Þjóðviljinn - 12.10.1988, Qupperneq 9

Þjóðviljinn - 12.10.1988, Qupperneq 9
SKAK Heimsbikarmót Stórmeistarasambandsins Heimsmeistari biýtur fingur Kasparov lék af sér drottningu, helmingur Ijósa slokknaði og skákklukka fór sér afar hœgt Það hefur verið haft á orði að Garríj Kasparov heimsmeistari tefldi ekki einsog hans væri von og vísa hér í Reykjavík, það er að segja af þeim fítonskrafti sem í honum blundar. f sjónvarpsviðtali í fyrr- akvöld kvaðst hann sáróánægður með frammistöðu sína og sagðist þurfa að hverfa aftur til ársins 1981 til að finna verri árangur í upphafi móts. En lengi getur vont versnað. í gærkveldi Iék hann illa af sér og tapaði fyrir happahrólfinum Andrej Sókólov. Sókólov stýrði hvítu liði og atti að vanda kóngs- peði sínu fram á völlinn í fyrsta leik. Heimsmeistarinn svaraði með Scheveningen-afbrigði sikil- eyjarvarnar en það varnarkerfi hefur reynst honum vel, til að mynda beitti hann því í úrslita- skák heimsmeistaraeinvígisins við Anatolíj Karpov haustið 1985 og sigraði. Sókólov er sóknarskákmaður og köllun sinni trúr hóf hann að- gerðir á kóngsvæng. Kasparov varðist vel og skóp sér álitleg gagnfæri. Pegar á leið glímuna lenti Sókólov í trylltu kapphlaupi við tímann og það hugðist heimsmeistarinn notfæra sér. En hann féll á sjálfs sín bragði og svo fór að hann stóð frammi fyrir tveim illum kostum: að glata pre- láta án bóta ellegar að láta hénn- ar hátign fyrir vesæla hróksblók. Hann kaus síðari kostinn en lagði niður vopnin skömmu síðar, við grát og gnístran tanna. Speelman og Spasskíj sömdu um skiptan hlut eftir skamman og tilþrifalítinn Pirc. Jóhann og Tal tefldu drottningarbragð en þrá- léku eftir að Lettinn hafði afsann- að sóknartilgátu landans. Öllu meiri hasar var í jafnteflis- skákum Nikolics og Sax og Anderssons og Beljavskíjs. Það var einmitt á tvísýnu augnabliki í skák hinna síðarnefndu að helm- ingur loftljósanna er beina kasti sínu niður á borð keppenda slokknaði. Allt í einu sátu Portisch og Kortsnoj, Ehlvest og Margeir, Andersson og Beljavskíj í skugg- anum. Skákklukkurnar voru Garríj Kasparov og Andrej „grís" Sókólov við upphaf hinnar sögulegu viðureignar sinnar í gærkveldi. Sókólov er ótrúlega sleipur í tímahraki og eftirlætisskákmaöur happadísanna um þessar mundir. stöðvaðar, skákmennirnir biðu átekta en allt kom fyrir ekki, ljós- in voru gengin til náða og enginn mannlegur máttur virtist fá hagg- að ásetningi þeirra. Eftir japl og jaml og fuður fengu Svíinn og Rússinn vesælan lúxólampa en skákir Ungverjans og svissneska Rússans og Eistlendings og íslendings voru fluttar um set yfir á upplýst borð. Þess má ennfremur geta að skákklukka Ríblís og Nunns virt- ist viðstöddum ívið latari til gangs en stallsystur hennar á öðrum borðum. Þegar klukkan var kom- inn vel á tíunda tímann áttu þeir báðir um tíu mínútur eftir af 40 leikja umhugsunartíma sínum. -ks. Úrslit í 7. Umferð Jaan Ehivcsl - Margcir Pctursson 1-0 Prcdrag Nikolic - (iyula Sax ‘/2-'/2 Arlur Júsúpov - Jan Timman í bið Ulf Andcrsson - Alexandcr Bcljavsky '/2-'/2 Jonalhan Spcclman - Boris Spassky '/2-'/2 Zollan Rilrli - John Nunn '/2-'/2 Lajos Porlisch - Viklor Korlsnoj í bið Jóhann Hjarlarson - Mikhail Tal '/2-'/2 Andrci Sokolov - (iarry Kasparov 1-0 Andrei Sokolov - Garrí Kasparov Sikileyjarvörn 1. e4-c5 2. Rf3-d6 3. d4-cxd4 4. Rxd4-Rf6 5. Rc3-a6 6. f4-e6 7. Be2-Be7 8. 