Þjóðviljinn - 06.08.1988, Síða 4

Þjóðviljinn - 06.08.1988, Síða 4
c§3Húsnæðisstofnun ríkisins TÆKNIDEILD y Sími 696900 Útboð Stjórn verkamannabústaða Siglufirði óskar eftir tilboðum í byggingu tveggja íbúða í tveggja hæða parhúsi, byggðu úr steinsteypu. Verk nr. V.03.01. úr teikningasafni tæknideildar Húsnæðisstofnunar ríkisins. Brúttóflatarmál húss 253 m2. Brúttórúmmál húss 750 m3. Húsið verður byggt við götuna Hafnartún nr. 36- 38, Siglufirði og skal skila fullfrágengnu, sbr. út- boðsgögn. Afhending útboðsgagna er á bæjarskrifstofu Siglufjarðar, og hjá tæknideild Húsnæðisstofn- unar ríkisins, frá þriðjudeginum 9. ágúst 1988 gegn kr. 10.000.- skilatryggingu. Tilboðum skal skilað á sömu staði eigi síðar en mánudaginn 22. ágúst 1988 kl. 14.00 og verða þau opnuð að viðstöddum bjóðendum. DAGVIST BARIVA HLIÐAR Leiksk. Hlíðaborg v/Eskihlíð Óskar að ráða starfsfólk til uppeldisstarfa eftir hádegi. Athugið að börn starfsmanna (3—6 ára) geta fengið leikskólavist. Uppl. gefa forstööumenn Lóa og Sesselja í síma 20096 eða á staðnum. ff Útboð - sundlaug í Suðurbæ Hafnarfjarðarbær leitar tilboða í 4. áfanga bygg- ingar sundlaugar í Suðurbæ. í verkinu er innifal- inn lokafrágangur byggingar, þ.e. lóðargerð, múrverk, flísalögn, lagnir og innréttingar. Verktaki tekur við uppsteyptu mannvirki. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu bæjar- verkfræðings, Strandgötu 6, gegn 25.000,- kr. skilatryggingu. Afhending frá þriðjudeginum 9. ágúst. Tilboð verða opnuð á sama stað þriðju- daginn 6. september nk. kl. 10.00. Bæjarverkfræðingur Lagerstörf VERSLUNARDEILD SAMBANDSINS HOLTAGÖRÐUM • SÍMI 681266 FRETTIR Blönduvirkjun Alvarlegur misskilningur Athugasemd Landsvirkjunar við ummœli Halldórs Ásgríms- sonar sjávarútvegsráðherra í Þjóðviljanum er fimmtudag-1 inn 4. þ.m. birt viðtal við Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráð- herra varðandi nýja stóriðju hér á landi og virkjanamál. Er þar haft eftir ráðherranum að ekkert verði við orkuna úr Blönduvir- kjun að gera verði ekki af álveri í Straumsvík. Hér er um mikinn misskilning að ræða og í mótsögn við viðtalið að öðru leyti. Al- menn orkunotkun eykst hér á landi um því sem næst 80 Gígawatt-stundir á ári án nýrrar stóriðju og með hliðsjón af því áætlast núverandi orkuöflUnar- kerfi verða fullnýtt 1991. Fyrirsjáanlega þarf Blöndu- virkjun þvf að vera byrjuð að framleiða orku haustið 1991 eins og nú er stefnt að ef ekki á að taka of mikla áhættu af afl- og orku- skorti veturinn 1991-1992. Upphaflega var áætlað með hliðsjón af þágildandi orkuspá að Blönduvirkjun þyrfti að vera komin í rekstur þegar á árinu 1988. Verklokum við virkjunina var síðan frestað í áföngum um þrjú ár eða til 1991 í samræmi við breytta orkuspá, sem gerði ráð fyrir minni aukningu í orkueftir- spurn hins almenna markaðar en sú fyrri. Komi ekki til nýrrar stóriðju áætlast Blönduvirkjun ásamt nú- verandi kerfi nægja til að fullnægja vaxandi orkueftirspurn fram yfir aldamót. Þetta er álíka langur tími og það mun