Þjóðviljinn - 30.08.1988, Page 4
Heilbrigðisfulltrúi
Staöa heilbrigöisfulltrúa viö Heilbrigöiseftirlit
Reykjavíkur er laus til umsóknar. Staðan veitist 1.
október nk. Laun samkvæmt kjarasamningi
Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Um
menntun, réttindi og skyldur fer samkvæmt
reglugerö nr. 150/1983 ásamt síðari breytingum.
Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi í
heilbrigðiseftirliti eöa skyldum greinum svo sem
dýralækningum, líffræði, matvælafræði, hjúkrun-
arfræöi eða hafa sambærilega menntun.
Umsókn ásamt gögnum um menntun og fyrri
störf skulu hafa borist formanni svæöisnefndar
Reykjavíkursvæðis (borgarlækninum í Reykja-
vík) fyrir 15. september nk., en hann ásamt fram-
kvæmdastjóra heilbrigðiseftirlitsins veitir nánari
upplýsingar.
Menningarsjóður
íslands og Finnlands
Tilgangur sjóðsins er að efla menningartengsl
Finnlands og íslands. í því skyni mun sjóðurinn
árlega veita ferðastyrki og annan fjárstuðning.
Styrkir verða öðru fremur veittir einstaklingum,
stuðningur við samtök og stofnanir kemur einnig
til greina ef sérstaklega stendur á.
Umsóknir um styrki úr sjóðnum fyrir árið 1989
skulu sendar stjórn Menningarsjóðs íslands og
Finnlands fyrir 30. september n.k. Áritun á ís-
landi: Menntamálaráðuneytið, Hverfisgötu 6,
150 Reykjavík. Æskilegt er að umsóknir séu rit-
aðar á sænsku, dönsku, finnsku eða norsku.
Stjórn Menningarsjóðs íslands
og Finnlands
24. ágúst1988
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, fyrir hönd
Hitaveitu Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum í bún-
að fyrir snúningsgólf í útsýnishús á Öskjuhlíð.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri að
Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík. Tilboðin verða opnuð
á sama stað miðvikudaginn 8. september n.k. kl.
11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
i
j
I
I
Laus staða
Staða forstjóra Fangelsismálastofnunar er laus
til umsóknar. Forstjórinn skal vera lögfræðingur.
Umsóknir sendist ráðuneytinu fyrir 23. septemb-
er 1988.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið
23. ágúst 1988
Laus staða
Staða fangavarðar við fangelsin í Reykjavík og
Kópavogi er laus til umsóknar. Umsóknarfrestur
er til 23. september 1988.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf sendist dómsmálaráðuneytinu.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið
23. ágúst 1988
_____________________________FRÉTTIR_____________________________________
Hafbeitarlax
Heimtur mjög misgóðar
Metheimtur í Laxeldisstöðinni í Kollafirði og laxinn vœnn. Þokkalegt
hjá Vogalax, enfremur dræmt í Kelduhverfinu
Hjá Laxeldisstöð ríkisins í
Kollafírði var í fyrra sleppt
190 þúsund seiðum og hafa rúm-
lcga 20.000 laxar skilað sér í
sumar, sem eru metheimtur af
svo stórri sleppingu á þeim bæn-
um. Eitthvað kemur af 2 ára laxi
næsta sumar og þá gætu
heimturnar komist í 12-13%, að
sögn Jónasar Jónassonar tilraun-
astjóra.
Jónas sagði fiskinn mjög væn-
an af 1 árs laxi að vera og rakti
hann þennan góða árangur til sér-
staklega góðra sjávarskilyrða er
seiðin fóru til sjávar í fyrra og
síðan var ekki mjög kaldur sjór í
vetur.
Hjá hafbeitarstöðinni Voga-
laxi í Vogum á Suðurnesjum var
sleppt flestum seiðum hér á landi
í fyrrasumar, alls 400 þúsund og í
sumar var magnið enn aukið og
milljón seiði send á haf út.
Stöðvarstjórinn, Sveinbjörn
Oddsson, sagði heimtur úr slepp-
ingunni í fyrra vera orðnar 7-8%,
sem telst vera þokkalegt. Þessi 1
árs lax hefur verið að meðaltali
um 2,8 kíló að þyngd.
Aðalmarkaður fyrir hafbeitar-
Iaxinn er í Bandaríkjunum og
Evrópu og taldi Sveinbjörn að vel
mætti una við markaðsaðstæður
þessa stundina. Á þessum
mörkuðum fást nú 400-500 krón-
ur fyrir kílóið af laxinum.
