Þjóðviljinn - 04.05.1989, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 04.05.1989, Blaðsíða 2
 FRÉTTIR Ítalíuskreið Sjómenn hlunnfamir Grindavík: Norðlenskirskreiðarverkendurgreiða alltað 80 krónum fyrirfiskkílóið. Sjómenn fá aðeins 38,60 krónur og mismunurinn kemur ekki til skipta. Skreiðarsamlagið: 1988 voru flutt út897 tonn af Ítalíuskreið fyrir tœpar 460 miljónir. Hugur ímönnum íár Sá fiskur sem er seldur héðan óunninn úr byggðalaginu og norður í land til skreiðarverkun- ar fyrir Ítalíumarkað er keyptur á 80 krónur kflóið á sama tima sem sjómenn fá aðeins 38,60 krónur fyrir kflóið. Mismunur- inn sem er rúmlega 41 króna kem- ur ekki tii skipta. Þetta er auðvit- að algjört hneyksli og enn eitt dæmið hvernig farið er með sjó- manninn af hálfu útgerðar og vinnslu, sagði Svœvar Gunnars- son formaður Sjómanna- og vél- stjórafélags Grindavíkur. Á undanförnum vikum hafa farið fram geysilegar fiskflutning- ar frá vertíðarsvæðunum sunnan- lands og norður til Eyjafjarðar- svæðisins þar sem hagkvæmast er að verka fisk til skreiðaverkunar fyrir Ítalíumarkað. Svo er að sjá að fiskkaupendur nyrðra séu ekki blankir þegar fiskkaup fyrir skreiðarverkun er annars vegar. í þessum fiskflutningum lands- Alþingi Húsbréf loks á skrið Höggvið á vaxtahnút. Þingslitum frestað um viku hluta á milli er allur gangur á meðferð fisksins en venjulegast er hann ísaður og settur í kör en einnig er það til í dæminu að hann sé fluttur laus á bflpalli hundruð kflómetra og þá þarf ekki að spyrja að gæðum hans þegar á leiðarenda er komið. Á síðasta ári voru flutt út 897 tonn af Ítalíuskreið fyrir tæpar 460 miljónir króna en 1987 voru flutt út 827 tonn fyrir 360 miljón- ir. Að sögn Hannesar Halls fram- kvæmdarstjóra Samlags skreið- arframleiðenda er hugur í skreiðarverkendum í ár og bjóst hann við að svipað magn yrði hengt upp til verkunar í ár norðan heiða. Þó er búist við að einhver skreiðarverkun verði sunnan- lands í ár á Suðurnesjum og í Hafnarfirði sem ekki var 1988 sökum þess að verkunin misfórst 1987. -grh íslendingar Færri reykja og drekka íslendingar hafa dregið nokk- uð úr áfengis- og tóbaksneyslu ef marka má samanburð á sölu Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins fyrstu þrjá mánuði þessa árs og fyrstu þrjá mánuði ársins sem leið. Heildarvínsala ÁTVR nam 614.259 lítrum í janúar, febrúar og mars en af þeim voru 168.332 lítrar hreinn vínandi. Fyrsta árs- fjórðung í fyrra seldust 687.047 lítrar en þar af voru 182.958 lítrar vínanda. Vínandasötrið hefur sem sé dregist saman um 8 %, Heildarsala bjórs var hvorki meiri né minni en 1.170.303 lítrar í marsmánuði, 61.081 alkóhóllítr- ar. Lövenbreu er langvinsælastur með 410 þúsund selda lítra. Næst- ur er Tuborg með 175 þúsund, Egils Gull með 124 þúsund og Kaiser Premium með 110 þúsund lítra. Sala allra algengustu vínteg- unda dróst saman, sumra veru- lega. Ef enn eru bornir saman þrír fyrstu mánuðir áranna í ár og í fyrra kemur í ljósa að rauðvíns- sala dróst saman um 8,77%, hvít- vínssala um 21,25%, vodkasala um 5,30%, viskísala um 6,95% og loks brennivínssala um 15,73%. Að lokum má geta þess að niður kverkar kirkjugesta runnu 251,30 lítrar messuvíns eða 40,21 lítri hreins vínanda frá 1. janúar og fram í