Þjóðviljinn - 17.06.1988, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 17.06.1988, Blaðsíða 13
Bandaríkin Mútur, svik og prettir í Pentagon Rannsaka tengsl hergagnaframleiðenda og ríkisstjórnarinnar 15 fyrirtæki sem framleiða vopn og yfír 40 einkaheimili starfsmanna þeirra og hins opin- bera hafa verið undir smásjá FBI og dómsmálaráðuneytisins að undanförnu. Skrifstofur Pentagon hafa einnig verið hleraðar og grunur leikur á að tveir yfirmenn þar sem annast samninga við hergagna- framleiðendur séu sekir um að hafa þegið mútur í alit að tvö ár. Upplýsingar voru keyptar af op- inberum starfsmönnum ráðu- neytisins og seldar á allt að 50 sinnum hærra verði í hendur hergagnafyrirtækja. Einnig er ljóst að upplýsingar voru borgað- ar í bflum og með því að greiða reikninga viðkomandi opinberra starfsmanna. Dómsmálaráðuneytið og FBI notuðu yfir 200 símhlerunartæki til að framkvæma rannsóknina sem fór fram í 12 fylkjum lands- ins. Öll helstu fyrirtækin í brans- anum voru rannsökuð. Á þriðjudaginn bað Reagan forseti um að rannsókninni yrði hraðað og daginn eftir var farið inn á fjölmörg einkaheimili og þá varð öllum ljóst hvað var á seyði. Reuter/-gsv. ERLENDAR FRETTIR -----------———-----------------1 Fallinna blökkumanna minnst í Soweto. Suður-Afríka Soweto-dagurinn Minnst var fórnarlambanna sem létu lífið 1976 Igær var þess minnst í Suður- Afríku að 12 ár voru liðin frá hryðjuverkum hvíta minnihlut- ans sem framin voru á friðsömum mótmælendum í Soweto skammt frá Jóhannesarborg. Hjá svarta meirihlutanum í landinu er þessi dagur heilagur. Enginn mætir til vinnu og fólk situr heima hjá sér til að minnast fórnarlambanna. 16. júní fyrir 12 árum kom til mótmæla í Soweto vegna þess að hvíti minnihlutinn ætlaði að þvinga móðurmáli sínu inn í kennslu í skólum svartra. Á ein- um mánuði höfðu um 700 manns látið lífið, flest börn sem höfðu orðið fyrir byssukúlum herlög- reglunnar. Þetta er mesta mann- fall sem hefur orðið í baráttunni gegn kynþáttamisréttinu sem hvíti minnihluti landsins heidur til streitu. Það var ekki fyrr en 1984-86 sem verulegt blóðbað varð aftur en á því tímabili voru 2500 manns drepnir. Soweto-dagurinn eins og 16. júní hefur ætíð síðan verið kallað- ur er almennur frídagur og oft hefur komið til uppþota og óeirða á undanförnum árum. Hópur svartra lagði blómsveig að leiði fyrsta fórnarlambsins, 13 ára drengs. Neyðariögum var fyrst komið á 1985 nokkrum dögum fyrir Soweto-daginn og nú voru þau endurnýjuð þriðja árið í röð. Lög þessi fela í sér algjört bann við mótmælum, verkföllum, sam- komum og kröfugöngum. Öryggislögreglan í landinu var í viðbragðstöðu í gær en ekki kom til átaka. Einn maður lét lífið er sprengja sprakk í úthverfi Sow- eto í gær. Áthafnalíf landsins var lamað en það er í annað skiptið á hálfum mánuði sem það fer úr skorðum vegna friðsamlegra mótmæla svarta meirihlutans. Reuter/-gsv. Priðji heimurinn Ennþá hallar undan Fátækrahverfin tvöfaldast á 5-8 árum. 3 miljarðar manna munu búa í kofahreysum og á ruslahaugum um nœstu aldamót Istærsta fátækrahverfi heims, Dharavi, í Bombey á Indlandi koma um 12 þúsund nýir íbúar á degi hverjum og hafa að engu að hverfa. Samkvæmt tölum Sam- einuðu þjóðanna stækka fátækrahverfi stórborga þriðja heimsins með miklum hraða. Tal- ið er að þau tvöfaldist að stærð á 5-8 árum. Nú býr um hálfur annar milj- arður manna í kofahreysum og ruslahrúgum stórborganna. Þetta er um fjórðungur alls mannkyns og nálægt helmingur allra íbúa þriðja heimsins. Leiðtogar ríkja þriðja heimsins virðast hafa takmarkaðan áhuga á því að ráðast gegn þessum hrikalegu vandamálum. Stjórn- málamenn eru margir seldir undir þá sök að nota þessi hverfi sem atkvæðabanka fyrir sig í kosningum. Ekki er óalgengt að heilu hverfin séu undir hæl eiturl- yfjabaróna og glæpamanna sem stjórnmálamenn nota síðan sem atkvæðasmala í kosningum. Lof- orðin eru oft fögur en þegar á reynir standast þau sjaldnast og ástandið fer sífellt versnandi. Á hverjum degi deyja um 40 þúsund börn í þriðja heiminum úr sjúkdómum (t.d niðurgangi) sem hægt væri að fyrirbyggja með því að bæta aðstöðu þessa fólks. Þetta eru 15-20 miljónir barna á ári og fjórum sinnum fleiri leggj- ast til svefns hungruð eða van- nærð. Fæðingardauði og ung- barnadauði er mjög algengur vegna lélegra hreinlætisaðstæðna Fátækrahverfi í Mexíkóborg. og víða myndi ástandið batna við það eitt að fá rennandi vatn. Það viðhorf, að börnin séu besta tryggingin fyrir afkomu fjölskyldunnar gerir það að verk- um að þau byrja ung að vinna. Engin lög eru til sem vernda þau fyrir vinnuþrælkun eða tryggja heilbrigðiseftirlit og menntun þeirra. Þessi staða veldur því að ástandið batnar lítið og þróun í átt til betra lífs er ekki í sjónmáli. Sárgrætilegast við þetta allt saman er sú staðreynd að hér þarf ekki að koma til rándýr tækni eða kostnaðarsöm endurskipulagn- ing og uppbygging heldur fyrst og fremst þekking til að takast á við vandann á staðnum með einföld- um en árangursríkum hætti. -gsv. byggði á Newsveek. Föstudagur 17. júní 1988 ÞJÓÐVILJINN - SiÐA 13 REYKJMJÍKURBORG Alaudtvi Sfödívi Skólaritari Fjölbrautaskólinn í Breiðholti óskar eftir ritara í fullt starf. Vélritunarkunnátta nauðsynleg. Starfið er laust frá og með 10. ágúst. Umsóknir skilist til Skólaskrifstofu Reykjavíkur eða á skrifstofu Fjölbrautaskólans í Breiðholti fyrir 1. júlí n.k. REYKJHIIKURBORG Kaffiumsjón Laust er starf við kaffiumsjón í Ártúnsskóla, 80% starf. Upplýsingar í síma 673500 og í heimasímum hjá skólastjóra 53454 og yfirkennara 45861. HHI REYKJMIÍKURBORG MT JLauteVi Stödun T Arkitekt Laus er til umsóknar staða arkitekts við borgar- skipulag Reykjavíkur. Upplýsingar hjá forstöðu- manni eða Bjarna Reynarssyni, símar: 26102 oq 27355. Auglýsið í Þjóðviljanum

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.