Þjóðviljinn - 04.05.1989, Side 6
þJÓÐVILJINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar
Aratugur
jámfmarinnar
Alltaf finna menn sér einhver afmæli til að halda upp
á. Nú síðast þykir það merkilegast á tíma, sem oft er
kenndur við rótleysi og óvissu, að Margaret Thatcher
hefur veitt íhaldsstjórn forystu í Bretlandi í áratug. Svo
löng stjórnarseta þykir afrek út af fyrir sig og menn hafa
verið, hver með sínum hætti, að leita skýringa á hon-
um.
Það er líka gert í leiðara í DV um síðustu helgi. Hann
er að verulegu leyti skrifaður í anda aðdáunar, sem
útbreiddur er í borgaralegum málgögnum: frú Thatcher
er, segir þar, staðföst, sjálfri sér samkvæm, föst fyrir,
hún „kemur sínum málum í gegn“ með „sannfæringu,
dugnaði og ódrepandi seiglu“. Og svo eru málin talin
upp - járnfrúin, segir þar, hefur „staðið fyrir byltingu í
peninga- og markaðsmálum, einkavæðingu, húsnæð-
ismálum, verkalýðsmálum, atvinnu- og efna-
hagsmálum og breyttum lífsviðhorfum Breta“. Það
munar um minna. Maður hefur satt að segja ekki heyrt
um jafn altæka „byltingu“ og hér er lýst síðan Maó
formann leið.
Höfundur leiðarans kemst samt ekki hjá því að geta
þess, að það eru maðkar í markaðsbyltingarmysu frú
Thatcher. Hann segir sem svo, að járnfrúin hafi komið
á réttum tíma, ástandið hafi ekki verið gæfulegt í Bret-
landi þegar hún tók við völdum og hún hafi svo sannar-
lega átt erindi. Samt hefur þróunin „að sumu leyti“
orðið til hins verra. Leiðarinn segir: „Bilið milli ríkra og
fátækra hefur stækkað, lífsskilyrði í norðri og suðri
Bretlandseyja hafa þróast í öfugar áttir. Atvinnuleysi,
fátækt og félagsleg vandamál hafa aukist að mun.
Hvergi er húsakostur verri, hvergi eru sóðabælin jafná-
berandi".
Það er ekki lítil ásökun sem felst í þessu syndareg -
istri.Og þá er þeirri spurningu ósvarað sem hún býður
upp á: hvernig í ósköpunum stendur þá á því, að Marg-
aret Thatcher situr enn? Að vísu er á það minnt, að
stjórnarandstaðan hefur verið klofin, og í einmennings-
kjördæmakerfi býður það upp á að Ihaldsflokkurinn
geti haft meirihluta á þingi, þótt því fari fjarri að hann
hafi fengið helming atkvæða í kosningum. En þetta
segir miklu minna en hálfa sögu.
Langur valdaferill frú Thatcher á sér margar skýring-
ar. Ein gæti tengst þeirri aðdáun á sterkum foringja og
hans „skörungsskap", sem svo freklega gægist upp úr
leiðara DV og breiðir jafnan úr sér á óvissu- og kreppu-
tímum. í annan stað er breskt þjóðfélag eins og iðn-
vædd samfélög önnur þannig gert, að það líkist ekki
lengur pýramída með miklum sæg fátæklinga neðst,
heldur einskonar tunnu sem er langmest um miðjuna:
þar sitja fjölmennir hópar sem búa við miðstéttarkjör og
hugsunarhátt. Hinir fátækustu eru þá þeim mun ein-
angraðri og varnarlausari en fyrr, samkeppnissiðgæð-
ið lítur ekki á þá sem félagsbræður heldur sem þá sem
hafa tapað - og vill sem minnst af þeim vita. Sérgæsk-
an er sjálfumglaðari og á auðveldara en áður að ýta frá
sér sjálfri tilhugsuninni um þá sem lakast eru settir. Og
því getur íhaldssamur stjórnmálaleiðtogi setið von úr
viti og safnað fylgi þótt „atvinnuleysi. fátækt og félags-
leg vandamál hafi aukist að miklum mun“. Salt sam-
stöðunnar hefur dofnað, hver étur úr sínum poka og
hugsar: öðruvísi getur þetta ekki verið.
