Þjóðviljinn - 12.10.1988, Síða 12

Þjóðviljinn - 12.10.1988, Síða 12
-SPURNINGIN— Hefur þú trú á því aö þaö leynist „huldumaður“ í stjórnarandstöðunni sem sé stuöningsmaður ríkisstjómarinnar? Lárus Guðmundsson, framkvæmdastjóri: Nei, ég trúi því ekki. Þaö hefur komið slíkt bull frá Stefáni Val- geirssyni að ég trúi því ekki að hann segi satt nú frekar en endranær. Sigurður B. Sigurðsson, framkvæmdastjóri: Ég myndi halda að hann væri ekki til, þetta sé heimatilbúin kaka hjá Stefáni sem rís hratt og falli að sama skapi hratt. María Maríusdóttir, dagskrárgerðarmaðu r: Já, og ég trúi því að þeir séu fleiri en einn. Sigurður Steinþórsson, gullsmiður: Ekki nema þá óbeint. Ég hugsa að einhverjir frá Borgaraflokki séu tvístígandi eða það verði hjáseta hjá öðrum. Gunnar Sæmundsson, lögmaður: Verður maður ekki að trúa Stef- áni? SÍMI 681333 Á KVÖLDIN 681348 ÁLAUGARDÖGUM 681663 Eldfjöll Sjötíu ár frá Kötlugosi Páll Einarsson: Trúiþvíekki að Katla sé lögst til eilífðardvalar. Er samband á milli eldstöðva undir Kötlu og Vestmannaeyjum? En í dag eru liðin 70 ár frá því Eg hef set fram hugmyndir um að visst samband sé milli eld- stöðva, þannig getur hugast að samband sé milli eldstöðvanna undir Kröflu og Bárðarbungu, og jafnvcl eru veikar vísbendingar um að samband sé milli Kötlu og eldstöðvanna undir Vestmanna- eyjum. Þannig gæti hugsast að þrýstingur á kvikulaginu undir jarðskopunni á þessum stað hafl minnkað við gosið í Surtsey og Heimaey og þess vegna hafi Katla svikið sína eigin reglu, sagði Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur. síðasta Kötlugos hófst. Katla hefur gosið að jafnaði tvisvar sinnum á hverri öld. En hún mun þó áður hafa tekið sér svipaða hvíld. Þannig er álitið að hún hafi gosið einhvern tímann um árið 1500 en næst ekki fyrr en árið 1580. Þótt Katla hafi ekki gosið frá því 1918 er talið líklegt að hún hafi gosið smá gosi undir jöklinum árið 1955, en 25 júní það ár varð mikið hlaup í Múla- kvísl. - Ég er ekki trúaður á að Katla sé lögst í eilífðardvala, þó hún sé búin að brjóta sína eigin reglu, sagði Páll þegar hann var spurður hvort við mætum vænta eldsum- brota í Kötlu, en að sjálfsögðu er ómögulegt að segja til um það hvernær það gæti orðið, sagði hann. Þegar hann var spurður um hvort hann sem jarðvísindamað- ur biði eftir að fá tækifæri til að fyljast með Kötlugosi, sagði hann að öll gos væru forvitnileg og að afla mætti mikilvægra upplýsinga með nútímatækni, í hvert skipti sem gysi einhversstaðar. -sg Páll Einarsson jarðeðlisfræðing- ur telur hugsanlegt að gosið í Surtsey hafi létt á þrýstingnum undir jarðskorpunni tímabundið og þess vegna hafi Katla ekki gosið í kringum árið 1960 eins og allt eins var búðist við. Hurð skellur næiri hælum Eftirfarandi frásögn erað finna í bókinni Öldinni okkar: Þann 12. okt. varð fólk í Mýr- dal fyrst vart við gos úr Kötlu, sem hófst með jarðskjálftakipp- um upp úr hádeginu. Um fram- hald þess þann dag segir Gísli Sveinsson sýslumaður svo í við- tali við Vísi: „En eftir það fóru að heyrast ógurlegar drunur frá fjöl- lunum, og ægilegur gufustrókur teygði sig lengra og lengra upp að fjallabaki, og loks hljóp jökullinn með eldgangi miklum, vatnsflóði og jöklaburði fram yfir Mýr- dalssand til sjávar.