marslok! Raðir reykinga- og neftóbaks- manna þynnast jafnt og þétt. Sí- garettusala er 6,6% minni í upp- hafi þessa árs en í ársbyrjun í fyrra og sömu sögu er að segja af reyktóbaki, vindlum og neftó- baki. ks Fatlaðir ^ Draumur um sumarfius Leitað eftir stuðningi hjá almenningi. Söfnunarbaukar í stórmörkuðum og á sksmmtistöðum Húsbréfafrumvarpið losnaði loks úr félagsmálanefnd neðri deildar alþingis í gær eftir harðar hríðir en sem kunnugt er skipti í íjögur horn um afstöðu nefndar- manna. Forsetar þingsins og for- menn þinglokka urðu í gær á eitt sáttir um að fresta þingslitum fram að 13. degi maímánaðar. Næsta óvíst er hvort öllum ljónum hafi verið rutt úr vegi húsbréfa á alþingi þótt það sé úr félagsmálanefnd neðri deildar og að ágreiningi um vaxtamál hafi verið eytt. Efri deild hefur enn ekkert fjallað um frumvarpið. Alþýðubandalagsmenn fengu því framgengt í gær að vextir af húsnæðislánum verði aldrei meiri en 4,5% í tíð núverandi nkis- stjórnar. Þetta kemur heim og saman við það markmið fé- lagsmálaráðherra að vaxtamunur í húsnæðiskerfinu verði aldrei nema 0,5-1% því nýverið samdi ríkið við lífeyrissjóðina um 5% raunvexti á skuldabréfum. ks Sérhannaður bústaður fyrir okkur kostar á fjórðu miljón og fámennt félag öryrkja á ekki möguleika á því að framkvæma það eitt og óstutt, segir Egill Stef- ánsson formaður S.E.M. S.E.M. sem er Samtök endur- hæfðra mænuskaddaðra, er hóp- ur fólks sem lent hefur í alvar- legum slysum og lamast vegna varanlegra mænuskaða. Allir félagar eru bundnir við hjólastóla. Markmið félagsins er m.a. að veita siðferðilegan og fé- lagslegan stuðning þeim er lent hafa í slysum og lamast. Hópur- inn kemur fram nú í samvinnu við umferðarráð til þess að vekja at- hygli á sjálfum sér og bættri um- ferðarmenningu. í samtökunum eru 80 manns, allt fólk sem hlotið hefur mænusköddun eftir slys. Megniástæða þess að félag þetta var stofnað var sú að mæta sér- þörfum þeirra sem eiga það sam- eiginlegt að hafa orðið fyrir fötl- un skyndilega. S.E.M. hefur starfað í tíu ár. Samtökin áttu m.a. frumkvæðið að því að Skóli fatlaðra var stofn- aður árið 1983. Þar skapaðist tækifæri til að fá kennslu í tölvu- fræðum, undirbúningsmenntun fyrir framhaldsskóla og störf á al- mennum vinnumarkaði. Þannig hefur S.E.M. stuðlað að betri at- vinnutækifærum og margir fé- lagar komist í góð störf út á það. Nú leita félagar S.E.M. til al- mennings um aðstoð til þess að geta komið upp sumarhúsi sem væntanlega mun rísa í Biskups- tungum. Einn félaganna, Jón H. Sigurðsson bóndi úr Biskups- tungum, hefur í hyggju að gefa land undir sumarbústað samtak- anna. Jón hefur verið sitjandi frá því 1977 er vélbundnir heybaggar hrundu yfir hann með þeim af- leiðingum að hann lamaðist. Jón var bóndi en fór síðan í gegnum menntakerfið og lauk líffræði- prófi. Ég er líffræðibóndi á 28. degi í verkfalli, sagði Jón sem nú starfar sem kennari við Verslun- arskólann. Samtökin leita til almennings og fyrirtækja um aðstoð til þess að gera þeim kleift að njóta þeirrar útivistar sem sumarhúsið myndi bjóða uppá. Söfnunar- kassar verða víða m.a. í stór- mörkuðum og í ýmsum samkom- uhúsum. Einnig er hægt að leggja inn á Gíróreikning félagsins nr. 572020 í bönkum og sparisjóð- um. ' eb 