Þjóðviljinn - 07.09.1988, Blaðsíða 13
F.RI,KNDAR FRETTIR
Griðatilboð Iraka
Kúrdar á
varðbergi
Aðeins einn maður hefur unnið sé til óhelgi.
Ótrúleg umskiptifrá efnavopnum til
gylliboða
r
Irakar hétu öllum Kúrdum, nær
og fjær, griðum og uppgjöf
,rsaka“ í gær svo fremi þeir sneru
heimleiðis og létu af andófi innan
eins mánaðar. Minnugir eitur-
hernaðar og fyrri griðrofa Iraks-
stjórnar kröfðust forystumenn
Kúrda trygginga fyrir því að
stjórnvöld í Bagdað héldu heit
sín.
í yfirlýsingu frá „Byltingar-
ráðinu“ íraska er því heitið að all-
ir Kúrdar sem sitji í dýflissum
sökum stjórnmálaafskipta verði
látnir lausir. Almennir glæpa-
menn verði hinsvegar að dúsa
áfram á bak við lás og slá.
Það er kunnara en frá þurfi að
segja að um 60 þúsund Kúrdar.
skæruliðar og óvopnuð alþýða,
hafa fengið hæli handan
landamæranna að Tyrklandi.
Þetta fólk sé nú allt velkomið
heim, samkvæmt Saddam Huss-
ein, ekki verði skert hár á höfði
þess snúi það frá villu síns vegar
einhverntíma á næsta mánuði.
Pólland
„Félagar“
uggandi
Heimildamaður Reuters
segir kommúnistafyrir-
líta og óttast Walesa
Maður sem kveðst öllum hnútum
kunnugur í pólska kommúnista-
flokknum segir af og frá að
stjórnvöld ljái máls á því að iög-
leyfa Samstöðu á ný. í öllu falli
komi ekki til greina að verkalýðs-
hreyfingin fái að leika lausum
hala einsog hún gerði áður en her-
lög voru sett á öndverðum þessum
áratug.
Reuter segir að viðmælandi
sinn sé hátt settur en óski nafn-
leyndar. Hann fullyrði að æ fleiri
félagar í flokknum séu andsnúnir
öllu samráði við Lech Walesa.
„Hjá allmörgum félögum er við-
kvæðið þetta: „Æ, er hann kom-
inn aftur á kreik, heimski asninn
hann Walesa.““
Heimildamaðurinn fullyrðir að
hugmyndin um að heimila starf-
semi Samstöðu komi fjölmörgum
félögum úr jafnvægi og því komi
slíkt trauðla til greina. „Það er
alls ekki á dagskrá að endurreisa
Samstöðu. Hreint ekki. Það er
útilokað."
Það er kunnara en frá þurfi að
segja að Walesa féllst því aðeins á
að hefja viðræður við Jarúzelskí
og aflýsa verkföllum að stjórn-
völd gáfu í skyn að hugsanlega
fengi Samstaða að starfa á ný.
Hinsvegar segir ofannefndur
„félagi" að efnahagur Pólverja sé
kominn í slíkt óefni að ráðamenn
gætu ekki, þótt þeir væru allir af
vilja gerðir, gefið verkalýðsfé-
lögum lausan tauminn.
Reuter/-ks.
Tilboðið virðist gert öllum
kúrdskum uppreisnar- og andófs-
mönnum, með einni undantekn-
ingu þó. Jalal Talbani, leiðtogi
Þjóðfrelsiseiningar Kúrdistan,
verður áfram óalandi, óferjandi
og óráðandi öllum bjargráðum.
Ekki fyrir landráð, ekki fyrir að
ganga erinda Sýrlendinga, heldur
fyrir að hafa svikið alla samninga
við íraksstjórn.
Forystumenn „Lýðræðisflokks
Kúrda“ segjast ekki gína við
flugum íraksstjómar. Hvöttu
þeir liðsmenn sína til þess að
gjalda varhuga við tilboðinu en
sjálfir hyggjast þeir bíða átekta.
