Þjóðviljinn - 17.06.1988, Síða 15
IÞROTTIR
Laugardalsvöllur 16.Jún(
Fram-KR................3-0 (0-0)
1 -0 Guðmundur Steinsson.60.mín
2- 0 PéturOrmslev (víti).61 .mín
3- OGuðmundurSteinsson...78.mín
Lið Fram: Birkir Kristinsson, Þor-
steinn Þorsteinsson, Jón Sveinsson,
Pétur Ormslev, Viðar Þorsteinsson,
Kristinn R. Jónsson, Pétur Arnþórsson
(Helgi Bjarnason 78.mín), Guðmundur
Steinsson, Steinn Guðjónsson, Arn-
Ijótur Oavíðsson (Kristján Jónsson
72.mín), Ormarr Örlygsson.
Lið KR: Stefán Arnarsson, Rúnar
Kristinsson (Heimir Guðjónsson
75.mín), Gylfi Dalmann Aðalsteins-
son, Þorsteinn Guðjónsson, Willum
Þór Þórsson, Jósteinn Einarsson, Ág-
úst Már Jónsson, Gunnar Oddsson,
Björn Rafnsson (Jón G. Bjarnason
75,min), Sæbjörn Guðmundsson, Þor-
steinn Halldórsson.
Spjöld: Ágúst Már Jónsson KR gult.
Dómari: Guömundur Sigurösson.
Maður leiksins: Guðmundur Steins-
son Fram. -ste
Guömundur Steinsson skoraöi
fyrsta markið meö því að koma
sér vel fyrir í teignum áöur en
boltinn kom fyrir markiö.
l.deild
Nú loks er hægt aS segja að
íslandsmótið lofi góðu. Leikurinn
í gærkvöldi bauð uppá gott spil,
góða baráttu og mörk auk fjöl-
margra færa sem ekki nýttust.
Það voru liðnar fjórar mínútur
þegar fyrsta færið kom. Arnljót-
ur komst uppí hornið og gaf fyrir
þar sem Guðmundur Steinsson
stakk sér en skallaði yfir markið.
Frammarar voru meira með bolt-
ann en KR-ingar gáfu ekkert
eftir. Þorsteinn Halldórsson átti
skyndiskot á 9. mínútu sem Birk-
ir varði. Á 15. mínútu fengu
Vesturbæingar hornspyrnu og
Fram tókst að snúa henni í
skyndisókn en Pétur Ormslev
tókst ekki að gera neitt úr henni.
Enn fengu Frammarar færi á 20.
mínútu þegar Guðmundur
Steinsson gaf nett fyrir og Steinn
skallaði yfir, KR-ingar fóru að
sækja meira og munaði litlu að
þeir fengju gott færi á 43. mínútu
þegar Gunnar Oddsson ætlaði að
gefa boltann á Björn Rafnsson á
auðum sjó í hraðaupphlaupi en
Leikur tækifæranna
Fram sigrað KR 3-0 ígœrkvöldi. Sanngjarn en ofstórsigur.
Guðmundur Steinsson skoraði tvö ogfiskaði víti
Jón Sveinsson komst á milli.
Tveimur mínútum síðar konlust
þeir aftur í færi er Ágúst Már
stormaði upp kantinn en enn var
Jón Sveinsson á milli.
Guðmundar þáttur
Strax á fyrstu mínútu síðari
hálfleiks komst Björn Rafnsson
udd kantinn og gaf fvrir en Rúnar
Kristinsson skaut yfir. Tíu mínút-
um síðar hafði Pétur Ormslev
leikið sér lengi inní KR-teignum
þegar hann gaf fyrir á kollinn á
Steini en Stefán Árnarsson varði
meistaralega í bláhorninu. Á 60.
mínútu lék Ormarr laglega upp
kantinn og gaf fyrir þar sem Guð-
mundur Steinsson hafði komið
1. deild
Lítil tilþrif
Akureyrarliðin gerðu 1 -1 jafntefli í roki
Það var ekki mikið um tilþrif
þegar Akureyrarliðin áttust við
innbyrðis í gærkvöldi enda bauð
veðrið ekki uppá það. Mikill
vindur en liðunum tókst þó nokk-
uð vel að hemja boltann.
