Þjóðviljinn - 04.05.1989, Síða 1
Fimmtudagur 4. maí 1989 82. tölublað 54. órggngur
BHMR og ríkið
Viðræðu-
fundur
í dag
GuðlaugurÞorvaldsson:
Legg ekki sáttatillögur
fram eftir pöntun
Samninganefndir BHMR og
ríkisins hittust í gær á fundi hjá
sáttasemjara ríkisins. Fyrir fund-
inn var jafnvel búist við að sátta-
semjari myndi leggja fram sátta -
tillögu, en af því varð ekki. Þess í
stað var ákveðið að efna til form-
legs viðræðufundar með deiluað-
ilum I dag og verður þar rætt um
með hvaða hætti frekari samn-
ingaumleitunum verður best
háttað. Þessi niðurstaða getur
merkt tveunt, í fyrsta lagi að líkur
eru taldar á að nú sé að ganga
saman með deiluaðilum, eða þá
að enn sé svo langt á milli deiluað-
ila að framlagning sáttatillögu sé
einungis til að hleypa málinu í enn
meiri hnút.
Guðlaugur Þorvaldsson ríkis-
sáttasemjari sagði í samtaii við
Þjóðviljann eftir að fundi deilu-
aðila lauk í gær, að hann teldi
ekki tímabært að leggja fram
sáttatillögu. „Þegar líður á allar
meiriháttar deilur er óhugsandi
annað en sáttasemjari hafi í huga
einhvers konar sáttatillögur, því
hugsanlega þyrfti að leggja slíka
tillögu fram með stuttum fyrir-
vara. En að leggja fram formlega
sáttatillögu er ætíð neyðarbrauð
og sáttasemjari verður að meta
það á hverjum degi hvort einhver
raunhæfur möguleiki er á sam-
þykkt hennar. Það er mitt mat,
en ekki að leggja slíka tillögu
fram af einhverri skyldurækni
eða eftir pöntun. Það er ekki í
myndinni núna að leggja slíka til-
lögu fram,“ sagði Guuðlaugur og
ítrekaði að fundurinn sem hald-
inn verður í dag væri viðræðu-
fundur. phh
Atlantal-hópurinn mun leggja
fram hugmyndir sínar um
nýtt álver fyrir iðnaðarráðuneyt-
ið eftir næstu helgi. Tveir valkost-
ir eru nú til athugunar. I fyrsta
lagi er það sá sem áður hefur
komið fram opinberlega þ.e. að
álverin fjögur taki sig saman og
reisi nýtt álver sunnan Reykja-
nesbrautar og verði framleiðslu-
geta þess 185 þúsund tonn á ári.
Nýja hugmyndin sem verið er að
móta, eftir að í ljós kom að fyrri
valkosturinn var dýrari en ætlað
var, gengur út á að Aluswiss hætti
rekstri Isal í núverandi formi.
Tveir möguleikar eru þá taldir
koma til álita. í fyrsta lagi að Al-
uswiss sem eigandi ísal og eitt eða
fleiri fyrirtækja Atlantal-hópsins
stofni nýtt fyrirtæki sem yfirtaki
núverandi rekstur ísal og reisi
nýjan kerskála og verði fram-
leiðslugeta hans 120 þúsund
tonn. Framleiðslugeta ísal er í
dag um 88 þúsund tonn og yrði
framleiðslugeta nýja fyrirtækis-
ins því um 208 þúsund tonn.
Einnig kemur til greina að ísal
haldi áfram rekstri, en eitt eða
fleiri Atlantal-fyrirtækjanna
komi inn í rekstur ísal sem hlut-
hafar með nýju og auknu hlutafé
og þessir aðilar auki fram-
leiðsíugetuna með sama hætti og
að framan greinir.
Nýja kerskálanum verði fund-
inn staður á spildunni norðan
Reykjanesbrautar, við hlið nú-
verandi kerskála á athafnasvæði
ísal. Þrátt fyrir að framleiðslu-
geta nýja kerskálans sé um 32
þúsundum tonna meiri en þess
gamla er talið að hann verði allur
minni að umfangi, enda búinn
nýrri og fyrirferðarminni fram-
leiðslubúnaði.
