðandi svar frá Hesketh lá-
varði: „Það eru fimm pelíkanar
í St. James garði. Yðar velborin-
heit verða áreiðanlega jafn undr-
andi og ég, þegar þið nú fáið að
heyra það að það sé mjög erfitt
fyrir manneskjur að kveða upp úr
um kynferði pelíkana. Því óttast
ég að oss sé það um megn að
svara spurningunni um kynferði
pelíkananna."
Stodart lávarður vildi fylgja
eftir sínu máli og sagði:
„Lávarðar mínir, mætti ég
þakka mínum tigna vini fyrir
þetta skýra svar? Einnig hann
mun vafalaust gleðjast yfir því,
að á vorum dögum þegar menn
hafa svo þungar áhyggjur af
hnýsni í einkalífið, þá reynist það
vera aðeins á færi pelíkana að
greina kynferði annars pelíkana.
Ef nú svo færi, að á vori komanda
leiddi slík greining til gleðilegra
viðburða, mundi hann þá vera
reiðubúinn til að heimsækja
garðinn í vorum félagsskap?"
Þessu svaraði Hesketh lávarð-
ur með svofelldum hætti:
„Ég er sannfærður um að það
mundi verða árangurslaus
leiðangur. Við vitum það með
vissu að pelíkanar komu hingað á
stjórnartíð Jakobs konungs fyrsta
(1566-1625). Síðan þá hafa þeir
ekki aukið kyn sitt.“
Nú gat Cledwyn lávarður af
Penroh ekki annað en hrist höf-
uðið. Hann mælti:
„Lávarðar mínir, ef að pelík-
anarnir hafa ekki verpt eggi síðan
á dögum Jakobs fyrsta, hvaðan
koma þeir þá?“
Enn einu sinni hlaut hinn
margfróði Hesketh lávarður að
skýra málin:
„Með vissum hætti erum við að
því er pelíkana varðar háðir dipl-
ómatískum velgjörningum. Við
fáum fugla þessa frá Louisiana og
Texas og við erum þakklátir fyrir
að það er hans hátign Amírinn af
Bahawalpur sem færir oss þá að
gjöf.“
Breska lávarðadeildin er
enn til en menn þykjast ekki
vita svo gjörla til hvers. Sumir
tala um ruslakistu sögunnar,
sumir telja þessa „efri“ deild
breska þingsins einskonar
„Ytri-Mongólíu“ fyrir uppgjaf-
arstjórnmálamenn. í þeim
skilningi gegnir breska lá-
varðadeildin svipuðu hlut-
verki og utanríkisþjónustan
hefur lengi gert á íslandi.
Hér áður fyrr hafði lávarða-
deildin visst vald sem lýðræðis-
kröfur hafa fyrir löngu saxað svo
á að ekkert er eftir. Lávarðarnir
vilja þó gjarna ræða málin til að
gera eitthvað og hafa sérstakar
mætur á siðferðismálum og dýra-
vernd. Til dæmis á velferð pelík-
ana þeirra sem hafast að í St.
James garði í London.
Kynferði fugla
Ekki alls fyrir löngu bar Sto-
Lávarðadeildin: Um hvað eigum við að raeða í dag, yðar velborineit?
Sjúkraþjálfari
í Grindavík búa um 2000 manns sem núna eru án
sjúkraþjálfara.
Sjálfstæður
atvinnurekstur
Höfum mjög góöa aöstöðu meö fullkomnum nýj-
um tækjum sem leigjast út til þeirra sem hefja
vilja sjálfstæðan atvinnurekstur, gegn sann-
gjörnu gjaldi.
Góðir tekjumöguleikar
Það tekur 40 mínútur að aka frá miðbæ Reykja-
víkur til Grindavíkur.
Vinna eins og hver vill
Upplýsingar eru gefnar á Heilsugæslustöðinni,
sími 92-68021 og hjá heilsugæslulækni, sími 92-
68766.
Grindavíkurbær
Frá grunnskólum
Garðabæjar
Vorskóli
Innritun sex ára barna þ.e. barna sem fædd eru á
árinu 1982 fer fram í Flataskóla s. 42656 og
Hofsstaðaskóla s. 41103 vikuna 11.-15. apríl.
Það er mjög áríðandi að foreldrar láti innrita börn-
in á þessum tilgreinda tíma, eigi þau að stunda
forskólanám næsta vetur.
Ertu að flytja í Garðabæ?
Innritun skólaskyldra barna og unglinga sem
flytja í Garðabæ fyrir næsta vetur fer fram í skól-
unum vikuna 11.-15 apríl.
Til að tryggja börnunum skólavist er nauðsyn-
legt að öll börn og unglingar, sem svo er ástatt
um, verði skráð á ofangreindum tíma.
Nemendur sem fara í 6. - 9. bekk næsta vetur eru
innritaðir í Garðaskóla s. 44466.
Nemendur sem fara í forskóla - 5. bekk næsta
vetur eru innritaðir í Flataskóla s. 42656.
|5| REYKJkVIKURBORG If |
St&dun, Mr
Heilsuverndarstöð
Reykjavíkur
óskar eftir að ráða
SJÚKRALIÐA í HEIMAHJÚKRUN
Dagvaktir og næturvaktir. Fullt starf og hlutastörf
eftir samkomulagi.
Upplýsingar gefa hjúkrunarforstjóri Heilsu-
verndarstöðvarinnar og hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri Heimahjúkrunar, í síma 22400.
Umsóknum skal skila til Starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, fyrir kl.
16.00 mánudaginn 18. apríl 1988.
Fóstrur - Fóstrur
ísafjarðarkaupstaður óskar eftir forstööumanni til starfa á lítinn
leikskóla. Staöan er laus frá og með 1. maí 1988. Einnig vantar
fóstrur til starfa.
Allar nánari upplýsingar veita dagvistarfulltrúi og félagsmálastjóri í
síma 94-3722.
Dagvistarfulltrúi
Sunnudagur 10. apríl 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15