Þjóðviljinn - 30.11.1988, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 30. nóvember 1988 258. tölublað 53. órgangur
Hœstiréttur
Magnúsi vikið úr starfi
Tilmœli tilforseta lýðveldisins um tímabundna lausn. Málshöfðun eins fljóttog unnter.
Magnús hefur ekki orðið við tilmœlum ráðherra um afsögn. Einstœtt mál í sögu íslensks réttarfars
Magnúsi Thoroddsen hæsta-
réttardómara og forseta Hæsta-
réttar til skamms tíma verður
vikið tímabundið úr starfi ef Vig-
dís Finnbogadóttir forseti verður
við tilmælum Halldórs Ágríms-
sonar dómsmálaráðherra. Magn-
ús hefur ekki orðið við tilmælum
dómsmálaráðherra um að segja
af sér embætti og mun því verða
höfðað mál til að fá úr því skorið
hvort honum verður endanlega
vikið úr embætti hæstaréttar-
dómara. Halldór Ásgrímsson
segir að málinu verði flýtt sem
kostur er en að ekki hafi enn verið
ákveðið hvort ríkislögmaður eða
einhver annar fer með málið.
Ráðherra segir ekki enn Ijóst
hvort um einkamál eða sakamál
verður að ræða.
Halldór Ásgrímsson dóms-
málaráöherra sat í gær á fundum
út af „áfengismálinu" með fors-
eta Hæstaréttar og ýmsum lög-
fræðingum. Hann kvaddi og
■*Magnús Thoroddsen á sinn fund
og mun hafa farið fram á að
Magnús segði af sér sem hæsta-
réttardómari vegna umfangsmik-
illa kaupa á áfengi á diplómata-
verði. Taldi ráðherra að Magnús
hefði rýrt svo siðferðilegt álit sitt
að hann gæti ekki lengur starfað
sem hæstaréttardómari. Magnús
hafði áður lýst því yfir við fjöl-
miðla að það þyrfti dómsmál til
að koma honum úr dómaraskik-
kjunni og virðast tilmæli ráðherra
ekki hafa haft áhrif á þá afstöðu
hans.
Nýskipaður forseti Hæstarétt-
ar, Guðmundur Jónsson fór í gær
á fund forseta fslands, Vigdísar
Finnbogadóttur. Guðmundur
vildi ekki láta hafa neitt eftir sér
um efni fundarins. Dómsmála-
ráðherra mun einnig hafa haft
samband við frú Vigdísi.
I gærkvöldi sendi dóms- og
kirkjumálaráðuneytið út svo-
fellda fréttatilkynningu:
„Dómsmálaráðherra hefur í
dag tekið ákvörðun um að leggja
til við forseta fslands að Magnúsi
Thoroddsen verði veitt lausn frá
embætti hæstaréttardómara um
stundarsakir.
í framhaldi af því mun mál
Magnúsar Thoroddsen, vegna
ætlaðra ávirðinga í sambandi við
áfengiskaup hans á kostnaðar-
verði frá ÁTVR meðan hann
gegndi hlutverki sem einn af
handhöfum forsetavalds, verða
lagt fyrir dómstóla. Með dómi í
Herinn
Utan æfingasvæðis
Jón Gunnar Stefánsson bœjarstjóri í
Grindavík: Bœjarstjórn œtti að álykta um
málið. Lágmarkskrafa að þeir hirði upp skotin
eftir sig
- Þarna hefur einhver gert
eitthvað sem ekki er samkvæmt
reglum og það cr ástæða til að
taka hart á þessum málum, segir
Jón Gunnar Stefánsson bæjar-
stjóri í Grindavík. Fundur skot-
hylkja eftir æfingu bandaríska
hersins rétt utan við Grindavík,
staðfesti að æfingin hefði ekki
farið fram á sérstaklega merktu
æfingasvæði. Bæjarstjórnin hef-
ur ekki fundað frá því skotin
fundust en Jón Gunnar telur að
hún ætti að álykta um þetta mál,
til að leggja áhcrslu á að atburður
sem þessi endurtaki sig ekki.
