Þjóðviljinn - 20.04.1988, Qupperneq 1
Miðvikudagur 20. apríl 1988 89. tölublað 53. árgangur
Enga mjólk verður að fá eftir helgi vegna þess að engar pantanir verða afgreiddar fráMjólkursamsölunni
eftir daginn í dag vegna fyrirhugaðs verkfalls verslunarmanna. Ungi maðurinn á myndinni fær þó ekkert frí
því mjólkin verður unnin í osta og duft. Mynd: Sig.
Verslunarmenn
MJOLK
EFTIR
HELGI
Fyrirhugað verkfall
verslunarmanna farið að hafa áhrif
ápantanir á mjólk. Undanþágur
veittar fyrir dagblöð. Flug lamast.
Borgarráð: Lágmarkslaun ekki
undir42 þúsundum. Forseti
borgarstjórnar: Styð tillöguna
heilshugar
Engar mjólkurpantanir verður
hægt að afgreiða frá Mjólkur-
samsölunni eftir daginn í dag
vegna fyrirhugaðs verkfalls versl-
unarmanna sem skellur að öllum
líkindum næstkomandi föstudag.
Þó verður engri mjólk hellt nið-
ur, heldur verður hún unnin í osta
og duft.
Verkfallsstjórn VR hefur
ákveðið að veita dagblöðum
undanþágu frá komandi verkfalli
þar sem þau séu nauðsynleg til
upplýsingaöflunar.
Á fundi borgarráðs í gær mælti
Sigurjón Pétursson, borgarfull-
trúi Alþýðubandalagsins, fyrir
sameiginlegri tillögu minnihluta-
flokkanna í borgarráði, þar sem
segir að lágmarkslaun borgar-
starfsmanna verði ekki undir 42
þúsundum króna á mánuði fyrir
fullan vinnudag. Afgreiðslu til-
lögunnar var frestað en forseti
borgarstjórnar, Magnús L.
Sveinsson, styður tillöguna
heilshugar.
Sjá bls. 2
Mölinni mokað
í Tjömina
Sjónvarpið
Ingvi
Hrafn
látinn
víkja
Markús Örn Antonsson hefur
vikið Ingva Hrafni Jónssyni
fréttastjóra sjónvarpsins úr starfi
og var ekki getið um ástæður þess
í uppsagnarbréfinu sem barst
Ingva Hrafni í gærmorgun.
Markús Örn segir að þetta sé
endanleg ákvörðun sín, tekin að
vandlega athuguðu máli.
Ingvi Hrafn segir að hann líti
stoltur yfir farinn veg en hefði
kosið að starfsferli sínum á sjón-
varpinu lyki með öðrum hætti.
Sjá bls. 3
Nú hefur verið hafist handa við
að fylla Tjörnina á því svæði sem
kallað er vinnusvæðið fyrir ráð-
húsið. Vörubílar moka nú hverju
hlassinu á fætur öðru af möl í
þetta svæði en endur og álftir
fylgjast forvitnar með.
Sjá bls. 3
Karfa
Haukar
íslands-
meistarar
Pálmarmeð 11
þriggja stiga körfur
„Þetta var einn rosalegasti úr-
slitaleikur fyrr og síðar,“ sagði
Einar Bollason að leikslokum
eftir að liðið sem hann setti upp
fyrir 5 árum vann íslandsmeist-
aratitilinn í körfubolta.
Það eru líklega orð að sönnu
því leikurinn var tvíframlengdur
þegar Haukum hafði í bæði
skiptin tekist að jafna á síðustu
sekúndum. Þeir voru enn á ferð-
inni undir lokin þegar Reynir
skoraði úrslitakörfuna 3 sekúnd-
um fyrir leikslok.
Sjá bls.15