Fyrsta færið kom ekki fyrr en á
15. mínútu þegar Hlynur Birgis-
son óð upp völlinn og gaf á einn
og óvaldaðan Guðmund Val sem
sendi boltann í rólegheitunum
innímarkið 0-1. Tuttugu ogfimm
mínútum síðar kom næsta færi
þegar Bjarni gaf á Valgeir sem
skaut framhjá í þröngu færi. Á
markamínútunni kom jöfnunar-
markið. Birgir ætlaði að hreinsa
frá markinu en þá vildi svo til að
boltinn fór beint í bakhlutann á
Júlíusi Tryggvasyni og inní mark-
ið 1-1.
Mun meira var um marktæki-
færi í síðari hálfleik. Á 68. mínútu
skaut Gauti framhjá úr auka-
spyrnu. Á 75. mínútu átti Einar
Árason lúmskt skot utan af kanti
sem fór rétt yfir markið. 5 mínút-
um síðar fékk Einar boltann eftir
langt innkast Júlíusar og þrumaði
boltanum yfir. KA-menn fengu
gott færi á að skora mark sjálfir á
83. mínútu eftir varnarmistök hjá
Birgi þegar Valgeir komst einn
upp en Birgir bætti fyrir mistök-
in, hljóp hann uppi og tók af hon-
um boltann. Besta færi KA kom
þó þegar 4 mínútur voru til leiks-
loka er Gauti skallaði boltann í
slána, fékk hann aftur og skaut í
Baldvin liggjandi en þá kom
Valgeir og skaut útaf. Þórsarar
áttu síðan síðasta færið er Jónas
tók viðstöðulaust þrumuskot
utan vítateigs en Haukur varði
vek
Úrslitin teljast sanngjörn.
Þórsarar spiluðu gegn vindi í fyrri
hálfleik og gekk furðuvel að
halda boltanum þrátt fyrir rokið.
í síðari hálfleik voru þeir með
boltann meira framanaf en undir
lokin tóku KA-menn mikið við
sér og sköpuðu oft hættu við
mark Þórs. -kh/ste
sér vel fyrir og nikkaði boltanum í
markið 1-0. Tveimur mínútum
síðar gaf Ormarr háan bolta fram
miðjuna. Guðmundur og tveir
KR-ingar hlupu fram en inní vít-
ateignum var Guðmundur felldur
og víti dæmt. Pétur Ormslev
skoraði örugglega úr vítinu 2-0.
Við þessi mörk fór Fram-sóknin
verulega að skerpast þó að KR-
ingar gæfust ekki upp. Steinn var
enn á ferðinni með kollinn á 79.
mínútu þegar Guðmundur gaf
fyrir markið en sá bolti fór yfir. Á
33. mínútu kom aftur hár bolti
upp miðjan völlinn á Guðmund
umkringdan tveimur KR-ingum
en í þetta sinn var honum ekki
brugðið svo að hann skoraði enn,
3-0. Ormarr rauk upp kantinn
mínútu síðar en nú tókst KR-
ingum að bjarga marki. KR-ingar
áttu síðasta orðið í leiknum. Jón
G. fékk stungusendingu fram og
skaut hörkuskoti en Birkir varði
vel.
Lofar góðu
Frammarar stóðu sig vel í þess-
um leik. Liðið er að smella vel
saman og samspilið og baráttan
góð. Guðmundur Steinsson er
allur að koma til eftir frekar slaka
byrjun í mótinu, Jón Sveinsson
átti stórgóðan leik og gerði engin
mistök, Steinn og Ormarr voru
Sjónvarp
Breyting
Sú breyting verður á bcinum
útscndingum Ríkissjónvarpsins
frá Evrópumótinu í fótbolta að í
dag, 17. júní verður ekki sýndur
leikur Dana og ítala heldur V-
Þjóðverja og Spánverja. Laugar-
daginn 18. verður sýndur leikur
Hollands-írlands í stað Englend-
inga og Sovétmanna. Útsending-
arnar eru á sama tíma og auglýst-
ur hefur verið.
góðir og Arnljótur einnig fyrri
hlutann. KR-liðið átti einniggóð-
an leik en átti við of erfiðan ands-
tæðing að etja. Rúnar var góður
framanaf en besti maður liðsins
var Þorsteinn Halldórsson. Það
mætti segja eftir þennan leik að
nú lofi fslandsmótið fyrst góðu.
