Þjóðviljinn - 04.05.1989, Blaðsíða 4
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd
byggingardeildar borgarverkfræðings, óskar
eftir tilboðum í eftirfarandi:
_______________FRÉTTIR________________
Ljósmœður
Elsta launastétt kvenna
Ljósmœður halda upp á 70 ára afmœlifélags síns
1. Símakerfi í heilsugæslustöðina Hraunbergi
6.
Tilboðin verða opnuð þriðjudaginn 23. maí
kl. 11.00.
2. Brunaviðvörunarkerfi og þjófaviðvörunar-
kerfi í heilsugæslustöðina Hraunbergi 6.
Tilboðin verða opnuð þriðjudaginn 23. maí
kl. 14.00.
ÚtboðSgögn verða afhent á skristofu vorri að
Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 10.000
skilatryggingu fyrir hvort verk um sig.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 Simi 25800
Skrifstofa Alþingis
Staða forstöðumanns
tölvumála Alþingis
er laus til umsóknar
Starfssvið: Umsjón meðtölvukerfi Alþingis, þró-
un tölvuvæðingar og þjónustu við notendur.
Tæki: Wang VS-7010 tölva (4MB minni, 900
MB diskrými) ásamt um 50 einmenningstölvum
(Wang og Macintosh), sem verið er að rað-
tengja.
Verkefni: Helstu verkefnin eru ritvinnsla, útgáfa
(WP+ ritvinnsla, prentsmiðjusamskipti og
einkaútgáfa)n og vinnsla gagna starfsemi Al-
þingis (PACE gagnagrunnur).
Umsóknarfresturinn er til 15. maí n.k. og er
æskilegt að umsækjandi gæti hafið störf sem
allra fyrst.
Allar frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
Alþingis, sími 11560.
FRÁ MENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU:
Lausar stöður
við framhaldsskóla
Viö Fjölbrautaskólann í Breiðholti eru lausar til umsóknar
kennarastöður í eftirtöldum greinum:
Dönsku, eðlisfræði, sálarfræði, viðskiptagreinum og hálf staða í
frönsku. Þá er laus til umsóknar staða námsráðgjafa.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,150 Reykjavík fyir 1. júní
n.k.
MENNTAMÁLARÁUNEYTIÐ
Styrkir til háskólanáms
í Frakklandi
Frönsk stjdrnvöld bjóða fram tvo styrki til háskólanáms í Frakk-
landi á skólaárinu 1989-90, annan til náms í bókmenntum og hinn
í tónlist.
Umsóknum, ásamt staðfestum afritum af prófskírteinum og
meðmælum, skal skila til menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu
6, 150 Reykjavík, fyrir 23. maí n.k. Umsóknareyðublöð fást í
ráðuneytinu.
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ,
28. apríl 1989
Alúðarþakkir fyrir samúðarkveðjur og vinsemd
við lát Stefáns Ögmundssonar, prentara.
Elín Guðmundsdóttir
Ingibjörg Björn og Elísabet, Ragnar, Elín
Steinunn og Jón Thor Stefán
Bergljót Elín, Karl
Sigríður Sunna, Drífa, Ögmundur
maí 1919 var stofnað í
■ Reykjavík fyrsta stéttarfélag
faglærðra kvenna á Islandi. -
Ljósmæður tilheyra elstu
launastétt í landinu, en þær hafa
verið embættismenn allt frá árinu
1762, er Bjarni Pálsson land-
læknir kom því til leiðar að Ijós-
móðurinni í Reykjavík var
launað úr konungssjóði.
Árið 1919 voru 200 ljósmæður í
landinu og var Þuríður Bárðar-
dóttir frá Raufarhelli í Rangár-
vallasýslu, gerð að fyrsta for-
manni.
Þuríður hafði um áraraðir um-
sjón með ljósmæðrafræðslunni,
eins stofnsetti hún mæðraheimili
í Reykjavík að Tjarnargötu 16 og
veitti því forstöðu fyrsta árið.
Margt hefur breyst bæði hvað
varðar fæðingar og eins málefni
ljósmæðra á þessum 70 árum.
Upphaflega fór ljósmæðrafræðsl-
an fram hjá landlækni og tók
námið tvo mánuði, en nú er þetta
orðið sex ára nám. Gert er ráð
fyrir því, að viðkomandi nemi
fyrst hjúkrunarfræði í Háksóla ís-
lands og taki síðan Ljósmæðra-
skólann sem sérfag á eftir.
Hér á landi hafa engir karl-
menn útskrifast sem ljósfeður, en
í Noregi hefur einn karlmaður
gengið í gegnum þessa menntun.
Hins vegar störfuðu hér áður fyrr
ófaglærðir menn hérlendis sem
nefndir voru ljósfeður. Þeirra
frægastur er talinn Sveinn Sveins-
son fæddur 1799, frá Akrahreppi
í Skagafirði, en hann mun hafa
tekið á móti 600 börnum.
Að sögn Hildar Kristjánsdótt-
ur formanns Ljósmæðrafélagsins
er menntun ljósmæðra hérlendis
fyllilega sambærileg menntun
þeirra á hinum Norðurlöndun-
um. Starfssvið ljósmæðra er
nokkuð breytt frá því sem áður
var, enda er þeirra vettvangur nú
m.a. inni á heilsugæslustöðvun-
um.
Ein meginástæða þess að karl-
menn hafa ekki sótt í fagið eru
launamálin, þetta er kvennastétt
með kvennalaun. Eftir sex ára
nám eru byrjunarlaun ljósmæðra
51.277 kr.
