Þjóðviljinn - 13.07.1988, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 13. júlí 1988 157. tölublað 53. órgangur
Skólamál
Skólastjórar í kosningabaráttu
Þorbjörn Broddason leggur til íFrœðsluráði að skólastjórar
grunn- ogframhaldsskóla verði kjörnir til nokkurra ára ísenn.
Þróun ílýðrœðisátt. Fast starfslið skóla ogforeldrarkjósi
Á fundi Fræðsluráðs Reykja-
víkur á mánudag lagði Þorbjörn
Broddason fram tillögu um að
skóiastjórar grunnskóla og fram-
haldsskóla verði kjörnir til nokk-
urra ára í senn. Foreldrar og fast-
ir starfsmenn skólanna hafi kosn-
ingarétt og nemendaráð í fram-
haldsskólunum. Þorbjörn segir
kveikjuna að tillögunni vera
skipun Sjafnar Sigurbjörnsdóttur
í skólastjórastöðu Ölduselsskóla.
Þorbjörn telur tillöguna leiða
til þróunar í lýðræðisátt verði hún
að lögum. Hún sé í anda 2. grein-
ar grunnskólalaganna þar sem
segir að skólarnir skuli í sam-
vinnu við heimilin búa nemendur
undir líf og starf í lýðræðisþjóðfé-
lagi. Þá sé tillagan í takt við skóla-
stefnu Sjálfstæðisflokksins eins
og hún hafi birst í samþykktum
hans og ritum gefnum út undir
stjórn nokkurra menntamálaráð-
herra flokksins.
Vinnubrögð Birgis ísleifs í
Ölduselsmálinu hafi hins vegar
verið andhverfa lýðræðisins og
þau hafi sýnt hve misbeiting
miðstjórnarvaldsins geti verið
hættuleg.
Þorbjörn segir ennfremur að
kjör skólastjóra með reglulegum
fresti geti stuðlað að lýðræðis-
legra og virkara samstarfi kenn-
ara. Til að skólarnir geti orðið
lýðræðislegri verði að skapa þeim
svigrúm til þess.
Sjá síðu 3
Lektorsstaðan
Dæmalaust
Menntamálaráðherra
svarar ályktun
Háskólaráðs. Ráðherra
hefurvaldið. Háskólinn
átti aðfara eftir lögmanni
Hannesar
Birgir ísleifur Gunnarsson
menntamálaráðherra svaraði í
gær ályktun Háskólaráðs vegna
skipunar í stöðu lektors. Ráð-
herrann segir ályktunina dæma-
lausa og fulla af rangfærslum.
Eðlilegt hefði verið að Háskólinn
skipaði nýja dómnefnd eftir að
lögmaður Hannesar sendi félag-
svísindadeild bréf og lýsti hana
óhæfa. Verði að telja vinnubrögð
deildarinnar ámælisverð þar sem
hún fór ekki eftir þessum ábend-
ingum lögmannsins.
Ráðherra segir Gunnar Gunn-
arsson og Svan Kristjánsson hafa
verið alveg jafnóhæfa til að meta
hæfni Hannesar eftir að Ólafur
Ragnar Grímsson vék úr dóm-
nefndinni og rektor skipaði full-
trúa sinn í hana. Ráðuneytið
hefði ekki reynt að Ieyna tengsl-
um Hannesar við fyrrverandi
kennara hans og þess vegna eigi
ásakanir óhlutrækni þeirra ekki
við.
Æskulýðsfylking Alþýðu-
bandalagsins hefur fordæmt skip-
unina og segir hana gróft dæmi
um yfirmáta hroka íhaldsaflanna.
Pólitískar stöðuveitingar hafi
lengi einkennt hægri stjórnir á ís-
landi. En Háskólinn hafi góðu
heilli sloppið nær alveg við slíkt
hingað til. Ætlar Æskulýðsfylk-
ingin að skora á þingmenn Al-
þýðubandalagsins að bera fram
vantraust á menntamálaráðherra
þegar þing kemur saman.
Sjá síðu 2
„Rosalega er maturinn dýr á tslandi," sögðu þau Kathrin Habermacher og Thomas Gisi frá Vestur-Þýskalandi. Töluvert er um það að ferða-
menn fari fyrr heim en þeir ætluðu vegna verðlags matvöru. Mynd: Ari
Ferðalangar
Verðlag uppúr öllu valdi
Erlendirferðamenn agndofa á verðlaginu. Farafyrrfrá landinu enþeir áœtluðu
Erlendum ferðamönnum
blöskrar verðlagið á íslandi og þá
sérstaklega á matvöru. Flugleiðir
Þjóðarhagur
Kreppa í góðæri
Framvinda verðbólgunnar
ræðst að verulegu leyti af því
hvernig ríkisstjórninni gengur að
draga úr 3,2 mil j arða halla sem er
á ríkissjóði eftir fyrstu fimm mán-
uði ársins, en spá Þjóðhagsstofn-
unar um 25% verðbólgu á árs-
grundvelli byggist m.a. á því að
halli ríkissjóðs verði ekki meiri
en ríflega hálfur miljarður í árs-
lok.
í nýrri þjóðhagsspá sem Þjóð-
hagsstofnun kynnti í gær, er ráð-
gert að viðskiptahallinn á árinu
verði um 11 miljarðar króna.
Þórður Friðjónsson, forstöðu-
maður stofnunarinnar segir að í
mörgu tilliti séu horfurnar í efna-
hagsmálum bjartari en stofnunin
spáði í mars sl. þannig megi gera
ráð fyrir að afli og aflaverðmæti
aukist frá fyrra ári.
Sjá síðu 2
og Kynnisferðir segjast verða vör
við að ferðamenn vilji fara heim
áður en ferðum þeirra líkur
vegna þess að þeir séu orðnir
auralausir. Er meira um þetta en í
fyrra að sögn Ólafs Briem hjá
Flugleiðum.
Ferðamenn sem Þjóðviljinn
tók tali í gær sögðust undrandi á
verðlaginu og það hefði komið
þeim á óvart. Mjög misjafnt var
þó hvernig á var komið fyrir
ferðamönnunum. Sumir virtust
hafa næga peninga á milli hand-
anna en aðrir lifa á súpu og
hveitilengjum.
Sjá síðu 2
Leikhús
Light Nights 19 ára
„Sýningin breytist alltaf
eitthvað frá ári til árs, þó að sumt
hafi ég verið með lengi, eins og til
dæmis Djáknann á Myrká“, segir
Kristín G. Magnús, sem nú leiðir
sýningu Ferðaleikhússins á Light
Nights 19. árið í röð.
Sýningar Ferðaleikhússins hóf-
ust sumarið 1966. á fjörutíu daga
leikferðalagi um fsland. Eftir það
hefur Kristín stýrt Ferðaleikhús-
fólki á leikferðalögum meðal
annars á Edinborgarhátíð, og í
leikferðalög til New York og
Chicago.
Sjá síður 8 og 9