Þjóðviljinn - 10.04.1988, Qupperneq 20
Kynningarþjónustan/ SIA
Sex nýjar og nýlegar kvikmyndir
Frönsk kvikmyndavika hefst í Regnboganum í dag
í dag, laugardag, hefstfrönsk
kvikmyndavika í Regnbogan-
um. Sýndarveröasex myndir
frá árunum 1986 og 1987, og
verða þrjár þeirra meö ensk-
umtexta.
Myndin sem sýnd verður í dag
heitir Á veraldar vegi (Le grand
chemin) og er eftir Jean-Loup
Hubert. Þar segir frá sumardvöl
níu ára Parísardrengs í sveita-
þorpi í Bretagne árið 1959, þar
sem hann kemst að ýmsu um
gang lífsins.
Aðrar myndir á dagskrá kvik-
myndavikunnar eru Ógöngur (Le
lieu de crime) eftir André Téc-
hine, Munkurinn og nornin (Le
moine et la sorciére) eftir Sus-
anne Schiffmann, Tengibrúin
(La passerelle) eftir Jean Claude
Sussfeld, Baton rouge eftir Rac-
hid Bouchareb, Sjöunda víddin
(La septiéme dimension) eftir
Laurent Dussault og sex aðra
kvikmyndargerðarmenn sem
túlka sömu söguna hver á sinn
hátt, og loks verður sýnd myndin
Thérese eftir Alain Cavalier, en
sú mynd var sýnd hér á franskri
kvikmyndaviku 1987.
Gestir kvikntyndavikunnar eru
leikarinn Tcheky Karyo, sem
leikur munkinn í Munkurinn og
nornin, en sú mynd segir frá dom-
inikanamunki sem kemur í þorp
eitt árið 1239 til að uppræta þar
villutrú. Auk þess er búist við að
André Téchiné verði viðstaddur
sýningu á Ógöngum. LG
Munkurinn og nornin, Christine Boisson og Tcheky Karyo.
Leikurinn er óbreyttur, en nú eru 10 raðir á sama miðanum til hagræðingar fyrir aila Lottóleikendur.
Eftir sem áður er þér í sjálfsvald sett hve margar raðir þú notar hverju sinni.
f / Hærri vinningar!
/ Meö leiöréttingu í samræmi viö
/ verölagsþróun munu vinningar
/ hækka að meöaltali um 20% og er
/ þaö fyrsta verðbreyting frá því
' Lottóiö hóf göngu sína í nóvember
1986.
Hver leikröð kostar nú 30 krónur!
Nældu þér í nýjan miöa á næsta sölustað!