Þjóðviljinn - 11.08.1988, Blaðsíða 9
MENNING
Bjarni H. Þórarinsson: Ég er farinn að velta rósinni fvrir mér. Mynd - Ari
Nýlistasafnið
Bjarni H. Þórarinsson: Ég erfarinn að sjá alla hluti ínýju Ijósi
Sjónþing Bjarna H. Þórarins-
sonar stendur nú yfir á neðri hæð
Nýlistasafnsins, en þar kynnir
Bjarni ný fræði sem hann kallar
„sjónháttafræði". Um fræðin
segir hann í yfirlýsingu: - 21. júlí
skeytti ég saman hugtakið „sjón-
háttur“. Þetta hugtak er þunga-
miðja í nýrri stefnu og fræðigrein
í myndlist, „sjónháttafræðinni".
- Ég byrjaði að hugsa um þetta
fyrir um 2-3 mánuðum, segir
Bjarni, - þá var ég að sýna mynd-
verk í Galleríi Birgis Andrés-
sonar. Svo varð allt í einu einhver
hvellur í höfðinu á mér þann 21.
júlí, og ég orti:
Oss í té
lék í b
gyðju sé
síðar fé
- Þegar ég fór að skoða þetta
betur datt mér í hug hugtakið
sjónljóð, eða byggingarljóð, sem
má líka kalla visual constructiv
poetry. Daginn eftir ræddi ég við
Hannes Lárusson myndlistar-
mann, og hann þýddi þetta hug-
tak yfir í myndhátt, sem ég síðan
breytti í sjónhátt. Þannig að þátt-
ur Hannesar í þessum nýju vís-
indum er nokkuð mikilvægur.
- Sjónháttafræðin varð til þess
að ég fór að vinna á allt annan
hátt. Ég er farinn að sjá hlutina
allt öðruvísi en áður, og þessi
myndverk sem ég sýni hérna eru
niðurstaðan. Þessi verk eru sjón-
hættir. En þegar ég var að gera
þau vann ég út frá forriti sem var
ennþá ómeðvitað, og það var
ekki fyrr en eftir á að ég las þau úr
myndverkunum, svo nú er forrit-
iö meðvitað, og ég gef það upp í
sýningarskránni.
- Eins og þú sérð eru þessi
verk í einbendu, tvíbendu og þrí-
bendu, og í þeim eru svo stuðlar,
stef í stuðlum, innrím, útrím,
rafrím, rofrím og svo framvegis.
Ég er búinn að finna tvær bendur
í viðbót, krossbendu og hring-
bendu, en þeim hef ég ennþá ekki
náð að vinna út frá. Annars er
þetta bara byrjunin, það er hægt
að lesa forrit út úr öllum hlutum,
til dæmis er náttúran öll morandi
í forritum. Við getum tekið Þing-
velli sem dæmi. Samkvæmt sjón-
háttafræðinni eru gjárnar þrjár
náttúrlega þríbenda.
- Svo má líta á manninn sem
einbendu, maður og kona eru tví-
benda, og þegar getnaður verður
verður til þríbenda. Sjónhátta-
fræðin á við um alla hluti, og sem
stendur er ég að glíma við
geimmyndina; við getum tekið
sólkerfi sem dæmi, það dregst að
öðru sólkerfi og út úr þeim sam-
runa verður það þriðja til. Sem
sagt einhvers konar getnaður. Ég
held ég vilji leyfa mér að segja að
þetta sé einn allsherjar getnaður,
einhvers konar getnaður á milli
einhvers konar póla.
- Ég held að með þessum vís-
indum hafi mér tekist að skeyta
saman það huglæga og það hlut-
læga, sem eru atriði sem ég geri
sterkan greinarmun á. Sjónhátta-
fræðin er óður til vísindanna í
myndrænu formi, og ég hef nú
þegar fundið tólf punkta sem ég
skipti hlutunum niður í. Til dæm-
is er númer eitt punktur, númer
tvö fjarlægðin á milli tveggja
punkta, númer þrjú þegar form
verður til, númer fjögur tómið,
og númer fimm þrívíðu formin.
- Nú er ég að velta rósinni fyrir
mér; formi hennar, hvað hún er,
og reyna að skilja hana út frá
þessum nýju vísindum. Ég er far-
inn að sjá alla myndlist og
reyndar alla hluti í nýju ljósi. I
gegnum sjónháttafræðina er mitt
mottó orðið: Ég skil, þess vegna
er ég til.
LG
Birgir Andrésson: Ekki svo mikið að segja um þessi verk. Mynd - Ari
Ýms minni frá
myndrænu sjónarmiði
Birgir Andrésson: Þessi verk eruþaðsemþau líta útfyrirað
í efri sal Nýlistasafnsins sýnir
Birgir Andrésson tvo skúlptúra
og mismunandi form úr álplöt-
um.
- Ég hef ekki svo mikið að
segja um þessi verk, segir Birgir.
- Þau eru það sem þau líta út fyrir
að vera, og engin sérstök
heimspeki að baki þeim.
- Þessir tveir skúlptúrar, hurð-
vera
in og rúmið, eru bara element,
eða hlutir, sem maður skellir
saman út frá einhverri hugmynd
sem maður vill sjá hvort geti
gengið upp. Þessi verk sem ég
kalla form eru svo kannski
eitthvað tengd þeim sem ég hef
gert áður, ég er hérna með mynd-
ir af þeim í möppu sem fólk getur
skoðað.
- Þessi sýning er svona ýms
minni, element úr hinni og þess-
ari áttinni, sett saman út frá
myndrænu sjónarmiði.
Sýningar þeirra Birgis og
Bjarna standa til 21. ágúst. Ný-
listasafnið er opið virka daga kl.
16:00-20:00, og kl. 14:00-20:00
um helgar.
I G
J
Flmmtudagur 11. ágúst 1988 ÞJÓÐVILJINN SÍÐA 9