Þjóðviljinn - 02.11.1988, Side 5
VIÐHORF
Slappleiki og svikin loforð
Kristbjörn Árnason skrifar
í fjórða sinn fá nú vinstri menn
tækifæri, til að vinna í ríkisstjórn.
Ríkisstjórn sem mynduð er á
mettíma án kosninga. Stærsti
stjórnmálaflokkur landsins er ber
að því, að valda ekki því hlut-
verki að hafa forystu um stjórn
landsins. Þeir skilja efnahags-
kerfið eftir í mjög alvarlegum
ólestri. Fjöldaatvinnuleysi blasir
við íslenskri alþýðu og gjaldþrot
virðast vera örlög mjög margra
fyrirtækja.
* Allt gerist þetta þrátt fyrir að
tvö mestu góðærisárin í sögu
þjóðarinnar séu varla liðin.
*Þetta gerist þrátt fyrir ein-
stakan velvilja verkalýðsforyst-
unnar.
*Aldrei fyrr hafa forystumenn
heildarsamtakanna stutt jafn
dyggilega við bakið á ríkisstjórn-
um og þeim tveim síðustu.
*Þrátt fyrir að þessar ríkis-
stjórnir hafi sett met í saman-
lögðum bráðabirgðalagasetning-
um gegn launafólki.
*Þrátt fyrir þetta kyssti foryst-
an tær ráðherranna og gerði allt
sem hún gat til að bjarga þeim
með efnahagsúrræði.
Aldrei hefur nokkur stjórn-
málaflokkur notið jafnmikils
stuðnings frá forystu heildars-
amtakanna og Sjálfstæðisflokk-
urinn, nú undanfarin ár. Það kom
reyndar í ljós, af viðbrögðum ým-
issa forystumanna í ASÍ, þegar
verið var að mynda núverandi
ríkisstjórn, bæði af verkum
fjórmenningaklíkunnar og ann-
arra. Þeir reyndu hvað þeir gátu
að koma í veg fyrir þátttöku Al-
þýðubandalagsins í stjórninni.
Þeir hafa auðvitað innst inni vilj-
að hafa Sjálfstæðisflokkinn í rík-
isstjórn.
Það er ekki hægt að segja að
hjá mér ríki bjartsýni við þessar
aðstæður. Nú reynir á, hvort
verkalýðssamtökin sýna nýrri
ríkisstjórn sama velvilja og þeim
sem Sjálfstæðisflokkurinn átti
aðild að.
Að skipta um skoðun
Það verður mér og mörgum
öðrum flokksmönnum erfiður
biti að kyngja að Alþýðubanda-
lagið skyldi fara inn í ríkisstjórn
án þess að bráðabirgðalögin og
matarskatturinn væru send út í
hafsauga. Margir flokksfélagar
hafa barist með oddi og egg gegn
þessum ólögum fyrri ríkisstjórna.
Bæði hafa þeir látið að sér kveða
innan flokks sem utan. Þeir hafa
einnig reynt að vekja forystu-
menn í verkalýðshreyfingunni af
þyrnirósarsvefni.
Loksins þegar þessi miðstjórn
ASÍ sneri sér agnarögn upp í
vindinn, sem varð að allra áliti
fyrir baráttu Alþýðubandalags-
manna, fannst mér og mörgum
fleiri sem flokkurinn hefði
skyndilega svikið okkur, þegar
hann var á sama tíma tilbúinn að
fara í ríkisstjórn án þess að af-
nema ólögin.
Menn verða að gæta þess að
kjörnir forystumenn geta ekki
skipt um skoðun á grundvallaraf-
brotum ríkisvalds gegn launa-
fólki eftir pöntun, eftir því sem
hentar hverju sinni. Þessir menn
eru bundnir af skoðunum stétt-
arfélaga sinna.
„Langalvarlegasta
atlagan‘
Það er tímabært að stjórnmála-
menn, flokkar og einnig forystu-
menn verkalýðshreyfingar end-
urskoði lýsingarorðanotkun sína.
Ofnotkun á gífuryrðum þessara
manna gera þá ótrúverðuga.
Dæmi: Varaformaður Verka-
mannasambandsins og alþingis-
maður Alþýðuflokksins sagði á
formannafundi ASÍ nú í maí, að
bráðabirgðalögin frá 20. maí
væru langalvarlegasta atlagan að
réttindum launafólks frá upphafi.
Þrátt fyrir ýmis bráðabirgðalög
um áratugaskeið sem beint var
gegn hagsmunum launafólks.
Hann sagði; það versta er að
þessi bráðabirgðalög eru algjör-
lega gagnslaus og varaði við öðr-
um enn alvarlegri lögum um
haustið. Hann sagði einnig að
það yrðu hvað sem það kostaði
að brjóta þessi lög á bak aftur.
