Þjóðviljinn - 20.04.1988, Page 8
Gönguferðir
Aðfáfólk
til að ánetjast
Einar Egilsson, Útivist: Ferðasyrpurnar hafa mœlst vel fyrir
Meðal nýjunga í styttri ferð-
um hjá ferðafélögunum eru
svokallaðar ferðasyrpur,
tengdar ferðir, og virðast hafa
fengið hljómgrunn hjá áhuga-
fólki um útiveru og gönguferð-
ir. Ferðafélagið gekkst fyrir
Reykholtsgöngu í fyrra og í ár
stendur Utivist fyrir þremur
ferðasyrpum. í eftidarandi
spjalli segir Einar Egilsson
sem sæti á í ferðanefnd Úti-
vistar nánar frá þessari ferða-
nýjung, en fyrst spurðum við
hann um aðdragandann.
Hugmyndin að þessum ferða-
syrpum á sér nokkurn adrag-
anda, segir Einar. Við höfðum
áður verið með þjóðleið mánað-
arins á dagskránni, og þær ferðir
urðu til að koma okkur á sporið.
Eins höfum við verið með fasta
liði á hverju ári: til dæmis
kaupstaðarferð á frídegi vers-
lunarmanna og kræklingaferðir
tvisvar þrisvar á ári, og þetta hef-
ur fengið góðar undirtektir.
Sú hugmynd varð síðan til að
fylgja ströndinni - Strandganga í
landnámi Ingólfs - frá Reykjavík
að Ölfusárósum í 22 áföngum, og
núna seinnipartinn í apríl erum
við hálfnuð; fórum í 11. ferðina
um síðustu helgi og lögðum þá
upp frá Innri-Njarðvíkurkirkju
og fórum um Vatnsnes og Hólms-
berg.
Minjar um
mannavist...
í kynningarbæklingnum ykkar
segist þið leggja sérstaka áherslu
á náttúrufar, örnefni, mann-
vist...
Já, og til að koma því í kring
höfum við lagt áherslu á að fá
staðarfrótt fólk í ferðirnar til að
skýra frá því sem ber fyrir augu.
Áherslurnar eru að vonum mis-
munandi eftir því fólki sem tekur
verkefnið að sér, og eins stöðum
þeim sem farið er um. En eins og
Strandgönguheitið á ferðasyrp-
unni ber með sér er það ekki síst
fjaran með því lífi sem í henni er
sem við leggjum okkur eftir.
Þetta eru léttar göngur um fjöl-
breytilegt svæði, og jafnan stutt í
bílinn sem fylgir okkur.
Það er ekki á þér að heyra að
þessar ferðir séu neinar sérstakar
þrekraunir; hvernig hefur ykkur
gengið að koma því til skila til
fólks?
Það má kannski segja að við í
ferðafélögunum ættum að kynna
það betur hvað felst í þessum
styttri ferðum. Þeir eru ófáir sem
virðast halda að það sé meiri hátt-
ar mál að slást í hópinn, menn
verði að vera í toppformi og eiga
fullkominn útbúnað. En auðvit-
að förum við ekki hraðar yfir en
sá sem hægast gengur, og því er
ekkert sem mælir gegn því að fólk
taki ungabörn með sér, sérstak-
lega þegar kemur fram á sumar-
ið. Og reyndar er slík þátttaka
hinna yngstu að aukast.
-Það má segja að meginmálið
sé að brjóta ísinn; ef fólk hefur sig
í að taka þátt í tveimur þremur
gönguferðum þá ánetjast það og
kemur síðan með aftur og aftur.
Þetta er afskaplega afslappandi
viljum við meina: Ef þú vilt ganga
einn þá geturðu gert það, ef þig
langar til að taka einhvern tali þá
læturðu verða af því, og hefur
þína hentisemi svona nokkurn
veginn. Auðvitað höfum við far-
arstjóra til að halda utan um
hverja göngu, en það er frjálsleg
stjórn sem þeir inna af hendi.
Ég finn það á sjálfum mér að
maður hefur gott af þessari hreyf-
ingu, bæði líkamlega og andlega,
og tel reyndar að ekki sé völ á
betri líkamsrækt. Sjálfur hef ég
verið þjáður af brjósklosi, en hef
fengið mikinn bata í gönguferð-
um.
Þið eruð gjarnan mcð lengri og
styttri útgáfu af sama ferðasyrpu-
áfanganum...
