Þjóðviljinn - 02.03.1989, Blaðsíða 1
Fimmtudagur 2. mars 1989 43. tölublað 54. órgangur
Lífeyrissjóðirnir hafa dregið verulega úrkaupum á skuldabréfum Húsnœðisstofnunar. Óska eftir viðrœðum við stjórnvöld
um verðtryggingarmál. Reiðubúnir til viðrœðna efþað geturkomið samskiptum íeðlilegan farveg
Lífeyrissjóðirnir hafa dregið
verulega úr kaupum sínum á
skuldabréfum Húsnæðisstofnun-
ar frá því nýja lánskjaravísitalan
tók gildi 1. febrúar í nýliðnum
mánuði keyptu sjóðirnir skulda-
bréf fyrir aðeins 179 miljónir kr.
en það er 310 miljón kr. minna en
sjóðirnir keyptu fyrir í janúar.
» Hrafn Magnússon fram-
kvæmdastjóri Sambands al-
mennra lífeyrissjóða sagði í gær
að ljóst væri að sjóðirnir hefðu
dregið úr kaupum á skulda-
bréfum Húsnæðisstofnunar
vegna óvissunnar sem ríkti um
verðtryggingu bréfanna.
Lífeyrissjóðasamböndin sendu
í gær bréf til fjármálaráðherra og
viðskiptaráðherra þar sem lögð
er áhersla á að samningsaðilar
setjist hið fyrsta niður til að leysa
verðtryggingarhnút þann sem
hlaupinn er í samskipti ríkisins og
lífeyrissjóðanna. Jafnframt telja
samböndin brýnt að samið verði
um verðtryggingar og vaxtakjör
vegna skuldabréfakaupa sjóð-
anna, það sem eftir lifir ársins.
f sameiginlegu bréfi sem for- þau telji nýju vísitöluna fullkom-
menn lífeyrissjóðssambandanna lega löglega. Því sé mikilvægt að
senduígærtilforráðamannaallra niðurstaða fáist um það, hvern
lífeyrissjóða í landinu segir m.a. veg verðtryggingu verði komið
að augljóst sé að stjórnvöld verði fyrir í samningum sjóðanna og
ekki þvinguð til að standa við Húsnæðisstofnunar og samtökin
áður gerða samninga, þar sem séu reiðubúin til viðræðna um
málið, ef það megi verða til þess
að koma samskiptum sjóðanna
og Húsnæðisstofnunar í eðlilegan
farveg.
Eins og Þjóðviljinn hefur
greint frá höfnuðu stjórnvöld til-
boði lífeyrisjóðanna um að vísa
deilunni í gerðardóm. Einnig
höfnuðu stjórnvöld þeirri hug-
mynd lífeyrissjóðanna að skuld-
bindingar sem gerðar voru fyrir
1. febrúar miðuðust áfram við
gamla vísitölugrunninn.
-sg-
Bjórinn
Meira
en dós
Talið er að hátt í 300 þús. bjór-
dósir hafí verið seldar í útsölum
ÁTVR um allt land í gær, þar af
um 200 þús. dósir á höfuðborgar-
svæðinu.
Þetta samsvarar rúmlega einni
dós á hvert mannsbarn í landinu.
Forráðamenn náttúruverndar-
samtaka hafa lýst miklum áhyggj-
um yfir þessu aukna dósaflóði og
er skorað á landsmenn að skilja
ekki eftir sig bjór- eða gosdósir á
víðavangi.
f höfuðborginni eru nú yfir 50
aðilar með leyfi til vínveitinga-
sölu og fyrir borgarstjórn liggja
nú umsóknir 12 annarra aðila um
leyfi til sölu á bjór og áfengi.
Þessar ungu stúlkur létu mismikinn áhuga hinna eldri á bjór og bjórsölu ekki hafa áhrif á sig í góða veðrinu í gær og fengu sér heitt kakó
eftir góðan skautasprett á Tjörninni - Mynd - Jim.
Mannfrœði
Þyngri en nefnettari
Hreinrœktaðir‘( Vestur-íslendingar íflestum atriðum keimlíkir Þingeyingum
Sjá síðu 3
»
Samanburðarrannsóknir á
Vestur-íslendingum og afkom-
endum þeirra á aldrinum 20-49
ára og Þingeyinga á sama aldurs-
skeiði sýna að þetta fólk er ótrú-
lega líkt í flestum líkams- og höf-
uðmálum.
Þetta eru nýlegar niðurstöður
rannsókna sem þau Jens Ó. P.
Pálsson forstöðumaður Mann-
fræðistofnunar Háskólans og
Anna Kandler hafa unnið að.
Árið 1986 voru hátt á fimmta
hundrað Vestur-íslendingar í
Kanada og Bandaríkjunum
mældir og vegnir og niðurstöður
þeirra mælinga bornar saman við
samskonar athuganir á Þingey-
ingum.
Einu athyglisverðu frávikin
eru þau að vestur-íslenskir karlar
eru nokkuð þyngri og axla-
breiðari en Þingeyingar og meiri
um mittið, en nefnettari og
Gestir:
Kvennalistakonurnar Guðrún
Agnarsdóttir þingmaðurog Elín
G. Ólafsdóttir borgarfulltrúi.
,PóUtík.á .
laugaraegi
Þjóðviljinn/Alþýðubandalagid í Reykjavík
Pólitískt hádegisspjall á Hverfis-
götu 105, 4. hæö kl. 11-14 á
laugardaginn
femínisminn
efnahagsstefnan
stjórnarþátttaka
allaballarnir
samvinna gegn íhaldi
hugsjónastaðfesta ogpólit-
ísk ábyrgð
Allir vinstrimenn velkomnir (líka kvennalistafólk)
eyrnaminni. Vestur-íslenskar
konur eru meiri um mjaðmir en
kynsystur þeirra í Þingeyjarsýslu
en mun minni að brjóstamáli,
handar- og eyrnabreidd.
Frá þessum niðurstöðum er
skýrt í nýútkominni ársskýrslu
Vísindaráðs og Rannsóknaráðs,
og kemur fram að verulega mark-
tækur munur finnst að meðaltali
sjaldan á þeim líkamsmálum fs-
lendinga, austan hafs og vestan,
sem rannsakaðir hafa verið. -Ig
Þjóðviljinn
Frá og með 1. mars hækkar á -
skriftarverð Þjóðviljans í kr.900 á
mánuði.
i lausasölu kostar blaðið nú kr. 80
og Nýtt helgarblað Þjóðviljans kost-
ar kr. 110.
Grunnverð dálksentimetra
auglýsinga verður kr. 595.