Þjóðviljinn - 25.04.1989, Blaðsíða 11
LJÓSVAKINN
I DAG
Blendin og
óblandin ánægja
Ingibjörg
Haraldsdóttir
Hemmi Gunn á miðvikudags-
kvöldið. Hótaði að vísu að koma
aftur seinna, en í bili erum við
laus við þessa þætti hans sem yfir
70% þjóðarinnar ku hafa horft á
sér til vonandi blendinnar ánægju
í vetur. Ef ánægjan var óblandin
er eitthvað að, annaðhvort mér
eða þjóðinni.
Umfram allt eigum við ekki að
vera neikvæð, segir Hemmi
Gunn. En ég heimta að fá að vera
neikvæð. Það sem ég hef séð af
þáttum Hemma Gunn í vetur hef-
ur að mestu leyti verið illa unnin,
andlaus lágkúra. Auðvitað á af-
þreying rétt á sér. En áhorfendur
eiga líka rétt á að sú afþreying sé
vel unnin. Laddi er frábær gam-
anleikari, en það þarf einhver að
skrifa fyrir hann texta. Hallæris-
legar ambögur og vandræða-
gangur er yfirleitt ekkert fynd-
inn, þótt Hemmi Gunn haldi það.
Þessvegna er ekkert víst að
beinar útsendingar séu alltaf rétt-
lætanlegar. Að minnsta kosti þarf
að undirbúa þær betur en hér er
gert.
Innbyggð
sjálfsgagnrýni
Eitt af því sem gerir sjónvarpið
að merkiíegu fyrirbæri er að það
er búið innbyggðri sjálfsgagnrýni
sem dregur tennurnar úr utanað-
komandi gagnrýnendum. Lítum
t.d. á Spaugstofuna - Randver
Þorláksson tók af mér ómakið á
laugardaginn var þegar hann
sýndi okkur Hemma Gunn í
spaugilegu ljósi. Annað dæmi var
Mannlegi þátturinn hans Egils
Helgasonar á sunnudagskvöldið.
Þar var fjallað um fréttamálfar
fjölmiðla. Stórmerkur þáttur,
fannst mér, og vonandi að hann
hafi einhver áhrif á þá sem hlut
eiga að máli.
Eitt af mörgu sem vel var sagt í
Mannlegum þætti var að frétta-
menn ættu að vera „kurteislega
aðgangaharðir“ við stjórnmála-
menn og aðra sem þeir þyrftu að
leita upplýsinga hjá, spyrja þá út
úr á venjulegu mannamáli og
krefjast svara í sama dúr. Spyrja
hreinlega „hvað áttu við með
því? Hvað þýðir þetta orð?“
Fólkið sem hlustar og horfir á
fréttirnar á nefnilega heimtingu á
að skilja það sem sagt er. Einsog
nú er rnálum háttað fara fréttirn-
ar fyrir ofan garð og neðan hjá
flestum nema litlum hópi
innvígðra.
Sumardagskrá
Sumardagskrá sjónvarpsins
var kynnt í vikunni sem leið. Það
sem þar var kynnt er smám sam-
an að líta dagsins Ijós - t.d. var
fréttaþátturinn Hringsjá á dag-
skrá í fyrsta sinn á laugardags-
kvöldið. Ég varð fyrir svolitlum
vonbrigðum með þann þátt.
Vonandi á hann eftir að lagast.
En satt að segja bjóst ég við ein-
hverju öðru en þessu þreytandi
flokkspólitíska þrasi um það sem
„efst er á baugi“ - hvort stjórnin
falli eða standi, hvernig kaupin
gerist á eyrinni, hvort Steingrím-
ur hafi nú gleymt einhverju...
Þátturinn var eins hefðbundinn
og nokkur þáttur getur verið -
maður tekur eitt stykki vinstri-
mann og eitt stykki hægrimann,
bætir við vinsælum fjölmiðlagaur
og lætur þá karpa í smástund.
Búið. Ef þeir ætla að halda þessu
formi áfram vil ég a.m.k. mælast
til að svosem ein kvenmannsdula
verði höfð með næst, til til-
breytingar. Ennfremur að athug-
að verði hvort ekki hafi gerst
eitthvað fréttnæmt í menning-
armálum þjóðarinnar. Ég hef
orðið áþreifanlega vör við það
upp á síðkastið og ég er ekki ein
um að vera orðin hundleið á at-
vinnulífinu og peningunum.