taka að fullnýta síðustu virkjun Lands- virkjunar, Hrauneyjafossvirkj- un, ásamt því orkuöflunarkerfi sem var fyrir hendi er sú virkjun hóf starfsemi sína árið 1982. Komi hinsvegar til þeirrar stækk- unar álversins í Straumsvík, sem nú er til umræðu, verður Blönd'u- virkjun, sem er 150 MW, fullnýtt þegar á árinu 1992 eða einu ári eftir að hún er tekin í notkun og þarf þá ný 100 MW virkjun að Forsvarsmenn Landsvirkjunar segja það mikinn misskilning hjá Hall- dóri Ásgrímssyni að orkunni sem fáist með Blönduvirkjun verði ekki komið í gagnið nema með nýrri stóriðju. koma í gagnið 1992. Virðist hag- kvæmasti kosturinn vera stækkun Búrfellsvirkjunar ásamt lúkningu Kvíslaveitu og aukinni miðlun í Þórisvatni. Að því er varðar tímasetningu Blönduvirkjunar leyfir Lands- virkjun sér að vísa jafnframt til greinar Halldórs Jónatanssonar, forstjóra Landsvirkjunar, um vatnsbúskapinn og tímasetningu Blönduvirkjunar í fréttabréfi fyrirtækisins, 2. tbl. 1988. Landsvirkjun Bílaumboð Uppsagnir og samdráttur Hjá Kristni Guðnasyni h.f. sem flytur inn BMW- og Ren- aultbfla standa nú yfir skipulags- breytingar og hefur þremur yfir- mönnum verið sagt upp störfum vegna þeirra. Að sögn Ólafs Kristinssonar forstjóra eru horfurnar framund- an slæmar og ekki séð fyrir endann á þeim samdrætti sem nú á sér stað í bílasölunni. - Þau fyr- irtæki sem ekki bregðast skjótt við þessu ástandi núna súpa seyðið af því síðar. Við gerum breytingar á mannaforráðum hjá okkur, drögum saman seglin og ekki verður komist hjá því að láta menn fara þegar svona ber undir. -gís. Vöruskiptajöfnuður Minna út en inn Fyrstu fjóra mánuði þessa árs var vöruskiptajöfnuðurinn óhagstæður um 377 miljónir króna. Út voru fluttar vörur fyrir 16.402 milj.kr. en inn fyrir 16.779 mi^.kr. Reiknað á fostu gengi var vöruskiptajöfnuðurinn á sama tíma í fyrra hagstæður um 948 milj.kr. Útflutningur í fyrra var heldur minni í janúar-apríl (16.088 milj.kr) heldur en nú, en inn- flutningurinn nú var nærri 11% meiri en í fyrra (15.140 milj.kr). Innflutningur til stóriðju og olíu- innflutningur ásamt innflutningi skipa og flugvéla er jafnan mjög breytilegur. Séu þessir liðir frá- taldir reyndist annar innflutning- ur (85% af heildinni) hafa orðið 8% fyrstu fjóra mánuði þessa árs en á sama tíma í fyrra reiknað á föstu gengi. 4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 6. ágúst 1988 Kvennaþingið Brynja Ben. samdi kvenna- söngieikinn í frásögn af kvennaþinginu í Osló í blaðinu í gær segir að söng- leikur sá sem BSRB-konur fluttu þar um sögu íslenskra kvenna sé saminn af flytjendum. Þetta er ekki rétt - Brynja Benediktsdótt- ir samdi þennan söngleik og leikstýrði honum og eru hlutað- eigendur beðnir afsökunar á mis- sögn þessari. Lesendakönnun Þjóðviljans Geriö skil! Þeir áskrifendur sem lentu í úr- taki lesendakönnunar Þjóðvilj- ans og fengu senda spurninga- lista, en hafa enn ekki svarað þeim, eru vinsamlegast beðnir að gera skil á næstu dögum.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.