Þjóðviljinn - 20.04.1988, Blaðsíða 2
Eldborgin á uppboð
Allar líkur benda til þess að aflaskipið Eldborg HF 13 fari undir
hamarinn á næstunni vegna skulda, en skipið var smíðað í Danmörku
fyrir tíu árum. Þórður Helgason, vélstjóri segir aðalástæðuna fyrir því
hvernig komið er vera vaxtastefnuna og einnig að skipið fái ekki
verkefni sem skyldi, en það hefur td. engan þorskkvóta. Á síðustu
loðnuvertíð kláraði skipið loðnukvótann sinn 13. mars, um 22.700
tonn.
Vísitalan hækkar
Vísitala byggingarkostnaðar hækkaði á síðustu þremur mánuðum
um 3,2% og samsvarar það 13,3% árshækkun. Síðastliðna tólf mánuði
hefur hún þá hækkaðum 15,4%. Hún ereftir verðlagi íapríl 1988 110,8
stig, eða 1,93% hærri en í mars og gildir í maí. Af hækkuninni stafa
0,8% af hækkun á verði á steypu, 0,2% af hækkun á verði útihurða,
0,2% af hækkun á verði á sandi og sementi og 0,7% af hækkun á verði á
vörum og þjónustu.
Reagan býður Þorsteini í heimsókn
Þorsteinn Pálsson hefur þegið boð Ronalds Reagan Bandaríkja-
forseta, um að koma í opinbera heimsókn til Bandaríkjanna. Heim-
sóknin hefur verið ákveðin 16. maí n.k.
Árshátíð Grikklandsvina
Aðalfundur og árshátíð Grikklandsvinafélagsins Hellas er í kvöld.
Fundurinn er í Geirsbúð en strax að honum loknum, eða kl. 20.30,
hefst árshátíðin í Naustinu. Sif Ragnhildardóttir syngur lög eftir Mikis
Þeódórakis við undirleik og Lárus Sveinsson blæs með dætrum sínum í
trompet útfærslur á nokkrum lögum Þeódórakis. Thor Vilhjálmsson
verður ræðumaður kvöldsins.
Tekurðu
inn
lýsi?
Lýsi hf. leitar nú eftir sjálf-
boðaliðum í rannsókn sem fyrir-
tækið vinnur nú að í samvinnu við
háskólann í Wisconsin og með
aðstoð Hjartaverndar. Ánnar-
svegar leitar Lýsi að þeim sem
tekið hafa inn lýsi, ufsa- eða
þorskalýsi, reglulega undanfarin
5-10 ár og hafa tekið a.m.k. eina
matskeið á dag og hinsvegar að
þeim sem ekki taka inn lýsi, en sá
hópur á að vera til viðmiðunar.
Æskilegur aldur er 45-65 ára.
Þeir sem sjá sér fært og hafa
áhuga á að taka þátt í þessari til-
raun hafi samband við Lýsi hf. í
síma 28777.
Frosinn fiskur til Sovét
Samningar hafa tekist við sovéska fyrirtækið Sovrybflot um sölu á
frystum fiski til Sovétríkjanna. Sovétmenn munu kaupa 10.700 tonn af
frystum fiski og skiptist magnið þannig að þeir kaupa 9.500 tonn af
flökum og 1.200 tonn af heilfrystum fiski. Samningurinn var gerður í
dollurum að venju og var meðalverðið tæpum 6% hærra en í samningi
síðasta árs. Seljendur eru Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna og Sjávaraf-
urðadeild Sambandsins.
Byggjum kaupleiguíbúðir!
Aðalfundur Dagsbrúnar 13.apríl og fundur framkvæmdastjórnar
VMSÍ 15. apríl samþykktu sömu ályktunina um húsnæðismál. Þar
fagna samtökin framkomnu frumvarpi um kaupleiguíbúðir og skora á
Alþingi að sjá til þess að frumvarpið verði að lögum þegar á þessu þingi
svo hægt verði að hefjast handa um byggingu kaupleiguíbúða.