Annar nýr þáttur hóf göngu
sína á laugardagskvöldið - Fólkið
í landinu. Að vísu sé ég ekki
neinn mun á þessum þætti og
undanfara hans, Manni vikunn-
ar, en það er aukaatriði. Viðtal
Sigrúnar Stefánsdóttur við Guð-
rúnu Ólafsdóttur var stórfróðlegt
og skemmtilegt, kryddað með
bútum úr kvikmyndum föður
Guðrúnar, Ólafs kristniboða, frá
Kína, en þær myndir voru teknar
fyrir seinni heimsstyrjöld og hafa
mikið heimildargildi einsog nærri
má geta.
Stríðsleikur
Albert nokkur Jónsson er
stjórnandi þáttaraðar í Sjónvarp-
inu sem hann nefnir Island og
umheimurinn. Því miður horfði
ég ekki á fyrsta þáttinn, en á
sumardaginn fyrsta var sýndur
þáttur númer tvö og hét Herfræð-
in og hafið. Við fyrstu sýn var
þessi þáttur ómengaður áróðurs-
þáttur fyrir Nató. Þegar betur er
að gáð má þó ef til vill segja að
hann hafi verið mislukkaður á-
róðursþáttur. Hann var að vísu
óvenjulega vandaður og bar lítil
merki þess að vera framleiddur af
fátækri sjónvarpsstöð, a.m.k.
hlýtur að hafa fylgt þessu tals-
verður ferðakostnaður því að
umsjónarmaður þáttarins var á
þönum út um allar jarðir að sýna
okkur ummerki heimsstyrjalda
og fleira slíkt.
Albert er afskaplega ábúðar-
fullur ungur maður og leggur
augsýnilega mikið kapp á að vera
traustvekjandi. Hann talar ekki
um stríðsleik í Norðurhöfum,
ónei, herfræði skal það heita. Fær
til liðs við sig prófessora og her-
pótintáta úr austri og vestri,
tekur stutt viðtal við Svavar
Gestsson og leyfir kröfu her-
stöðvaandstæðinga ísland úr
Nató herinn burt að hljóma í sek-
úndu eða svo.
Af hverju mislukkast áróður-
inn? Ég er ekki alveg viss um að
svo hafi verið, en skyldi ekki ein-
hverjum hafa brugðið við að sjá
inn í þennan skuggalega heim Al-
berts og félaga, þar sem ísland er
bara haglega staðsett eyja fyrir
flugvélar og kafbáta að athafna
sig á og við? J afnvel fj ölmiðlarýni
Moggans varð nóg um, sýndist
mér. Satt að segja held ég að þátt-
urinn hafi leittt í ljós svo varla
verður betur gert hvílíkar
ógöngur við erum komin í með
því að flækjast í vígbúnaðarnet
Nató þar sem við sitjum kyrfilega
föst og getum engin áhrif haft á
gang mála. Eða halda menn að
einhver fari að hlusta á íslend-
inga, biðja þá um leyfi til að nota
þessar fínu græjur sem hér hefur
verið komið upp til að lemja á
Rússum?
Albert Jónsson kvað endan-
lega í kútinn þá staðhæfingu að
„varnarliðið" á Miðnesheiði sé
hér til að verja ísland og íslend-
inga. Þarna fékkst það staðfest,
svart á hvítu, að hernaðarbrölt
Nató og Bandaríkjamanna á og
við ísland er eingöngu þeirra
mál, þeirra brjálaði stríðsleikur,
einsog herstöðvaandstæðingar
hafa auðvitað margoft bent á í
gegnuni árin.
Mörgum spurningum er þó
ósvarað enn og nú ætti Sjónvarp-
ið að taka á sig rögg, framfylgja
sinni frægu „hlutleysisstefnu“ og
fela einhverjum herstöðvaand-
stæðingi að gera þátt um hina
hliðina á málinu, til þess að bæði
sjónarmiðin komi fram. í þeim
þætti yrði fjallað um fjörutíu ára
baráttu gegn hernum, þar yrði
rætt við frammámenn úr röðum
herstöðvaandstæðinga um rökin
gegn veru Bandaríkjahers hér á
landi og þróun þessara mála sýnd
frá sjónarhóli þeirra sem ekki líta
á ísland sem ósökkvandi flug-
vélamóðurskip.
Matador
in memoriam
Nú skreppur maður ekki oftar
til Korsbæk á sunnudagskvöld-
um. Áreiðanlega er mörgum eft-
irsjón í Matador-þáttunum og
seint verður komið með aðra
slíka þáttaröð að fylla í skarðið.
