Þjóðviljinn - 09.03.1989, Síða 1

Þjóðviljinn - 09.03.1989, Síða 1
Fimmtudagur 9. mars 1989 48. tölublað 54. árgangur Varqflugvöllurinn Kostnaður hrein ágiskun Kostnaðartalan 11 miljarðar erhrein ágiskun sem hvergi hefur fengist staðfest. NATÓ hefurekki samþykkt að varaflugvöllur verði greiddur afMannvirkjasjóðnum. Talsmaður Bandaríkjahers telur að Bandaríkjamenn og hugsanlega íslendingar deili kostnaði af forkönnun Þorsteinn Ingólfsson, skrif- stofustjóri Varnarmálaskrif- stofu utanríkisráðuneytisins, staðfesti í samtali við Þjóðviljann að sú tala sem nefnd hefur verið um hugsanlegan kostnað við byggingu varaflugvallar á vegum Bandaríkjanna-Mannvirkjasjóðs NATÓ, 11 miljarðar króna, sé hrein ágiskunartala sem hann hafi hvergi getað fengið staðfesta. Talsmaður Bandaríkjahers á Keflavfkurflugvelli scgist aðeins hafa séð þessa tölu nefnda í ís- lenskum fjölmiðlum. Þá kom fram við eftirgrennslan blaðsins að viðkomandi stofnanir innan Nató hafa enn ekki sam- þykkt að gerð varaflugvallarins verði kostuð úr sameiginlegum Mannvirkjasjóði hernaðar- bandalagsins. Þá eru menn ekki á. eitt sáttir um hver eigi að bera kostnað af svonefndri forkönn- un. Talsmaður Bandaríkjahers á Keflavíkurvelli telur, þó með fyr- irvara um áreiðanleik svarsins, að sá kostnaður falli á bandarísk stjórnvöld og hugsanlega á ís- lendinga að hluta. Utanríkis- ráðuneytið hefur hins vegar hald- ið því fram að Mannvirkjasjóður NATÓ hafi samþykkt að kosta forkönnunina. Samkvæmt heim- ildum blaðsins fæst það þó vart staðist. Þá kom fram í viðtali við Þor- stein Ingólfsson að íslendingar muni einir sitja að byggingar- framkvæmdum við varaflugvöll- inn, ef af byggingu hans verður. Þetta stangast algjörlega á við reglur Mannvirkjasjóðsins, en samkvæmt þeim skulu verktakar frá öllum þeim löndum sem eiga aðild að Mannvirkjasjóðnum eiga tilkall til þátttöku í útboð- um. Erlendur vígbúnaðarsér- fræðingur sem blaðamaður ræddi við taldi að þessi „sérréttindi“ ís- lenskra verktaka, auk þess sem skilgreining Wörners fram- kvæmdastjóra NATÓ þess efnis að varaflugvöllurinn sé „borgara- legt“ mannvirki, geri það að verkum að önnur aðildarríki að Bandaríkjanna samþykktu tæp- að fjármagna umræddan „vara- SjánánarítarlegaúttektíNýju Mannvirkjasjóðnum utan ast að Mannvirkjasjóðurinn ætti flugvöll.“ Helgarblaði á morgun. phh Endursýning SÚM. Á Kjarvalsstöðum verður opnuð yfirlitssýning á verkum sem unnin voru á vegum félagsskaparins Súm á árunum 1965-72. Sýningin verður opnuð á laugardag. Súmmarar voru þekktir fyrir að bregða út af viðtekn- um venjum í myndlist og vöktu sýningar þeirra oft furðu oa hneykslun. Nú eru hinsvegar flestir þeirra löngu viðurkenndir sem listamenn. I tiiefni sýningarinn- ar er gefin út vegleg sýningarskrá með greinum eftir Ólaf Gíslason og Guðberg Bergsson, auk sjö efnismikilla viðtala sem Olafur hefur átt við félaga hópsins. Þegar Þjóðviljinn leit inn á Kjarvalsstöðum i gær voru þeir Kristján Guðmunds- son, Gylfi Gíslason, Hreinn Friðfinnsson og Sigurður Guðmundsson að leggja síðustu hönd á sýninguna. Auk þeirra verða sýnd verk eftir aðra úr SUM- hópnum og við opnun sýningarinnar verður flutt tónverk eftir Atla Heimi Sveins- son. Mynd Þóm. Arnarflug Beiðni um 350 m.kr. ríkisstyrk Óvístað ríkið taki tillögunum fagnandi. SteingrímurJ. Sigfússon: Mun skoða tillögur Arnarflugs Stjórn Arnarflugs hefur lagt nýjar tillögur fyrir samgöngu- ráðherra um leiðir til bjargar fé- laginu. í tillögunum er gert ráð fyrir að ríkið selji fyrrum Arnarf- lugsþotuna sem nú er í eigu ríkis- ins og að söluágóðinn sem áætlað- ur er um 200 miljónir króna renni til Arnarflugs. Þá leggi ríkið til 150 miljónir til félagsins og veiti ríkisábyrgð á lánum til Arnar- flugs komist reksturinn á þolan- legan grundvöll. Þá muni hluthaf- ar í Arnarflugi leggja fram ótil- greindar upphæðir í auknu hlut- afé, jafnframt því sem stjórn Arn- arflugs vonast til að flugfélögin KLM og Air Lingus gefi eftir skuldir Arnarflugs, sem nema u.