Þetta er heldur dapurleg framvinda og eins gott að
rifja það upp í leiðinni, að ekkert er endanlegt og dagur
kemur eftir dag Margrétar Thatcher og hennar líka.
ÁB
KLIPPT OG SKORIÐ
SA um Brynjolf
Stafirnir sem féllu niður undir
Klippt og skorið í stóra laugar-
dagsblaðinu, sem tileinkað var 1.
maí, voru SA. Þetta er tekið fram
vegna þess að meðal efnis var
mjög persónuleg hugleiðing um
Brynjólf Bjarnason sem átti ekki
að vera nafnlaus.
„Tímamót í
safnaðarstarfi“
Þannig hljóðaði fyrirsögn í
þessu blaði í gær. Þar var sagt frá
því hvemig Isfirðingar settu nið-
ur deilur um hvar kirkja þeirra
ætti að standa með almennri at-
kvæðagreiðslu. Einföld og þó
óbrigðul aðferð til að komast að
f»ví hvað fólk vill. Bæjarstjóm
safjarðar ætti að bjóða borgar-
stjóranum í Reykjavík í heim-
sókn og kenna honum þessar ein-
földu leikreglur lýðræðisins, þó
að því miður sé um seinan að
spyrja borgarbúa hvort þeir vilji
fá ráðhús f grískum stfl ofan f
Tjömina með gömlu bámjáms-
húsin í baksýn. Ef til vill tekst
honum að læra þessar reglur áður
en hann hefst handa við að reisa
fleiri minnismerki sjálfum sér til
dýrðar.
Lifi strætó!
Nú er komið langþráð sumar
eftir langan og strangan vetur.
Eins og allir vita hefur færð verið
erfið um mestallt land og erfiðari
en eðlilegt má telja á höfuðborg-
arsvæðinu. En þrátt fyrir illviðri,
snjóþyngsli og heimsku fólksins á
sumardekkjunum hafa strætis-
vagnar á svæðinu staðið sig ákaf-
lega vel. Bflstjórum tókst ótrú-
lega vel að halda áætlanir við hin-
ar hatrömmustu aðstæður og
sýndu langlundargeð langt um-
fram það sem þeim er greitt fyrir.
Þeim sé þökk.
Verkefni fyrir
málræktarráðunaut
Þyri Árnadóttir kennari skrifar
grein um kjör og kröfur kennara í
Alþýðublaðið 29. apríl. Klippara
féllust alveg hendur við að lesa
aðfaraorð greinarinnar og fannst
í fljótu bragði engin ástæða til að
bæta kjör kennara sem skrifaði
jafnvoðalegan texta og þennan:
„í dag fær kennari á byrjenda-
launum 1600 lítra minna af mjólk
fyrir mánaðarkaupið sitt en 1973,
800 lítra minna af bensíni og
greiðir helminginn í húsaleigu í
stað einn fimmta."
Það kemur þó í ljós þegar
greinin er lesin að Þyri kemst
prýðilega að orði um hvaðeina og
veit í hvaða föllum orðin eiga að
standa. Inngangurinn er eftir ein-
hvem annan sem hefði ekki átt að
koma nærri greininni. Þyri hefur
mál sitt á þessa leið:
„Undirrituð hóf störf sem
grunnskólakennari í Reykjavík í
september árið 1973, með kenn-
arapróf og 2ja ára nám frá kenn-
araháskóia eriendis að baki.
Mánaðarlaun mín vom þá rétt
tæp 50 þúsund gamlar krónur.
Laun tæknifræðings á al-
mennum markaði vom þau
sömu.
