Þjóðviljinn - 30.11.1988, Page 8

Þjóðviljinn - 30.11.1988, Page 8
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ AB Akranesi 1. des Fullveldisfagnaður í Rein fimmtudaginn 1. desember kl. 20.30. Fjölbreytt dagskrá. Ræðumaður dagsins verður Svavar Gestsson menntamálaráðherra, Jón- as Árnason rithöfundur kemur í heimsókn, flokkur djassmanna spilar, söngur og upplestur. - Nefndin. 1 ^ .f Steingrímur Álfhildur Hjörleifur Héraðsbúar, Austfirðingar Opinn fundur í Valaskjálf Egilsstöðum með Steingrími J. Sigfússyni, landbúnaðar- og samgönguráð- herra, fimmtudaginn 1. desember kl. 20.30. Einnig verða á fundinum Álfhildur Ólafsdóttir, aðstoðarmaður ráðherrans, og Hjörleifur Guttormsson alþingismaður. Framsögur, umræður og fyrir- spurnir. Allir velkomnir. - Alþýðubandalagið. Vopnfirðingar Opinn fundur í Miðgarði Vopnafirði með Steingrími J. Sigfússyni, landbúnaðar- og samgönguráð- herra, föstudaginn 2. desember kl. 20.30. Einnig verða á fundinum Álfhildur Ólafsdóttir, aðstoðarmaður ráðherrans, og Hjörleifur Guttormsson alþingismaður. Framsögur, umræður og fyrir- spurnir. Allir velkomnir. - Alþýðubandalagið. Alþýðubandalagið Vesturlandi Kjördæmisráð Ráðstefna með stjórnum félaganna verður haldin í Rein laugardaginn 3. desember n.k. kl. 14.00. Dagskrá: 1) Flokksstarfið í vetur. 2) Útgáfumál. Allir félagar velkomnir. Stjórnin Alþýðubandalagið i Kópavogi Morgunkaffi Laugardaginn 3. desember frá 10-12. Bæjarfulltrúarnir Heimir Pálsson og Valþór Hlöðversson hella uppá könnuna ásamt Snorra S. Konráðssyni fulltrúa í íþróttanefnd og Lovísu Hannesdóttur í stjórn sjúkrasamlagsins. Allir velkomnir. Stjórnin Alþýðubandalagið í Kópavogi Listakvöld Á laugardagskvöldið 3. desember verður haldið listakvöld í Þinghól, Hamra- borg 11, Kópavogi. Kynnt verðaverkeftirEyvind P. Eiríksson.Guðmund Andra Thorsson og Herdísi Hallvarðsdóttur. Komið og kynnist nýjum bókum, tónlist og Ijóðum. Kaffi og léttar veitingar á boðstólum fram eftir kvöldi. Öllum heimill ókeypis aðgangur. Stjórnin ÆSKULÝÐSFYLKINGIN Æskulýðsfylkingin Fulltrúaráðsfundur Fulltrúaráðsfundur verður hjá Æskulýðsfylkingunni 3. desember nk. kl. 14 að Hverfisgötu 105. Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar. 2. Starfsáætlun vetrarms. 3. Stjórnmálaviðhorfið. 4. Kosning í nefndir og í framkvæmdastjórn. 5. Onnur mál. Stjórnin. Æskulýðsfylkingin Vestnorræn sjávarútvegsráðstefna Æskulýðsfylkingin í samvinnu við sósíalísk æskulýðssamtök í Noregi, Fær- eyjum og Grænlandi, gengst fyrir ráðstefnu um sjávarútvegsmál, laugardaginn 3. desember nk. Ráðstefnan verður haldin í Vitanum, Strandgötu 1, Hafnarfirði og hefst kl. 14.00. Dagskrá: 1) Setning. 2) Þorkell Helgason prófessor fjallar um stöðu sjávarút- vegs á íslandi. 3) Kristinn H. Einarsson fjallar um sósíalíska stefnu í sjávarút- vegsmálum. 4) Gísli Pálsson mannfræðingur fjallar um samspil sjávarútvegs og menningar. 5) Gunnar Ágústsson deildarstjóri hjá Siglingamálastofnun fjallar um mengunarhættu á NV-Atlantshafi. 