Þjóðviljinn - 09.03.1989, Page 12
"SPURNINGIN"
Er þjóðkirkjan búin að
taka páfann í sátt?
Guöni Þór Ólafsson
prófastur aö Melstað:
Hún er tilbúin aö viðurkenna
hann sem biskupinn í Róm.
Jón Einarsson
prófastur að Saurbæ:
Við höfum aldrei verið í ósátt við
þennan páfa.
Hjálmar Jónsson
prófastur á Sauðárkróki:
Páfinn ertrúbróðirokkarog mikil-
vægur maður kristinnar kirkju í
heiminum. Hann er að sjálfsögðu
ekki yfirmaður íslensku þjóðkir-
kjunnar á nokkurn hátt, en bróðir í
trúnni.
Baldur Vilhelmsson
prófastur á Isafirði:
Ég er sjálfur ekkert ósáttur við
páfann. íslenska þjóðkirkjan
sýnir meiri víðsýni og er rúmbetri
en sú norska. Þess vegna eru
engar deilur hér varðandi komu
páfa.
Torfi Stefánsson
æskulýðsfulltrúi:
Ég heid ekki að þjóðkirkjan sé í
sátt við páfa. Þetta er opinber
heimsókn og væri dónaskapur
að mótmæla henni. Við lítum ekki
á komu páfa sem trúboðsferð,
heldur heimsókn hans til síns
safnaðar. Hitt er svo annað mál
að kaþólski biskupinn hér til-
heyrir reglu Jesúíta sem er trú-
boðsregla , þannig að þetta gæti
þýtt breytta stefnu kaþólsku kirkj-
unnar gagnvart íslandi sem trú-
boðssvæði.
þlÓÐVILIINN
Flmmtudagur 9. mars 1989 48. tölublað 54. órgangur
SÍMI 681333
Á KVÖLDIN
COi0^0
ÁLAUGARDÖGUM
681663
Við háborðið sátu Guðrún Ágústsdóttir, Svavar Gestsson, Gerður
Óskarsdóttir, Áslaug Brynjólfsdóttir, Sólrún Jensdóttirog Hrólfur Kjart-
ansson.
Fundarmenn í Seljaskóla voru um hundrað talsins og skutu föstum
skotum á háborðið.
Skólamál
Eigum eftir að hittast oft!
Fjörugur fundur með skólamönnum ogforeldrum
í Breiðholti
Aþriðj udagskvöldið í ofan-
komu og hávaðaroki þyrptust
áhugasamir foreldrar, kennarar
og aðrir skólamenn í Breiðholti
inn í íþróttahús Seljaskóla á fund
við Svavar Gestsson, mennta-
málaráðherra og aðstoðarmenn
hans.
Áslaug Brynjólfsdóttir
fræðslustjóri Reykjavíkur setti
fund og var fundarstjóri. Svavar
flutti stutt ávarp og skýrði tilgang
sinn með þessari fundaherferð í
skóla landsins. Virðing fyrir
skólum er ekki nógu mikil, að
hans mati, það þarf að efla
skólana í landinu og tiltrú fólks á
þeim. Á fundunum er spurt
hvernig það verði best gert?
Eins og hefur komið fram í
þessu blaði hefur Svavar þann
háttinn á að sækja hugmyndir til
fólksins sem skólamái brenna á,
kennara, skólastjóra og foreldra,
til viðbótar við skúffur ráðuneyt-
isins. Og síst sagðist hann ætla að
troða stefnu Alþýðubandalagsins
að fólki, því samstaða verður að
ríkja um íslenska skólann.
Ótalmargt
á döfinni
Gerður Óskarsdóttir ráðu-
nautur menntamálaráðherra,
sem hefur starfað að skólamálum
á öllum skólastigum, sem kenn-
ari, skólastjóri og kennslustjóri,
hélt aðalerindi kvöldsins, gag-
nort yfirlit yfir það sem verið er
að gera varðandi hvert skólastig
fyrir sig.
Fyrir yngstu börnin er nefnd að
semja lagafrumvarp um nýtt
skólastig sem nefnt verður
forskóla- eða leikskólastig og get-
ur hafist strax og fæðingarorlofi
foreldra lýkur - þegar barnið er
hálfs árs. „Það verður vitanlega
ekki skylda,“ sagði Gerður, „en
við viljum að fólki standi til boða
að koma börnum í forskóla þegar
og ef það vill.“
Á grunnskólastigi er bæði ver-
ið að ræða nýja aðalnámsskrá og
endurskoða grunnskólalögin,
auk þess sem verið er að ræða
framtíð Námsgagnastofnunar.
Mikill áhugi er á að auka listupp-
eldi í skólum, flytja kennslu í list-
greinum sem mest inn í grunn-
skólana sjálfa. Einnig er á þessu
stigi verið að ræða einsetinn skóla
og samfelldan vinnudag. Þetta
mál hefur oft verið til umræðu
áður og nú er verið að safna sam-
an öllum gögnum sem áður var
búið að vinna um það. Ekki þarf
að nefna að þetta verður dýrt
framtak en uppskeran verður
vonandi betri menntun og betri
umönnun barna á grunnskóla-
aldri.