3-4% kaup- máttarrýrnun Kaupmáttur tímakaups land- verkafólks í ASÍ minnkaði um rúm 3% á milli 4. ársfjórðungs 1987 og sama tíma á liðnu ári. Tímakaupið hækkaði á þessu tímabili um 18,1% að meðaltali en á sama tíma var hækkun fram- færsluvísitölu 22,1%. Ef miðað er við hækkun mánaðartekna á sama tíma þá hefur kaupmátt- arminnkunin verði meiri eða rúm 4% á þessu tímabili. Þetta kemur fram f nýútkomnu fréttabréfi Kj ararannsóknarnefndar. Ráðningabann hjá Eimskip Afkoma Eimskipafélagsins var neikvæð um nærri 100 miljónir á þessum fyrsta ársfjórðungi og hefur félagið ákveðið að grípa til harðra aðhaldsaðgerða. Sett hef- ur verið á ráðningabann hjá fyrir- tækinu og stefnt er að fækkun fastra starfsmanna. Þá verður helmingsfækkun í sumarafleys- ingum nú í sumar miðað við það sem var á sl. ári. Þessi halíi á rekstri félagsins kemur til þrátt fyrir 10% aukningu í flutningum 3 fyrstu mánuði ársins. Engar undanþágur fyrir mjólk og kjöt Bæjarstjórn Blönduóss hefur mótmælt harðlega framkomnum tillögum félagsmálanefndar efri deildar Alþingis um að mjólkur- stöðvar og sláturhús verði undan- þegin greiðslu aðstöðugjalds í ný- jum tekjustofnalögum fyrir sveitarfélög. Bæjarstjórnin telur það í fyllsta máta óeðlilegt að örfá sveitarfélög í landinu verði með lögum látin greiða niður verðlag afurða fyrrnefndra fyrir- tækja til landsmanna allra. Johann í áttunda sæti Garry Kasparov hlaut „Skákósk- arinn“ fyrir sl. ár, en það eru sér- fræðingar um skák um víða ver- öld sem taka þátt í atkvæða- greiðslu um óskar skákmanna. Kasparov hlaut 592 stig en á hæla hans kom landi og erkifjandi Karpov með 446 stig. Jóhann Hjartarson lenti í 8. sæti með 147 stig næstur á undan þeim Jan Timman frá Hollandi og Valery Salov frá Sovétríkjunum. Rokkað í Firðinum Bæjarbíó í Hafnarfirði verður annað kvöld vettvangur yngstu kynslóðar rokkara á hljóm- leikum þriggja sveita og er sú splunkunýjasta að undirbúa sigurför til Sovétríkjanna. Ottó og nashyrningarnir ætla nefnilega með „Next stop Sovjet“ í sumar, en auk þeirra leika sveitirnar Ak- ústík úr Hafnarfirði og Eftirlitið, sem leikur lög af plötu sem verið er að hleypa af stokkunum. Tón- leikarnirhefjast kl. 21.00 að stað- artíma. Stuðningur við umhverfis- ráðuneyti Náttúruvendarráð hefur lýst ánægju sinni með framkomið stjórnarfrumvarp um stofnun umhverfisráðuneytis. Leggur ráðið áherslu á að nýja ráðuneyt- inu verði falin stjórnun sem flestra þátta umhverfismála. Eft- irlit og varnir gegn mengun svo og eftirlit með ástandi gróðurs í landinu hevri undir umhverfis- ráðuneyti' ' upphafi, ásamt verndunar og friðunarmálum. Einnig leggur Náttúruverndarráð áherslu á að ráðuneytið sinni forvarnarstarfi í formi fræðslu um umhverfismál. Ódýrt útsýnisflug og stökk í dag verður opið hús hjá flug- skólanum Vesturflugi á Reykja- víkurflugvelli þar sem kynnt verður flugkennsla og boðið upp á útsýnisflug við vægu verði. Þá verður einnig hægt að komast í útsýnisflug með þyrlu. Sýnt verð- ur listflug og Fallhlífarklúbbur Reykjavíkur sýnir stökk og gefur fólki kost á prufustökki. Flugdag- skráin hefst kl. 10 árdegis. og byrjað verður að stökkva kl. 15.00. 2 SÍÐA - ÞJÖÐVILJINN Flmmtudagur 4. maí 1989

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.