6) Almennar umræður. Allt áhugafólk um sjávarútvegsmál er hvatt til að mæta á ráðstefnuna. ÆFAB Afhverju marga vinstriflokka? „Villta vinstrið" var yfirskrift hliðarfundar á flokksþingi Alþýðuflokksins um næstsíðustu helgi. í auglýsingu um fundinn var meðal annars spurt: Afhverju eru svona margir vinstri flokkar? Hvenær fæðist stóri jafnaðar- mannaflokkurinn? Er nú lag til sameiningar? Áfundinum voru þrírframsögumenn, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ritstjóri Veru og fýrrverandi borgarfulltrúi Kvennalistans, Ólafur Þ. Harðarson stjórnmála- fræðingur og Óskar Guðmundsson ritstjóri Þjóðlífs, fyrrverandi ritstjórnarfulltrúi hér á Þjóðviljanum. Hér eru birt tvö framsöguávarpanna og það þriðja endursagt í stórum dráttum (með fyrirvara um bæði efni og orðalag). Fyrirsagnir og milli- fyrirsagnir eru Þjóðviljans. Umræður urðu nokkrar á fundinum, en takmörkuðust þó vegna tímakreppu á flokksþinginu. Á fundinum var eðlilega mest um þingfulltrúa en einnig nokkur hópur áhugamanna utan Alþýðuflokks, þar á meðal ýmsir kunnir Alþýðubanda- lagsmenn. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Hvar eru hugsjónirnar? að bæta úr honum. í því sam- bandi hafa menn nú um nokkurt skeið gælt við hugmyndir um aukið samstarf og jafnvel sam- runa A-flokkanna en öllu óljós- ara hefur verið hvernig Kvenna- listinn kemur inn í þá mynd. Ástæðan fyrir því er einföld. A-flokkarnir vita ekki hvar þeir hafa Kvennalistann og skilja ekki fyrirbærið. Þeir halda jafnvel að Kvennalistinn hætti að skipta máli í hinu pólitíska landslagi þegar og ef þeir leiða konur til sætis í valdastólunum. Þeir skilja ekki að Kvennalistinn er hreyfing sem hefur orðið til í kringum nýja pólitíska hugmyndafræði sem er ekki síður heildstæð en kratism- inn og sósíalisminn. Þessi hug- myndafræði hefur verið að gerj- ast í áratugi meðal kvenna í hin- um vestræna heimi þó hún hafi óvíða fundið sér sama pólitíska farveg og hér á landi. Þetta er feminisminn. En hvers vegna hafa þær konur sem aðhyllast hugmyndafræði feminismans ekki fundið sér stað í flokknum? Af hverju gripu þær til þess ráðs að búa til „kvenna- flokk“? Ástæðurnar eru margar og ein þeirra er sú, að við íslend- ingar höfum ekki eins fastmótað- ar pólitískar hefðir og margar aðrar þjóðir. Það er fleira leyfi- legt hér en annars staðar. En önnur ástæða, og sú sem mig langar að gera að umtalsefni hér, er sú tilfinningasnauða krata- pólitík sem einkennir flokkana. Stærð þeirra og styrkleiki skiptir meira máli en staðföst og vel yfir- veguð hugmyndafræði. Heitar hugsjónir eru útbrunnar og í stað- inn fyrir djarfa útópíu er komin smásmuguleg praktík. Forystu- mennirnir eru eins og fram- kvæmdastjórar í stóru fyrirtæki en ekki skapandi stjórnmála- menn. Flokkspólitískt starf höfð- ar ekki lengur til hugsjónafólks og nú hafa áhugamenn um stjórn- un leyst það fólk af hólmi. Þær aðstæður sem hér er lýst gátu ekki nært þær óburðugu pól- itísku hugmyndir sem voru að fæðast meðal kvenna fyrir 6-7 árum. í flokknunum hefðu þær fæðst andavana. Það var og er ekkert rúm fyrir hugmyndafræði- lega nýsköpun í félagshyggju- flokkunum. Þar eru menn svo uppteknir af því að sýna og sanna að þeir geti stjórnað ekki síður en íhaldið. Það fór fram ágætis sýni- kennsla í borgarstjórn Reykja- vikur á árunum 1978-’82, en því miður virtust menn þá gleyma því Guðmundur Einarsson hafði samband við mig fyrir allnokkru og fór fram á það við mig að ég yrði frummælandi á þessum fundi hér í dag. Þá hljóðaði fundarefn- ið eitthvað á þá leið að hér yrðu til umræðu ástæður þess hversu tvístruð félagshyggjuöflin eru - hvað þau eru klofin í marga pólit- íska flokka og samtök. Minnug þess að ég flutti framsögu um svipað efni hjá Málfundafélagi félagshyggjufólks haustið 1984, þá varð ég við tilmælum