Þjóðviljinn - 09.03.1989, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 09.03.1989, Blaðsíða 7
ERLENDAR FRETTIR Grikkland Afsagnar Papandreous krafist Bankahneyksli og kvennamál eru honum til vandrœða. Hyggst stefna Time fyrir meiðyrði Stjórnarandstöðuflokkar Grikklands skoruðu í gær á Andreas Papandreou forsætis- ráðherra að segja af sér og láta kjósa til þings hið fyrsta. Standa að áskorun þessari Nýi lýðræðis- Feluhjóna- bönd hryöju- verkamanna Paul Joyal, bandarískur sér- fræöingur um njósnir, hélt því í gær fram á alþjóðlegri ráðstefnu um hryðjuverk, sem stendur yfir í Stokkhólmi, að hryðjuverka- menn iðkuðu það að ganga í hjónabönd til að losna við af- skiptasemi yfirvalda í ýmsum löndum. Sem dæmi nefndi hann að nokkrir liðsmenn hryðju- verkahóps þess palestínsks, sem kenndur er við foringja sinn Abu Nidal, hefðu hreiðrað þannig um sig í Venesúelu og að einn helstu aðstoðarmanna forsprakkans, Khadar Samir Mohammed nefndur, væri kvæntur finnskri konu sem byggi í einni af útborg- um Stokkhólms. Samkvæmt sænskum lögum hefði hann getað búið í Svíþjóð skilríkjalaus, þar eð kona hans er finnskur ríkis- borgari. Reuter/-dþ. Minningar- ganga stúdenta Hundruð stúdenta gengu um götur Varsjár í gær í minningu þess, að þennan dag árið 1968 réðst lögregla á mótmælagöngu stúdenta þar í borg. Varð sú árás til að koma af stað mikilli ókyrrð meðal námsmanna í landinu. Ganga þessi í gær var sú fyrsta af slíkum síðan 1981, sem fór fram með leyfi stjórnvalda, og er litið á þetta sem merki þess, að málin þokist í frjálsræðisátt í Pól- landi. Lögregla stöðvaði umferð til að greiða veg stúdenta og mik- ill mannfjöldi horfði á göngu þeirra af gangstéttum og fagnaði þeim ákaft. Lögregluárásin á göngu stúd- enta 1968 varð upphaf kúgunar- herferðar stjórnvalda gegn um- bótasinnum, menntamönnum og gyðingum. Reuter/-dþ. flokkurinn svokallaði, stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn og fremur hægrisinnaður, og nýtil- komið bandalag flokka til vinstri við Panhellensku sósíalistahreyf- inguna, flokk Papandreous. Hart hefur verið sótt að Pap- andreou í stjórnmálunum undan- farið og kemur einkum tvennt til. Annað er að forsætisráðherrann, sem nú stendur á sjötugu, hefur látið frá sér fara eiginkonu sína og lífsförunaut í áratugi og tekið saman við Dimitru nokkra Liani, kallaða Mimi, stór- og velvaxna flugfreyju sem er 37 árum yngri en hann. Hafa kvennamál þessi ekki orðið Papandreou til virð- ingarauka og hefur því jafnvel verið hvíslað að ekki hafi kona orðið völd að slíku uppistandi þarlendis síðan á dögum Helenu fögru í Spörtu, fyrir meira en 3000 árum. Verra er þó líklega banka- hneyksli mikið kringum Georgi- os Koskotas, sem flúði land í nóv. s.l. eftir að hafa verið ákærður fyrir að hafa svindlað um tíu milj- örðum króna út úr Krítarbanka, sem hann átti þar til s.l. ár. Hann hafði þá um skeið verið einn um- svifamestu fjármálamanna lands- ins. Fjórtán ríkisfyrirtæki hafa verið ákærð fyrir að hafa þegið af honum stolið fé og hið sama kaupsýslumaður að nafni Georg- ios Louvaris, vinur Papandreous sagður. Papandreou mun einnig hafa verið í kunningsskap við Ko- skotas, sem nú situr í fangelsi í Bandaríkjunum og sagði nýverið í viðtali við þarlenda tímaritið Time að forsætisráðherrann hefði lagt blessun sína yfir fyrir- ætlun um að svindla stórfé út úr sjóðum í ríkiseigu. Talsmaður grísku stjórnarinnar lýsti því yfir í gær að hér væri um að ræða róg, ætlaðan til að hnekkja grísku stjórninni, og að Papandreou hefði ákveðið að höfða af þessu gefna tilefni meiðyrðamál gegn tímaritinu. Tveir velmetnir þingmenn Panhellensku sósíalistahreyfing- arinnar tóku undir afsagnar- áskorunina til Papandreous og kváðu stjórnina „svo blindaða af valdahroka að henni væri fyrir- munað að sjá í hvert óefni væri kornið." Papandreou vísaði áskoruninni á bug og kvað stjórn- arandstæðinga vilja koma sér frá, vegna þess að þeir vissu að þeir gætu ekki sigrað hann í kosning- um. Næst eiga þingkosningar að fara fram í Grikklandi 18. júní n.k. Reuter/-dþ. Papandreou og mikið umtöluð vinkona hans - „kvensemin í kalli þeim/ kemur mér til að hlæja," kvað Sigurður Breiðfjörð og eitthvað svipað segja nú margir Grikkir. Afganistan Hart barist um Jalalabad Mujahideen sagðir hafa hana í huga sem höfuðborg. Mikið manntjón meðal óbreyttra borgara M ujahideen, eins og afganskir skæruliðar nefnast, gerðu eftir helgina harða hríð að Jalala- bad, borg austast í Afganistan við aðalveginn frá Kabúl til Khyber- skarðs á landamærum Afganist- ans og Pakistans. Hafa þeir síðan haldið uppi látlausri skothríð á borgina, nótt sem dag, og beitt bæði eldflaugum og stórskotaliði. Talið er að mikið manntjón hafi orðið af völdum stórskota- hríðarinnar meðai óbreytts fólks í borginni. Þar munu nú vera rúm- lega 200.000 manns, en fyrir stríðið hafði borgin um miljón íbúa. Skæruliðum hefur tekist að eyðileggja nokkrar flugvélar með skothríð á flugvöll borgarinnar, en talsmenn Kabúlstjómar segja að flugvöllurinn sé þó enn not- hæfur og að her þeirrar stjórnar hafi og á valdi sínu veginn milli Jalalabad og höfuðborgarinnar. Talið er að mujahideen leggi nú kapp á að taka Jalalabad með það fyrir augum að gera hana að bráðabirgðahöfuðborg stjómar þeirrar, sem þeir mynduðu úr sín- um hópi í Pakistan á dögunum. Sú stjórn virðist njóta takmark- aðs álits meðal ríkja heims og er Hekmatjar - stórskotahríð allan sól- arhringinn. hún enn án viðurkenningar af þeirra hálfu. Vona mujahideen að þetta breytist til batnaðar tak- ist þeim að ná einhverri af helstu borgum Afganistans á sitt vald, en þær eru enn allar á valdi Ka- búlstjórnarinnar. Fregnum um bardagana við Jalalabad ber að mörgu leyti ekki saman, þar eð báðir aðilar láta mikið af framgöngu sinna manna og engir erlendir fréttamenn eru í borginni eða þar í grennd. Borgin er umlukt þreföldum hring víg- girðinga og segja Kabúlstjórnar- menn að mujahideen hafi enn ekki gert nema eina meiriháttar tilraun til að rjúfa þær, og því áhlaupi hafi verið hrundið. Einn talsmaður Kabúlstjórnar kvað mujahideen þessutan aðeins hafa gert óskipuleg áhlaup, þetta 10, 20 og upp í 50 í hóp, og hefði þeim verið hrundið auðveldlega og orrustuflugvélar og herþyrlur komið við það að góðum notum. Sagt er að í umsátursliðinu séu einkum skæruliðar á vegum strangtrúaðra súnníta, ekki síst Gulbuddins Hekmatjar, sem er einn af þekktustu foringjum mu- jahideen og ekki kallaður jafnað- armaður. Talsmenn mujahideen í Pakist- an sögðu í gær að barist væri í návígi um flugvöll borgarinnar. Mujahideen halda einnig uppi stórskotahríð á Kandahar, helstu borg í sunnanverðu landi, vægari þó en á Jalalabad og telja Kabúl- stjórnarmenn ekki að fyrrnefnda borgin sé í fallhættu. Reuter/-dþ. Jámfmnni að föriast? KONUR GEGN KYNFERDISLEGU OFBELDI Alþýðubandalagið hvetur allatil þátttöku í dagskrá8. mars-nefndarinnar laugardaginn H.marskl. 13.30 Alþýðubandalagið Hermt er að þreytumerki nokkur séu farin að sjást á Marg- aret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands í næstum áratug, en hún er nú 63 ára. í gær virtist hún eiga erfitt með að halda sér vak- andi á ráðstefnu í Lundúnum um ósonlagið og frammistöðu henn- ar í fyrirspumatímum á þingi fer að sögn aftur. Mistök af hennar hálfu og umhverfisverndar- ráðherrans í stjórn hennar, Nicholas Ridley, leiddu og ný- lega til þess að hún lofaði um- hverfisverndarstofnun á vegum Sameinuðu þjóðanna allmiklu hærri fjárhæð en fyrirhugað hafði verið. Varð þetta til að minna á það, sem áður hefur verið sagt um Thatcher, að nokkuð skorti á að hún hugsi sig alltaf vel um, áður en hún tekur ákvarðanir. Reuter/-dþ. Helgar kýr drápu tvo réðust gegn honum og sundruðu honum. Eftir viðureign í klukku- stund tókst hermönnunum þó að leggja skepnurnar að velli, en þá höfðu þær slasað sex þeirra meira eða minna. Reuter/-dþ. Tvær kýr indverskar og þar með helgar fóru í gær út yfir landamæri til Bangladesh og geystust inn í þorp eitt, þar sem þær stönguðu tvo menn til bana. Nærstaddur herflokkur kom þorpsbúum til hjálpar, en kýrnar ITI lítasjónvarp er Qárfestíng iv-þýskum gæöumog fallegum Efitum SKIPHOLTI 7 SIMAR 20080 & 26800 Fimmtudagur 9. mars 1989 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.