-ste
Hátíð
Akureyri 16.júní
KA-Þór.....................1-1 (1-1)
0-1 GuðmundurValurSigurösson 15.mín
1-1 Sjálfsmark................44.mín
Lið KA: Haukur Bragason, Erlingur Krist-
jánsson, Jón Kristjánsson, Arnar Bjarna-
son, Þorvaldur örlygsson, Gauti Laxdal,
Bjarni Jónsson, örn Viðar Arnarsson (Frið-
finnur Hermannsson 76.mín), Antony Karl
Gregory (Stefán Ólafsson 76.mín), Valgeir
Barðason, Arnar Freyr Jónsson.
Lið Þórs: Baldur Guðmundsson, Júlíus
Tryggvason, Birgir Skúlason, Nói Björns-
son, Einar Arason, Jónas Róbertsson,
Guðmundur Valur Sigurðsson, Hlynur
Birgisson, Kristján Kristjánsson (Birgir Þór
Karlsson 66.mín), Halldór Áskelsson,
Ólafur Þorgrlmsson.
Spjöld: Þorvaldur örlygsson KA og Ólafur
Þorbergsson Þór gul spjöld.
Dómari: Guðmundur Haraldsson.
Maður leiksins: Guðmundur Valur Sig-
urðsson Þór. -KH/ste
Knattspymuveisla
Heilmikil knattspyrnuveisla
verður haldin á Laugardalsvellin-
um í dag. Til leiks er mætt mikið
úrval snillinga úr öllum
heimshornum ásamt skemmtiat-
riðum.
Kl.15.30:
Knattþrautir sem Robert Walters
sýnir en hann hefur nýlega endur-
heimt heimsmetið í að halda uppi
knetti án þess að nota hendurnar og
nýja metið er 16 klukkustundir og 17
mínútur. Austurbær-Vesturbær mæt-
ast í 4.flokki og Jón Páll dregur liðin á
vörubíl, Anna Margrét Jónsdóttir, feg-
urðardrotting íslands 1987 og Rúnar
Rúnarsson svífa niður í fallhlíf.
Um helgina
17.-21.júní
Fótbolti
Laugardagur:
l.d.kv. kl.14.00 ÍBÍ-Fram
3.d.A. kl.16.00 Vikverji-Stjarnan
3.d.B. kl.16.00 Einherji-Þróttur N.
Sunnudagur:
1.d. kl.20.00 Víkingur-Valur
l.d.kv. kl. 14.00 ÍA-ÍBK
1. d.kv. kl.14.00 Stjarnan-KA
2. d. kl.20.00 KS-Selfoss
2.d. kl. 14.00 ÍBV-ÍR
2.d. kl.20.00 Víðir-UBK
2.d. kl.14.00 Þróttur R.-FH
2.d. kl.14.00 Fylkir-Tindastóll
2. d.kv. kl. 15.00 KS-Þór A.
3. d. A. kl.20.00 ÍK-Grótta
3.d. A. kl.20.00 Grindavík-Reynir S.
3.d. A. kl. 17.00 Leiknir-Afturelding
3.d. B. kl.14.00 Magni-Reynir Á.
3. d. B. kl.14.00 UMFS Dalvík-Hvöt
4. d. A. kl.14.00 Snæfell-Árvakur
4.d. A. kl. 14.00 Augnablik-Ernir
4.d. B. kl.17.00 Hafnir-Fyrirtak
4.d. B. kl.17.00 Ármann-Léttir
4.d. B. kl.20.00 Hveragerði-Hvatber-
ar
4.d. B. kl.17.00 Skallagrímur-Vík.ÓI.
4.d. C. kl.17.00 BÍ-Geislinn
4.d. D. kl.14.00 Efling-HSÞb
4.d. D. kl.14.00 Æskan-UMSEb
4.d. D. kl. 14.00 Vaskur-Kormákur
4.d. E. kl.14.00 KSH-Leiknir F.