Fremur dræmt var hljóðið í
Páli Gústafssyni hjá ísnó, sem er
með fiskeldisstöð í Kelduhverfi í
Öxafirði. Hann sagði þá aðalega
vera í tveggja ára stofnum og
væru um 800 laxar komnir inn í
sumar, en ekki er búið að taka
nákvæmlega saman hvernig
Athugasemdir
Vegna skrifa um
„undanþágu“ Pálma á Akri
í Þjóðviljanum 24. ágúst er fjall-
að um niðurskurð á iðufé og þau
stórmerki að ekki skuli áformað
að skera niður hjá Pálma á Akri í
haust. Er það m.a. byggt á „frétt“
Bændablaðsins um þessi efni.
Af þessu tilefni þykir mér ástæða
til að taka eftirfarandi fram:
Annað meginatriði þessa máls
er að ákvörðun er tekin af land-
búnaðarráðuneyti og sauðfjár-
veikivörnum um að ekki skuli
skorið niður á Akri á þessu
hausti. Ég hafði snemma í vor ós-
kað ákvörðunar um þetta mál
þannig að hún lægi fyrir áður en
ég keypti áburð, því ekki var
mikið vit í að kaupa áburð og
stofna til kostnaðar við heyskap,
ef mér bæri að skera féð niður í
haust. Sauðfjárveikivarnir vís-
uðu málinu til umsagnar hrepps-
nefndar Torfalækjarhrepps og
túlkar oddvitinn það sem umsókn
af minni hálfu. Ákvörðun um
þetta efni gat verið álitamál þar
sem stuðst hafði verið þá þumal-
puttareglu, sem út af fyrir sig
styðst ekki við nein ákvæði í
lögum, að farga fé þar sem minna
en fimm ár voru frá því að riðu-
kind hafði fundist, en hjá mér
voru þetta fjögur ár. fordæmi
voru fyrir frávikum frá þessari
viðmiðunarreglu og hafa þau
vafalaust ráðið því hver niður-
staðan varð.
Hitt meginatriði málsins er að
því miður eru tæplega líkur til að
með niðurskurði á 20-25 þús. fjár
í haust sé riðuveiki útrýmt úr
landinu. Hætt er við að eitt og eitt
tilfelli kunni að koma upp á næstu
árum.
Ég tel því eðlilegt að heilbrigð-
iseftirlit verði aukið með sauðfé
næstu árin á þeim svæðum þar
sem riða hefur fundist eða verið
landlæg. Ég hef óskað eftir slíku
auknu eftiliti með mínu fé. Fari
svo að nýtt riðutilfelli finnist
verður fénu að sjálfsögðu fargað,
svo sem hvarvetna annars staðar,
þar sem riðuveikar kindur kunna
að fínnast á næstu árum.
Allar glósur um Jón eða séra
Jón eru því út í bláinn og allt tal
um sérreglur fyrir mig og mitt fé
eru tilefnislausar.
Reykjavík, 26. ágúst 1988.
Páimi Jónsson
Mjög góðar heimtur hafa verið
sumar.
skiptingin er milli 1 og 2 ára laxa.
í hitti fyrra var sleppt 20.000
seiðum og í fyrrasumar var fjölg-
að í 60 þúsund seiði.
Slegið var á þráðinn til eins
byrjanda í hafbeitinni við Grund-
arfjörð. Gunnar Magnússon
sagðist ekki geta verið annað en
ánægður með heimturnar. Af
hafbeitarlaxi í Laxeldisstöðinni
væru 150 laxar búnir að skila sér.
í vor voru síðan 10.000 göngu-
seiði send af stað og 900 bætt við
síðar í sumar.
í nágrenni við Gunnar eru 2
fremur stórar hafbeitarstöðvar,
Lárós og Silfurlax og sagðist
Gunnar vita að heimtur væru
góðar hjá Lárósi, þó ekki vissi
XL__ Viorin manntÁinrnor
Námsgögn
Fallordabók
út er komin kennslubókin
„Fallorð“ eftir Magnús Jón
Ámason, einnota verkefnabók í
íslensku handa 7.-9. bekk.
Bókin er ætluð til glöggvunar
og greiningar fallorða og hentar
auk þess sem ítarefni við „Málvísi
1-3“. Kolbeinn Árnason er höf-
undur mynda i bókinni, sem
margar eru vel smellnar, en þar
em einnig myndagátur um máls-
hætti og orðtök.
Myndskreyting við kaflann um
„óákveðin fornöfn".
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 30 ágúst 1988