0-0 0-0 9. Khl-Dc7 10. a4-Rc6 11. Be3-He8 12. Bgl (Kasparov gerþekkir þessa stöðu og þessvegna vakti athygli hversu miklum tíma hann eyddi á byrj- unarleikina. Þessi leikur kom World Cup Chess Toun»am«nt, Reykjavík 1988 11.10.1988 23:05 Níiín 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 Alls Röð 1 Alexander Bcliavskv Vi '/2 1 1 0 '/i 1 4'/i 2-3 2 .lan Timman '/i '/2 0 1 Vi 1 3'/if B 8 3 (ivula Sax '/2 vM 1 '/2 '/2 V, '/2 4 5-7 4 Jaan Ehlvcsl 0 í 0 '/2 '/l 1 1 4 5-7 5 Prcdrau Nikolic 0 0 Vi Vi 1 '/l Vi 3 12 6 Arlur Júsúnov l Vi Vi '/l Vi 1 4+B 4 7 Ulf Andersson '/2 1 0 Vi Vi Vi '/l 3'/i 9 11 8 Jonalhan Sneclman Vi Vi '/l 0 I Vi Vi 3'/i 9-11 9 Zoltan Ribli '/l Vi Vi V, 0 0 Vi 2'/i 15-17 10 Laios Porlisch '/i 1 '/l '/l 0 0 2'/H-B 13-14 11 Jóhann Hiarlarson '/i Vi IW 0 0 '/l 1 2‘á 15-17 12 Andrci Sokolov 0 Vi Vi Vi 1 1 1 4Vi 2-3 13 Garrv Kasnarov '/i 1 Vi Vi Vi 1 0 4 5-7 14 MikhailTal P) V, */l 1 1 1 '/l 5. 1 15 Vikloi /orlsnoi '/2 0 V, '/2 0 1 2'/if B 13-14 16 Johnf m '/2 Vl '/2 '/l '/2 '/2 Vi 3'/i 9 11 17 Boris isskv '/2 0 '/2 0 '/2 '/2 2'/i 15-17 18 Marc ’clursson 0 0 Vl 0 1 0 0 [ l'/l 18 fyrir í skák Jón L. Árnasonar og Sokolovs á Ólympíumótinu í Þessalonikíu.) 12. .. Hb8 13. Bf3-Bd7 14. Rb3-b6 15. g4-Bc8 16. g5-Rd7 17. Bg2-Bf8 18. Df3 (Dálítið einkennilegur leikur. Markvissara var 18. Dh5.) 18. .. Ra5 19. Rd2-Bb7 20. Dh5-g6 21. Dh3-Hbc8 22. f5-Re5 23. fxe6-fxe6 (Kasparov hefur fengið allt út úr þessari stöðu sem hægt er og allt of snemma hefur Sokolov létt á spennunni í stöðunni. Smátt og smátt aukast yfirburðir heims- meistarans en ótrúlegir atburðir gerast.) 25. Hf4-Bg7 25. Hafl-De7 26. Hh4-Bh8 27. Bd4-Rac4 28. Rxc4-Hac4 29. Be3-Hcc8 30. Bcl-b5! (Gagnsókn svarts eftir c-línunni treystir yfirburðina.) 31. axb5-axb5 32. Hhf4-b4 (Vitaskuld ekki 32. .. Dxg5 33. Hf8+ og drottningin fellur. Það er kaldhæðnislegt að það er ein- mitt gildra af þessu tagi sem verð- ur heimsmeistaranum að falli.) 33. Ra2-Ba6 (Mun sterkara var 33. .. Hxc2 með yfirburðastöðu. Það hefur sennilega verið á þessu augna- bliki sem feigðarflan biskupsins var undirbúið.) 34. Hdl-b3 35. cxb3-Be2 26. Hd2 36. .. Dxg5?? (Mesti afleikur Kasparovs í meira en 10 ár. Hann átti kappnógan tíma en var einum of öruggur með sig.) 37. De3! (Valdar hrókinn, setur á bisk- upinn og hótar 38. Hf8+ Eftir langa umhugsun kaus Kasparov að gefa drottninguna en fær hverfandi mótspil fyrir. Sokolov þarf aðeins að tefla sæmiiega ná- kvæmt til að innbyrða vinning- inn.) 37. .. Bh5 38. Hf8+-Hxf8 39. Dxg5-Rg4 40. Rc3-Be5 41. h3-Bf4 42. De7-Hce8 43. Dd7-Re3 44. HÍ2 - og Kasparov gafst upp. Hann sat lengi á eftir og hristi höfuðið og var alveg miður sín. Það var ekki fyrr en Boris Spasskí kom gangandi til hans með viskíglas í hendi að heimsmeistarinn brosti örlítið og hélt á braut. 8. Umfeíð Margcir Pclursson - (iarry Kasparov Mikhail Tal - Andrci Sokolov Viktor Korlsnoj - .lóhann Hjarlarson John Nunn - Lajos Portisch Boris Spassky - Zollan Rihli Alcxander Bcljavsky - Jonathan Speelman Jan Timman ^UIf AndCrsson (iyula Sax - Arlur Júsúpov Jaan Ehlvcsl - Predrag Nikolic Miðvikudagur 12. október 1988 ÞJÓÐVIUINN —SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.