Þjóðviljinn - 09.03.1989, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 09.03.1989, Blaðsíða 9
FRÉTTIR Gáskafullir aðstandendur Draugaglettna. Leiklist Draugaglettur á Flateyri Leikfélag Flateyrar á aldar- fjórðungs afmæli um þessar mundir og af því tilefni frum- fluttu 20 félagar þess nýtt íslenskt leikrit í gær, 8. mars; Drauga- glettur eftir Iðunni Steinsdóttur. „Þetta er ærslafullur gamanleikur fýrir alla fjölskylduna, sem nú á ágætlega við með hækkandi sól.“ Flugleiðadeilan Góðvíljaðir geri sáttatilraun Stjórn Sjómannafélags Reykjavíkur telur viðbrögð við Flugleiðamálsókn óréttlát afþví Flugleiðir eru íslenskt fyrirtœki Stjórn Sjómannafclags Reykja- víkur hefur sent frá sér eftirfar- andi ályktun vegna viðbragða samtaka launamanna við mál- sókn Flugleiða gegn VS: „Á undanförnum árum hefur Sjómannafélag Reykjavíkur deilt hart á útgerðir kaupskipa og átök orðið, vegna takmarkalítillar leigutöku erlendra kaupskipa sem mönnuð eru erlendum sjó- mönnum. S.R. hefurvegna þessa ítrekað varað við að atvinnuör- yggi íslendinga sé í hættu þegar útlendingum er veitt takmarka- lítil heimild til starfa hér á ís- landi, til sjós og lands. Veruleg breyting hefur Orðið á leigutöku erlendra skipa á síð- ustu mánuðum og mun færri eru nú í siglingum að og frá landinu en áður og er það fagnaðarefni. Stjórn og trúnaðarmannaráð S.R. harmar þá deilu sem nú er uppi milli Verslunarmannafélags Suðurnesja og Flugleiða. Hluti íslenskrar launþega- hreyfingar hefur tekið afstöðu í þessu deilumáli og jafnvel lýst því yfir að ekki skipti máli hvort flugfélagið sé erlent eða íslenskt, sem flytji íslenska launþega til or- lofsdvalar erlendis. í ljósi þess sem hér er sagt getur Sjómannafélag Reykjavíkur ekki tekið undir slíkan hugsunarhátt né aðgerðir. Þetta mál er komið í ógöngur milli aðila og verði deilan ekki leyst, stefnir það ferðamannastreymi til landsins á komandi tímum í stórhættu, kall- ar á öryggisleysi í atvinnu þús- unda sem vinna að ferðamálum, og getur skapað frambúðar tor- tryggni milli aðila sem eiga í lög- vernduðum vinnudeilum. Áður en þetta umrædda deilu- mál verður dómtekið telur S.R. að aðilum beri að leiða fram lof- orð og yfirlýsingar talsmanna málsaðila og á grundvelli þessa reyni síðan góðviljaðir aðilar úr beggja röðum að gera enn eina tilraun til sátta. Ef þetta ekki tekst á dómur að falla. Þeir sem telja sig bera skarðan hlut frá borði, verkalýð- ur eða vinnuveitendur, eiga þá að leita nýrra leiða til lausnar slíkra ágreiningsmála, með samningum eða að löggjafarleiðum.