4.d. E. kl.14.00 Höttur-Neisti D.
4.d. E. kl.20.00 Valur Rf.-Austri E.
Mánudagur:
1 .d. kl.20.00 Völsungur-Þór A.
1.d. kl.20.00 ÍBK-ÍA
1 .d. kl.20.00 KR-Leiftur
1. d. kl.20.00 KA-Fram
2. d.kv. kl.20.00 Selfoss-UBK
4.d. A. kl.20.00 Skotfélagið-Haukar
Þriöjudagur:
Bikarkeppni kvenna l.umf
kl.20.00 Afturelding-Fram
Fótbolti
Nýr grasvöllur vígður
Fylkismenn vígja nýja gras-
völlinn sinn fyrir leikinn við
Tindastói á sunnudaginn. Fram-
kvæmdir hófust 1985 og lauk
1986 en völlurinn var of lítill og
því ekki löglegur. Reykjavíkur--
borg leysti til sín land í vetur og þá
fékk Fylkir viðbót sem dugði til
að hafa völlinn löglegan en fram-
kvæmdum lauk í maílok.
Fylkismenn slaka ekki lengi á
því hafin er framkvæmd við tvo
æfingavelli sem verða 60x90
metrar. Einnig er komin teikning
að nýju íþróttahúsi sem fyrirhug-
að er að byrja á í haust. Kostnað-
urinn við þessar framkvæmdir er
kominn í 8 miljónir en mikið hef-
ur verið unnið í sjálfboðavinnu.
Kl.12.45: Safnast saman við völl-
inn við undirleik lúðrasveitar.
Kl. 13.00: Allir flokkar Fylkis
-ganga inná völlinn.
Kl.13.15: Ávarp formanns Fylk-
is, Jóhannesar Öla Garðarssonar
og séra Guðmundur Þorsteinsson
flytur bæn.
Kl. 13.30: Liðin hita upp og verða
kynnt við undirleik lúðrasveitar-
innar
Kl. 14.00: Fylkir-Tindastóll. í
leikhléi verða Reykjavíkurmeist-
urum Fylkis í 3. og 6. flokki af-
hent verðlaun sín.
Kl.17.15:
V-Þýskaland gegn Heimsliðinu í fót-
boltaleik. í liði Þjóðverja eru frægir
garpar, til dæmis Bernd Förster, Felix
Magath og fleiri. Ekki eru stjörnunar
færri í heimsliðinu en þar eru sem
dæmi; Simon Tahamata, Ralf Ed-
ström, Arnór Guðjónsson, Ásgeir
Sigurvinsson, Sigurður Jónsson,
TrevorCherry, lan Ross, Windsordel
Llano sem var kosinn íþróttamaður
Bólivíu 1976-77 og fleiri.
Kl.16.25:
Hallbjörn Hjartarson kemur fram að
nýju, Greifarnir og Stefán Hilmarsson
koma fram og frumflytja meðal ann-
ars tvö ný lög. Einnig verður nýstár-
leg skotkeppni með veglegum verð-
launum.
Útboð
Klæðningar á Vesturlandi - Staðarsveit, 1988
''/'VM Y Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í ofangreint verk. Lengd 15 km, efnisvinnsla 10.500 m3, burðar- lög 31.000 m3 og klæðning 84.000 m2. Verki skal lokið 1. september 1988. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins í Borgarnesi og Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 20. þ.m. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þann 27. júní 1988.
Vegamálastjóri
Föstudagur 17. júní 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
||pi Utboð
Nesjavallavirkjun
- ryðfrí tæki
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd
Hitaveitu Reykjavíkur óskar eftir tilboöum í verk
sem felst í efnisútvegun og smíöi tveggja afloft-
ara, eins gufuháfs og eins loftinntaks, alls 40
tonn.
Útboösgögn eru afhent í skrifstofu vorri, Fríkirkju-
vegi 3 Rvík, gegn 25 þús. kr. skilatryggingu. Til-
boöin veröa opnuð á sama staö miövikudaginn
20. júlí kl. 11.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800