Þjóðviljinn - 01.02.1989, Qupperneq 11
I DAG
LESANDI
VIKUNNAR
Sljómmál á íslandi
skipta ekkl máli
Eiríkur Guðjónsson
fulltrúi
Hvað ertu að gera núna, Eirík-
ur?
„Ég er að fást við bankastörf í
Búnaðarbankanum, en auk þess
starfa ég mikið að aðaláhugaefni
mínu sem er ljósmyndun. Eg hef
verið mjög duglegur að stækka
myndir undanfarið og stefni að
því að halda sýningu á nokkrum
myndaflokkum einhvern tíma á
næstunni. Þetta eru aðallega þrír
flokkar mynda: erótískar grjót-
myndir - nei, ég get ekki kaílað
þær neitt annað! - myndir af
mannvistarleifum á Hornströnd-
um og myndir frá Kúbu. Þangað
fór ég í fyrra með fjölskyldunni.
Þetta eru gerólík viðfangsefni en
ganga vel saman, myndirnar sýna
ákveðna aðferð við að skoða
hlutina og ákveðin viðhorf til
þeirra."
En hvað varstu að gera fyrir tíu
árum?
„Þá var ég að vinna í banka eins
og núna, en einmitt um þetta ley.ti
var ég líka að undirbúa langferð.
Ég ætlaði landleiðina gegnum hin
spennandi Litlu Asíu- og Asíu-
lönd, Tyrkland, íran, Afganistan
og alla leið til Indlands. En bæði
er að síðan ég fór að skipuleggja
þessa ferð hefur eiginlega verið
látlaus styrjöld á þessu svæði, og
fáeinum mánuðum seinna mætti
ég örlögum mínum í líki eigin-
konu minnar. Hún setti strik í
ferðareikninginn.“
Ég þarf eiginlega ekki að spyrja
hvaða frístundagaman þú hef-
ur...
„Jú, það er ekki bara ljós-
myndun. Útivist og sund líka.
Útivist og náttúruskoðun eru
eðlilegir fylgifiskar ljósmyndun-
ar. Eftirlætisstaðurinn minn er
Hengilssvæðið, Henglafjöllin og
dalirnir þar í kring. Þetta er fjöl-
breytt svæði og leynir á sér.“
Hvaða bók crtu að lesa núna?
„Ég er að lesa tvær: Svefninn
langa eftir Chandler og uppá-'
haldið mitt, Graham Greene,
The Lawless Roads sem hann
skrifaði fyrir seinna stríð í Mex-
íkó. Hann var fenginn til þess af
kaþólsku kirkjunni að kynna sér
ástand trúmála í Mexíkó og sú
ferð opnaði honum leiðina inn í
rómanska heiminn. Næst á eftir
skrifaði hann eitt af stórvirkjum
sínum, The Power and the
Glory.“
Hvað fínnst þér þægilegast að
lesa í rúminu á kvöldin?
„Ljósmyndatímarit - í bland
við fagurbókmenntir.“
Hvaða bók myndirðu taka með
þér á eyðiey?
„Þetta er voðaleg spurning!
Hún yrði að vera nógu fjölbreytt,
eins og Sturlunga eða Biblían.
Ætli Góði dátinn Sveik yrði ekki
bestur, í óstyttu útgáfunni sem
kom á ensku 1973. Hún erþrjátíu
prósent lengri en þýðing Karls ís-
felds sem var byggð á púrítanskri
enskri þýðingu. Hasek var miklu
kjaftforari en hann er hjá Karli.
Það eru margar sögur í þessari
bók sem hver um sig hefur marga
fleti - eins og raunar hinar bæk-
urnar sem ég nefndi. Hún er al-
veg lygilega góð.“
Hver var uppáhalds barnabók-
in þín?
„Ég hélt voðalega mikið upp á
Kipling, dýrheimabækurnar.
Söguna um úlfastrákinn og þær.“
Hvað sástu síðast í leikhúsi?
„Koss kóngulóarkonunnar.
Það var góð sýning."
Er eitthvað í lcikhúsunum
núna sem þú ætlar ekki að missa
af?
„Ævintýri Hoffmanns eftir
Offenbach."