Bankinn eins og blóm í eggi
Samvinnubankinn hagnaðist á síðasta ári um rúmar 38 miljónir
króna. Veðdeild og Stofnlánadeild högnuðust um 10 miljónir svo
heildar hagnaður rekstrarreikninganna þriggja var 48 miljónir króna á
síðasta ári. Innlán hækkuðu að raungildi um 8,2%. Guðjón B. Ólafs-
son, formaður bankaráðs, tilkynnti á aðalfundi bankans, sem var
haldinn 14. apríl sl., að ákveðið hefði verið að gefa út nýtt hlutafé að
upphæð 100 miljónir krónur.
Afmælisráðstefna Iðntæknistofnunar
Iðntæknistofnun íslands heldur ráðstefnu um reynslu iðnfyrirtækja
afrannsókna- og þróunarstarfsemi að Hótel Söguídag,20. aprfl. Tveir
erlendir gestir sem hvor um sig eru framarlega á sínusviði.hafa verið
fengnir til að heiðra ráðstefnuna og að auki innlendir fyrirlesarar.
FRÉTTIR
Verkföll
Mjólkurskortur
Verkfall verslunarmannafarið að hafa áhrif Framleiðsla í
Mjólkursamsölunni stöðvast íkvöld. Mjólkurpantanir hafa
Síðustu mjólkurdroparnir
verða keyrðir í verslanir á
föstudag. Engar pantanir verður
hægt að afgreiða eftir daginn í
dag vegna verkfalls verslunar-
manna
Pétur Sigurðsson hjá Mjólk-
ursamsölunni sagði að ekki kæmi
til þess að mjólk yrði hellt niður.
Hún yrði unnin í osta og duft
bæði á Selfossi og í Borgarnesi.
Þegar Þjóðviljinn leit inn hjá
Mjólkursamsölunni í gær var
aukist mikið
mikið að gera í útkeyrslu þar sem
pantanir höfðu aukist mikið.
Vegna verkfalls skrifstofufólks
verður ekki hægt að afgreiða
neinar pantanir eftir daginn í dag.
Framleiðsla stöðvast því í kvöld.
Pétur sagðist reikna með því að
sótt yrði um undanþágu fyrir
stofnanir eins og sjúkrahús. Hins
vegar færu þeir ekki af stað fyrir
nokkur hundruð lítra á dag. Enn
ætti eftir að koma í ljós hvort ein-
hverjar undanþágur yrðu veittar,
og þá hverjum.
Eiríkur Þorkelsson stöðvar-
stjóri sagðist hafa nóg fyrir sitt
fólk að gera þótt framleiðsla
stöðvaðist. Þrátt fyrir mikið
hreinlæti mætti alltaf gera betur.
Þannig að starfsmenn yrðu í
þrifum, drægist verkfall á lang-
inn.
Svo getur farið að skortur verði
á ostum og smjöri í þeim verslun-
um sem verða opnar. Bílstjórar
Osta- og smjörsölunnar eru í VR
eins og flestir starfsmenn þar.
-hmp.
Borgarráð
Engin laun undir 42 þús.
Sameiginleg tillaga minnihlutaflokkanna. Gildistímifrá ogmeð 1. maínk. Forseti
borgarstjórnar: Styð tillöguna heilshugar
Itilefni af réttmætum yfirlýsing-
um forseta borgarstjórnar um
að ósæmilegt sé að greiða fyrir
fullan vinnudag laun undir skatt-
leysismörkum, hefur Sigurjón
Pétursson, borgarfulltrúi Al-
þýðubandalagsins, mælt fyrir til-
lögu minnihlutaflokkanna í borg-
arráði um að mánaðarlaun borg-
arstarfsmanna verði frá og með
1. maí nk. ekki lægri en 42.414
krónur miðað við mánaðarlega
dagvinnu og núgildandi launa-
flokkar með lægri krónutölu falli
úr gildi frá sama tíma.
Tillagan gerir ráð fyrir því að
lægsti launaflokkur sem borgin
greiði eftir verði því sá 236. í
launastiga borgarstarfsmanna og
sambærilegrur hjá öðrum við-
semjendum borgarinnar. Fólk
raðist í launaþrep eftir starfs- og
lífaldri á sama hátt og nú er.
