Þjóðviljinn - 20.04.1988, Síða 15
ÍÞRÓTTIR
„ALVEG ROSALEGT!!!!“
Haukar íslandsmeistarar eftir að hafa unnið fyrrverandi meistara Njarðvíkinga 91 -92 í tvíframlengdum
leik. Einn langbesti og mest spennandi leikurinn í vetur. Pálmarmeð 11 þriggja stiga körfur ogþaraf
eina á lokasekúndunum
Henning stígur trylltan dans um leið og flautan gellur. Hann átti stór-
góðan leik í gærkvöldi, var annar markahæsti leikmaður Hauka og
mjög góður í vörninni.
„Þetta er einn rosalegasti úr-
slitaleikur fyrr og síðar og ég hef
orðið vitni að þeim mörgum,“
sagði Einar Bollason eftir leikinn
en hann lagði einmitt grunninn að
sigurliðinu fyrir 5 árum.
Haukar byrjuðu leikinn á því
að skora tværþriggja stiga körfur
og voru þar Olafur Rafnsson og
Pálmar að verki. ívar Webster
hirti öll fráköst og eftir nokkrar
mínútur var staðan orðinn 2-14
Haukum í vil. Njarðvík náði að
gera nokkrar körfur en Gaflar-
arnir höfðu góða forystu 4-14, 6-
19 og 11-25. Njarðvíkingar voru
ekki á þeim buxunum að gefast
upp, tóku að þétta vörnina og
Valur tók til við þriggja stiga
skotin. Þeir náðu að minnka for-
skotið í 20-25 og þegar 2 mínútur
voru til leikhlés voru þeir aðeins 1
stigi undir 33-34. Þeir fengu góð
færi á að jafna en gátu ekki nýtt
sér þau, liðin skiptust á að skora
og staðan í leikhléi var 37-39.
Njarðvíkingar byrjuðu síðari
hálfleikinn á því að jafna leikinn
39-39 en Haukar náðu aftur yfir-
höndinni 39-45. Liðin skiptust
síðan á að skora en með góðri
rispu tókst heimamönnum að
Njarðvík 19. apríl
Úrslitaleikur úrvalsdeildarinnar
Njar&vík-Haukar 91 -92 (37-39) (66-
66) (79-79)
Stig Njarövíkur: Valur Ingimundarson 33,
Teitur Örlygsson 22, Hreiðar Hreiðarsson
12, Isak Tómasson 7, Sturla Örlygsson 7,
Helgi Rafnsson 6, Friörik Ragnarsson 4.
5 villur: Sturla Örlygsson.
Stig Hauka: Pálmar Sigurðsson 43, Henn-
ing Henningsson 16, Ivar Ásgrímsson 14,
Ingimar Jónsson 6, Ivar Webster 6, Reynir
Kristjánsson 4, Ólafur Rafnsson 3.
5 villur: Henning Henningsson, Ivar
Webster.
Dómarar: Kristinn Albertsson og Ómar
Scheving voru góðir. „tp
Fótbolti
Ótníleg
fólska
Ástralski knattspyrnumaður-
inn Gary Modowall hefur verið
dæmdur í bann frá knattspyrnu
fram yfir ólympíuleikana í Kór-
eu. Það er til komið vegna þess að
í leik Ástralíu og ísrael í unda-
nkeppni ólympíuleikanna stapp-
aði hann á höfði eins ísraelans
þar sem hann lá slasaður á jörð-
inni.
komast yfir 53-50. Njarðvíkingar
þéttu vörnina enn meir og
Haukar náðu um tíma ekki að
skjóta á þeim 30 sekúndum sem
þeir höfðu í sókn og þeim gekk
einnig illa að hitta ofan í körfuna.
Þegar 3 mínútur voru til leiksloka
höfðu Njarðvíkingar náð sex
stiga forskoti 64-58. Þá voru
nokkrir hætt komnir í villunum
og Helgi Rafnsson, ísak Tómas-
son, Sturla Örlygsson og ívar
Webster voru alíir með 4 villur.
Pálmar náði að minnka muninn í
64-63 en Sturla jók hann aftur í
66-63 þegar minna en mínúta var
eftir af leiknum. En Pálmar hafði
ekki sagt sitt síðasta orð og náði
að skora þriggja stiga körfu þegar
aðeins 2 sekúndur lifðu af
leiknum þannig að jafnt var að
leikslokum 66-66.