Guð- mundar enda hélt ég að mér yrði ekki skotaskuld úr því að hrista rykið af þeim hugmyndum sem ég þá reifaði, og prjóna við þær þannig að þær pössuðu veruleika dagsins í dag. Þegar til átti að taka reyndist það þó ekki gerlegt. Til þess höfðu hugmyndir mínar sem og veruleikinn breyst of mikið. Árið 1984 bjuggum við við frjálshyggjustjórn Sjálfstæðis- flokks og Framsóknar og það vár samhljómur í gagnrýni félags- hyggjuaflanna þ.e. Kvennalista, Alþýðubandalags og Alþýðu- flokks. Öll gagnrýndum við að launafólk væri látið greiða niður verðbólguna, viðgagnrýndum af- nám samningsréttar og við lögðum áherslu á mikilvægi þess að standa vörð um velferðarkef- ið. En skjótt skipast veður í lofti. Það sem var frjálshyggja í gær er félagshyggja í dag. Nú tekur rík- isstjórn félagshyggju og jafnréttis að sér að frysta launin og tak- marka samningsrétt verkalýðs- hreyfingarinnar með bráða- birgðalögum. Hún heggur nú í sama knérunn og frjálshyggju- stjórnin 1983. Og eins og valds- stjórnir allra tíma hafa gert, þá leggur hún byrðarnar á axlir vinn- andi fólks með óljósu loforði um að síðar komi sælli tímar. Þetta er stærsta breytingin sem orðið hefur á hinum pólitíska veruleika frá því ég hélt síðast framsögu um félagshyggjuöflin. Það gerir það að verkum að mér liggja aðrir hlutir á hjarta nú en þá. Gamla ræðan mín hefur ryk- fallið of mikið á stuttum tíma til að hún sé nothæf. En hvað liggur mér þá á hjarta? Hvað langar mig til að segja kröt- um þegar ég kemst í milliliðalaust samband við þá? Um þetta hef ég hugsað undanfarna daga og mér hefur fundist mikið liggja við að ég glutraði nú ekki niður góðu tækifæri. Mest af öllu hefur mig náttúrulega langað til að skamma ykkur. Skamma ykkur fyrir dað- Ingibjörg Sólrún Gísladóttir: Daður við frjálshyggju, skeytingarleysi um femínisma. ur og ístöðuleysi gagnvart vond- um hugmyndum sem eiga meira skylt við frjálshyggju og vald- stjórn en félagshyggju og vald- dreifingu. Mig langar til að skamma y kkur - og reyndar ríkis- stjórnina alla - fyrir að setja út- göngubann á verkalýðshreyfing- una - setja á hana herlög eins og einhver orðaði það í útvarpinu í gær. Mér finnst líka þyngra en tárum taki að utanríkisráðherra félagshyggjuflokks skuli láta gullvægt tækifæri ónotað til að fordæma mannréttindabrot ísra- elsmanna á herteknu svæðunum í Palestínu. Skammir sem þessar eiga hins vegar jafn lítið erindi til ykkar allra hér inni og skammir flokksformannsins ykkar áttu til allra þeirra fjölskyldna í landinu, sem sátu og horfðu á sjónvarps- fréttirnar í gærkvöldi. Hrædd er ég um að skammirnar hans hafi reitt einhverja til reiði sem ekki áttu þær verðskuldaðar og svo gæti líka farið með mínar skammir hér. Ég hef því ákveðið að sitja á mér. Það sem ég hef sagt hér að framan vekur engu að síður upp spurningar um merkingu hug- taksins „félagshyggja“. Hvaða skilyrði þarf floíckur eða ríkis- stjórn að uppfylla til að geta skreytt sig með þessum stimpli? Ég ætla ekki að ræða þessar spurningar frekar hér heldur verð ég að gefa mér það að til félags- hyggjuaflanna teljist Kvennalisti, Alþýikibandalag, Alþýðuflokkur og jafnvel Framsóknarflokkur. Séð í þessu ljósi, endurspeglar umræðuefnið á þessum fundi hvort tveggja í senn, þær áhyggj- ur sem menn hafa af pólitískum klofningi félagshyggjuaflanna og þann aukna vilja sem þeir hafa til 8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.