“ Hœstiréttur Þyngsta umferðar- lagabrot Hæstiréttur dæmdi fyrir skömmu Trausta Bergsson í fimm mánaða óskilorðsbundið fangelsi og svipti hann ökuskírteini í tvö ár fyrir að aka vísvitandi á Magnús Skarphéðinsson á Laugavegi. Þetta mun vera þyngsti dómur sem kveðinn hefur verið upp vegna umferðarlagabrots hér á landi. Trausti áfrýjaði á sínum tíma dómi undirréttar en þar hafði hann verið dæmdur í jafn langt fangelsi en hinsvegar sviptur öku- skírteini í eitt ár. Dómur hæsta- réttar er því þyngri. -Sáf ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9 ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Alþýðubandalagið í Kópavogi Spilakvöld Alþýðubandalagið í Kópavogi heldur 5. og síðasta spilakvöldið í þessari lotu mánudaginn 13. mars klukkan 20.30 í Þinghól Hamraborg 11. Veitt verða kvöldverðlaun og auk þess heildarverðlaun fyrir spilalotuna. - Stjórnin. Alþýðubandalagið á Akranesi Fundur í bæjarmálaráði Fundur verður haldinn I bæjarmálaráði Alþýðubandalagsins á Akranesi í Rein mánudaginn 13. mars klukkan 20,30. Dagskrá: 1. Bæjar- og atvinnumál. 2. Önnur mál. Stjórnin. Auglýsið í Þjóðviljanum Auglýsing um rannsóknastyrki frá J. E. Fogarty International Research Foundation J. E. Fogarty-stofnunin í Bandaríkjunum býður fram styrki handa erlendum vísindamönnum til rannsóknastarfa við vísindastofnanir í Bandaríkjunum. Styrkir þessir eru boðnir fram á alþjóðavettvangi til rannsókna á sviði læknisfræði eða skyldra greina (biomedical or behavioral sciences), þar með talin hjúkrunarfræði. Hver styrkur er veittur til 6 mánaða eða 1 árs á skólaárinu 1990-91 og á að standa straum af dvalarkostnaði styrkþega (18.000 til 22.000 bandaríkja- dalir), auk ferðakostnaðar til og frá Bandarikjunum. Einnig er greiddur ferðakostnaður innan Bandaríkjanna. Til þess að eiga möguleika á styrkveitingu þurfa umsækjendur að legga fram rannsóknaáætlun í samráði við stofnun þá í Bandaríkj- unum sem þeir hyggjast starfa við. Nánari upplýsingar um styrki þessa veitir Atli Dagbjartsson læknir, barnadeild Landspítalans (s. 91-601000).- Umsóknir þurfa að hafa borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,150 Reykjavík, fyrir 15. júlí nk. Menntamálaráðuneytið, 6. mars 1989 Útför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdaföður, afa og langafa Jóns Indriða Halldórssonar Efstasundi 29 Reykjavík fer fram frá Áskirkju föstudaginn 10. mars kl. 15.00. Geirný Tómasdóttir Magnea Jónsdóttir Sveinn Óskarsson Elínborg Jónsdóttir Sigurður H. Jónsson Ásthildur Jónsdlottir Gunnar Líkafrónsson Hafdís Jónsdóttir Karl R. Guðfinnsson Guðbjörg Jónsdóttir Þórhallur P. Halldórsson Hafþór Jónsson Lilja H. Halldórsdóttir Jóna G. Jónsdóttir Már Halldórsson Dagfríður Jónsdóttir Árni Jóhannsson Halldóra Jónsdóttir Halldór Kristinsson barnabörn og barnabarnabörn FLÓAMARKAÐURINN Til sölu er BMW 318 árg. 78 á 130.000 kr. stgr. Bíllinn er í ágætu ástandi á nýjum vetrardekkjum og með dráttarkrók. Nánari upplýsing- ar í síma 36475. Stúdíóíbúð til leigu Upplýsingar í síma 44709 á kvöldin. Skíðaskór til sölu svartir Nordica nr. 9V2. Sími 79732 á kvöldin. Hornsófi og hornborð óskast Upplýsingar í síma 10236 eða 16328. Kettlingur óskast Óska eftir að fá kettling gefins. Upp- lýsingar í vs. 693900 og hs. 14942, Davíð. Dukkuvagn óskast Vel með farinn dúkkuvagn óskast fyrir lítið eða ekki neitt. Upplýsingar í síma 681333 kl. 9-5 (Jóhanna). 