íslensk stjórnvöld bíða nú
svara frá álfyrirtækjunum fjórum
um hvorn kostinn þau telja ákjós-
anlegri og hvort þau eru tilbúin til
að halda áfram með málið. Sem
fyrr segir skila Atlantal-fyrirtæk-
in svörum til iðnaðarráðuneytis-
ins nú um helgina, en þann 24.
maí mun ráðgjafarnefndin um ál-
iðju eiga fund með verkefnis-
stjórn Atlantal-fyrirtækjanna og
er þá talið að tekin verði endan-
leg ákvörðun um hvora leiðina
þyki hagkvæmara að fara. Þá
skýrist ennfremur hvaða fyrir-
tæki munu taka þátt í hinu nýja
álfyrirtæki í Straumsvík. Ríkis-
stjórnin mun sfðan taka sína
ákvörðun í haust, um það hvort
stækkun álvers við Straumsvík
verði yfirhöfuð leyfð eða ekki.
phh
Hátt í tuttugu framhaldsskólanemar settust að (göngum fjármálaráðu-
neytisins í gær og ætla að dvelja þar í hungurvöku næstu 2 sólar-
hringa, hafi samningar við kennara ekki tekist fyrir þann tíma.
Nemendur segjast leiðir á biðinni, samningar verði að takast strax.
*
Alver
Isal lagt niður?
Hugmyndir uppi um að Aluswiss gangi til samtarfs við eitt eðafleirifyrirtœkja
Atlantal-hópsins um stofnun nýsfyrirtœkis semyfirtaki reksturísal og reisi nýjan
kerskála við hliðþessgamla. Sameiginlegframleiðslugeta nýja fyrirtœkisinsyrði um
208 þúsund tonn. Svör liggja fyrir eftir helgina
Lífeyrissjóður Vesturlands
Borgnesingar hóta lögreglurannsókn
Jón A. Eggertsson: ReglugerðLífeyrissjóðsins hefur verið brotin. Engir fundnir verið haldnir
um starfsemi hans síðustu ár og sjóðsfélagarvita ekkert um réttindi sín
Eg á allt eins von á þvf að við
förum fram á opinbera rann-
sókn á starfsemi Lífeyrissjóðs
Vesturlands. Reglugerð sjóðsins
hefur verið brotin, engir fundir
verið haldnir í stjórn hans og
sjóðsfélagar vita ekkert um rétt
sinn. Það er ekki aðeins að al-
menn óánægja sé hér í Borgarnesi
heldur einnig í Ólafsvík og Búðar-
dal, sagði Jón Agnar Eggertsson
formaður Verkalýðsfélagsins í
Borgarnesi.
Svo virðist sem almenn óreiða
einkenni starfsemi stjórnar Líf-
eyrissjóðs Vesturlands. Fundir
hafa ekki verið haldnir í fulltrúa-
ráði hans og reikningar til margra
ára eru enn óuppgerðir. Þrátt
fyrir margítrekaðar tilraunir af
hálfu Verkalýðsfélagsins í Borg-
arnesi til stjórnar sjóðsins að gera
hreint fyrir sínum dyrum um
starfsemi sjóðsins hefur það ekki
enn tekist. Að vísu var haldinn
fundur í fulltrúaráði sjóðsins í
desember og þá gengið frá reikn-
ingum fyrir 1985 en reikningar
fyrir 1984 voru skildir eftir og síð-
an eru þeir ósamþykktir. Að sögn
Jóns ber stjórnin því við að reikn-
ingar sjóðsins séu vitlausir og
þurfi endurskoðunar við. En
endurskoðandi hans er Eyjólfur
Sigurjónsson endurskoðandi og
formaður Félags endurskoð-
enda.
Langlundargeð Borgnesinga
er á þrotum og á félagsfundi ný-
verið í Verkalýðsfélagi Borgar-
ness voru fyrri samþykktir félags-
ins um málefni Lífeyrissjóðsins
ítrekaðar um að stjórn hans geri
hreint fyrir sínum dyrum og upp-
lýsi sjóðsfélaga um stöou hans. Á
fundinum var samþykkt sam-
hljóða að fela stjórn félagsins að
taka upp viðræður við atvinnu-
rekendur á svæðinu um aðgerðir
varðandi sjóðinn og á meðan
ástandið í málefnum hans sé
óbreytt verði lífeyrisgjöld lögð
inn á bankareikninga á nafni
• hvers og eins sjóðsfélaga.
Formaður stjórnar Lífeyris-
sjóðs Vesturlands er Valdimar
Indriðason fyrrum formaður
bankaráðs Útvegsbankans og
fyrrum alþingismaður Sjálfstæð-
isflokksins á Vesturlandi. -grh