Þjóðviljinn - 06.10.1988, Side 1
Fimmtudagur 6. október 1988 219. tölublað 53. árgangur
Ríkisstjórnin
Fjáriagafnimvaip endurskoðað
Fjármálaráðherra: Reiknar með að leggjaframfjárlagafrumvarp 10-20 dögum eftiraðþing kemursaman.
Ólafur Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra reiknar með að
leggja fram fjárlagafrumvarp
ríkisstjórnarinnar í kringum 20.-
30. október en þing kemur saman
þann 10. október. Það er álit
ríkislögmanns að ef ríkisstjórn er
mynduð rétt áður en þing kemur
saman sé ekki óeðlilegt að hún
taki sér 2-3 vikur til að ganga frá
fjárlögum. Á fyrsta og öðrum
degi þingsins verður að öllum lík-
indum gengið frá skipun nefndar-
formanna og forseta þingsins og
Stefndi Í4 miljarðafjárlagahalla. Þingið ifri að lokinni setningu
dregið um sæti. Síðan fer þingið
heim á meðan beðið er eftir fjárl-
agafrumvarpinu.
Ólafur sagði í samtali við Þjóð-
viljann að hann vildi ekki leggja
fram eitthvert gerviplagg í upp-
hafi þings, sem ekkert mark yrði
takandi á. Hann hefði látið ríkis-
lögmann kanna lögmæti þess að
fresta fjárlagafrumvarpi eitthvað
fram yfir þingbyrjun. Ríkislög-
maður hefði túlkað stjórnskipun-
arrétt Ólafs Jóhannessonar á
þann veg að ekki væri óeðlilegt
fyrir nýmyndaða ríkisstjórn að
ætla sér einhvern tíma í gerð fjár-
lagafrumvarps. Ólafur sagði að
nú væri unnið að hinum pólitíska
þætti fjárlaga, það er ákvörðun-
um um útgjalda- og tekjuliði.
Að sögn Indriða Þorlákssonar
fjárlaga og hagsýslustjóra er nú
verið að færa tölur upp til verð-
lags næstu áramóta. Þegar hinni
pólitísku ákvarðanatöku væri
lokið tæki tæknivinna og prentun
8-12 daga. Fyrir hefði legið góð
greining á horfum í efna-
hagsmálum eftir síðustu bráða-
birgðalög þar sem ekki var gert
ráð fyrir neinum ráðstöfunum.
Þessi greining hefði verið lögð
fyrir ríkisstjórnina á þriðjudag.
Indriði vildi ekki skýra frá því
hvað þessi greininggerði ráð fyrir
miklum halla á fjárlögum, en vís-
aði í yfirlit um fyrstu aðgerðir
ríkisstjórnarinnar.
Þar kom fram að allt stefndi í
3,5 miljarða halla á fjárlögum og
ef teknar væru með auknar niður-
greiðslur, styrkur til ullariðnað-
ar, skuldbreytingasjóður hús-
næðismála og endurgreiðsla sölu-
skatts til fiskeldis og loðdýra-
ræktar, sem er samanlagt upp á
800-900 miljónir, hefði hallinn
getað orðið rúmir 4 miljarðar.
Indriði sagði þann tíma sem færi í
tæknivinnu fjárlagafrumvarpsins
fara eftir því hvað hinar pólitísku
ákvarðanir snertu marga fjár-
lagaliði og rekstrarliði stofnana.
-hmp
Utvarp
Góðra vina
fundur
JónasArnason fyrsti
gesturnýs
sunnudagsþáttar
Ríkisútvarpsins
Sá landskunni útvarpsmaður
Jónas Jónasson fer af stað með
nýstárlegan þátt í Ríkisútvarpinu
sunnudaginn 23. október. Allir
þættirnir verða teknir upp í
Duus-húsi til að skapa réttu
stemmninguna. Jónas Árnason
skáld og söngtextasmiður verður
fyrsti gestur þáttarins sem heitir
„Á góðra vina fundi,“ og var
þátturinn tekinn upp á þriðju-
dagskvöld fyrir fullu húsi.
Jónas Árnason söng sjálfur
nokkur laga sinna og kór Lang-
holtskirkju tók undir við stjórn
Jóns Stefánssonar.
