Þjóðviljinn - 02.11.1988, Side 6
MENNING
Myndlist
Matar-
myndir
á Mokka
Ásta Guðrún Eyvindardóttir: í Frakklandi
fann ég minn persónuleika
Ég kalla þetta matarmyndir,
segir Ásta Guðrún Eyvindardótt-
ir, sem nú sýnir á Mokka. Á sýn-
ingunni eru átta matarmyndir og
ein dýramynd, og eru matar-
myndirnar málaðar út frá mynd-
inni Voulez-vous diner avec moi?
(Viljið þér borða með mér?), sem
Ásta sýndi fyrst í Hafnargalleríi
og á Hótel íslandi í apríl og mars í
ár.
- Ég skildi ekki alveg hvað ég
var að fara þegar ég málaði þá
mynd, sá skilningur kom eftir á,
og hinar myndirnar sem ég sýni
hérna eru úrvinnsla úr þessari
hugmynd. Petta eru myndir frá
mínu lífi í Frakklandi, málaðar út
frá þeirri meðvitund sem ég fékk
um hlutina þar. Þetta eru í raun-
inni minningar mínar, en mér
finnst ég hafa skilið eitthvað
mjög mikilvægt í sambandi við
sjálfa mig þegar ég var í Frakk-
landi.
- Ég var í fjögur ár í Englandi
og síðan eitt ár í Frakkiandi, en
það ár skipti mig mjög miklu
máli. Þar fann ég minn persónu-
leika. Mér finnst maturinn vera
táknrænn fyrir Frakka, og þá feg-
urðardýrkun sem einkennir þá.
Frönsk máltíð er ritúal og lista-
verk í senn, máltíðin á ekki síður
að vera veisla fyrir augað en fyrir
magann.
Ein af myndunum í Stokkhólmssvítunni.
Syningar
Stokkhólmssvítan
Stokkhólmssvítan heitir sýning
á 18 Ijósmyndum sænska ljós-
myndarans Bruno Ehrs, sem nú
er í anddyri Norræna hússins.
Myndirnar eru allar teknar í
Stokkhólmi, og skiptast í 6
myndaraðir, sem heita Gluggar,
Steinsteypa, Samgöngur, Hús,
Vetur og Gönguferðir.
Bruno Ehrs hefur starfað sjálf-
stætt sem ljósmyndari frá árinu
1979. Hann hefur haldið einka-
sýningar í Fotografiska muséet í
Stokkhólmi, Finlands fotograf-
iska museum í Helsinki og í
sænsku menningarmiðstöðinni í
París. Sýningin stendur til 6. nóv-
ember og er opin kl. 9-19 virka
daga,ogkl. 12-19 ásunnudögum.
Skúlptúrar Ólafs
í sýningarsölum í kjallara Nor-
ræna hússfns sýnir Ólafur Sveinn
Gíslason skúlptúra gerða 1987-
88.
Ólafur er fæddur 1962, nam við
Myndlista- og handíðaskólann
1980-83 og við Ríkislistahá-
skólann í Hamborg 1983-88.
Hann var með einkasýningu í Ný-
listasafninu í Reykjavík 1986.
Sýningu Ólafs lýkur á sunnudag-
inn, 6. nóvember, hún er opin
daglega kl. 14-19.
Höggmyndir í steinsteypu
í Gallerí Svart á hvítu, Laufás-
vegi 17, sýnir Rósa Gísladóttir
höggmyndir unnar í steinsteypu.
Rósa hélt sína fyrstu einkasýn-
ingu á Kjarvalsstöðum 1984. Að
loknu námi við Myndlista- og
handíðaskólann var hún við nám
í Akademie der Bildende Kunste
í Múnchen þar sem hún lagði
stund á höggmyndalist. Verk
Rósu hafa verið á samsýningum á
íslandi og erlendis, til dæmis Hér
og nú að Kjarvalsstöðum 1985,
og Kunst im DEC-Park, Munc-
hen 1984. Sýningu Rósu lýkur
á sunnudaginn, 6. nóvember,
galleríið er opið alla daga nema
mánudaga kl. 14-18.
