Þjóðviljinn - 20.04.1988, Page 1

Þjóðviljinn - 20.04.1988, Page 1
Miðvikudagur 20. apríl 1988 89. tölublað 53. árgangur Enga mjólk verður að fá eftir helgi vegna þess að engar pantanir verða afgreiddar fráMjólkursamsölunni eftir daginn í dag vegna fyrirhugaðs verkfalls verslunarmanna. Ungi maðurinn á myndinni fær þó ekkert frí því mjólkin verður unnin í osta og duft. Mynd: Sig. Verslunarmenn MJOLK EFTIR HELGI Fyrirhugað verkfall verslunarmanna farið að hafa áhrif ápantanir á mjólk. Undanþágur veittar fyrir dagblöð. Flug lamast. Borgarráð: Lágmarkslaun ekki undir42 þúsundum. Forseti borgarstjórnar: Styð tillöguna heilshugar Engar mjólkurpantanir verður hægt að afgreiða frá Mjólkur- samsölunni eftir daginn í dag vegna fyrirhugaðs verkfalls versl- unarmanna sem skellur að öllum líkindum næstkomandi föstudag. Þó verður engri mjólk hellt nið- ur, heldur verður hún unnin í osta og duft. Verkfallsstjórn VR hefur ákveðið að veita dagblöðum undanþágu frá komandi verkfalli þar sem þau séu nauðsynleg til upplýsingaöflunar. Á fundi borgarráðs í gær mælti Sigurjón Pétursson, borgarfull- trúi Alþýðubandalagsins, fyrir sameiginlegri tillögu minnihluta- flokkanna í borgarráði, þar sem segir að lágmarkslaun borgar- starfsmanna verði ekki undir 42 þúsundum króna á mánuði fyrir fullan vinnudag. Afgreiðslu til- lögunnar var frestað en forseti borgarstjórnar, Magnús L. Sveinsson, styður tillöguna heilshugar. Sjá bls. 2 Mölinni mokað í Tjömina Sjónvarpið Ingvi Hrafn látinn víkja Markús Örn Antonsson hefur vikið Ingva Hrafni Jónssyni fréttastjóra sjónvarpsins úr starfi og var ekki getið um ástæður þess í uppsagnarbréfinu sem barst Ingva Hrafni í gærmorgun. Markús Örn segir að þetta sé endanleg ákvörðun sín, tekin að vandlega athuguðu máli. Ingvi Hrafn segir að hann líti stoltur yfir farinn veg en hefði kosið að starfsferli sínum á sjón- varpinu lyki með öðrum hætti. Sjá bls. 3 Nú hefur verið hafist handa við að fylla Tjörnina á því svæði sem kallað er vinnusvæðið fyrir ráð- húsið. Vörubílar moka nú hverju hlassinu á fætur öðru af möl í þetta svæði en endur og álftir fylgjast forvitnar með. Sjá bls. 3 Karfa Haukar íslands- meistarar Pálmarmeð 11 þriggja stiga körfur „Þetta var einn rosalegasti úr- slitaleikur fyrr og síðar,“ sagði Einar Bollason að leikslokum eftir að liðið sem hann setti upp fyrir 5 árum vann íslandsmeist- aratitilinn í körfubolta. Það eru líklega orð að sönnu því leikurinn var tvíframlengdur þegar Haukum hafði í bæði skiptin tekist að jafna á síðustu sekúndum. Þeir voru enn á ferð- inni undir lokin þegar Reynir skoraði úrslitakörfuna 3 sekúnd- um fyrir leikslok. Sjá bls.15

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.