Betri sápuóperu er ekki hægt að
hugsa sér og reyndar vafamál
hvort nota beri svo óvirðulegt orð
um þennan framhaldsmynda-
flokk þótt hann sé byggður upp
samkvæmt formúlunni. Vér
kvökum og þökkum.
Ábúðarmiklir umsjónarmenn nýrrar Hringsjár. En varekkertfréttnæmt
í menningarlífinu?
þJÓÐVILJINN
FYRIR50ÁRUM
Ætlar Chamberlain ennþá að
rétta Hitler hönd til samninga
þrátt fyrir allt? Sendiherrar Breta
og Frakka farnir aftur til Berlínar.
Verkalýðsfélögin skilja hvert af
öðru viðÁlþ.samb. Undirbúning-
ur 1. maí hátíðahaldanna gengur
hið bezta.
Tregur af li en sæmilegar gæftir
síðastliðnaviku.
25.APRÍL
þriðjudagur í fyrstu viku sumars,
fimmti dagur hörpu, 115. dagur
ársins. Sól kemur upp í Reykjavík
kl. 5.21 en sest kl. 21.33. T ungl
minnkandi á þriðja kvartili.
VIÐBURÐIR
Gangdagurinn eini. Eldgos við
Hrafnabjörg 1913.
APÓTEK
Reykjavík. Helgar- og kvöldvarsla lyfj-
abúða vikuna
21 .-27. apríl er í Ingólfs Apóteki og
Laugarnesapóteki.
Fyrrnefnda apótekið eropið um helgar
og annast næturvörslu alladaga 22-9 (til
10 frídaga). Síðarnef nda apótekiö er
opið á kvöldin 18-22 virka daga og á
laugardögum 9-22 samhliða hinu fyrr-
nefnda.
LÖGGAN
Reykjavík sími 1 11 66
Kópavogur...............sími 4 12 00
Seltj.nes...............sími 1 84 55
Hafnarfj................sími 5 11 66
Garðabær................sími 5 11 66
Slökkvilið og sjúkrabilar:
Reykjavík...............simi 1 11 00
Kópavogur...............sími 1 11 00
Seltj.nes...............sími 1 11 00
Hafnarfj................sími 5 11 00
Garðabær................sími 5 11 00
L/EKNAR
Læknavakt fyrir Reykjavik, Sel-
tjarnarnes og Kópavog er í Heilsu-
verndarstöð Reykjavíkur alla virka daga
frá kl. 17 til 08, á laugardögum og helgi-
dögum allan sólarhringinn. Vitj-
anabeiðnir, simaráðleggingar og tima-
pantanir í síma 21230. Upplýsingar um
lækna og lyfjaþjónustu eru gefnar í sím-
svara 18888.
Borgarspítalinn: Vakt virka daga kl. 8-
17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilis-
lækni eða ná ekki til hans. Landspít-
alinn: Göngudeildin er opin 20-21.
Slysadeild Borgarspitalans: opin allan
sólahringinn sími 696600.
Hafnartjörður: Dagvakt, Heilsugæslan
simi 53722. Næturvakt lækna sími
51100.
Garðabær: Heilsugæslan Garðaflöts.
656066, upplýsingar um vaktlækna s.
51100.
Akureyri: Dagvakt8-17áLæknamiö-
stöðinni s. 23222, hjá slökkviliðinu s.
22222, hjá Akureyrarapóteki s. 22445.
Farsími vaktlæknis 985-23221.
Keflavík: Dagvakt. Upplýsingar s. 3360.
Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna s.
1966.
SJÚKRAHÚS
Heimsóknartimar: Landspítalinn: alla
daga 15-16,19-20. Borgarspitalinn:
virka daga 18.30-19.30, helgar 15-18,
og eftirsamkomulagi. Fæðingardeild
Landspítalans: 15-16. Feðratími 19.30-
20.30. Öldrunarlækningadeild Land-
spítalans Hátúni 10 B. Alla daga 14-20
og eftir samkomulagi. Grensásdeild
Borgarspítala:virkadaga 16-19, helgar
14-19.30. Heilsuverndarstöðinvið
Barónsstíg ópin alla daga 15-16 og
18.30-19.30. Landakotsspítali: alla
daga 15-16 og 18.30-19. Barnadeíid:
heimsóknir annarra en foreldra kl. 16-17
daglega. St. Jósefsspítali Hafnarfirði:
alla daga 15-16 og 19-19.30. Klepps-
spitalinn:alladaga 15-16og 18.30-19.
