Þjóðviljinn - 30.08.1988, Side 10
Urslit
England
1. deild
Aston Villa-Millwall..............2-2
Charlton-Liverpool................0-3
Derby-Middlesbrough...............1-0
Everton-Newcastle.................4-0
Man. Utd.-QPR.....................0-0
Norwich-Nott. Forest ............2-1
Sheff. Wed.-Luton.................1-0
Southampton-WestHam...............4-0
Tottenham-Coventry................fr.
Wimbledon-Arsenal.................1-5
2. deild
Brighton-Bradford.................1-3
Chelsea-Blackbum..................1-2
Hull-Man. City....................1-0
Leeds-Oxford.....................1-1
Leicecter-WBA....................1-1
Oldham-Barnsley..................1-1
Shrewsbury-Portsmouth.............1-2
Stoke-lpswich....................1-1
Sunderland-Bournemouth...........1-1
Swindon-Cr. Palace................fr.
Walsall-Plymouth..................2-2
Watford-Birmingham................1-0
3. deild
Bretford-Huddersfield.............1-0
Bristol Rov.-Wigan...............3-2
Bury-Wolves......................3-1
Cardiff-Fulham....................1-2
Chester-Blackpool................1-1
Chesterfield-Aldershot...........2-1
Gillingham-Swansea...............2-3
Mansfield-Northampton............1-1
NottsCounty-BristolCity..........0-0
Preston-PortVale..................1-3
Reading-Sheff. Utd................1-3
Southend-Bolton..................2-0
4. deild
Burnley-Rochdale.................2-1
Cambridge-Grimsby................4-1
Carlisle-Peterborough............2-2
Colchester-York..................1-0
Darlington-Stockport.............1-4
Exeter-Wrexham...................0-2
Leyton-Crewe.....................0-0
Lincoln-Hartlepool...............0-1
Rotherham-Dancaster..............3-0
Scarborough-Tanmere..............0-0
Torquay-Halifax..................0-2
Þýskaland
Bayern Miinchen-Kaisersl.........5-1
Köln-Karlsruhe...................6-1
BayerUrdingen-Frankfurt..........4-1
Mannheim-Werder Bremen...........1-1
Hannover-BayerLeverkusen.........1-1
Stuttgarter Kick.-Hamburg........2-0
Nurnberg-Bochum..................3-1
B. Dortmund-B. Mönchengladbach .... 0-0
St. Pauli-Stuttgart...............2-1
ÍÞRÓTTIR
Enska knattspyrnan
Aldridge fastur fyrir
Ian Rush þarfað berjastfyrir sœti sínu í Liverpool-liðinu eftir þrennu John
Aldridge á laugardag. Tony Cottee byrjar vel með Everton
Kenny Dalglish, framkvæmdastjóri Englandsmeistara Liverpool,
getur varia tekið John Aldridge úr liði sínu á næstunni. Upphaflega leit
út fyrir að Aldridge yrði að víkja fyrir lan Rush, sem hefur snúið aftur
úr útlegð á Ítalíu, en írski landsliðsmaðurinn lætur sæti sitt ekki
baráttulaust af hendi heldur raðar inn mörkum í fyrstu leikjum keppn-
istímabilsins. Aldridge skoraði fyrst bæði mörk Liverpool í leik
meistaraliðanna um Góðgerðarskjöldinn og um helgina skoraði hann
öll þrjú mörkin gegn Charlton þegar fyrsta umferð deildarinnar fór
fram.
Tony Cottee ætlar að reynast
peninganna virði.
Fótbolti
Atvinnumennimir
Liverpool sótti Charlton heim
á Selhurst Park í Lundúnum og
var sigur þeirra ekki í hættu.
Aldridge skoraði eitt mark í fyrri
hálfleik en bætti síðan tveimur
við á tveggja mínútna kafla
snemma í síðari hálfleik. Pess má
geta að Ian Rush kom inná sem
varamaður í lið leiksins en var
ekki á skotskónum að þessu
sinni.
Everton rúllaði Newcastle upp
á heimavelli sínum í Liverpool,
4-0, og skoraði Tony Cottee
þrennu í þessum fyrsta leik sínum
með liðinu. Cottee, sem kostaði
Everton 2,5 miljónir punda,
skoraði þrjú fyrstu mörkin í
leiknum og það fyrsta eftir aðeins
32 sekúndur. Graeme Sharp
skoraði síðan fjórða markið á 84.
mínútu.
Bikarmeistarar Wimbledon
voru rassskelldir á eigin heima-
velli af liðsmönnum Arsenal, 1-5.
Alan Smith skoraði þrívegis en
þeir Brian Marwood og Paul
Merson skoruðu eitt hvor. John
Fashanu skoraði eina mark Wim-
bledon og var það jafnframt
fyrsta mark leiksins en eftir það
áttu bikarmeistararnir ekki við-
reisnar von.
Óvæntustu úrslit helgarinnar
voru vafalaust sigur Norwich á
Nottingham Forest, 2-1. Norwich
var reyndar á heimavelli en
komst í 2-0 með mörkum Flecks
og Bowens. Steve Chettle
skoraði síðan eina mark skógar-
mannanna frá Nottingham.
-þóm
John Aldridge hefur nú skorað öll fimm mörk Liverpool í tveimur
leikjum liðsins á nýbyrjuðu keppnistímabili.
Þýskaland
Mikið skorað
heilir heilsu
Stuttgart tapaði sínumfyrstu stigum.