„Lýðræðisflokkur Kúrda fagn-
ar öllum griðatilboðum og sátta-
umleitunum," sagði málsvari
hans í símtali við fréttamann Re-
uters.
„En það væri óskandi að íraks-
stjórn sýndi og sannaði sáttahug
sinn í verki. Til að mynda með því
að láta þá Kúrda lausa sem gista
myrkrastofur sakir stjórnmála-
Tveir skæruliðar úr „Lýðræðisflokki Kúrda.“ öllum nema einum heitið griðum.
skoðana sinna. í þeim hópi eru
8.000 Barzaní-Kúrdar sem horfið
hafa sporlaust frá 1983. Enn-
fremur verður að tryggja frið-
helgi flóttamanna sem snúa
heim.
Áður en gengið hefur verið frá
þessum lágmarkstryggingum
undir eftirliti óháðra aðilja eigum
við einskis annars úrkosti en að
hvetja okkar fólk til þess að bíða
átekta.“
Málsvarinn kvað Kúrda minn-
ast með beiskju fyrri griða- og
sáttatilboða íraskra ráðamanna.
Þeim hefði verið gert eitt slíkt
fyrir 13 árum. Fjöldi þeirra sem
þá gáfu sig fram hefði verið tek-
inn höndum og skotinn. Aðrir
hefðu verið fluttir nauðugir vilj-
ugir til suðurhéraða íraks.
Reuter/-ks.
Sovétríkin
Geimfaríð bilaði
Kemst ekki til jarðar. Leiðangursmenn um borð gera að gamni sínu
Sovéskur geimfari og afgansk-
ur kollega hans eru á sveimi
úti í geimi í fari sínu, Sojuzi TM-
5, sem kemst ekki inní gufuhvolf
jarðar sakir bilunar í hátækni-
búnaði. I farinu eru aðeins
tveggja daga birgðir matar og
súrefnis.
Að sögn Tass fréttastofunnar
voru þeir Vladímir Ljakhov og
Abdul Ahad Mohammed á leið
til jarðar eftir áfallalausa ferð
upp í geimstöðina Mír. Sam-
kvæmt áætlun áttu þeir að lenda
heilu og höldnu í Kazakstan í gær
en vegna tækjabilunar væru þeir
enn utan gufuhvolfsins. Málsvari
sovésku geimferðastofnunarinn-
ar, Glavkosmos, sagði hinsvegar
að ekkert væri að óttast því
geimfarið hefði ekki borist út af
braut sinni og myndi lenda jafns-
kjótt og auðið væri.
„Samkvæmt skýrslu sérfræð-
inga í stjómstöð leiðangursins
eiga lífsnauðsynjabirgðir geim-
farsins að endast í 48 klukku-
stundir,“ sagði Tass.
Málgagn sovétstjórnarinnar,
Ízvestía, flutti einnig fréttir af erf-
iðleikum geimfaranna í gær. í
dagblaðinu stóð að tvímenning-
arnir myndu gera enn eina tilraun
til lendingar í dag, miðvikudag.
„Ástandið er alvarlegt en sér-
fræðingar vona að lending þann
7. september takist vel.“
Ízvestía birti ennfremur orða-
skipti Ljakhovs og stjórnenda á
jörðu niðri um aðbúnaðinn um
borð í Sojuzi. Geimfarinn virðist
gæddur töluverðri karlmennsku:
„Það er matur um borð en við
munum ekki snerta hann. Við
bíðum átekta. En ástand Asú er
skelfilegt," sagði kappinn og hló.
Asú kvað vera skolphreinsikerfi
geimfarsins. Reuter/-ks.
Kína
I
Tvö böm í sveit
en eftir sem áður eitt í borg
Kínvcrskir bændur mega eiga
tvö börn ef fyrra barnið er
stúlka. Þannig hljóðar hið boð-
aða orð frá Peking. Kínverskir
ráðamenn hyggjast uppræta
meybarnamorð sveitamanna.