Silkilist
Jónína Björg Gísladóttir sýnir
handmálaðar silkislæður í Gallerí
List, Skipholti 50 b.
Jónína stundaði nám í
Myndlista- og handíðaskólanum
og við Myndlistaskólann í
Reykjavík. Hún hélt einkasýn-
ingu á verkum sínum í Viðey
sumarið 1987 og hefur tekið þátt í
myndlistarsýningum í Safnahús-
inu á Selfossi 1981 og 1985. Sýn-
ing hennar í Gallerí List stendur
til sunnudags, 6. nóvember, gall-
eríið er opið virka daga kl. 10-18,
og kl. 14-18 um helgar.
Ásta: Árið í Frakklandi skipti miklu máli.
- Petta er eiginlega úttekt á
frönsku lífsmunstri eins og maður
kynnist því í dag. Frakkar eru svo
táknrænir. Stúlkan á myndinni
Voulez-vous diner avec moi? er
tákn Frakkans, og táknar listina
sem þeir elska mest, og hún er
með trúðsnef, því trúðurinn er
líka mjög vinsæll þar í landi.
Táknar hrafninn á öxl hennar
eitthvað?
- Ég veit ekki hvað hann er.
Þessi mynd var eins konar vitrun,
og ég hef enn ekki ráðið í öll tákn-
in. En höndin á borðinu er hönd
Kjarvals, hönd málarans sem
hjálpaði mér til að mála mynd-
ina, og til að skilja það sem ég var
að gera. Skilningurinn kom með
því að ég gat sameinað það ís-
lenska því sem ég áttaði mig á í
Frakklandi, en stúlkan í gluggan-
um er tákn þess íslenska.
- Þarna kemur fram mismun-
andi afstaða íslendingsins og Fra-
kkans til dauðans, sú franska
leikur sér við hann og býður hon-
um epli, á meðan sú íslenska
hangir dauðskelkuð á gluggan-
um. Hennar andi er frekar í flösk-
unni með ljósinu, sem er brenni-
vínsflaska.
Myndir Ástu verða til sýnis á
Mokka fram til 13. nóvember.
-LG
MÍR
Sýningar og söngur
Kirgizkir listamenn skemmta á Sovéskum dögum MÍR sem verða
settir í kvöld
Sovéskir dagar Menning-
artengsla íslands og Ráð-
stjórnarríkjanna verða settir í
Félagsheimili Kópavogs í
kvöld kl. 20:30. Dagarnir eru
að þessu sinni sérstaklega
helgaðir Kirgizíu, einuaf Asíu-
lýðveldum Sovétríkjanna, og
tekur hópur listafólks þaðan
þátt í dagskráratriðum.
Við setningu Sovéskra daga í
kvöld verða flutt ávörp, auk þess
sem listamenn frá Kirgizíu
skemmta með hljófæraleik, söng,
kvæðaflutningi og dansi. Á morg-
un verða tónleikar og danssýning
í Fjölbrautaskólanum á Akranesi
og í Bændaskólanum á Hvann-
eyri, og á föstudaginn verða tón-
leikar og danssýning í' Fjöl-
brautaskólanum á Selfossi. Á
laugardaginn verður opið hús að
Vatnsstíg 10 frá kl. 14:00, kvik-
myndasýningar, skáldið flytur
kvæði, ávörp og listafólkið frá
Kirgizíu skemmtir. Á sunnudag-
inn kl. 20:00 verða hátíðartón-
leikar og danssýning í Þjóðleik-
húsinu og þriðjudaginn 8. nóv-
ember tónleikar og danssýning í
Félagsheimili Vestmannaeyja.