Framlengt
ívar Ásgrímsson kom Haukum
strax yfir í framlengingunni og
Pálmar bætti um betur með
þriggja stiga körfu að sjálfsögðu.
Njarðvíkingar hertu enn á sér og
var vörnin með ísak, Friðrik eða
Teit fremstan mjög góð.
Haukum gekk illa að hitta ofan í
og misstu boltann nokkrum sinn-
um eftir að hafa ekki reynt í 30
sekúndur. Þessi barátta dugði til
að komast yfir 74-73 en síðan var
jafnt 74-74 og 77-77. Valur
skoraði tvö stig þegar 11 sekúnd-
ur voru til leiksloka en eftir mik-
inn darraðardans undir körfu
heimamanna tókst fvari Ás-
grímssyni að jafna á lokasekúnd-
unum 79-79.
Enn framlengt
Gífurleg spenna var í húsinu í
lokakaflanum þegar liðin skipt-
ust á að skora og þegar 30 sek-
úndur voru til leiksloka skoraði
Pálmar þriggja stiga körfu og
kom liði sínu yfir 88-90. Valur
braust þá af miklu harðfylgi í
gegn, náði að koma boltanum
ofan í körfuna en brotið var á
honum þannig að hann fékk víta-
skot að auki þegar aðeins 11 sek-
úndur voru til leiksloka. Valur
skoraði úr vítinu og boltanum var
þrumað fram en þar var fyrir
Reynir Kristjánsson sem kom
honum ofan í körfuna á lokasek-
úndunum þannig að Haukar urðu
íslandsmeistarar 91-92.
Pálmar með 43 stig
Njarðvíkurliðið var gott í þess-
um leik og var vörnin þegar hún
komst í lag alveg skotheld þó að
þeim tækist ekki að sjá við öllu.
Pálmar hetja Hauka skorar eina af þriggja stiga körfum sínum og dugðu hvorki Helgi né l’sak í að koma í veg
fyrir það.
Þeir höfðu þó lítið að gera í frá-
köstin. ísak stjórnaði spilinu eins
og herforingi að venju og var
einnig mjög góður í vörninni.
Bein
útsending
Ríkissjónvarpið verður með
beina útsendingu frá undanúrs-
litum Evrópukeppninnar í dag
kl. 17.25. Þar verða PSV Eindho-
ven og Real Madrid á skjánum og
gefst áhorfendum kostur á að sjá
tvö af stórliðum Evrópuknatt-
spyrnunnar.
I kvöld
Fótbolti
Gervigras kl.20.30
Fylkir-Víkingur í Reykjavíkur-
mótinu.
Friðrik var líka mjög góður í vörn
og þegar hann leysti ísak af í
sókninni vai lítill munur á þeim.
Haukarnir máttu ekki líta af Val
þá var hann farinn að skjóta og
skoraði yfirleitt. Helgi var mest
framanaf að stjaka við ívari We-
bster en sneri sér samt að
leiknum þegar á leið. Sturla og
Hreiðar voru mjög góðir. Hjá
Haukunum bar mest á Pálmari.
Hann skoraði 11 þriggja stiga
körfur í leiknum og stjórnaði lið-
inu af stakri snilld. ívar Webster
hirti svotil öll fráköst í leiknum en
var oft illa leikinn af andstæðing-
unum. Henning var mjög iðinn í
leiknum, alltaf á ferðinni og lék
sig oft frían undir körfunni. ívar
Ásgrímsson og Óli Rafnsson
voru mjög góðir, sérstaklega þeg-
ar leið á leikinn. Reynir er mjög
vaxandi leikmaður. Eftir frekar
slaka leiki fyrr í vetur er hann
allur að koma til og stóð sig nokk-
uð vel í þessum leik. Ingimar sást
lítið í leiknum og það var ekki
fyrr en undir lokin að hann tók sig
verulega á. Dómararnir dæmdu
þarna langan og harðan leik en
stóðu sig vel miðað við það. Þeir
gerðu samt nokkur mistök enda
eins og fyrr sagði mjög erfitt að
dæma svona leik.
GLASGOW
3 x í viku
FLUGLEIÐIR
-fyrír þíg-
Miðvikudagur 20. apríl 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15