Heilbrigðismál
og fíknivarnir
Eftir yfirlit Gerðar sem einnig
náði yfír framhaldsskólastig,
háskólastig og fullorðinsfræðslu
var fyrirspurnum safnað frá gest-
um í sal sem Svavar, Gerður,
Hrólfur Kjartansson og Áslaug
svöruðu. Hér verður ekki hægt
að nefna nema nokkur mál sem
bar á góma.
í aðalnámsskrá fyrir grunn-
skóla er kafli um fíknivarnir,
sagði einn fundarmanna. Verður
honum fylgt ákveðið eftir með
því að ætla honum stundir á
kennsluskrá?
Hrólfur svaraði því til að
áhersla væri lögð á heilbrigðis-
uppeldi í nýju námsskránni og
auknar fíknivarnir. í samráði við
Lionsmenn væri verið að útbúa
sérstakt námsefni til að fræða
börn um áhrif fíkniefna og vara
þau við þeim, en ekki væri búið
að ætla því rými á stundaskrá og
varla yrði það gert fyrir haustið.
En margir hafa áhuga á að veita
þessu efni forgang, og þar að auki
er talað um við endurskoðun lag-
anna að umsjónarkennarar fái
meiri tíma til að sinna nemendum
sínum, ekki síst í sambandi við
kennslu í heilbrigðismálum,
kynfræðslu og þá líka fíknivörn-
um.
Gerður hafði talað um að
námsskrá hvers skóla fengi aukið
vægi og einn fyrirspyrjandi spurði
hversu mikið það yrði aukið.
Fengju skólar kannski að laga sig
betur að umhverfi sínu en nú er
og taka mið af atvinnuháttum á
sínum stað? Hrólfur sagði að
meiningin væri að skólar fengju
einmitt svigrúm til þess að ráða
kennsluháttum og námsefni að
einhverju leyti til að geta lagað
sig að atvinnuháttum í heima-
byggðinni. Það þyrfti að hækka
gengi verk- og listgreina á öllum
skólastigum, þá gæti líka verið að
færri flosnuðu úr námi.
Spurt var hvort hæfir kennarar
fengjust til þeirra nýju kennslu-
greina, hvort ekki væri út í hött
að tala um skólann sem skapandi
einingu þegar erfitt væri að
manna þá vegna launanna. Svar-
endur viðurkenndu að þetta væru
erfíð vandamál.
Foreldrafélög
Mikið var rætt um félög for-
eldra í skólum og skólanefndir í
hverfum Reykjavíkur eins og
tíðkast úti um land. Hvort
tveggja miðar að því að auka
áhrif foreldra á skólahald.
Einn fundarmanna spurði
hvort ætlunin væri að styrkja
stöðu foreldrafélaga. Eins og
væri mættu þau sinna föndri og
ferðalögum með nemendum en
ekki skipta sér af innra starfi
skólanna. Foreldrafélög verða
máttlítil meðan hlutverk þeirra er
ekki skilgreint. Það þarf að festa
þau í sessi og afmarka verksvið
þeirra, því foreldrar eiga að hafa
bæði rétt til þess og skyldu að
sinna vinnustað barna sinna.
Gerður sagði að þetta stæði
einmitt til að gera. Nú er líka gert
ráð fyrir að skipta Reykjavík upp
í skólahverfi sem hvert hafí sína
skólanefnd. Og þessar skóla-
nefndir á fólkið í hverfínu sjálft
að kjósa en ekki fá yfir sig send-
ingar að ofan.
Fundarmönnum fannst það
góð leið til að efla skólastarf og
virðingu fyrir skólum að styðja
við foreldrafélög og veita þeim fé
til að þau geti gert eitthvað í al-
vöru.
En það er víða erfitt að fá for-
eldra til starfa og skólarnir verða
oftast að hafa frumkvæðið, sagði
Gerður. Það stafar einfaldlega af
því að fólk vinnur of mikið til að
hafa tíma til að taka þátt í svona
starfi. Og Svavar spurði hvar for-
eldrar væru þetta kvöld, bað þá
að rétta upp hönd sem væru
„bara“ foreldrar, ekki skóla-
menn líka. Furðu fáar hendur
fóru á loft í mannfjöldanum!
Verður í fimmtán ár
Fjölmörg önnur mál voru
rædd, sjálfstæði Háskólans, ævi-
ráðning skólastjóra, sveigjanleiki
í lok grunnskóla (samræmt próf
sem fólk gæti tekið ári fyrr eða
síðar eftir atvikum), kennara-
menntun og málefni stakra skóla
í sambandi við húsnæði og fjár-
veitingar.
f lok fundarins þakkaði
menntamálaráðherra fyrir fund-
inn, góðar viðræður og hugmynd-
ir. Hann sagðist segja það fólki tii
gamans að hann ætti eftir að
verða lengi í embætti, „ég ætla
mér að vera eins lengi og Gylfi Þ.
í þessu starfi, eða fimmtán ár, svo
að við eigum eftir að hittast oft!“
SA