Sjúkrahúsið Akureyri: alla daga 15-16
og 19.19.30. Sjúkrahúsið
DAGBÓK
Vestmannaeyjum: alla virka daga 15-
16og 19-19.30. Sjúkrahús Akraness:
alladaga 15.30-16og 19-19.30. Sjúkra-
húsið Húsavik: alla daga 15-16 og
19.30-20.
ÝMISLEGT
Hjálparstöð RKÍ. Neyðarathvarf fyrir ung-
lingaTjarnargötu 35. Sími: 622266, opiö
allansólarhringinn.
Sálfræðistöðin. Ráðgjöf í sálfræðilegum
efnum. Simi 687075.
MS-félagiðÁlandi 13. Opiðvirkadagafrá
kl. 10-14. Sími 688800.
Kvennaráðgjöfin Hlaðvarpanum Vestur-
götu 3. Opið þriðjudaga kl.20-22,
fimmtudaga 13.30-15.30 og kl. 20-22,
sími21500, símsvari.
Sjálfshjálparhópar þeirra sem orðið hafa
fyrir sifjaspellum, s. 21500, símsvari.
Upplýsingar um eyðni. Sími 622280,
beint samband við lækni/hjúkrunariræðing
á miðvikudögum kl. 18-19, annars sím-
svari.
Samtök um kvennaathvarf, simi 21205.
Húsaskjól og aðstoð fyrir konur sem beittar
hafa verið ofbeldi eða orðið fyrir nauðgun.
Samtökin ’78. Svarað er í upplýsinga- og
ráðgjafarsíma félags lesbía og homma á
mánudags- og fimmtudagskvöldum kl. 21-
23. Símsvari á öðrum tímum. Síminn er
91-28539.
Félag eldri borgara. Opið hús í Goðheim-
um, Sigtúni 3, alla þriðjudaga, fimmtudaga
ogsunnudagakl. 14.00.
Bilanavakt (raf magns- og hitaveitu: s.
27311. Rafmagnsveita bilanavakt s.
686230.
Vinnuhópur um sifjaspellamál. Simi
21260allavirkadagakl. 1-5.
Lögfræðiaðstoð Orators, félags laga-
nema, er veitt í síma 11012 milli kl. 19.30
og 22.00 áfimmtudagskvöldum.
„Opið hús“ krabbameinssjúklinga
Skógarhlíð 8 er „Opiö hús“ fyrir alla krabb-
ameinssjúklinga og aðstandendur þeirra á
fimmtudögum kl. 17.00-19.00.
Samtök áhugafólks um alnæmisvand-
ann sem vilja styðja við smitaða og sjúka
og aðstandendur þeirra. Hringið i síma 91 -
22400 allavirkadaga.
GENGIÐ
24. apríl
1989 kl. 9.15.
Sala
Bandaríkjadollar.......... 52,51000
Sterlingspund............. 90,01500
Kanadadollar.............. 44,21700
Dönsk króna................ 7,30320
Norskkróna................. 7,81050
Sænskkróna................. 8,33100
Finnsktmark............... 12,69280
Franskurfranki............. 8,38010
Belgískur f ranki....... 1,35700
Svissn.franki............. 32,19790
Holl. gyllini............. 25,17800
V.-þýsktmark.............. 28,41680
Itölsklíra................. 0,03869
Austurr. sch............... 4,03690
Portúg. escudo............. 0,34260
Spánskur peseti............ 0,45640
Japanskt yen............... 0,40031
Irsktpund................. 75,76900
KROSSGÁTA
Lárétt: 1 spil4ílát8 I Rlóttuna Q kinnknrn 11 I
1 2 3 4 B 3 guöi 12 sífellt 14 að 15 vinnusöm 17 lykkja 19 gröm21 borðuðu22 þefa24enduðu25 hrúga Lóðrétt: 1 staka2köld 3gengur4hanski5 hjálp 6 kvenmannsnafn 7fyndin 10jurt13 skelin16glúrin17andi 18 einnig 20 kveikur 23 samtök Lausn á síðustu krossgátu Lárétt: 1 gust4skók8 túlkaði9óskar11 alin 12angist 14 nn 15nets 17skæni 19tær21 eik 22 nart 24 frið 25fáti Lóðrétt: 1 gróa 2 stag 3túrinn4skatt5kal6 Óðin7kinnar10sníkir
• 1 i
9 ÍÍS 11
Í2 13 □ 14
18 r^i L J
L. J 19 20
iV 22 23
24 r: 29 1
13sein 16strá 17sef 18æki 20ætt23af
Þriðjudagur 25. apri'11989 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11