Að vanda skortir ekki tilþrifin hjá
Jónasi Árnasyni þegar hann
bregðuráleik. Hérsyngurhann
um „Lady Fish and Chips" með
ekki ólíkum töktum og þegar
hann hélt ræður í sölum Alþingis
héráárumáður. Mynd: Jim
Smart
A Imannatryggingar
Bætur
hækka
Bætur almannatrygginga
hækkuðu um 3% 1. október sl.
Hækkunin nær til tekjutrygg-
ingar, heimilisuppbótar og sér-
stakrar heimilisuppbótar. Þessi
hækkun er hluti af fyrstu efna-
hagsaðgerðum ríkisstjórnar
Steingríms Hermannssonar, en í
þeim er gert ráð fyrir að kjör og
afkoma lífeyrisþega verði bætt.
Eftir hækkunina er grunnlíf-
eyrir 9.577 krónur, tekjutrygging
17.620 kr., heimilisuppbót 5.990
kr. og sérstök heimilisuppbót
4.120 kr.
Eftir bótahækkunina nú eru
bætur einstaklings 37.307 kr. en
lágmarkslaun kr. 33.040. Bætur
almannatrygginga eru því orðnar
13% hærri en lágmarkslaun.
Heimsbikarmótið
Bókað gegn bakhjörium
Borgarráð samþykkir samhljóða að ferðamálanefndReykjavíkur verði
bakhjarl heimsbikarmótsins. Elín G. Ólafsdóttir: Kostnaður
borgarinnar vegna þess arna allt of mikill
Á fundi borgarráðs í fyrradag
var samþykkt samhljóða að
ferðamálanefnd Reykjavíkur
yrði bakhjarl heimsbikarmótsins
í skák sem Stöð 2 stendur nú fyrir
í Borgarleikhúsinu. Elín G. Ól-
afsdóttir, áheyrnarfulltrúi
Kvennalistans í ráðinu, lét bóka
mótmæli gegn þessari ákvörðun,
og segir þar að kostnaður borgar-
innar vegna þessa máls sé allt of
hár.
Bakhjarlskostnaður þessi
nemur alis 4,5 miljónum króna,
og á borgarráðsfundinum var
ferðamálanefnd veitt 2,5 miljóna
króna aukafjárveiting vegna þess
arna.
í tillögu ferðamálanefndarinn-
ar segir að íslenska sjónvarpsfé-
lagið kynni borgina í auglýsing-
um og útsendingum vegna móts-
ins. Félagið tekur að sér að birta
að minnsta kosti 50 auglýsinga-
myndir fyrir Reykjavíkurborg og
á hver þeirra að vera allt að 30
sekúndna löng. Þá framleiðir fé-
lagið og fjölfaldar stutta kynning-
armynd fyrir ferðamálanefnd, og
bíður útfærsla þess verkefnis nán-
ara samkomulags.
-Þessi eyðsla er ögrun, á sama
tíma og fólk er að missa 'atvinn-
una og fyrirtæki sigla í strand,
sagði Elín, en bókun hennar er
svofelld: „Ég tel 2,5 miljón króna
aukafjárveitingu vegna auglýs-
inga og kynningarmyndar, sbr.
samþykkt ferðamálanefndar, of
háa. Reyndar tel ég að heildar-
kostnaður borgarinnar vegna
þessa máls, sem er 4,5 miljónir
krória auk húsnæðis, sé allt of
mikill."
Formaður ferðamálanefndar
er Júlíus Hafstein, en ekki tókst
að hafa uppi á honum í gær vegna
þessa. HS
Grandi hf.
Nýstjóm
Nýireigendurtaka við
Á hluthafafundi í Granda hf. í
gær var kosin ný stjórn fyrir fyrir-
tækið. í stjórninni sitja nú þeir
Árni Vilhjálmsson, Jón Ingvars-
son, Kristján Loftsson, Gunnar
Svavarsson og Benedikt Sveins-
son. Varamenn eru Hjörleifur
Kvaran, Ólafur Bjarki Ragnars-
son og Ragna Bergmann. Árni
verður stjórnarformaður og Jón
varamaður hans.
Gamla stjórnin sem lét af völd-
um í gær hafði verið tilnefnd af
fyrri eigendum. í henni sátu þau
Ragnar Júlíusson, Þröstur Ólafs-
son, Baldur Guðlaugsson og Þór-
arinn V. Þórarinsson. Varamenn
þeirra voru Hjörleifur Kvaran,
Ólafur Davíðsson og Ragna
Bergmann.