Þjóðviljinn - 30.08.1988, Side 14
Stuttí
kynþátta-
fordómana
Þessa fáu daga sem ég dvaldi í
höfuðstað Norðmanna í byrjun
mánaðarins, rakst ég af tilviljun
tvisvar á ungar íslenskar konur
með lítil börn sín. í sjálfu sértelst
það ekki til tíðinda að rekast á
íslendinga búsetta á hinum
Norðurlöndunum. Hiðsérstaka
var hins vegar að börn beggja
þessara kvenna voru kynblend-
ingar, dökk á hörund og svart-
hærð.
Þó ég viti ekkert um ástæðu
þess að báðar konurnar búa í
Osló en ekki heima á fróni, þá
læddist óneitanalega að sá grun-
ur að leyndir og Ijósir kynþáttafor-
dómar margra Islendinga hefðu
þar áhrif. Ég hef allavega heyrt af
einni íslenskri konu sem bjó hér
um tíma með svörtum manni sín-
um, en gafst upp og flutti með
fjölskylduna til Osló.
Á hótelinu þar sem margar
okkar íslensku dvöldu var nær
eingöngu fólk af suðlægum upp-
runa í þjónustustörfunum. Oft
heyröust athugasemdir í þeim
dúr, að „þetta fólk væri nú bara
regluglega snyrtilegt og vinnu-
sarnt", eins og við öðru hefði ver-
ið búist.
Þaðsérstaka við kynþáttafor-
dóma íslendinga er að þeir eru
lærðir. Hvaða reynslu hafaflest
okkar af samskiptum við fólk af
öðrum kynþáttum? Sama og
enga. Samt leyfa margir sér að
setja sjálfa sig og sitt slekt stalli
ofaren „hina“. „Hina“ sem í
mörgum tilvikum skera sig að-
eins frá „okkur“ að því leyti, að
húðfrumumar hafa að geyma
meira af verndaref ni gegn sól-
arljósinu en hjá okkur sem búið
höfum um aldaraðir á norð-
lægum slóðum.
Hvað er svona f rábært við að
vera kominn af víkingum, sem
gengu berserksgang heima hjá
sérog íöðrum löndum höggv-
andi mann og annan. Sem betur
hefur í gegnum tíðina slæðst
hingað einn og einn útiendingur
með nýtt og ferskt blóð. Því hætt
er viö að annars hefði úrkynjun
getað orðið þeim glæsta stofni er
hér þrífst að aldurtila.
mj
I dag
er 30. ágúst, þriðjudagur í nítj-
ándu viku sumars, áttundi dagur
tvímánaðar, 243. dagur ársins.
Sól kemur upp í Reykjavík kl.
6.04 en sest kl. 20.50. Tungl
minnkandi á þriðja kvartili.
Viðburðir
Dáinn Jón Vídalín biskup 1720.
Þjóðviljinn
fyrir 50 árum
Vaxandi viðsjár í Evrópu. Nas-
istar heimta að T ékkar gangi að
kröfum Súdeta fyrir fimta næsta
mánaðar.
KRON eykur starfsemi sína.
Innlánsdeild stofnuð, sem greiðir
hálfu prósenti hærri vexti en
sparisjóðir.
Chile kaupir „ Esju". Nýtt
stærra skip verður byggt í stað
hennar.
UM ÚTVARP & SJÓNVARP
l
Bláskjár og
Lína langsokkur
Á rás 1 í Ríkisútvarpinu eru 2
fastir barnatímar og fá þau yngstu
oftast að heyra einhverja sögu
lesna. Gunnvör Braga hefur um-
sjón með Litla barnatímanum,
sem er á dagskrá á morgnana
laust eftir klukkan 9 og er hann
endurtekinn klukkan átta á
kvöldin. Þessa dagana er verið að
segja frá ævintýrum Línu lang-
sokks í Suðurhöfum og er örugg-
iega mikið fjör í kringum Línu og
vini hennar.
Meðal efnis í barnaútvarpinu
kl. 16:20 er einnig lestur úr
þekktri barnasögu, því bók vik-
unnar er Bláskjár, eftir Franz
Hoffman. Strákurinn með stóru
bláu augun lendir í ýmsu mis-
jöfnu, þar sem hann elst upp hjá
flokki ræningja og er lengi fram-
an af lokaður inni í helli þeirra.
En allt fer vel að lokum, er Bljá-
skjá tekst að finna sína raunveru-
legu foreldra.
Á Útvarpi Rót eru einnig
barnatímar daglega kl. 19:30 og
eru þeir endurteknir kl. 9 morg-
unin eftir. í dag verða lesin ævin-
týri fyrir börnin, en um helgar sjá
þau sjálf um þáttinn og geta þeir
krakkar sem vilja koma með efni
í útvarpið haft samband við Rót-
Geðræn vandamál
Tom Berenger í hlutverki hins glæsta og glaðbeitta kúreka.
Syngjandi kúreki
Fyrir þá sem gaman hafa af
hetjum villta vestursins, endur-
sýnir Stöð 2 í kvöld myndina
Oður kúrekans (Rustlers Rhaps-
ody). Kúrekinn Rex OHerlihan
fyllir ekki þann hóp sem fer um
með ránum og ofstopa, heldur
ferðast hann syngjandi um og
gerir góðverk.
Þessi „sprenghlægilega gaman-
mynd“ er síðust á dagskránni í
kvöld og hefst kl. 23:35. Leik-
stjóri myndarinnar er Hugh Wil-
son og í aðalhlutverkum eru:
Tom Berenger, G.W.Bailey,
Marilu Henner, Fernando Rey
og Andy Griffith.
Það er leið út, er yfirskrift þátt-
ar um geðræna kvilla sem Sjón-
varpið sýnir í kvöld. í honum
verður fjallað um streitu og þau
geðrænu vandamál sem af henni
geta skapast, t.d. þunglyndi.
í þættinum munu nokkrir ein-
staklingar segja frá reynslu sinni
af geðrænum vandamálum og
Ingólfur Sveinsson geðlæknir sit-
ur fyrir svörum. Einnig verður
starfsemi Geðhjálpar kynnt og
sér formaður félagsins, Magnús
Þorgrímsson sálfræðingur, um þá
Margir íslendingar eiga við geð-
ræn vandamál að stríða og munu
nokkrir tjá sig um reynslu sína af
þeim í sjónvarpinu í kvöld.
kynningu. Umsjónarmaður þátt-
arins er María Maríusdóttir.
GARPURINN
v
C»pt. •*» *••*•»«
Ctp. tU WwM «t*4.
KALLI OG KOBBI
Þá liggur svo beint við
að gera eitthvað.
'C.. -
‘7-4
FOLDA
Hugsaðu þér það sem gerist
í heiminum í kringum þig!
Ekki minna mig á það!
Afhverju heldurðu að ég sé
að lesa teiknimyndasögur?
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 30 ágúst 1988