-LG
Háskólatónleikar
Da fantasía
Helga Ingólfsdóttir semballeikari fly tur tón-
list frá 17. og 20. öld
í hópi gestanna frá Kirgizíu eru
meðal annarra Ashankan Zhum-
akmatov, stjórnandi Sinfóníu-
hljómsveitar kirgizka ríkisút-
varpsins og fyrrum aðalstjórn-
andi óperuhússins í Frunze, höf-
uðborg Kirgizíu, Samara Tok-
takhúnova, virtúós á hið forna
kirgizka strengjahljóðfæri kom-
ús, þjóðlistakona Kirgizíu og
margfaldur verðlaunahafi, Búlat
Minzhilkjev óperusöngvari, tal-
inn einn af bestu bassasöngvur-
um Sovétríkjanna og Aisulu Tok-
obajeva, dansmær við óperu- og
balletthúsið í Frunze, þjóðlista-
maður Sovétríkjanna, jafnvíg á
sígildan dans og þjóðdansa. Auk
þeirra eru með í förinni skáldið
Estebes Turtumalijev, þjóðlista-
maður Sovétríkjanna og Kerimz-
han Kunakunov fjármálaráð-
herra Kirgizíu.
í tilefni Sovésku daganna hefur
ýmiskonar sýningarefni borist til
landsins og verður sýning á því
opnuð í húsakynnum MÍR að
Vatnsstíg 10 á laugardaginn kl.
15. Þar verða sýndir ýmiskonar
listmunir, einkum vefnaður unn-
inn úr ull, en Kirgizar eru frægir
fyrir litrík og sérstæð ullarflóka-
teppi. Aðrir listmunir á sýning-
unni eru unnir í tré, leður, stein,
málma og bast. Þá verða á sýn-
ingunni um fjörutíu svartlistar-
myndir eftir 17 myndlistarmenn
frá Kirgizíu, fjölmargar teikning-
ar barna og bækur af ýmsu tagi
sem gefnar hafa verið út í lýð-
veldinu.
6 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN
Aðrir Háskólatónleikar
haustmisseris verða á dag-
skrá í Norræna húsinu í dag
kl. 12:30 og standa í u.þ.b.
hálfa klukkustund. Á tónleik-
unum mun Helga Ingólfsdóttir
semballeikari flytja tónlist frá
17. og 20. öld.
Fimm verk verða leikin þessa
sembalstund. Viðamest þeirra er
verk Leifs Pórarinssonar, „Da‘"
fantasía. Eins og nafnið ber með
sér er verkið fantasía um nóturn-
ar d og a. Fantasían er í mörgum
köflum. Fela sumir í sér mikil
átök, aðrir byggja á einföldum
laglínum. Stefin í öllum köflum
eru innbyrðis tengd. Þunglyndi
og tregi einkennir verkið og má
þar finna skyldleika við verk
Schuberts og Wagners.
Umhverfis fantasíu Leifs eru
verk frá 17. öld. Næst á undan og
eftir fantasíunni eru lög í hljóð-
falli hins hæga og hátíðlega forna
dans pavan. f höndum tónskáld-
anna Thomas Tomkins og Jan Pi-
eterszon Sweelinck brjótast verk-
in úr viðjum dansins og verða að
eins konar hugleiðingu, fantasíu.
Tomkins semur „A sad pavan for
these distracted times“ hátt á átt-
ræðisaldri. „Laus Deo“ ritar
hann í lok síðasta takts. Átök öll
eru í djarfri meðferð hljóma og
ólíkri lengd hendinga. Tónverk
Sweelincks er tilbrigði við þekkt
sönglag eftir John Dowlands
„Flow my tears“.
Helga Ingólfsdóttir hefur tekið
mjög virkan þátt í tónlistarstarfi
hér á landi bæði með einleik og
flutningi ' kammertónlistar.
Kunnust er hún fyrir starf sitt í
Skálholti en þar hefur hún staðið
fyrir tónlistarhátíðinni „Sumar-
tónleikar í Skálholtskirkju" í
hálfan annan áratug. Helga hefur
farið í tónleikaferðir til Norður-
landa, Austurríkis og Bandaríkj-
anna, m.a. hélt hún einleikstón-
leika s.l. vetur í Bergen, Osló og
Stokkhólmi. Einnig lék hún í fe-
brúar s.l. sembalhlutverkið í
Matteusarpassíu J.S.Bachs í Gri-
eghallen í Bergen undir stjórn
hins kunna Bachtúlkanda Hel-
muth Rilling. Helga hefur leikið
inn á þrjár hljómplötur. Hún
kennir semballeik og túlkun bar-
okktónlistar við Tónlistar-
skólann í Reykjavík.