En í bíó?
„Bagdad Café.“
Én í sjónvarpi?
„Derrick!"
Én í útvarpi?
„Það er slangur af þáttum þar
sem ég reyni að missa ekki af, til
dæmis Kviksjá, Frjálsar hendur
Illuga Jökulssonar og svo dæg-
urmálaútvarpið.“
Hefurðu alltaf kosið sama
stj órnmálaflokkinn?
„Það er hræðilegt að játa það,
en ég hef gert það, já.“
Hvaða stjórnmálamann langar
þig mest til að skamma?
„Það er erfitt að gera upp á
milli þeirra! Það er eiginlega
fleira líkt en ólíkt með
stjórnmálaforingjunum okkar.
Graham Greene segir að
stjórnmál í Suður-Ameríku skipti
miklu meira máli en á Vestur-
löndum af þvf að þau séu alltaf
upp á líf og dauða. íslensk
stjórnmál skipta litlu máli í því
ljósi.“
Hvernig myndir þú leysa efna-
hagsvandann?
„Mér leiðist vöggustofukapít-
alismi sem hér hefur fólgist í því
að láta einstaklingana hirða gróð-
ann en þjóðnýta tapið. Þessu
myndi ég breyta.“
Á að lækka kaupið ef fyrirtæki
gengur illa?
„Ef fyrirtæki gengur svo illa að
það sjái fram á að þurfa að segja
upp starfsfólki og leggja sjálft sig
niður þá gæti þetta hugsanlega
verið lausn þar sem kaup er veru-
lega hátt. Én ég sé ekki mögu-
leika á að lækka laun láglauna-
fólks á íslandi."
Hvernig á húsnæðiskerfíð að
vera?
„Það þægilegasta væri stórir og
sterkir húsnæðissparnaðarsjóðir
sem lána á góðum kjörum til
langs tíma, eins og gerist í Eng-
landi og Þýskalandi. En ég veit
ekki hvort íslenskt efnahagskerfi
býður upp á þetta.“
Hvaða kaffítegund notarðu?
„Ég nota Merrild - og skamm-
ast mín fyrir að nota ekki kaffi frá
Nicaragua.“
Hvað borðarðu aldrei?
„Ég er alinn upp við fjölbreytt
fæði og er alveg ómatvandur. Hef
ekki fundið enn þá fæðutegund
sem ég get ekki borðað. En ég
borða aldrei skemmdan mat eða
mat sem hreyfir sig.“
Hvar myndirðu vilja búa ann-
ars staðar en á íslandi?
„Ég gæti hugsað mér að búa
einhvers staðar miðsvæðis í Evr-
ópu, Suður-Þýskalandi, Sviss eða
á Miðjarðarhafsströnd Frakk-
lands.“
Hvernig finnst þér þægilegast
að ferðast?
„í járnbrautarlest."
Hvernig sérðu framtíðarlandið
fyrir þér?
„Hvað ertu að tala um fjarlæga
framtíð? Næstu áratugir verða
hættulegur tími út af misskipting-
unni milli þróunarlanda og Vest-
urlanda. A spennunni þar á milli
þarf að finna lausn. Þessi ójöfn-
uður gengur ekki, heimurinn er
alltof lítill til þess. Vanþekking
okkar, hinna „ríku og gáfuðu,“ á
þróunarlöndunum er alveg botn-
laus og stórhættuleg. Maður get-
ur ekki séð neitt Disneyland fyrir
sér fyrr en lausn hefur fundist á
þessu máli.“
Hvaða spurningu langar þig til
að svara að lokum?
„Mig langar að vera spurður
um gildismat okkar tíma.“
Hvert er gildismat okkar tíma,
Eiríkur?
„Nútíminn metur hörkuna allt
of mikils. Umhverfi okkar er kalt
og ómanneskjulegt, manneskjan
fær ekki að njóta sín. Okkur
vantar hin mjúku gildi. Mann-
skepnan getur alltaf lagað sig að
nýjum aðstæðum en hún getur
breytt þessu gildismati og verður
að gera það til að mæta framtíð-
inni. Hagvöxturinn getur ekki
endalaust verið okkar eina trú.“
SA
þlÓÐVIUINN
FYRIR 50 ÁRUM
Frakkland og Bretland í hættu
ef Franco sigrar. Utanríkismálin
rædd í breska þinginu.