2 fuglabur fást gefins Sími 36318. Vil kaupa fataskáp Upplýsingar í síma 52842. Til sölu Apple II tölva 128k með 2 diskadrif- um. Upplýsingar í sima 12056. Bíll - reiðhjol Mitsubishi Lancer árg. 77 til sölu. Selst ódýrt eða í skiptum fyrir 2 þokkaleg reiðhjól. Upplýsingar í síma 14612. i Svalavagn óskast Upplýsingar í síma 22887. Kvensaumagína óskast Upplýsingar í síma 74304. Til sölu Nýleg Amstrad TC W 8512 rit- vinnslutölva með prentara og skjá ritvinnslu og Basic. Tilvalin fyrir námsmanninn. Upplýsingar í síma 688701. Til sölu IKEA rúm, 1,60x2. Lítið notað á kr. 15.000. Upplýsingar i síma 22791 fyrir hádegi og eftir kl. 21.00. Til sölu er Tigini takkaharmónikka, sem ný, lítill svefnstóll (ódýr), snjóþota með bremsu, nýr, fínn, svartur leðurjakki nr. 44, ný grábrún frakkakápa nr. 40-42. Upplýsingar í síma 23218 kl. 14-18 og 685331 á kvöldin. Óska eftir barnabílstól fyrir eldri en 9 mánaða. Upplýsingar gefur Dísa í síma 44649 og 50418. íbúð í Hafnarfirði Ung kona með eitt barn óskar eftir 2ja herbergja íbúð í Hafnarfirði. Reglusemi og skilvísum greiðslum heitið. Upplýsingar í símum 44649 og 50418, Dísa. Flóamarkaður Opið mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga frá kl. 14-18. Enda- laust úrval af góðum og umfram allt ódýrum vörum. Gjöfum veitt mót- taka á sama stað og tíma. Flóa- markaður SDÍ Hafnarstræti 17, kjallara. Mexíkóferð - spænskunemar Á vori komanda hyggja spænsku- nemar við HÍ á námsferð til Mexíkó. Við erum tilbúin til þess að taka að okkur verkefni sem geta styrkt okk- ur til fararinnar. Upplýsingar í sima 14646, Margrét, 21953, Ásdís og 35618, Ásdís. Trabant Látið ekki happ úr hendi sleppa. Af óviðráðanlegum ástæðum er til sölu Trabant station '87. Selst með sumar- og vetrardekkjum. Öndveg- isbíll. Veró: Tilboð. Upplýsingar í síma 17618. Vantar þvottavél gefins Upplýsingar í síma 23886. Rússneskar vörur í miklu úrvali m.a. tehettur, matrúskur, ullarklút- ar, sjöl og ýmsar trévörur. Póst- kröfuþjónusta. Upplýsingar i síma 19239. Hjónarúm óskast óska eftir ódýru, Ijósu hjónarúmi. Breidd ekki undir 1,70 m. Upplýs- ingar í síma 45366. Lftill ísskápur óskast til kaups Upplýsingar í síma 19239. Til sölu vegna brottflutnings Gamalt, franskt járnrúm 1,20x2m með dýnu, „servant" með marm- araplötu, antik fataskápur og kommóðá. Upplýsingar í síma 31805. Teikniborð Vantar teikniborð með vél á viðráð- anlegu verði. Sími (91) 16679. Til sölu Ijósbrúnn, trélitaður fataskápur með rennihurðum, ca. 2 m hár, 150 sm breiður og ca. 60 sm djlupur. Upplýsingar í síma 22711 eftir kl. 18.30. Dekk á felgum - toppgrindur 2 vetrardekk og 5 sumardekk: 560x14. 