Þjóðviljinn - 07.09.1988, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 07.09.1988, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 7. september 1988 198. tölublað 53. árgangur Alþýðusambandið Launalækkun hafnað Leiðforstjóranna afskrifuð. Skilyrði fyrir frekari viðrœðum að ekki sé rœtt um launalœkkun. Hœkkun á elli- og örorkulífeyri verði ekki frestað. Ásmundur Stefánsson: Ríkisstjórnin á nœsta leik. Þorsteinn Pálsson: Niðurfœrslan úr sögunni. SteingrímurHermannsson: Ekki fullreyntenn Á fundi miðstjórnar ASÍ var samþykkt að hafna öllum við- ræðum við ríkisstjórnina um niðurfærsluleiðina svokölluðu. ASÍ er ekki tilbúið í umræður um 9% lækkun launa eins og for- stjóranefndin lagði til. Samþykkt miðstjórnar hljóðar þannig: Fundur miðstjórnar og for- manna landssambanda ASI sam- þykkir að setja það skilyrði fyrir áframhaldandi viðræðum við ríkisstjórnina að þær snúist ekki um lækkun launa. Áframhaldandi viðræður bein- ist að því að leita leiða til að lækka vexti og verðlag og tryggja af- komu útflutningsgreina. Jafn- framt ítrekar miðstjórn kröfu sambandsins um að hækkun bóta elli- og örorkulífeyrisþega verði ekki frestað. Það var Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ sem lagði fram til- löguna og er hann talinn hafa styrkt mjög stöðu sína á þessum fundi. Er talið að sumir mið- stjórnarmenn, og þá einkum þeir sem tengdir eru ríkisstjórnar- flokkunum, hafi verið mjög treg- ir til að veita samþykki sitt. Mið- stjórnin gerði samþykkt sína samhljóða en Guðmundur J. Guðmundsson formaður Verka- mannasambandsins sat hjá. Síðar í gærdag samþykkti fram- kvæmdastjórn Verkamannasam- bandsins samhljóða tillögu þar sem tekið var undir með mið- stjórn ASÍ. í ríkisstjórninni virðist ekki ríkja eining um hvort niður- færsluleiðin sé inni í myndinni eða ekki. Þorsteinn Pálsson sagði í gær að hún væri úr sögunni þótt það væru honum mikil vonbrigði en hann hefði marg tekið fram að þessi leið væri ófær nema til kæmi náið samráð við verkalýðshreyf- inguna. Steingrímur Her- mannsson vildi aftur á móti ekki meina að niðurfærsluleiðina ætti að afskrifa strax, að minnsta kosti ekki fyrr en ríkisstjórnin hefði fjallað um málið. Hún þyrfti að hittast sem fyrst, jafnvel strax í dag. Sjá bls. 3 Grunnskólar Nemendur 42 þúsund í landinu eru nú starfandi 216 grunnskólar og með forskóla- deildum er nemendafjöldinn um 42.000. Víða á landsbyggðinni hefst þó skólastarf síðar og samkvæmt tölum frá síðasta vetri voru ein- ungis 76% gunnskólanema 9 mánuði ársins í skóla. Tíundi hluti þeirra fékk kennslu mánuði skemur og í tillögum sínum um skólamál vildi fjölskyldunefnd ríkisins að reynt yrði að draga úr þessu misræmi milli skóla. mj Eftir langt sumarfrí leggst tilhugs- unin um 9 mánaða setu á skóla- bekk eflaust misvel í grunn- skólanemendur. Galsi var í strák- unum í Hvassaleitisskóla og ekki annað að sjá en þeir fögnuðu endurkomunni á skólalóðina í gær. Mynd: Ari Hilmar Sighvatsson berst um knöttinn í leiknum í gær. Mynd: E. Ól. Fótbolti Islenskur sigur Valur sigraði frönsku meist- arana Monaco í fyrri leik liðanna í Evrópukeppninni í gærkvöld. Sigur Valsmanna var fyllilega sanngjarn enda þótt þeir væru nokkuð seinir í gang. Monaco, með enska landsliðsmanninn Glenn Hoddle í broddi fylkingar, var furðu slakt en liðin leika í Monaco eftir fjórar vikur. Sjá síðu 11 Reykjavík Afturkallað leyfi Félagsmálaráðherra telur byggingaráform á Fjalakattarlóðinni ekki samkvœmt lögum. Tekiðfram fyrir hendurnar á byggingarnefnd Jóhanna Sigurðardóttir félags- málaráðherra hefur ógilt bygg- ingarleyfi sem byggingarnefnd Reykjavíkur og síðar borgar- stjórn samþykktu í maí síð- astliðnum vegna byggingar á lóð- inni Aðalstræti 8. Lóð þessi er við hlið Morgunblaðshallarinnar og á henni stóð til skamms tíma Fjalakötturinn. Það voru níu íbúar í Grjóta- þorpi sem kærðu veitingu bygg- ingarleyfisins. Félagsmálaráð- herra hefur tekið til greina kæru þeirra um of hátt nýtingarhlut- fall, ranga landnotkun og að það standi til að gera tvö hús að einu með því að reisa á milli þeirra fimm hæða tengibyggingu. Athyglisvert er að Skipulags- stjórn ríkisins, sem fékk kæruna til umsagnar, mælti ekki með því í Grjótaþorpi hefur verið tekist á að byggingarleyfið yrði afturkall- um það hvort varðveita á heildar- að. svip tréhúsaþyrpingarinnar þar Allt frá því að Morgunblaðs- eða staðsetja þar nútíma höllin var á sínum tíma reist neðst skrifstofu- og verslunarhallir. ÓP Irak Kúrdum gert tilboð Einn daginn eiturbomba, þann nœsta útrétt sáttahönd „Byltingarráð“ íraks lét það boð út ganga í gær að öllum Kúrdum væru gefnar upp „sakir“ og gilti einu þótt þeir hefðu tekið upp vopnaða baráttu gegn sér. Flóttamenn væru velkomnir heim, og pólitískir fangar yrðu látnir lausir. Öllum er heitið griðum. Öllum nema einum. Svo fremi þeir taki tilboði þessu innan eins mánaðar. Sjá síðu 13

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.