Hernum ber að tilkynna lög-
Bœkur
8 síður
í blaðinu í dag er fjallað um
nýjar bækur í sérstökum átta
síðna blaðauka. Þar er að finna
ritdóma og bókafréttir sem koma
sér vel fyrir þá sem reyna að
henda reiður á nýbyrjuðu jóla-
bókaflóði.
Þjóðviljinn hóf reyndar þátt-
töku í jólabókafióðinu fyrir
nokkrum vikum með stofnun
sérstaks bókaklúbbs fyrir áskrif-
endur.
regluyfirvöldum ef æfing á að
fara fram. Þetta gerði herinn ekki
og vissu bæjarbúar því ekki hvað-
an á þá stóð skothríðin þegar þeir
vöknuðu upp umrædda nótt. Jón
Gunnar sagði langlundargeð
Grindvíkinga mikið, enda kipptu
sjómenn sér ekki upp við hvað
sem væri. En málið væri vissulega
alvarlegra eftir að skothylkin
fundust, þar sem þau gætu verið
hættuleg í höndum barna.
Blaðafulltrúi hersins segir að
æfingin hafi farið fram á „varnar-
svæði" þó hún hafi átt sér stað
utan girðingar. Jón Gunnar segir
að á kortum sé merkt æfinga-
svæði en skotin hafi ekki fundist
þar, herinn hafi kannski ekki
fundið svæðið. En ef menn missi
niður skot á víðavangi hljóti það
að vera lágmarkskrafa að þeim sé
safnað saman á eftir.
Að sögn bæjarstjórans er
byggðin í Grindavík farin að
teygja sig inn á hið svo kallaða
„varnarsvæði“. Þetta svæði er svo
gott sem hinum megin við götuna
í austurbænum. Bæjaryfirvöld
standa nú í samningaviðræðum
við varnarmálaskrifstofu utan-
ríkisráðuneytisins um að fá þetta
svæði undir íbúðarbyggð. Aðal-
skipulag Grindavíkur gerir ráð
fyrir að þarna verði byggt.
-hmp
því máli mun verða skorið úr því
hvort honum verði endanlega
vikið úr embætti sbr. 61. gr.
stjórnarskrárinnar."
Dómsmálaráðherra sagði að
enn lægi ekki fyrir hvort um
einkamál eða sakamál yrði að
ræða. Eins væri ekki ljóst hvaða
lögmaður færi með málið fyrir
ríkið en málinu yrði flýtt eftir
föngum.
phh/ÓP
Hörður Torfason, Bubbi Morthens og Megas á æfingu í gærkvöldi. Mynd Jim Smart.
Tónleikar
Gegn alnæmi
Bubbi, Megas og Hörður Torfason halda tónleika í Háskólabíói
í kvöld halda þrír af merkustu
trúbadorum landsins tónleika í
Háskólabíói. Bubbi Morthens,
Megas og Hörður Torfason ætla
að troða upp í enda alnæmisviku
sem staðið hefur yfir og lýkur
formlega á morgun. Það er feng-
ur í því að fá þetta tríó saman á
svið og ætti að vera fjölmörgum
aðdáendum listamannanna
kærkomið tækifæri til góðrar
skemmtunar og til að styrkja
knýjandi málefni.
Landsnefnd um alnæmisvarnir
heldur tónleikana og listamenn-
irnir gefa alla sína vinnu. Ágóði
rennur til Samtaka áhugafólks
um alnæmisvarnir, sem á að
stofna mánudaginn 5. desember.
Þeir peningar sem safnast á tón-
leikunum verða notaðir til styrkt-
ar smituðum og sjúkum alnæmis-
sjúklingum.
Þeir þremenningar eru allir að
gefa út plötu um þessar mundir.
Hörður gefur út tvöfalt albúm
sem hann kallar „Rauði þráður-
inn“, Bubbi og Megas eru síðan
með sameiginlega plötu, „Bláir
draumar". Með tónleikunum
vilja þeir vekja athygli á aðstæð-
um þeirra sem sýkst hafa af al-
næmi. Þessi hópur fer stöðugt
vaxandi, nú hafa um 45 einstakl-
ingar greinst smitaðir hér á landi,
og það er brýnt að allir finni til
ábyrgðar gagnvart smituðum ein-
staklingum.
Tónleikarnir byrja klukkan tíu
og kostar miðinn 1000 krónur.
-hmp