Þjóðviljinn - 31.01.1989, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 31. janúar 1989 21. tölublað 54. árgangur
Kaup og kjör
Fimmti hver launþegi vinnuraukastörf utan aðalvinnu. Meðalfjölskyldutekjur um 148þús. krónur
ínóvembersl. Minnkandi kaupmœtti mœtt með síaukinni aukavinnu. Kaupmátturfjölskyldutekna
stóðístað. Um 60% launþega með undir 90 þús. krónur í heildartekjur á mánuði
Landsmenn hafa almennt
brugðist við minnkun
kaupmáttar á síðustu mánuðum
með síaukinni aukavinnu. Á
sama tíma og kaupmáttur
heildartckna fullvinnandi fólks
hefur minnkað um 15% frá nóv-
ember 1987 til sama tíma á liðnu
ári, hækkuðu heildarfjölskyldu-
tekjur hins vegar um 24,8%, eða
jafnmikið og framfærsluvísital-
an. Launafólk hefur því mætt
minnkandi kaupmætti með sí-
aukinni aukavinnu, en fimmti
hver launamaður vinnur auka-
störf utan aðalvinnu.
Þetta eru niðurstöður úr ítar-
legri könnun Félagsvísindastofn-
unar Háskólans á kjörum íslend-
inga í árslok 1988. Könnunin var
gerð í nóvember sl. og náði til um
1100 landsmanna á aldrinum 18-
75 ára.
Fullvinnandi karlar höfðu að
jafnaði um 112 þús. krónur á
mánuði í heildartekjur í nóvem-
ber sl. en fullvinnandi konur 71
þús. kr. Hluti af launamuninum
skýrist af styttri vinnutíma
kvenna en miðað við heildartekj-
ur á vinnstund höfðu karlar 467
kr. en konur 358 kr. sem er um
77% af tekjum karla.
Fjölskyldur fullvinnandi svar-
enda höfðu að jafnaði um 151
þús. kr. í mánaðartekjur og er þá
miðað við gift fólk og í sambúð en
ef miðað er við allt vinnandi fólk
voru meðalfjölskyldutekjur í
nóvember sl. um 148 þús. kr.
Þegar launum er skipt eftir at-
vinnustéttum voru verkakarlar
með 89 þús. kr. í heildartekjur á
mánuði, iðnaðarmenn um 112
þús. kr., skrifstofukarlar með 110
þús. kr. sérfræðingar og atvinnu-
rekendur með 144 þús. kr. og sjó-
menn 132 þús. Verkakonur
höfðu að jafnaði um 57 þús kr. á
mánuði og konur í skrifstofu- og
þjónustustörfum um 75 þús. kr.
Halldór Ásgraímsson sjávarút-
vegsráðherra segir enga upp-
lýsingaherferð vera á dagskránni
á vegum stjórnvalda til að kynna
hvalveiðistefnuna í Vestur-
Þýskalandi, hún sé einfaldlega of
dýr. Hins vegar verði haldið
áfram á sömu braut og áður í að
miðla upplýsingum til fyrirtækja,
fjölmiðla og almennings. Ráðherr-
ann hefur lagt áherslu á að heim-
sókn hans til Þýskalands verði
flýtt.
í samtali við Þjóðviljann í gær
Stefán Ólafsson forstöðumað-
ur Félagsvísindastofnunar segir
það koma mest á óvart í þessari
fyrstu ítarlegu launa- og kjara-
sagðist Halldór ekki geta upplýst
hvernig hann muni haga við-
ræðum sínum við þýska ráða-
menn. En þegar hótanir og
skemmdarvek samtaka í Þýska-
landi væru farin að bera árangur
væri eðlilegt að hafa beint sam-
band við þýsk stjórnvöld. Þau
réðu að sjálfsögðu ekki við al-
menningsálitið, en ekki væri
óeðlilegt að biðja þau um aðstoð
við að koma upplýsingum á fram-
færi.
Steingrímur J. Sigfússon land-
búnaðarráðherra sagðist ætla að
könnun stofnunarinnar, hversu
almennar tekjur eru hærri en aðr-
ar athuganir sýna og hversu auka-
vinna landsmanna er mikil.
beita sér fyrir því að málið verði
rætt í ríkisstjórninni. Stöðugt
bættust við vísbendingar um hve
alvarlegt málið væri orðið,
jafnvel þó ekki væri tekið undir
með þeim svartsýnustu. „Þetta
snertir auðvitað atvinnumálin í
mínu kjördæmi,“ sagði Stein-
grímur. Það væri alvarlegt mál ef
lagmetisiðnaðurinn legðist þar
af. f Norðurlandskjördæmi ey-
stra væri lagmetisiðnaðurinn
hlutfallslega stór.
