Þjóðviljinn - 09.03.1989, Qupperneq 2
FRETTIR
Ríkisstjórnin
Hvikar hvergi með vísitöluna
Tvö af sex frumvörpum vegna efnahagsráðstafana ríkisstjórnarinnar orðin að lögum
Ríkisstjórnin hyggst ekki draga
í land með frumvarp sitt um
launavísitölu einsog ýmsir hafa
fullyrt að undanförnu og þóst
rekja til andstöðu aðilja vinnu-
markaðarins við nýjan hátt á út-
reikningi lánskjaravísitölu. Og
efnahagsfrumvörp ríkisstjórnar-
innar hafa ýmist verið samþykkt
eða hafa góðan byr á löggjafar-
samkomunni.
Jón Sigurðsson viðskiptaráð-
herra sagðist skilja áhyggjur
manna vegna útreiknings á
launavísitölu en markmið frum-
varpsins væri að setja almenn lög
um gerð hennar. Þetta væri mikið
hagræðingaratriði fyrir Hagstofu
íslands, sem annast þennan út-
reikning, og öldungis óháð því
hvort launavísitalan væri að
þriðjungi notuð við útreikning
lánskjaravísitölu eður ei.
Viðskiptaráðherra kvaðst ekki
telja að frumvarpi þessu væri
nein sérstök hætta búin á þingi og
minnti á að Þorsteinn Pálsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins,
hefði lýst yfir stuðningi sínum við
það við fyrstu umræðu í neðri
deild.
Einsog menn rekur minni til
voru gerðar breytingar á verð-
lagslögum við lok verðstöðvunar.
Þetta var eitt af sex frumvörpum
sem tengjast beint efna-
hagsráðstöfunum ríkisstjórnar-
innar. Frumvarpið um verðtrygg-
ingu fjárskuldbindinga er einnig
orðið að lögum. Frumvörp um
Seðlabanka, viðskiptabanka og
sparisjóði, verðbréfasjóði og
vexti eru öll á eðlilegri siglingu í
þingnefndum að sögn viðskipta-
ráðherra. ks
Prófastar við græna borðið í Neskirkju. Pétur Sigurgeirsson biskup fyrir borðsendanum. (Mynd: þóm)
Pjóðkirkjan
Utfarir ræddar í suðurför
Árlegur prófastafundur í Neskirkju
Prófastar úr öllum prófasts-
dæmum hafa síðan a þriðju-
dag þingað í Neskirkju með bisk-
upi og öðrum kirkjuhöfðingjum.
Prófastafundurinn hófst með
formlegri setningu biskups á
þriðjudaginn en fyrir hádegi
sama dag var nýr prófastur, Einar
Þór Þorsteinsson í Múlaprófasts-
dæmi, settur inn í embætti við
hátíðlega athöfn í Dómkirkjunni.
Það sem aðallega er á dagskrá
fundarins er umræða um útfarar-
siði og helst rætt um að samræma
siði og venjur milli safnaða.
Einnig er rætt um embættis-
klæðnað og skrúða presta, en
þess má geta að í öðrum löndum
þar sem mótmælendatrú rfkir
hefur skrúðinn verið lagður nið-
ur. Afstaða presta gagnvart
nafnalöggjöfinni er einnig á dag-
skrá, svo og söng- og fræðslumál
kirkjunnar.
Nafnalöggjöfina er ekki sett af
kirkjunni á nokkurn hátt, heldur
er prestum uppálagt að framfyl-
gja henni. Það sem prófastafund-
urinn vill leggja áherslu á er að ný
nafnalöggjöf verði sett, en sú sem
stuðst er við núna er frá því um
1950. eb
Lœknar
Endurmenntun verði endurskoðuð
Sverrir Bergmann: Námsleyfin skipta ekki sköpum um lokun deilda. Námsleyfi lækna kosta
10% afþeim sparnaðisemþörfer innan ríkisspítalanna. Ólafur Ólafsson: Eðlilegt að
endurskoða endurmenntun lœkna
Mér finnst í raun ekkert óeðli-
legt að endurmenntun lækna
verði tekin til endurskoðunar, en.
ég legg á það áherslu að ef við
ætlum að halda uppi góðri
heilbrigðisþjónustu hér á landi,
megum við ekki skera niður
menntunarkostnað þeirra sem
Þjóðviljinn
Til hjálpar
Framkvæmdastjórn
AB fellst á erindi
Þjóðviljans
Á fundi í framkvæmdastjórn
Alþýðubandalagsins í gær var
ákveðið að fallast á erindi Þjóð-
viljans um að blaðið fengi rúmar
7 miljónir af svokölluðum blað-
styrk sem fer um hendur Alþýðu-
bandalagsins.
Á fundinum var ákveðið að
ræða á næstu dögum og vikum
nánar fjárhagsvanda blaðsins í
samráði við stjórn þess.
Stjórn Þjóðviljans hélt í gær-
kvöldi áfram að ræða hina erfiðu
fjárhagsstöðu blaðsins.
- m
við hana starfa, sagði Ólafur Ól-
afsson landlæknir þegar hann var
inntur eftir áliti á þeirri miklu
umræðu sem verið hefur um
námsleyfí lækna og annarra stétta
í heilbrigðiskerfínu.