þ.b. 55 miljónum króna. Sam- kvæmt þessum tillögum næmi framlag ríkisins til Arnarflugs um 350 miljónum, auk væntanlegrar ríkisábyrgðar. Ríkisstjórnin Þolinmæði Stefánsmanna á þrotum AuðurEiríksdóttir: Stjórnarfrumxörp ekki borin undirokkur Stefán Valgeirsson og félagar hans í Samtökum jafnréttis og félagshyggju eru farnir að ókyrr- ast og gerast langeygir eftir því að ríkisstjórnin leggi til atlögu við vanda atvinnulífsins í hinum strjálli byggðum landsins. Einnig kvartar Auður Eiríksdóttir, vara- maður Stefáns á alþingi, undan því að ríkisstjórnin leiti ekki álits Stefánsfólks á stjórnarfrumvörp- um áður en hún leggur þau fram á löggjafarsamkomunni. Stefán gagnrýnir ríkisstjóm Steingríms Hermannssonar harð- lega í viðtali við Dag á Akureyri í gær og segir hana þjóðinni jafnlítils virði og forvera hennar er laut forystu Þorsteins Páls- sonar. Komi hún sér ekki hið snarasta að því verki að reisa við undirstöðuatvinnuvegi þjóðar- innar eigi hún ekki langt líf fyrir höndum. Þótt kosningar séu ekki fýsilegur kostur séu þær þó sköm- minni skárri en ríkisstjórn sem láti allt reka á reiðanum. Auður Eiríksdóttir lýsti því yfir í umræðum um vaxtalagafrum- varp ríkisstjórnarinnar á alþingi í gær að hún hefði frjálsar hendur við afgreiðslu þess þar eð ríkis- stjórnin hefði hvorki borið málið undir sig né Stefán. Þegar Þjóðviljinn innti Auði eftir því hvort þetta væri ekki undantekning, slys eða klaufa- skapur af hálfu ráðherra, svaraði hún því neitandi. Svo virtist sem ríkisstjórnin gengi að Samtökum jafnréttis og félagshyggju vísum. Hún hefði leitað álits Stefáns á ýmsum frumvörpum við upphaf ferils síns í haust en síðan ekki söguna meir. Auður tók undir gagnrýni Stef- áns. Sárafá þeirra mála sem ríkis- stjórnin þóttist bera fyrir brjósti í haust hefðu komist í gegn og fengið farsæla lausn. Tók hún til dæmis ráðagerðir um jöfnun raf- orkuverðs og lækkun vaxta. Vextir héldu áfram að hækka sem væri óviðunandi. Stjórnvöld virt- ust sem sé ófær um að koma raun- vöxtum niður í 6 af hundraði eins- og menn létu sig eitt sinn dreyma um, hvað þá 5% einsog forsætis- ráðherra hefði boðað í tilkynn- ingu sinni um efnahagsráðstafan- ir í öndverðum fyrri mánuði. ks Þá á eftir að gera upp þær fjár- hæðir sem ríkið greiddi þegar það gekk inn í kaupleigusamning vegna Arnarflugsvélarinnar, en samkvæmt heimildum Þjóðvilj- ans greiddi ríkið um 100 miljónir svo tryggja mætti kaupréttinn á vélinni. Þjóðviljinn bar tilboð Arnarflugsmanna undir Stein- grím J. Sigfússon samgönguráð- herra en hann vildi lítið láta hafa eftir sér, sagði aðeins að hann mundi líta á þetta tilboð. Átti hann í því sambandi fund með mönnum úr fjármálaráðuneytinu í gær. Fremur ólíklegt er talið að ' ríkisstjórninni hugnist þetta til- boð Arnarflugsmanna, því auk fyrrnefndra útgjalda er óvíst hver hlutafjáraukning hlutahafa kynni að verða, auk þess sem ríkið þyrfti að taka áhættuna af því hvort hlutafjárloforð Arnarflugs- manna skiluðu sér í fjármunum. phh

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.