Þýski sendiherrann á íslandi
hefur milligöngu um heimsókn
- Vinnumarkaðurinn hér hefur
einkennst af miklum sveigjan-
leika og það notfærir fólk sér í
hvívetna til að bregðast við minni
Halidórs til Þýskalands, og sagði
ráðherrann að sendiherrann
hefði þann sama skilning, að
hraða þyrfti fundum íslenskra og
þýskra stjórnvalda um málið.
íslendingar hafa skuldbundið
sig til að hlíta ábendingum vísind-
anefndar Alþjóða hvalveiðiráðs-
ins, sem heldur fund um okkar
mál í maimánuði. Halldór sagði
ákvarðana um veiðarnar næsta
sumar ekki að vænta fyrr en að
þeim fundi loknum.
-hmp
kaupmætti. Að sama skapi eru
kjör fólks mjög viðkvæm fyrir at-
vinnustiginu hverju sinni, segir
Stefán. .
Orlofsferðir
Erlend félög
með tilboð
,JVlér er kunnugt um að erlent
flugfélag hefur lýst yfir að það er
reiðubúið að aðstoða okkur,“
sagði Ögmundur Jónasson, for-
maður BSRB þegar Þjóðviljinn
spurðist fyrir um hvernig útlit
væri með orlofsferðir BSRB til
útlanda næsta sumar, með hlið-
sjón af málsókn Flugleiða á hend-
ur Verslunarmannafélags Suður-
nesja. Sagði Ögmundur að ferða-
nefnd BSRB ætlaði að fjalla um
þessi mál á fundi fyrri hluta vik-
unnar.
Fram hefur komið í fréttum að
Dagsbrún hafi verið gerð tilboð
frá erlendum flugfélögum um
flug í sumar og að þau félög bjóði
verð sem er langt undir því verði
sem innlendir aðilar bjóði.
-phh
Arnarflug
Úrslit í dag
Ríkisstjórnin fjallar um
málið. SteingrímurJ. Sig-
fússon: Enn hefur ekkert
komiðfram um að Arn-
arflugsmenn hafi safnað
nœgum peningum
„Málefni Arnarflugs verða
tekin fyrir á ríkisstjórnarfundi í
dag og ég reikna fastlega með að
ákvörðun verði tekin um fram-
haldið. Arnarflugsmönnum voru
settar ákveðnar tímaskorður, en
enn hafa þeir ekki haft samband
við mig og sýnt fram á að þeir hafi
náð að safna saman nægu hlut-
afé,“ segir Stcingrímur J. Sigfús-
son, samgönguráðherra.
Steingrímur sagði að hann teldi
að það þyrfti að leiða málið til
lykta nú og grípa til aðgerða í
framhaldi af ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar. Hafi Steingrími
því ekki borist nýjar upplýsingar
frá Arnarflugsmönnum fyrir
ríkisstjórnarfundinn í dag, má
búast við að ríkisstjórnin gangi
beint til samninga við Flugleiðir.
Steingrímur sagði í Þjóðviljanum
í síðustu viku að til greina kæmi
að Flugleiðir og ríkisstjórnin
keyptu sameiginlega Arnarflug
sem yrði þá jafnvel rekið áfram
sem sjálfstætt flugfélag. Það yrði
hins vegar ekki undir stjórn nú-
verandi stjórnenda Araarflugs.
phh
Launafólk hefur mætt minnkandi kaupmætti með stöðugt meiri aukavinnu, þannig að fimmti hver launa-
maður vinnur í dag einhver aukastörf með aðalvinnu sinni. Mynd-Jim Smart.
r Hvalamálið
Akall til þýskra stjómvalda
Halldór Asgrímsson: Sjálfsagtað rœða við stjórnvöld þegar hótanirog
skemmdarverkastarfsemi erufarin að bera árangur. Engin herferð
áformuð. Þýskalandsför flýtt. Steingrímur J. : Málið verður alvarlegra
Ennþá meiri aukvinna