Jafnframt segir í tillögunni að
hlutastörf, tímakaup, álags-
greiðslur og yfirvinna taki mið af
því sama, það er að segja launa-
flokkar, sem nú eru undir 236.
flokki og sambærilegir taxtar
þurrkist út, en 236. launaflokkur
verði viðmiðun þeirra sem nú eru
flokkaðir neðar.
Á fundi borgarráðs í gær var
afgreiðslu tillögunnar frestað og
kemur hún að öllum líkindum til
afgreiðslu á næsta borgarráðs-
fundi, sem verður haldinn 26.
apríl nk. og á næsta fundi borgar-
stjórnar sem verður
fimmtudaginn 5. maí nk.
Magnús L. Sveinsson, forseti
borgarstjórnar og formaður
V.R., sagði við Þjóðviljann að
hann fagnaði því að þessi tillaga
hefði verið lögð fram og hann
styddi hana heilshugar. „Að
sjálfsögðu er ég samkvæmur
sjálfum mér og styð þessa fram-
komnu tillögu um að hækka laun
borgarstarfsmanna sem eru undir
skattleysismörkum; annað dettur
mér ekki í hug. Þetta er það sem
við erum að berjast fyrir að ná í
gegn hjá viðsemjendum okkar,
en því miður virðist ekki vera
mikill skilningur fyrir því hjá
þeim, með þeim afleiðingum að
allt virðist stefna í verkfall frá og
með næsta föstudegi," sagði
Magnús L. Sveinsson. -grh
Ólafur Gísli Kristjánsson fulltrúi Pathfinder með bæklinginn og bókina
Mynd E.ÓI.
„Veröum eins og Che“
ISóknarsalnum, Skipholti 50a,
verður í kvöld kl. 20.00 kynn-
ing á nýútkominni bók sem hefur
að geyma ítarlegra safn rita og
ræðna kúbanska/argentínska
byltingarmannsins Che Guevara
en áður hefur verið til. Bókafor-
lagið Pathfinder gefur bókina út
en hún er á ensku og heitir „Che
Guevara and the Cuban Revoluti-
on“.
Aukinheldur verður kynntur
bæklingur með minningarræðu
Fidels Castro um Che Guevara
sem hann hélt 8.október 1987, 20
árum eftir að Che var myrtur af
bólivískum hermönnum. Bækl-
ingurinn heitir „Verðum eins og
Che“ og er á íslensku.
Sendiherra Kúbu á íslandi,
Dennys Guzmán Perez ávarpar
gesti, ásamt David Deutsch-
mann, ritstjóra bókarinnar og
Pritz Dullay frá Afríska þjóðar-
ráðinu. Einnegin tala Ingibjörg
Haraldsdóttir rithöfundur, for-
maður Vináttufélags íslands og
Kúbu (VÍK) og Kristinn H. Ein-
arsson sem var fulltrúi BÍSN á
námsmannaráðstefnu á Kúbu
1987.
-tt
Suðurnes
Völlurinn
lokast
Verslunarmannafélag Suður-
nesja hefur hafnað öllum undan-
þágubeiðnum frá Keflavíkurflug-
velli og mun því Völlurinn lokast
fyrir flugumferð íslenskra milli-
landavéla um leið og verkfallið
skellur á. Bæði Flugleiðir og Arn-
arflug sóttu um undanþágu, svo
og Varnarliðið og íslenskur
markaður í flugstöðinni, en sem
fyrr greinir var öllum beiðnunum
hafnað.
-FRI
Prentarar
Yfirvinnu-
stöðvun
í Odda
Prentarar í Odda hafa ekki
unnið neina yfirvinnu upp á síð-
kastið. Þeir eru með því að reyna
að knýja á um viðurkenningu á
starfsaldurshækkunum þeim sem
bókagerðarmenn sömdu um við
Félag íslenska prentiðnaðarins og
VSÍ en Oddaverjar lækka yfir-
borganir I réttu hlutfalli við
starfsaldurshækkanir.
Afleiðingarnar af þessari yfir-
vinnustöðvun eru tii dæmis þær
að Vikan kemur ekki út eins og
venjulega.
-tt
2 SlÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 20. apríl 1988