Þjóðviljinn - 30.08.1988, Side 1
Þriðjudagur 30. ágúst 192. tölublað 53. árgangur
Avöxtun
VerÖbréfamarkaÖ urinn
í erfiðleikum
Kveldúlfshúsið mélað niður
I gær byrjuðu vinnuflokkar að méla niður eitt sterkbyggðasta hús sem reist hefur verið hér á landi til að Eimskipafélagið geti byggt lúxushótel á
lóðinni. ÞaðvarThorJensensembyggðihúsiðfyrirfiskverkunáöðrumáratug þessarar aldar en Jón Þorláksson verkfræðingur og fyrsti for-
maður Sjálfstæðisflokksins teiknaði það. Þegar húsið verðurfarið hefur frjálshyggjuliðið í Sjálfstæðisflokknum endanlega brotið mélinu smærra
allt það sem minnir á forna frægð á þeim bæ. Mynd: Ari.
Grandi hf
„Fáránlegt verö“
Skrifað undir kaupsamning við Engeyjarœttina
í gœr. Kaupverðið 500 milljónir
Sigurjón Pétursson borgar-
fulltrúi Alþýðubandalagsins segir
að kaupverð Engeyjarættarinnar
á hlutabréfum borgarsjóðs í
Granda hf. sem undirritað var í
gær sé fáránlegt og að hann muni
greiða atkvæði gegn samningnum
á fundi borgarráðs í dag.
Sigurjón segir jafnframt að
þegar búið sé að bjarga fisk-
vinnslunni úr núverandi kröggum
verði Grandi hf. eitt öflugasta
fyrirtæki sinnar tegundar hér-
lendis sem kaupendur hafi fengið
á 500 milljónir sem sé hreint gjaf-
verð.
Samkvæmt kaupsamningnum
fer framsal hlutabréfanna fram 5.
október nk. en ljóst er að salan
kemur til kasta borgarráðs á
fyrsta fundi þess eftir sumarfrí 15.
september nk.
Sjá síðu 3
Alþýðubandalagið
Þinghald strax
- Við þessar óvissuaðstæður
og með hliðsjón af líklegum efna-
hagsráðstöfunum er það að mati
þingflokksins skýlaus, lýðræðis-
leg og þingræðisleg skylda að
kalla nú saman Alþingi þegar í
stað, segir í bréfi sem þingflokkur
Alþýðubandalagsins sendi Þor-
steini Pálssyni forsætisráðherra í
gær.
Með því að kalla Alþingi sam-
an yrði tryggt að þjóðin fengi
réttar upplýsingar um ástand
efnahagsmála og afleiðingar
hinna ýmsu ráðstafana, segir í
bréfi þingflokksins.
Sjá síðu 2
Ólafsfjörður
Enn
hættu-
ástand
Tug miljóna tjón af
völdum úrkomu og
skriðufalla. Háttí200
íbúar urðu aðyfirgefa
70 hús. Spáð stormi
og úrkomu
Gríðarlegt úrfelli gekk yfir Ól-
afsfjörð sl. sunnudag og varð það
til þess að amk. sjö auskriður
féllu úr Tindaöxl og þar af tvær
sem féllu á íbúðahverfi auk ótal-
inna skriða sem féllu í Ólafsfjarð-
armúla og er vegurinn nánast
horfinn með öllu Ólafsfjarðar-
megin. Engin slys hafa orðið á
fólki þrátt fyrir að litlu hafi mátt
muna þegar ástandið var einna
verst.
Almannavarnir lýstu yfir hætt-
uástandi í bænum á sunnudag og
hefur því ekki enn verið aflýst.
Hátt í 200 manns urðu að yfirgefa
um 70 hús efst í bænum vegna
hættu á frekari skriðuföllum. Yfir
30 cm djúpt vatn var á götum
bæjarins þegar verst var og flóði
vatn inn í kjallara og olli miklum
skemmdum. Spáð er stormi og
úrkomu á Norðurlandi
Sjá síðu 3
Innlausnarbeiðnir
fyrir fjórÖungi sjóðanna
Viðskiptavinir Ávöxtunar sf hafa á undangenginni viku tekið
út eða farið fram á að fá að taka út, fjórðung þess heildarfjár-
magns sem sjóðir fyrirtækisins ráða yfir. Tífölduðust innlausnir
í Verðbréfasjóði Ávöxtunar hf og Rekstrarsjóði Ávöxtunar hf í
síðustu viku. Hefur þetta leitt til mikilla lausafjárerfiðleika hjá
sjóðunum, sem hafa verið fjarri því að geta staðið við það
fyrirheit að innlausn geti farið fram samdægurs. Þess í stað
skiptir innlausnartími bréfa í sjóðunum nú vikum ef ekki mán-
uðum. Viðlíka ástand á sér vart hliðstæðu í íslenskri fjármála-
sögu.
Forráðamenn Ávöxtunar leggja þó áherslu á að hrina
innlausnarbeiðna sé yfirstaðin og að allir fjármunir í sjóðum
Ávöxtunar séu tryggir og baktryggingar í lagi. Sjóðirnir hafi
ekki orðið fyrir umtalsverðu tapi og Ávöxtun sf. muni því halda
sínu striki.
Sjá SÍðll 3 Pétur Björnsson t. v. og Ármann Reynisson brúnaþungir á svip í gær. Mynd - ARI