„Það er enn nokkuð algengt í
Kína að meybörn séu skilin eftir á
víðavangi eða þeim drekkt. Ný-
mælin eiga vitaskuld að stuðla að
upprætingu þess,“ sagði frú Peng
Peijun, ráðherra fjölskyldumála,
í samræðum við fréttamenn í gær.
„Fólk upp til sveita vill ætíð
eignast syni. Ef það á dóttur fær
það tækifæri til þess að eignast
annað barn. Þetta ætti að orka
letjandi á þá sem hafa í hyggju að
bera stúlkuna sína út.“
Peng kvað flest landsbyggðar-
héruð hafa tekið upp þessa nýju
stefnu; ef hjónum fæðist
meybam mega þau gera aðra til-
raun að nokkmm árum liðnum.
„Þetta hefur í raun verið stefna
okkar um nokkurra ára skeið
þótt það hafi farið lágt.“
Kínverjar eru nú rúmur milj-
arður og er skiljanlegt að ráða-
mönnum ói við hinum öra vexti
þjóðarinnar. Árið 1984 varð ein-
bimisstefna að landslögum í Kína
en mætti frá öndverðu mikilli
andstöðu í sveitum. Bændur ótt-
ast ekkert meir en að lenda á von-
arvöl í ellinni eignist þeir ekki son
til þess að ala önn fyrir sér. Út-
burður meybarna varð því land-
lægur.
Peng viðurkennir að þorri kín-
versks sveitafólks (um 800 milj-
ónir manna) búi við kröpp kjör.
Öll félagsleg þjónusta sé í skötu-
líki í sveitum, skólastarf afar
fáskrúðugt og að víða gæti enn
„lénsviðhorfa".
Kommúnistaflokkurinn geri
sér grein fyrir því að hann geti
ekki troðið einbirnisstefnunni
uppá sveitafólk en henni verði
haldið til streitu í bæjum og borg-
um.
Reuter/-ks.
Morgunverður
LSD
Nýjustu vísindi Breta herma að
menn geti rifið sig snarlega upp
úr skammdegisdrunga með því
að snæða eina skál af hveitiklíði,
þ.e.a.s. kornhýði, í morgunverð.
Það hefur nefnilega komið í ljós
við strangvísindalega athugun að
stundum er LSD i klíðinu og
stundum ekki.
Nú er ársfundur Breska
vísindafélagsins í alglevmingi og
ræða menn um alla heima og
geima. En fá erindi hafa vakið
jafn mikla athygli og ræða
næringarfræðingsins Davids
Connings. Hann segir að gras-
drjóli nokkur framleiði fjölmörg
efni, þar á meðal LSD. Grasdr-
jóli er sveppategund sem sækir í
kom.
Dagleg neysla kornmetis geti
orsakað ofskynjanir því þótt át-
inu sé stillt í hóf geti einstaklingur
gleypt LSD skammt sem sé fjór-
um sinnum sterkari en nægi til
þess að valda áhrifum.
„Þar eð þessi sveppategund
hreiðrar einkum um sig í hýðinu
getur ofur hversdagslegt klíðisát
leitt til óvænts skapléttis,“ sagði
Conning.
Reuter/-ks.
Kasparov/Karpov
Aftur
og
enn
Sovéska skáksambandið ákvað
í gær að þeir Anatólíj Karpov og
Garríj Kasparov etji kappi um
titilinn „Skákmeistari Sovétríkj-
anna.“ Fjögurra skáka einvígi
þeirra hefjist á jóladag.
Samkvæmt úrskurði skáksam-
bandsins verða báðir útnefndir
sigurvegarar ef enn verður jafnt
að einvígi loknu. Neiti annar að
heyja keppni sigrar hinn. Svör
verða að berast fyrir 1. október.
Reuter-ks.
Miðvikudagur 7. september 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13