Eins og fram hefur komið í
Þjóðviljanum mega allar stéttir
innan heilbrigðiskerfisins, aðrar
en læknar, búast við því að náms-
leyfi þeirra verði skorin niður
vegna sparnaðar innan heilbrigð-
iskerfisins. Tíminn greindi frá því
á laugardaginn að Olafur Ragnar
Grímsson fjármálaráðherra hefði
sagt á fundi á Borgarspítalanum
sl. föstudag að ef læknar nýttu sér
að fullu þau réttindi til námsleyfa
sem þeir hafa, myndi það kosta
ríkið tæplega 90 miljónir kr. á
þessu ári.
Sverrir Bergmann, formaður
samninganefndar sjúkrahús-
lækna, sagði í samtali við Þjóð-
viljann í gær að námleyfi lækna
hefðu engin áhrif á kjör annarra
stétta innan heilbrigðiskerfisins
og að þetta væru ekki forréttindi
lækna. Hann sagði að námleyfin
yrðu vafalaust til umræðu við
komandi kjarasamninga eins og
önnur atriði samningsins.
Kostnaður ríkisspítalanna
vegna námsferða lækna á síðasta
ári var um 23 miljónir kr. í ár er
gert ráð fyrir að sparnaður ríkis-
spítalanna vegna niðurskurðar
launaliðsins um 4% nemi um 200
miljónum kr. Þegar Sverrir var
spurður hvort læknar væru til-
búnir að skera niður sín náms-
leyfi í eitt ár til að ná þegar 10%
sparnaði, sagði hann að þessar 23
miljónir væru í raun ákaflega lág
upphæð og hefði engin áhrif á
það hve mörgum deildum yrði
lokað né kjör annarra stétta sem
störfuðu innan spítalanna.
Sverrir lagði á það áherslu að ef
við ætluðum að halda hér uppi
góðu heilbrigðiskerfi væri þessi
háttur á endurmenntun lækna í
raun mjög ódýr.
-*g
ASI
Verðhækkanir spilla samningagerð
Afundi miðjitjórnar Alþýðu-
sambands Islands í gær voru
samþykkt harðorð mótmæli við
þeim miklu verðhækkunum sem
dunið hafa yfír almenning á und-
anförnum dögum og telur mið-
stjórnin að þær muni spilla alvar-
lega fyrir komandi samninga-
gerð.
Bitna harðast á lágtekjufólki
í ályktun miðstjórnarinnar
segir að stórfelldar verðhækkanir
á brýnustu lífsnauðsynjum bitni
harðast á lágtekjufólki og þær séu
bein afleiðing af ákvörðunum
stjórnvalda. En einmitt nú í kjölf-
ar verðstöðvunar bar brýna
nauðsyn til að stjórnvöld gæfu
gott fordæmi með ströngu að-
haldi.
Miðstjórnin lýsir ábyrgð á
hendur stjórnvöldum vegna stór-
felldra hækkana undanfarna
daga og gerir kröfu til að ríkis-
stjórnin afturkalli nú þegar allar
verðhækkanir á vöru og þjónustu
og komi í veg fyrir frekari hækk-
anir. -grh
Óshlíð
Snjóflóð
hrcif
tvo menn
Leitað án árangurs
Snjóflóð hreif með sér tvo
menn í gærmorgun á Óshlíðar-
vegi þar sem þeir ásamt þriðja
manni ætluðu að reyna að moka
sig í gegnum snjóðflóð sem hafði
fallið á veginn við Krossinn.
Þegar síðast fréttist hafði leit
að mönnunum tveimur engan ár-
angur borið. Fjölmennar sveitir
björgunarmanna, ásamt leitar-
hundum, köfurum og bátum
leituðu í snjónum, fjörunni og
flæðarmálinu í allan gærdag.
Mennirnir sem saknað er eru fjöl-
skyldumenn, búsettir í Bolungar-
vík en vinna á ísafirði. Leit verð-
ur haldið áfram í dag.
-grh
Húsgögn
Hönnunar-
dagur í
Reykjavík
1 Ofyrirtceki sýna
hönnun.
Iðnaðarráðherra veitir
hönnunarverðlaun
í dag verður í annað sinn hald-
inn hönnunardagur í Reykjavík.
Það er félagið Form ísland, félag
áhugamanna um hönnun, sem í
samvinnu við húsgagnafram-
leiðendur stendur fyrir hönnu-
nardeginum.
Framleiðendur og fyrirtæki
sem markaðssetja hönnunar-
vörur munu gangast fyrir sam-
eiginlegri kynningu, opna sýning-
arsali sína og kynna helstu nýj-
ungar sem á boðstólum eru.
Kynningin hefst á Kjarvalsstöð-
um kl. 14 og verður boðið upp á
akstur á milli sýningarstaðanna.
Hringferðinni lýkur svo á Kjar-
valsstöðum kl. 18 með móttöku
þar sem boðið verður upp á
veitingar og iðnaðarráðherra
mun veita hönnunarviðurkenn-
ingu hönnunardagsins, til þess
hönnuðar sem sýnir áhugaverð-
ustu nýjungina í ár.
Alls munu 10 fyrirtæki og
verslanir sýna vörur. Þetta eru
fyrirtækin Axis hf., Álafoss hf.,
Bíór hf., Casa, E.E.húsgögn,
Eldhús og bað, Epal hf., Gamla
Kompaníið hf., Kristján Siggeirs-
son hf. og Steinar hf. stálhús-
gagnagerð.
Sýningarnar hjá fyrirtækjun-
um verða opnar fram yfir helgi.
-Sáf
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 9. mars 1989