Þjóðviljinn - 08.03.1989, Page 1
Miðvikudagur 8. mars 1989 47. tölublað 54. árgangur
son forseti, Ragna Bergmann varaforseti og Örn Friðriksson. Frá BSRB mættu þeir
Ögmundur Jónasson formaður, Haraldur Hannesson varaformaður, Björn Arnórsson
hagfræðingur og Einar Ólafsson. Mynd Jim Smart.
ASI og BSRB
Samvinna um félagsmálapakka
Samböndin samrœma helstu hugmyndir sínar um félagsmálapakka. Asmundur Stefánsson: Samvinna
styrkir samböndin gagnvart ríkisvaldinu. Munum móta sameiginlegar kröfur ogfinna sameiginlegar leiðir
til að komaþeim fram. Ögmundurjónasson: Eindreginn vilji til samvinnu
Forystumenn ASÍ og BSRB komu saman til að leggja á ráðin um sameiginlegar leiðir til
að styrkja stöðu sína í samningaviðræðum við ríkisvaldið og atvinnurekendur. Báru
menn saman bækur sínar og samræmdu sjónarmið varðandi svokallaðan fé-
lagsmálapakka. Frá ASÍ voru þau mætt Ari Skúlason hagfræðingur, Ásmundur Stefáns-
Forystumenn ASÍ og BSRB
komu saman til fundar í húsa-
kynnum BSRB að Grettisgötu í
gær og ræddu þar hvernig þeir
gætu samræmt þær hugmyndir
sem uppi hafa verið í samböndun-
um varðandi viðræður við ríkis-
valdið um félagsmálapakka.
Jafnframt voru rædd þau sjón-
armið sem uppi hafa verið innan
aðildarfélaga þessara sambanda
um undirbúning samninganna í
heild og rætt hvaða sameiginlegar
leiðir væru færar. Asmundur
Stefánsson forseti ASÍ sagði í
samtali við Þjóðviljann að það
væri engum vafa undirorpið að
samvinna af þessu tagi styrkti
báða aðila gagnvart viðsemjend-
um sínum og taldi að framhald
yrði á þcssari samvinnu á meðan
á samningum stæði.
„Ég held að það sé enginn
grundvallarmunur á þeim áhersl-
um sem ASÍ og BSRB leggja í
viðræðum sínum við ríkisvaldið.
Ég held að af okkar hálfu munum
við ganga til viðræðna við ríkis-
valdið með opnum hug, þannig
að við stillum ekki upp ákveðn-
um pakka í upphafi viðræðna sem
því eina sem við erum til viðræðu
um. Við erum tilbúin að líta á það
sem ríkisvaldið er reiðubúið að
leggj a til málanna og það tel ég að
gildi jafnframt fyrir BSRB,“
sagði Asmundur.
Ásmundur sagði að stærsta
málið af hálfu ASÍ væri krafa um
að tekið yrði á atvinnumálum og
þótt staða BSRB væri óhjá-
kvæmilega nokkuð önnur í þeim
efnum, tækju opinberir starfs-
menn eindregið undir þá kröfu.
Sama gilti um kröfur félaganna í
vaxtamálum og flest stærstu lið-
ina í félagsmálapakkanum. „Ég
held að við munum óhjákvæmi-
lega móta sameiginlega afstöðu
til einstakra þátta þegar við erum
komin lengra í umræðunni og
munum vinna saman að því að
koma málum fram,“ sagði Ás-
mundur Stefánsson.
r Grœnfriðungar
Olga vegna þorskyflrlýsi ngar
Forystumenn Greenpeace hóta að segja afsér verðiMichaelNielsen
ekki rekinn fyrir ummœli um að hreyfingin œtli að hafa afskiptiaf
fiskveiðistefnu Islendinga
Samkvæmt heimildum Þjóð-
viljans logar allt í deilum
innan Greenpeace vegna yfirlýs-
inga Michael Nielsen, talsmanns
Danmerkurdeildar hreyfingar-
innar, um að grænfriðungar ætli
að hafa afskipti af fiskveiðistefnu
íslendinga.
Margir forystumenn grænfrið-
unga hafa hótað að segja af sér
verði Nielsen ekki rekinn úr
hreyfingunni og eru það einkum
menn innan Lundúnadeildar-
innar og Þýskalandsdeildarinnar
sem hafa tekið þessi ummæli ó-
stinnt upp. M.a. mun David Mac-
Taggart, einn af stofnendum
Greenpeace og einn helsti for-
ystumaður grænfriðunga, ævar-
eiður vegna þessara ummæla.