“ Jökulhlaupið Jökulhlaupið var ægilegt yfir að líta. Flóðið breiddist á stuttum tíma yfir allan Mýrdalsand og umkringdi Hjörleifshöfða. Hrikaleg jakabákn bar við himin og svo var jakaburðurinn mikill, að víða sást ekki í vatnið fyrir honum, nema þar sem stór- straumar náðu framrás. Sjórinn utan við sandinn var alþakinn stórum og smáum jökum. Þrír vélbátar úr Vestmannaeyjum og flutningabáturinn „Skaftfell- ingur" voru í Vík og var verið að ferma þá og afferma í óðaönn, þegar gosið kom. Var því hætt vegna þess, að búist var við straumköstum og bylgjum af jökulhlaupinu. Kl. 5 var kominn ægilegur straumur í sjóinn. Var þá bátunum eigi vært, og lögðu þeir af stað hver af öðrum. Fyrst í stað óttuðust menn að Vík mundi stafa hætta af flóðinu, en svo varð eigi. Skýrsla Þorleifs Jónssonar Stjómin hlutaðist til um að sendur yrði hraðboði úr Horna- firði vestur í Skaftártungu til þess að fregna um ástandið þar. Um þá ferð gaf Þorleifur Jónsson alþm. eftirfarandi skýrslu: Hornafirði 22. okt. Þorbergur, sonur minn, sem fór sendiferðina suður í Hlíð í Skaftártungu til að fá fregnir af Gosstrókurinn úr Kötlu árið 1918. Kötlugosinu, kom aftur í gær- kvöldi og skýrir svo frá: Kötlugosið byrjaði um nónbil 12. okt. með vatn- og jökulhlaupi yfir Mýrdalssand, austan Hafurs- eyjar. Hlaupið geisaði fram Hólmsá, sópaði burtu Hólmsárbrú með steinstólpum. Fólk flýði Hrífunesbæinn, en bæ- inn sakaði þó ekki. Hlaupið fór í Kúðafljót með miklum jakaburði og gerði megnan usla í Meðal- landi. Eyddust þar bæirnir Sand- ar, Sandasel, Rofabær og Mel- hóll. Fólk komst allt af, flýði sumt að Leiðvelli, en talið, að jörðin Sandar eyðileggist með öllu. Hross frá Söndum hafa fundist dauð í íshrönnum og mörg vantar. Rúmlega 70 kindur fundust dauðar, flestar frá Sönd- um, og margt fé vantar. Hurð skellur nærri hælum Manntjón varð ekkert í gosi þessu og jökulhlaupi, þótt það steyptist nærri á augabragði yfir byggðir og þjóðvegi. Leitarmenn og réttamenn úr Alftaveri voru á leið flóðsins þennan dag og urðu þeir að forða sér undan flóðinu, sem mest þeir máttu, og áttu þeir fótum sínum fjör að launa. Dag- inn áður höfðu þeir verið að smala uppi undir Mýrdalsjökli og hefði engum þeirra orðið undan- komu auðið, hefði gosið byrjað þá. Heimilisfólkið á Söndum slapp með naumindum undan flóðinu. Einn maður úr Skaftártungu slapp yfir Hólmsárbrú rétt um það bil, sem flóðið sópaði henni burtu. Tveir menn frá Ásum í Skaft- ártungu voru á leið til Víkur yfir Mýrdalssand og fóru yfir Múla- kvísl fáum mínútum áður en hún fylltist af hlaupinu. Nokkrir menn, sem heima áttu austan Mýrdalssands, voru staddir í Vík, þegar gosið hófst. Fengu þeir engar fregnir að heiman fyrr en 22. okt., er skýrsl- an kom frá Þorleifi Jónssyni, því ófært hefði verið yfir sandinn all- an þann tíma.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.