Þjóðviljinn - 09.07.1988, Qupperneq 1
Laugardagur 9. júlí 154. tölublað 53. órgangur
ASI-kœran
Stjómin á bekk með
Bananalýðveldiþaulsetnustá kœrubekknum^ hjáILO. Tugir ríkja kœrðir á ári hverju. Ragnar
Aðalsteinsson, hrl: Alitshnekkirfyrir stjórnvöld setjiILO ofan íviðþau. GylfiKristinssson,
félagsmálaráðuneyti: ÚrskurðirlLO hafa siðferðilegaþýðingu.
Flestar ríkissstjórnir taka tillit til úrskurðanna
Alþjóðavinnumálastofnun-
inni, ILO, berast á hverju ári
tugir kæra á hendur ríkissstjórn-
um fyrir brot á samþykktum
stofnunarinnar um samningsrétt
launþega og félagafrelsi. Flestar
eru kærunar á hendur bananalýð-
veldum og öðrum þeim ríkjum
þar sem lýðréttindi og félagafrelsi
er ekki í miklum metum meðal
valdhafa. Ríkissstjórn íslands er
því ekki í dónalegum félagsskap á
kærubekknum hjá ILO, en eins
og kunnugt er kærði Alþýðusam-
bandið stjórnvöld fyrir afnám
samningsréttarins með setningu
bráðabirgðalaganna í maí sl.
Ragnar Aðalsteinsson, hæsta-
réttarlögmaður og lögfræðilegur
ráðgjafi ASÍ í kærumálinu, segir í
samtali við Þjóðviljann að það
væri álitshnekkir fyrir stjórnvöld,
ályktaði ILO þeim í óhag í kær-
umálum vegna brota á samþykkt-
um stofnunarinnar um samnings-
rétt og félagafrelsi, en íslensk
stjórnvöld hafa staðfest báðar
samþykktirnar.
- Urskurðir ILO í málum sem
þessum hafa fyrst og fremst sið-
ferðilegt gildi og flestar ríkis-
stjórnir sjá sér ekki annað fært en
að verða við athugasemdum sem
þær fá frá stofnuninni, segir Gylfi
Kristinsson, deildarstjóri í félags-
málaráðuneytinu.
Þrátt fyrir eftirgrennslan blaðs-
ins í gær fengust engar upplýsing-
ar um það hjá fél-
agsmálaráðuneytinu í gær, hvort
Jóhönnu Sigurðardóttur hefðu
borist fyrirspurnir um greinar-
gerð frá stjórnvöldum frá ILO.
Oddvitar ríkisstjórnarinnar a
kærubekk með einræðisherrum
bananalýðveldanna.
Sjá síðu
Björg Árnadóttir „menningar-
verkamaður".
Allt jafn
spennandi
Islensk listakona fœr
starfslaun í Svíþjóð
„Fyrir mér eru allar greinar
lista jafn spennandi og ég get ein-
faldlega ekki ákveðið hvaða
listform henti mér best,“ segir
Björg Árnadóttir sem hefur gert
það gott sem menningarverka-
maður (kulturarbetare) í Luleá í
Norður-Svíþjóð.
Björg hefur komið víða við í
menningarlífi Luleá þau fimm ár
sem hún hefur búið þar, og fékk
nú í vor starfslaun frá borgaryfir-
völdum í viðurkenningarskyni
fyrir vel unnin störf.
Sjá síður 8 og 9
Vextir
Háskólinn
Beðið eftir
vaxtaholskeflu
Fjármagnsmarkaðurinn spáir vaxtahœkkun.
Ríkisvaldiðfyrir; síðan fylgja aðriráeftir. Árni
Gunnarsson: Stefnuleysi í vaxtamálum að
koma atvinnuvegunum íþrot. Skattleggjaþarf
vaxtagróða fjármagnseigenda
Fjármagnsmarkaðurinn er í
startholunum með frekari vaxta-
hækkanir, aðeins er beðið eftir að
ríkissstjórnin gefi tóninn með
vaxtahækkun á ríkisskuldabréf-
um og spariskírteinum ríkissjóðs,
að sögn aðila á fjármögnunar-
markaði.
Árni Gunnarsson, þingmaður
Alþýðuflokk,s segir að atvinnu-
lífið sligist fyrr en seinna undan
alltofháum raunvöxtum. Stefnu-
leysið í vaxtamálum komi
mönnum fyrr en seinna í koll og
menn verði að fara að gaumgæfa
sinn hug til vaxtamálanna.
- Ekki eru það atvinnuvegirnir
og lántakendur sem hagnast á
háum raunvöxtum, segir Árni.
Hann leggur m.a. til að vaxta-
tekjur sem fari yfir ákveðna upp-
hæð verði skattlagðar.
Sjá síðu 2
Sverfur til stáls
í lektorsmálinu
SkyndifundurHáskólaráðs: Lagaleg staða Há-
skólans könnuð til að hnekkja skipun Hannes-
ar. Einstakt að ráðherra rökstyðji stöðu-
veitingu með einkaskoðunum
Skyndifundur Háskólaráðs
sendi frá sér mjög harða ályktun í
gær. Þar segir að menntamála-
ráðherra hafi sýnt fádæma hroka
í tilraun sinni til að kúga Há-
skólann. Háskólaráð mun láta
kanna lagalega stöðu Háskólans.
Sigurður Líndal lagaprófessor
hefur sagt að enginn grundvöllur
sé til að ræða vanhæfni dómnefn-
dar þar sem ráðherra hafi ekki
tiltekið ástæður hennar en sönnu-
narbyrðin liggi hjá honum.
Háskólaráð segir menntamála-
ráðherra hafa sýnt Háskólanum
lítilsvirðingu með því að tilkynna
fjölmiðlum skipunina og sent
þeim bréf ráðuneytisins til rekt-
ors og Háskólaráðs áður en gögn-
in bárust réttum aðilum.
Eftir þessa ályktun æðstu
stofnunar Háskólans hafa allir
málsmetandi aðilar skólans á-
lyktað harðlega gegn ráðherra.
Sjá síðu 3