Deilur milli Bonnet og Daladier
út af kröfum ítala. ítölsk blöð
heimta bætur af Frökkum fyrir
manntjón í Spánarstyrjöldinni.
Estrid Falberg Brekkan: Al-
þýðumenningin. Fyrirlestrarfélög
-Fræðsluhringar.
1. FEBRÚAR
miðvikudagur í fimmtándu viku
vetrar, þrettándi dagur þorra,
þrítugasti og annar dagur ársins.
Sól kemur upp í Reykjavík kl.
10.08 en sestkl. 17.16.Tungl
minnkandi á fjórða kvartili.
VIÐBURÐIR
Brígidarmessa. Heimastjórn
1904, Hannes Hafstein ráðherra.
DAGBÓK
APÓTEK
Reykjavík. Helgar- og kvöldvarsla lyfj-
abúöa vikuna
27. jan.-2. febr. 1989 er llngólfs Apó-
teki og Laugarnesapóteki.
Fyrrnef nda apótekið er opið um helgar
og annast næturvörslu alla daga 22-9 (til
10 frídaga). Síðarnefnda apótekið er
opið á kvöldin 18-22 virka daga og á
laugardögum 9-22 samhliða hinu fyrr-
nefnda.
LÖGGAN
Reykjavík sími 1 11 66
4 12 00
1 84 55
Hafnarfj sími 5 11 66
Garðabær sími 5 11 66
Slökkvilið og sjúkrabílar:
Reykjavík sími 1 11 00
Kópavogur sími 1 11 00
Seltj.nes sími 1 11 00
Hafnarfj sími 5 11 00
Garðabær sími 5 11 00
LÆKNAR
Læknavakt fyrir Reykjavik, Sel-
tjarnarnes og Kópavog er í Heilsu-
verndarstöð Reykjavíkur alla virka daga
frá kl. 17 til 08, á laugardögum og helgi-
dögum allan sólarhringinn. Vitj-
anabeiðnir, símaráðleggingar og tíma-
pantanir í síma 21230. Upplýsingar um
laekna og lytjaþjónustu eru gef nar í sím-
svara 18888.
Borgarspítalinn: Vakt virka daga kl. 8-
17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilis-
lækni eða ná ekki til hans. Landspít-
allnn: Göngudeildin eropin 20-21.
Slysadeild Borgarspítalans: opin allan
sólahringinn sími 696600.
Hafnarfjörður: Dagvakt, Heilsugæslan
sími 53722. Næturvakt lækna sími
51100.
Garðabær: Heilsugæslan Garöaflöts.
656066, upplýsingar um vaktlækna s.
51100.
Akureyri: Dagvakt 8-17 á Læknamið-
stöðinni s. 23222, hjá slökkviliðinu s.
22222, hjá Akureyrarapóteki s. 22445.
Keflavík: Dagvakt. Upplýsingars. 3360.
Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna s.
1966.
SJÚKRAHÚS
Heimsóknartimar: Landspítallnn: alla
daga 15-16,19-20. Borgarspítalinn:
virkadaga 18.30-19.30, helgar 15-18,
og ettir samkomulagi. Fæðingardeild
Landspítalans: 15-16. Feðratími 19.30-
20.30. Öldrunarlækningadeild Land-
spítalans Hátúni 10 B. Alla daga 14-20
og eftir samkomulagi. Grensásdeild
Borgarspítala: virka daga 16-19, helgar
14-19.30. Heilsuverndarstöðinvið
Barónsstig opin alladaga 15-16og
18.30-19.30. Landakotsspltali-.alla
daga 15-16 og 18.30-19. Barnadeild:
heimsóknir annarra en foreldra kl. 16-17
daglega. St. Jósefsspitali Hafnarfirði:
alla daga 15-16 og 19-19.30. Klepps-
spftalinn: alla daga 15-16 og 18.30-19.