Opið hús verður í Ljósmæðra-
skólanum á laugardag kl. 13 og
verða þar sýndar gamlar kennslu-
bækur og sagt frá vinnuaðstöðu
ljósmæðra í gegnum tíðina.
Ljósmæðrafélag íslands ætlar
síðan að minnast afmælisins i hófi
sem haldið verður á Hótel Loft-
leiðum á laugardaginn kemur.
eb
Rœkjuverksmiðjur
Grimm samkeppni um hráefnið
Lárus Jónsson: Kœmi ekki á óvartþó aðeins 25-30 verksmiðjur vinni
rækju af50-60 sem vinnsluleyfi hafa á vertíðinni. Heildarkvótinn23
þúsund tonn á móti 36 þúsund ífyrra
eim fækkar sífellt sem treysta
sér til að vinna rækju og það
kæmi mér ekki á óvart þó aðeins
25-30 verksmiðjur af 50- 60 sem
hafa vinnsluleyfi taki á móti út-
hafsrækju til vinnslu núna á ver-
tíðinni. Þá hefur veiðikvóti báta
verið skertur um allt að 40% hjá
einstaka bátum þannig að búast
má við harðri samkeppni verk-
smiðjanna um hráefnið, sagði
Lárusjónsson framkvæmdastjóri
Félags rækju- og hörpudiskfram-
leiðenda.
Sæmilegur afli hefur verið hjá
úthafsrækjuveiðiskipum að und-
anförnu fyrir Norðurlandi en í ár
er kvótinn um 23 þúsund tonn á
móti 36 þúsund tonnum í fyrra.
Þá veiddust aðeins 26 þúsund
tonn þannig að miðað við þann
afla er samdrátturinn í ár aðeins
um 3 þúsund tonn en um 13 þús-
und tonn sé miðað við heildar-
kvótann 1988 sem ekki náðist að
veiða uppí.
Á síðustu vertíðum hafa verk-
smiðjurnar haft allar klær úti við
að tryggja sér hráefni til vinnslu
með allskyns yfirborgunum til út-
gerða báta og er búist að þær
verði ekki minni núna en oftast
áður. Hafa útgerðir ma. fengið
veiðarfæri sér að kostnaðarlausu
frá verksmiðjunum, ókeypis ís og
hafnargjöld. Að sögn Lárusar
Jónssonar er því ekki að neita að
sumar verksmiðjurnar hafa teygt
sig of langt í þessum yfirborgun-
um miðað við það sem þær hafa
síðan fengið fyrir afurðirnar og
afleiðingin orðið mun meiri tap-
rekstur en ella hefði orðið.
Aðspurður um markaðshorfur
núna sagði Lárus að Iitlar sem
engar birgðir væru í landinu en að
4 SÍÐA - ÞJÖÐVILJINN
öðru leyti væri markaðurinn
ósköp aðgerðarlítill og verð mjög
svipuð og verið hefur. Á síðustu
árum hefur þó heitsjávarrækja
verið að ná meiri markaðshlut-
deild á kostnað kaldsjávarrækju
á Evrópumarkaði en hún náði
fótfestu á markaðnum þegar verð
á kaldsjávarrækju var hvað hæst.
-grh
Evrópuráðið
Þingmannasveít
á afmælishátíð
Aföstudaginn verða liðin 40 ár
frá stonfun Evrópuráðsins.
Þann dag mun Finnland gerast
formlegur aðili að ráðinu og
verða þá öll lýðræðisríki Evrópu,
23 að tölu, orðin aðilar að þessari
elstu ríkjastofnun Evrópu.
Afmælisins verður minnst í að-
ildarríkjunum og í aðalstöðvum
Evrópuráðsins í Strasbourg.
Þing Evrópuráðsins mun
minnast afmælisins með sérstakri
hátíðarsamkomu í þingsal aðal-
stöðvanna 5. maí nk. Fulltrúar ís-
lands þar verða alþingismennirn-
ir Ragnhildur Helgadóttir for-
maður sendinefndar, Guðmund-
ur G. Þórarinsson, Ragnar Arn-
alds og Hreggviður Jónsson auk
Kjartans Jóhannssonar forseta
neðri deildar, sem er sérstaklega
boðið sem alþingisforseta. Á há-
tfðarfundinum mun m.a. Mitter-
and forseti Frakklands ávarpa
þingheim.
Sama dag verður haldinn ráð-
herrafundur Evrópuráðsins í
fundarsal ráðherranefndarinnar í
aðalstöðvunum. Munu ráðherr-
arnir við það tækifæri láta fara frá
sér yfirlýsingu þar sem framtíðar-
hlutverk Evrópuráðsins verður
skilgreint nánar í ljósi breyttra
aðstæðna. Fulltrúi íslands þar
verður Sveinn Björnsson, sendi-
herra, fastafulltrúi íslands í Evr-
ópuráðinu.
Hið reglulega þing mun svo
standa dagana 8.-12. maí. Meðal
mála þar verða breytingar á fé-
lagsmálasáttmála Evrópuráðsins
svo og tengsl Evrópubandalags-
ins við sáttmálann um félaglegt
öryggi. Ennfremur verður rætt
um framtíð Evrópuráðsins í ljósi
þróunar Evrópubandalagsins.
Lech Walesa og Helsin-
ki-mannréttindasamtökin munu
fá mannréttindaverðlaun Evr-
ópuráðsins úr hendi norska utan-
ríkisráðherrans Thorvalds Stolt-
enbergs nýkjörins formanns ráð-
herranefndarinnar við athöfn í
þingsalnum hinn 10. maí.
1 V * v V