Grænfriðungar telja að fisk-
veiðum íslendinga sé vel stjórnað
en hinsvegar eru þeir uggandi
vegna þróunarinnar í Barents-
hafi, en þar hefur átt sér stað
stjórnlaus ofveiði á þorski. Þessi
ofveiði er m.a. talin orsök sela-
vöðunnar sem sótti Noregs-
strendur heim í fyrra.
Heimildir Þjóðviljans herma
að enskir og þýskir grænfriðung-
ar telji afskipti Danmerkur-
deildarinnar og Svíþjóðardeild-
arinnar í hvalfriðunarmálinu hafa
verið til ills eins, að með þessu
útspili Nielsens hafi málstaðnum
verið klúðrað hrapallega. -Sáf
Rithöfundasambandið
Vara víð ritskoðun
EinarKárason: Þurfi menn að óttast málaferlifyrir að gagnrýna
opinbera embcettismenn stefnum við inn íþjóðfélag ritskoðunar
Það er mjög varasöm þróun
þegar ríkissaksóknari tekur
sig ítrekað til og stefnir mönnum
fyrir ummæli í blöðum um opin-
bera starfsmenn. Ef þeir sem
gagnrýna opinbera starfsmenn í
fjölmiðlum eiga stöðugt á hættu
málaferli er komin á ritskoðun i
þjóðfélaginu, sagði Einar Kára-
son, formaður Rithöfundasam-
bands íslands.
Stjórn Rithöfundasambands-
ins varar við þeirri þróun sem nú
á sér stað í átt til ritskoðunar í
ályktun sem send var rikissak-
sóknara og fjölmiðlum. Ástæðan
fyrir þessari ályktun er máls-
höfðun ríkissaksóknara á hendur
Halli Magnússyni blaðamanni á
Tímanum vegna greinar sem
Hallur ritaði um Spjöll unnin á
kirkjugarðinum í Viðey.
Einar sagði að þetta væri ekki í
fyrsta skipti sem ríkissaksóknari
höfðaði slíkt mál og þessvegna liti
Rithöfundasambandið þetta al-
varlegum augum. „Opinberir
starfsmenn hljóta að vera undir
smásjá og þeir sem fjalla um störf
þeirra í fjölmiðlum verða að geta
gert það án þess að eiga yfir höfði
sér stefnur frá ríkissaksóknara.
Viðkomandi einstaklingur, Þórir
Stephensen staðarhaldari í Við-
ey, hefði sjálfur átt að höfða
meiðyrðamál ef honum fannst
vegið að æru sinni í grein Halls.
Að ríkissaksóknari hafi afskipti
af þessu er háskaleg þróun."
_______________________-Sáf
Ögmundur Jónasson formaður
BSRB sagði að eindreginn vilji
hefði komið fram innan raða
BSRB og ASÍ um samstarf um
leiðir til að auka kaupmátt fólks,
einkum hvað sneri að ríkisvald-
inu og um það hefði þessi fundur
fjallað. Annar fundur yrði hald-
inn með þessum sömu aðilum
innan fárra daga. Þá mun ASÍ
ræða við ríkisstjórnina nk. föstu-
dag og við atvinnurekendur á
mánudag.
phh
Loðnukvótinn
Tæp 220
þúsund
tonn eftir
Loðnunefnd:
Loðnuganga vœntanleg
að austan
Sáralítil loðnuveiði hefur verið
síðustu sólarhringa. A laugardag
veiddust aðeins 2.400 tonn og 600
á sunnudag. Tæp 220 þúsund
tonn eru eftir af rétt rúmlega 900
þúsund tonna heildarkvóta. Frá
áramótum er loðnuaflinn orðinn
396.630 tonn.
Að sögn Ástráðar Ingvars-
sonar hjá Loðnunefnd má loðnu-
flotinn eiga von á loðnugöngu að
austan von bráðar og er hann
handviss um að flotinn nái að
veiða upp í kvótann af þeim
sökum. Um 18 loðnuskip eiga
eftir minna en 4 þúsund tonn af
úthlutuðum kvóta á vertíðinni.
-grh