Bayern á toppinn eftir stórsigur
Ragnar Margeirsson ekki með vegna meiðsla
Ásgeir Sigurvinsson og félagar
töpuðu sínum fyrsta leik og jafn-
framt sínum fyrstu stigum á
keppnistímabilinu þegar Stutt-
gart beið ósigur í Hamborg, gegn
nýliðum St. Pauli á föstudags-
kvöld.
Stuttgart varð að vísu fyrra til
að skora en það gerði Fritz Walt-
er á 15. mínútu. í síðari hálfleik
skoruðu heimamenn hins vegar
Frjálsar
Jón Amar
annar á NM
Jón Arnar Magnússon, HSK,
náði bestum árangri sex frjálsí-
þróttamanna sem kepptu á Norð-
urlandamóti unglinga í Stokk-
hólmi um helgina. Hann varð
annar í langstökki, stökk 7,32
metra, sem er hans besti árangur.
Jón Arnar keppti einnig í 100
metra hlaupi og varð 8. á 11,36
sek en sigurvegarinn hljóp á
10,91 sek. Aðrir íslenskir kepp-
endur á mótinu voru þau Súsanna
Helgadóttir, Frímann Hreinsson,
Einar Kristjánsson, Steinn Jó-
hannsson og Jón Sigurjónsson.
-þóm
tvisvar en þrátt fyrir stór nöfn í
liði Stuttgart náðu þeir ekki að
bæta við marki og fóru því stiga-
lausir suður til Stuttgart.
Bayern Munchen er nú komið í
efsta sætið eftir stórsigur á Kais-
erslautern, 5-1, á hinum glæsilega
Ólympíuleikvangi í Munchen.
Mörk Bæjara skoruðu þeir
Augenthaler og Wolfarth í fyrri
hálfleik og síðan Ekström, Thon
og Nachtweih, en Kohr skoraði
mark Keisaranna.
Köln fékk Karlsruhe í heim-
sókn og var einnig mikið skorað í
þeim leik. Lokatölur urðu 6-1
fyrir Kölnara og var þetta fyrsta
tap Karlsruhe á tímabilinu.
Thomas Allofs skoraði þrjú mörk
en þeir Engels, Paulsen og Jans-
en eitt hver. Spies gerði eina
mark Karlsruhe í leiknum.
Enn einn markaleikurinn var í
Urdingen þegar heimaliðið lagði
Frankfurt 4-1. Urdingen skoraði
öll mörkin í fyrri hálfleik og
skoraði Kuntz tvö en Kleppinger
og Funkel eitt hvor. Það var síðan
Roth sem minnkaði muninn fyrir
Frankfurt í síðari hálfleik.
Staða efstu liða
BayernM........4 3 1 0 11-3 7
Köln ..........5 3 1 1 10-3 7
B. Urdingen....5 2 3 0 9-5 7
Karlsruhe......5 3 1 1 12-12 7
Stuttgart......4 3 0 1 9-4 6
B. Leverkusen..5 2 2 1 9-7 6
-þóm
íslendingar geta teflt fram sínu
besta liði gegn Sovétmönnum á
miðvikudag, en þeir leikmenn
sem leika erlendis komast allir í
leikinn og eru heilir heilsu. Ragn-
ar Margeirsson er eini leikmaður-
inn úr 22 manna hópnum sem
meiddist um helgina og verður
því ekki með. „Útlendingarnir
eru nú allir komnir til landsins og
hefur Sigfried Held valið 16
manna hóp í þennan þýðingar-
mikla leik. Hann er þannig skip-
aður:
Markveröir:
Bjarni Siguðsson, Brann........22
Friðrik Friðriksson, B1909.....13
Aðrlr leikmenn:
ArnórGuðjohnsen, Anderlecht....25
Ásgeir Sigurvinsson, Stuttgart.39
Atli Eðvaldsson, Val...........51
GuðmundurTorfason.Genk.........14
Guðni Bergsson, Val ...........19
GunnarGíslason, Moss...........34
Ólafur Þórðarson, fA...........23
ÓmarTorfason, Fram.............30
PéturArnþórsson, Fram..........19
PéturOrmslev, Fram.............29
SigurðurGrétarsson, Luzern.....20
Sigurður Jónsson, Sheff. Wed...14
SævarJónsson, Val..............42
Viðar Þorkelsson, Fram.........19
Eins og sjá má er þetta mjög
sterkur hópur og eru margar
leiðir mögulegar á uppstillingu
liðsins. Ein þeirra er að Bjarni
verði í markinu, Guðni
„sweeper" og Atli og Sævar þar
fyrir framan. Sigurður Jónsson
og Ólafur yrðu á vængjunum og á
miðjunni þeir Gunnar, Pétur
Ormslev og Ásgeir, Gunnar
þeirra aftastur. Framliggjandi
yrðu svo Arnór og Sigurður Grét-
arsson.
Þessi uppstilling miðast við 3-
5-2 leikkerfi sem landsliðið notar
gjarnan en auðvelt er að stilla lið-
inu öðruvísi upp. Til dæmis gæti
Gunnar verið „sweeper" og Arn-
ór þá kannski aftar og Guðmund-
ur Torfason í sóknina. Eða að
hafa sóknina óbreytta og Sigurð-
ur Jónsson kæmi inná miðjuna í
stað Gunnars. Allt saman sak-
lausar vangaveltur sem verða
ekki ljósar fyrr en á morgun.
-þóm
Arnór Guðjohnsen skorar hér framhjá Rinat Dassajev í landsleik
íslendinga og Sovétmanna fyrir þremur árum.
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 30 ágúst 1988