1 vetrardekk: 165x13. Ennfremur sterk toppgrind og skíðabogar. Sími 41289. Ýmislegt ódýrt til sölu: Eldhúsmatborð og 4 sterkir stólar. Sófasett, 2 stólar, 4ra sæta sófi og passandi sófaborð úr Ijósri eik. Hansahillur með hilluskrifborði og skrifboðsstól. Blómapotta- grindur, tré og járn. Tveir barnastól- ar fyrir 4-7 ára (vinnuborð fylgir ókeypis). Brúðurúm fyrir stóra brúðu. Skíðasleði (eða skautasleði fyrir krakka). Upplýsingar í síma 41289. Húsasmiður óskar eftir atvinnu. Tekur einnig að sér verkefni. Upplýsingar í síma 688704. Tvær ungar og hraustar konur óska eftir atvinnu. Ræstingar koma vel til greina. Getum byrjað strax. Upplýsingar í síma 35752. Tanzaníukaffið fæst aftur Upplýsingar í síma 675809. Ný fótaaðgerðastofa Fjarlægi líkþorn, meðhöndla inn- grónar neglur, almenn fótsnyrting o.fl. Tímapantanir alla virka daga frá kl. 9.30-10.30. Guðríður Jóelsdóttir, med. fóta- aðgerðasérfræðingur, Borgar- túni 31, 2. h.h., sími 623501. Líflaust hár? Skalli? Vöðvabóiga? Offita? Hrukkur? Sársaukalaus, skjótvirk hárrækt með „akupunktur", He-Ne leyser og rafmagnsnuddi. Hrukkumeð- ferð, svæðanudd, megrun, Biotron- vítamíngreining. Hringdu og fáðu nánari upplýsingar. Einar alvönd- uðustu heilsusnyrtivörur á mark- aðnum, Banana Boat og GNC, úr kraftaverkajurtinni Aloe Vera. Komdu og fáðu ókeypis upplýs- ingabækling á íslensku. Póstsendum út á land. Heilsuval, Laugavegi 92 (við Stjörnubióplanið) sími 11275. íbúð óskast Ung hjón með barn vantar 3 her- bergja íbúð frá 1. júní. Vinsam- legast hafið samband í síma 32814. Skipti á íbúðum, Reykjavík - Gautaborg Ert þú á leiöinni til Gautaborgar? Við viljum skipta á leiguíbúð á besta stað í miðborg Gautaborgar og leiguíbúð einhvers staðar á Stór- Reykjavíkursvæðinu. Samningurtil a.m.k. eins árs frá og með í sumar. Einstakt tækifæri. Upplýsingar í síma 91-10958. Til sölu Stórt og fallegt furusófaborð. Verð kr. 5.000. Stórt, sænskt hvítt hjóna- rúm. Selst á 10-15.000 kr. Mjög góðar dýnur, lítur mjög vel út. Einn- ig mjög sérkennilegur amerískur körfustóll. Verð samkomulag. Upp- lýsingar í síma 75707. Til sölu Hringlaga, dökkt viðarborð með renndum fótum. Hægt að stækka fyrir uppí 12 manns. Upplýsingar í síma 42347 eða 40631. Flóamarkaður Opið mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga frá kl. 14-18. Enda- laust úrval af góðum og umfram allt ódýrum vörum. Gjöfum veitt mót- taka á sama stað og tíma. Flóam- arkaður SDÍ, Hafnarstræti 17, kjall- ara. Tékkóslóvakíuferð - fjáröflun Getum tekið að okkur dreifingu blaða og bæklinga á Reykjavíkur- svæðinu. 35 manna hópur, flestir með bíl. Önnur störf geta komið til greina. Lúðrasveit verkalýðsins, símar 51801, 600633 (Torfi) og 35027 (Sonja). Mexicóferð - spænskunemar Á vori komanda hyggja spænsku- nemar við H. í. á námsferð til Mex- ico. Við erum tilbúin til þess að taka að okkur verkefni sem geta styrkt okkur til fararinnar. Uppl. í síma 14646 Margrét, 21953 Ásdís og 35618 Ásdís. Til sölu Canon AE I myndavél með 50 mm linsu, 28-70 mm breiðlinsu, 300 mm zoomlinsu, thyristor flassi og tösku. Allt nýlegt. Upplýsingar í síma 37552.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.