SJúkrahúsið Akureyri: alla daga 15-16
og 19.19.30. Sjúkrahúsið
Vestmannaeyjum: alla virka daga 15-
16og 19-19.30. Sjúkrahús Akraness:
alladaga 15.30-16og 19-19.30.Sjúkra-
húsið Húsavík: alla daga 15-16 og
19.30-20.
ÝMISLEGT
Hjálparstöð RKI neyðarathvarf fyrir
unglingaTjarnargötu 35. Sími 622266
opið allan sólarhringinn.
Sálfræðistöðin
Ráðgjöf í sálfræðilegum efnum. Sími
687075.
MS-fálagið Álandi 13. Opiðvirkadaga
frákl. 10-14. Sími 688800.
Kvennaráðgjöfin Hlaðvarpanum, Vest-
urgötu 3. Opið þriðjudaga kl. 20-22,
fimmtudaga 13.30-15.30 og kl.20-22,
simi 21500, simsvari: Sjálfshjálparhóp-
ar þeirra sem hafa orðið fyrir sifjaspell-
um, s. 21500, símsvari.
Upplysingar um ónæmlstærlngu. (al-
næmi). Upplýsingar í síma 622280, milli-
liðalaust samband við lækni.
Frá samtökum um kvennaathvarf,
siml 21205. Húsaskjól og aðstoð fyrir
konur sem beittar hafa verið ofbeldi eða
orðið fyrirnauðgun.
Samtökin '78 Svarað er i upplýsinga- og
ráðgjafarsíma Samtakanna '78félags
lesbía og homma á Islandi á mánudags-
og fimmtudagskvöldum kl. 21 -23. Sfm-
svari á öðrum tímum. Síminn er 91 -
28539.
Fálag eldri borgara. Opið hús í Goð-
heimum, Sigtúni 3, alla þriðjudaga,
fimmtudaga og sunnudaga kl. f 4.00.
Bitanavakt rafmagns- og hitaveitu: s.
27311. Raf magnsveita bilanavakt s.
686230.
Vinnuhópur um sifjaspellamál. Simi
21260 alla virka daga kl. 1 -5.
Lögfræðiaðstoð Orators, félags laga-
nema, er veitt í síma 11012 milli kl. 19.30
og 22.00 áfimmtudagskvöldum.
„Opið hús“ krabbameinssjúklinga.l
Skógarhlíð 8 er „Opið hús" fyrir alla
krabbameinssjúklinga og aðstandendur
þeirra á fimmtudögum kl.17.00-19.00.
Bækur og blöð liggja frammi, spil og töfl.
Umræðuhópar settir i gang og félagsleg
og sálf ræðileg þjónusta veitt þeim sem
þessóska.
GENGIÐ
31.janúar
1989 kl. 9.15.
Sala
Bandaríkjadollar............. 49,91000
Sterlingspund................ 87,94100
Kanadadollar................. 42,24800
Dönsk króna................... 6,90080
Norskkrória................... 7,42430
Sænsk króna................... 7,89590
Finnsktmark.................. 11,63130
Franskurfranki................ 7,89090
Belgískurfranki............... 1,28140
Svissn.franki................ 31,54570
Holl. gyllini................ 23,76040
V.-þýskt mark................ 26,82540
Itölsklira.................... 0,03667
Austurr. sch.................. 3,81280
Portúg. escudo.......... 0,32810
Spánskurpeseti................ 0,43350
Japansktyen.................... 0,38667
Irsktpund.................... 71,74800
KROSSGÁTA
Lárétt: 1 sögn 4 næð-
ing6þannig7glufa9
megn 12 getur 14 hæf-
ur15beita16lokuðu
19vitur20 trylltri 21
tæla.
Lóðrétt: 2 mannsnafn
3reykir4spil5fönn7
deilaBsköp 10ófúsa
11 athugir 13 hrúga 17
hlass18hljóm
Lausnásíðustu
krossgátu
Lárétt: 1 skrá4þörf6
trú 7 sótt 9 skip 12 jurta
14 ota 15 múr 16 röska
19tign20árla21
Adams
Lóðrétt: 2 kró 3 áttu 4
þúst5rói7skorta8
tjarga10kamars11
partar 13 rás 17 önd 18
kám
Miðvlkudagur 1. febrúar 1989 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11 i