Ætli Karvel Pálmason hafi
meint eitthvað með þessari ræðu
sinni? f það minnsta var hann
einn af þeim fjórum verkalýðs-
foringjum sem kröfðust þess að
bráðabirgðalögin yrðu ekki
aflögð, þegar núverandi ríkis-
stjórn var í burðaliðnum.
Okkar eigin
samþykktir
Kæru flokkssystkin, ég vil
minna ykkur á mótmæli Alþýðu-
bandalagsins gegn ólögum ríkis-
stjórnar Þorsteins Pálssonar vor-
ið 1988.
*Miðstjórnarsamþykkt frá 31.
janúar um „matarskattinn" og
framganga formanns þingflokks
og kassaræða formannsins.
*Tilvitnun í samþykkt mið-
stjórnarfundar: „í öðru lagi hefur
ríkisstjórnin lagt á 5 miljarða
matarskatt sem fyrst og fremst
bitnar á láglaunafólki þar eð
venjuleg matvæli vega - mun
þyngra í heimilishaldi þeirra sem
minni tekjur hafa.“
* Við flokksfélagar erum á móti
matarskatti og viljum hann
feigan hið bráðasta.
*Mörg harðorð mótmæli Al-
þýðubandalagsins gegn bráða-
birgðalögunum 20. maí og nú aft-
Styrkir úr vísindasjóði
Vísindaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki úr
Vísindasjóði fyrir árið 1989.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu Vísindaráðs,
Bárugötu 3, 101 Reykjavík og hjá sendiráðum
íslands erlendis.
Umsóknum skal skilað á skrifstofu Vísindaráðs,
að þessu sinni í síðasta lagi 31. desember 1988.
Upplýsingar eru veittar á skrifstofu ráðsins frá kl.
10 til 12 og kl. 14 til 16 mánudaga til föstudaga í
símum 10233 og 10234.
Vísindaráð
1«^ Laus staða
Við námsbraut í lyfjafræði lyfsala í læknadeild Háskóla íslands er
laus til umsóknar hlutastaða lektors (37%) í lyfjaefnafræði.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf umsækjenda,
ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil og störf, skulu sendar
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 26.
nóvember nk.
Menntamálaráðuneytið
27. október 1988
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma
Sigríður Ásmundsdóttir
Efstalandi 24
Reykjavík
lést þann 29. október s.l. Jarðarförin fer fram frá Laugarnes-
kirkju föstudaginn 4. nóvember kl. 13:30. Blóm og kransar
afbeðnir en þeir sem vilja minnast hennar láti líknarstofnanir
njóta þess.
Bjartey Friðriksdóttir Þorsteinn Guðnason
Jóhanna Friðriksdóttir Sigurður Sigurðsson
Pálmi Friðriksson Anný Ástráðsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
„Aldrei hefur nokkur stjórnmálaflokkur notið jafn-
mikils stuðnings fráforystu heildarsamtakanna og
Sjálfstæðisflokkurinn, nú undanfarin ár. Pað kom
reyndarí Ijós, af viðbrögðum ýmissa forystumanna í
ASÍ, þegar verið var að mynda núverandi ríkisstjórn,
bæði afverkumfjórmenningaklíkunnar og annarra.
Þeir reyndu hvaðþeir gátu að koma í vegfyrirþátt-
töku Alþýðubandalagsins ístjórninni. Peirhafa
auðvitað innst inni viljað hafa Sjálfstœðisflokkinn í
ríkisstjórn. “
ur í ágúst. „Sameiginlegur fundur
þingflokks og framkvæmda-
stjórnar Alþýðubandalagsins,
haldinn í Borgarnesi 14. maí
1988, fordæmir harðlega áform
ríkisstjórnarinnar um atlögu að
nýgerðum kjarasamningum
launafólks. Daginn eftir að al-
þingi er slitið ákveður ríkisstjórn-
in að fella gengið, auk þess sem
ráðagerðir munu uppi um að af-
nema „rauðu strikin" í kjaras-
amningunum og þrengja þannig
verulega samningafrelsi verka-
lýðshreyfingarinnar, eins og gert
var 1983. Alþýðubandalagið
mótmælir eindregið áformum
ríkisstjórnarinnar um að svipta
launafólk ávinningi nýgerðra
kjarasamninga, jafnvel áður en
kemur að fyrstu útborgun sam-
kvæmt þeim. Þó hafa þúsundir
launamanna enn ekki náð sjál-
fsögðum lágmarkslaunum. Að
skerða kjör þessa fólks nú er í
senn siðlaus og óforskömmuð ög-
run.“
*„Stjórn verkalýðsmálaráðs
Alþýðubandalagsins kom saman
til fundar miðvikudaginn 25. maí
1988 og ályktaði eftirfarandi
vegna nýsettra bráðabirgðalaga.