Já, það er nú hugsað til að
koma til móts við sem flesta, bæði
þá sem vilja þokkalega dagsferð
og eins hina sem hentar styttri
ganga, til dæmis barnafólk. Fyrri
áfanginn hefur byrjað klukkan
hálfellefu að morgni, en hinn
seinni klukkan eitt eftir hádegi,
og sameinast þá hinum fyrri.
Ánægja með
undirtektirnar
Hefur þátttakan verið góð?
Við erum ánægð með undir-
tektirnar. Milli 30 og 60 manns
hafa jafnaðarlega tekið þátt, og
við reiknum með meiri þátttöku
þegar vorar. Bæði vegna vor-
komunnar sjálfrar með hækkandi
sól og hlýrra veðri, og eins hafa
skíðavertíðarlokin sitt að segja.
Ég neita því þó ekki að við vor-
um svolítið kvíðin í upphafi. Við
hófum þessa ferðasyrpu 3. janúar
í Grófinni - enda ekki annað við
hæfi þar sem við leggjum
landnám Ingólfs undir fót - og
gengum út í Órfirisey og út á Sel-
tjarnarnes. Við bjuggumst nú
ekki við neinni rífandi þátttöku
innanbæjar, en fengum þó sjötíu
og fjóra göngumenn í þennan
fyrsta áfanga þrátt fyrir kalsaveð-
ur.
Er þetta mikið sama fólkið sem
hcfur tekið þátt í strandgöng-
unni?
Allmargir hafa komið í þær
flestar og tveir fullorðnir menn
hafa tekið þátt í þeim öllum, en
langalgengast er að fólk komi
MANNLIF
7
Einar Egilsson, ferðanefndarmaður hjá Útivist, staddur í sýningarsal
Náttúrufræðistofnunar. í strandgöngunni er gengið um fjögur fugla-
björg; Vogastapa, Hólmsberg, Hafnaberg og Krísuvíkurbjarg. Mynd:
Sig.
með öðru hverju. í þessu sam-
bandi langar mig til að leiðrétta
ákveðinn misskilning sem ég held
að aftri mörgum frá þátttöku hjá
ferðafélögunum, en hann er sá að
þetta sé alltaf sama fólkið sem
þarna er á rölti, einhver lokuð
klíka. Þetta er fjarri öllum sanni
sem betur fer.
Strandgöngunni lýkur við Ölf-
usárósa í byrjun október eftir
ferðaáætluninni. Eru uppi ráða-
gerðir um að loka landnáms-
hringnum ef svo mætti segja;
leggja Kjalarnes undir fót svo og
Hvalfjarðarströndina?
Slíkt hefur komið til tals, og
það er vel hugsanlegt að af því
verði á næsta ári. Og þessi til-
högun - ferðasyrpurnar - gefa í
rauninni margháttaða möguleika
á því að taka fyrir ný og áhuga-
verð svæði. Til dæmis hefur
Hengillinn orðið sárlega út
undan hjá okkur og við höfum
mikinn hug á að kanna hann nán-
ar. Eins mætti tiltaka Lönguhlíð-
ina, hálendið upp af Grinda-
skörðum, Selvogsheiðina og þar í
kring.
...aóeins
mismunandi flatt
Strandgangan er ekki eina
ferðasyrpan hjá ykkur í ár, þið
eruð með Þingvallaþjóðleiðir og
einnig Fjallahringinn. Væntan-
lega er síðarnefnda syrpan ekki
fyrir hvern sem er?
Kannski ekki alveg, nei, en
þarna er þó tækifæri til að byrja á
léttum fjallgöngum og bæta síðan
smám saman við sig. Við göngum
á tíu fjöll með tiltölulega stuttu
millibili og byrjum áþvílægstaog
endum á því hæsta.
Fjallahringurinn hjá okkur
hófst með göngu á Keili 10. apríl
síðastliðinn. Keilir er ekki nema
378 metra hár, og næstu fjöll eru
einnig mjög auðveld. Síðan smá-
þyngist þetta, og lýkur með ferð á
hátind Ésju seinnipartinn í ágúst
og loks Skarðsheiði um miðjan
september, en þar förum við í
1053 metra hæð.
Ef fólk byrjar á byrjuninni þá
getur það byggt sig upp og tekist á
við seinni áfangana líka.
HS
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 20. apríl 1988