Þjóðviljinn - 07.09.1988, Page 9
MENNING
Listasafn íslands
Mynd
september-
mánaðar
Fantasia
Eurytmí
Kynningarnámskeið og
sýningar á tuttugustu
aldar listforminu
Eurytmí
Nú er staddur hér á landi hópur
sem kallar sig Fantasia Eurytmí,
en Eurytmí er tuttugustu aldar
listform, og er upphaf þess rakið
til ársins 1912. Það er hreyfilist,
sem er skipt í tal- og tóneuritmí,
eða hreyfingu eftir töluðu máli og
hreyfingu eftir tónlist. Þannig
liggur málfræðileg uppbygging
tungumálsins eða dúr og moll til
grundvallar „dönsunum“.
Euritmí er meðal annars notað
til að aðstoða fjölfatlaða, og hef-
ur borið árangur við meðhöndlun
á börnum með persónuleikatrufl-
anir. Þessi listgrein er því á
kennsluskrá Wladorf skóla um
allan heim. Fantasia Eurytmí
hefur aðsetur í Járna í Svíþjóð,
þar sem er starfrækt Eurytmí
deild við Rudolf Steiner Sámin-
ar. Stjórnandi og danshönnuður
hópsins er Peter de Voto, upples-
ari Antonius Zeiher, og selló-
leikari Eva Rydström.
Á meðan hópurinn dvelst hér á
landi verður hann með þrjár sýn-
ingar, og heldur þrjú stutt kynn-
ingarnámskeið á fyrirbærinu
Eurytmí. Fyrsta sýningin verður í
Sólheimum, Grímsnesi annað
kvöld kl. 20:00, önnur og þriðja
sýning í Félagsheimili Kópavogs
á sunnudags- og mánudagskvöld-
ið kl. 20:00. A efnisskránni eru
„dansar" við tónlist Benjamins
Brittens og ljóð Karinar Boyes,
auk verks sem Peter de Voto
samdi við upphaf Völuspár í til-
efni íslandsferðarinnar.
Fyrsta kynningarnámskeiðið
verður í dag í Sólheimum,
Grímsnesi, og hin tvö í Reykja-
vík, á föstudag og laugardag.
Nánari upplýsingar um nám-
skeiðin gefur Sigrún Harðardótt-
ir í síma 91-30181. r r
Mynd septembermánaðar í
Listasafni íslands er olíumálverk
Þorvaldar Skúlasonar, Kompos-
ition (Höfnin) frá árinu 1938 og
var málverkið keypt til safnsins
sama ár.
Þorvaldur Skúlason (1906-
1984) nam við Statens Kunst-
akademi í Osló og síðar við ein-
kaskóla Marcel Gromaire í París.
Hann var einn helsti brautryðj-
andi íslenskrar nútímalistar.
Leiðsögn „Mynd mánaðarins"
fer fram í fylgd sérfræðings, alla
fimmtudaga kl. 13.30 og er leið-
sögnin ókeypis.
Listasafn íslands er opið alla
daga, nema mánudaga, kl. 11-17
og er veitingastofa hússins opin á
sama tíma.
Ragna Róbertsdóttir við steinstigann.
Myndir:Ari Kjarvalsstaðir
Þrjár ólíkar sýningar
Ragna Róbertsdóttir, Ragna Hermannsdóttir
og Sigríður Gyða sýna skúlptúra og málverk
Þrír myndlistarmenn sýna nú á
Kjarvalsstöðum, þrjár konur,
sem allar eru mjög ólíkar hvað
varðar efnisval og efnistök.
í Vestursal sýnir Ragna Ró-
bertsdóttir skúlptúra úr torfi og
grjóti. Ragna var valin borgar-
listamaður 1987, og er með þess-
ari sýningu að þakka fyrir sig, en
það að halda sýningu á afrakstri
ársins er eina kvöðin, ef svo má
segja, sem fylgir því að vera borg-
arlistamaður.
Ragna stundaði nám við
Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands og Konstfack í Stokkhólmi.
Hún hefur meðal annars haldið
einkasýningar í Nýlistasafninu,
Glugganum og á Kjarvalsstöð-
um. Síðan árið 1975 hefur hún
tekið þátt í fjölda samsýninga,
núna síðast sýningunni 5 Víddir,
samsýningu 5 íslenskra lista-
manna í Röhsska museet í Gauta-
borg í sumar.
Ragna kveðst hafa unnið með
torf og grjót undanfarin tvö ár, en
yfirleitt vinni hún ákveðinn tíma
með efnin og möguleika þeirra
áður en hún snúi sér að því næsta.
Hún hafi til að mynda unnið mest
með reipi áður en hún sneri sér að
grjótinu. Steinarnir eru grágrýti
sem Ragna hefur fengið skorið til
í Steinsmiðjunni, en torfið hefur
hún sjálf þurrkað og sniðið.
Á sýningu Rögnu er rýmið
mikilvægt atriði, hún Ieggur
áherslu á að listaverkin njóti sín
og myndi heild þegar litið er yfir
salinn. Pví segist hún hafa valið
að takmarka fjölda verkanna á
sýningunni með tilliti til rýmisins,
frekar en að raða upp öllum þeim
sem kannski hefðu komist fyrir.
Óhætt er að segja að sýningin í
Austursalnum sé eins ólík þeirri í
Vestursalnum og frekast megi
vera. Þarsýnir Ragna Hermanns-
dóttir fimm dúkristur og 43 olíu-
málverk, flest unnin á striga.
Ragna stundaði nám við
Myndlista- og handíðaskóla fs-
lands og við Rijksakademie van
beeldende kunsten í Amsterdam.
Hún hefur meðal annars haldið
einkasýningar í Slunkaríki á fsa-
firði, Galerie Scholte í Amster-
dam og í Nýlistasafninu. Hún tók
síðast þátt í samsýningu árið 1987
í Noord-Holland Huis, Alkmaar.
Öll verkin á sýningunni eru
unnin á síðasta ári, en Ragna seg-
ist hreinlega hafa tekist á hendur
að „mála upp í salinn", og það
hafi meira að segja tekist svo vel
að ekki hafi verið pláss fyrir öll
verkin. Hún segir af og frá að
þetta séu mikil afköst, - hún hafi
síður en svo staðið við málara-
trönurnar dag og nótt.
f Austur-forsal Kjarvalsstaða
sýnir svo Sigríður Gyða Sigurðar-
dóttir á þriðja tug verka; Reykja-
víkurmyndir og uppstillingar.
Sigríður Gyða stundaði nám í
Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands 1961-62, og 1972-78. Þetta
er hennar fyrsta einkasýning í
Reykjavík, en áður hefur hún
haldið sýningar í veitingaskálan-
um Þrastarlundi v/ Sog. Enn-
fremur hefur hún tvívegis tekið
þátt í samsýningum F.I.M. að
Kjarvalsstöðum.
Sýningum þeirra Rögnu Ró-
bertsdóttur, Rögnu Hermanns-
dóttur og Sigríðar Gyðu lýkur á
sunnudaginn, 11. september.
Kjarvalsstaðir eru opnir daglega
kl. 14:00-22:00.
LG
í Austursalnum sýnir Ragna Hermannsdóttir.
Sigrlður Gyða við Reykjavíkurmynd.
Mlðvikudagur 7. september 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9