Stjórn verkalýðsmálaráðs Al-
þýðubandalagsins mótmælir
harðlega því afnámi mannrétt-
inda sem felst í þessum bráða-
birgðalögum. Um langt skeið
hafa íslendingar fordæmt slíkar
aðgerðir með öðrum þjóðum.
Það er með ólíkindum að Alþýð-
uflokkurinn skuli eiga hér hlut að
máli.
Augljóst er að þessi lög auka
enn launamisréttið í landinu og
almennt launafólk mun sitja eftir
á meðan launaskriðið fer aftur í
fullan gang. Þetta mun bitna
harðast á þeim stéttum þar sem
konur eru fjölmennastar."
Við flokksmenn eru enn svarn-
ir andstæðingar þessara laga.
Þess vegna verða forystumenn
flokksins að skilja það að starf-
andi fólk í verkalýðshreyfingunni
skiptir ekki um skoðun í svona
grundvallarmálum, eins og að
skipta um sokka.
Þess vegna skuldar forysta
flokksins okkur sauðsvörtum
flokksmönnum og kjósendum
viðhlítandi skýringar. Skýringar
á því, hvers vegna flokkurinn fór í
ríkisstjórn nú, og braut þar með
þau grundvallarsjónarmið sem
hann hefur haft að leiðarljósi
hingað til.
Oabyrgt
stóryrðaglamur
Ég tel að ýmiskonar stóryrða-
glaniur stjórnmálamanna og
verkalýðsforingja komi ávallt í
bakið á þeim aftur. Auðvitað er
samningsréttur stéttarfélaga, t.d.
á íslandi, ekki helgasti réttur
manna. Helgasti réttur miljón-
anna er sá að halda lífi, ekki einu
sinni að ráða sínu eigin lífi.
Að lokum vil ég ítreka þá
skoðun mína, að það er fyrir
slappleika verkalýðsforystunnar
að við launamenn búum sífellt
við bráðabirgðalög, æ ofaní æ.
Fólk verður að fara að átta sig á
því að það verður að gera kröfur
um harðari vinnubrögð foryst-
unnar. En óneitanlega rifjaðist
það upp fyrir mér í þessu sam-
hengi, viðtalið við formann og
varaformann VMSÍ í sjónvarpinu
í vetur sem leið, þegar almennir
launamenn vildu ekki þá samn-
inga sem þeir höfðu gert við VSÍ.
Þeir höfðu þá í hótunum, ef ekki
yrði samið á þessum nótum og ef
iðnaðarmenn höguðu sér ekki
vel. Þá skaut þeirri hugsun í huga
mér, skyldu þeir hafa samið um
bráðabirgðalög? Ég er ekki að
ásaka þessa menn um slíkt, það
væri óhæfa. En óneitanlega datt
mér þetta aftur í hug þegar bráða-
birgðalög litu dagsins ljós í maí og
reyndar aftur þegar fjórmenning-
arnir fóru á stjá þegar núverandi
ríkisstjórn var að fæðast. Þessi
ferlegi og óábyrgi grunur minn á
eflaust eftir að fylgja mér lengi.
Kristbjörn Árnason er formaður
Félags starfsfólks í húsgagnaiðn-
aði.
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagiö í Kópavogi
Skrifstofan opin
Skrifstofa Alþýðubandalagsins í Kópavogi, í Þinghól Hamraborg 11,3. hæð
verður opin frá og með 31. október á mánudögum og fimmtudöqum kl.
16-18 e.h.
Alþýðubandalagið í Kópavogi
Blönduós
Almennur fundur
Alþýðubandalagið boðar til al-
menns fundar á Blönduósi,
sunnudaginn 6. nóvember kl.
16.00 á hótelinu (Snorrabúð).
Frummælendur verða:
Steingrímur J. Sigfússon
landbúnaðar- og samgöngu-
ráðherra og Ragnar Arnalds
alþm.
Allir velkomnir.
Norðurland vestra
Aðalfundur kjördæmaráðs
Aðalfundur kjördæmaráðs Alþýðubandalagsins í Norðurlandskjördæmi
vestra verður haldinn á Hótel Dagsbrún á Skagasströnd, sunnudaginn 6.
nóvember. Fundurinn hefst kl. 10.00 og stendur til 15.00.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður rætt um flokksstarfiö og
hagsmunamál kjördæmisins.
Steingrímur J. Sigfússon landbúnaðar- og samgöngumálaráðherra verður
estur fundarins. Fundarstjóri verður Eðvarð Hallgrímsson.
tengslum við aðalfundinn verður haldinn almennur fundur á Blönduósi kl.
16.00 sama dag.
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5
Stjórnin