í sept. 1973 greiddi ég 10 þús.
kr. í leigu fyrir góða 3ja herbergja
íbúð á almennum leigumarkaði í
Reykjavík, mjólkurlítrinn kost-
aði um 20 kr., bensínið 23 kr.
Fyrir mánaðarkaupið fengust
því 25001 af mjólk, 21741 af bens-
íni og húsaleigan var 1/5 af mán-
aðarlaununum.
Nú í apríl 1989 fær byrjandi í
HÍK 58.932 kr. í mánaðarlaun.
Fyrir þá upphæð fást 990 1 af
mjólk, 1600 færri en 1973, 1345 1
af bensíni, eða 8ÓÓ færri en 1973
og telia má vel sloppið ef helm-
ingur launanna dugar fyrir leigu á
3ja herbergja íbúð.
Til þess að fá sama hlutfall milli
kostnaðar á húsaleigu, mjólk og -
bensíni og fyrir 15 árum, reiknast
mér svo til að byrjendalaunin nú
þyrftu að vera a.m.k. 130 þús.“
Og hún bætir við að eftir öll
þessi ár í starfi séu laun hennar
71.016 kr. á mánuði en tækni-
fræðingurinn á almennum mark-
aði sem hóf störf um leið og hún
hefur nú í laun 122.379 kr.
Skyldu störf hans vera til meiri
þjóðþrifa?
Tékkar sjá rautt
í klippt og skorið í The Financi-
al Times í vikunni sem leið er
þessi klausa:
„Sjónvarpið í Ungverjalandi er
áfjáð í að nota nýfengið frelsi til
að endurmeta söguna og hefur nú
tekist að láta Tékka sjá rautt út af
viðtali við Alexander Dubcek,
fyrrum leiðtoga landsins sem
dæmdur var til gleymsku fyrir
þátt sinn í Vorinu í Prag.
Ungverski dagskrárgerðar-
maðurinn Andras Sugar tók við-
talið við Dubcek fyrir þáttaröð
um framtíð Austur-Evrópu og
kommúnismans, og komst að því
sér til furðu að Dubcek var fús til
að tala opinskátt um það sem
gerðist 1968. Hann lét í Ijósi óá-
nægju sína með ungverska
leiðtogann Janos Kadar sem ekki
studdi hann í andófinu gegn
innrás Sovétmanna. „Ég viður-
kenni hryggur í bragði að ég von-
aðist til að Kadar myndi mót-
mæla innrásinni áður en yfir lyki
eða að Gomúlka (fyrrum leiðtogi
Pólverja) fyndi styrk til þess með
sjálfum sér. Mér finnst að Kadar
og Gomúlka hefðu átt að gera allt
sem í þeirra valdi stóð til að koma
í veg fyrir innrásina. Þeir voru
hinir einu sem hefðu getað það.“
Ekki var fyrr búið að sjónvarpa
viðtalinu en ásakanir bárust frá
utanríkisráðuneyti Tékka um að
Ungverjar væru að hlutast til um
innanríicismál Tékkóslóvakíu og
kröfðust þess að ekki yrði sent út
meira af svo góðu. Sugar svaraði
með grein í blaðinu Uj Szo sem
kemur út á ungversku í Slóvakíu:
„Núverandi stjórn Tékkóslóvak-
íu segir að innrásin 1968 hafi ver-
ið réttmæt þó að lögleg ríkis-
stjórn landsins, þáverandi stjórn
Kommúnistaflokksins og tékk-
nesk alþýða hafi mótmælt henni.
En þó að sovésku skriðdrekunum
hafi verið heimilt að hlutast til um
tékknesk innanríkismál þá var
mér ekki liðið það. Kannski
mega bara skriðdrekar hlutast til
um innanríkismál Tékka og vandi
minn sá einn að ég á engan skrið-
dreka...“ Þetta gefur til kynna að
Ungverjar ætli sér að halda áfram
þáttaröðinni eins og ekkert hafi í
skorist.“
SA
Þjóðviljinn
Síðumúla 6-108 Reykjavík
Sími 681333
Kvöldsími 681348
Utgefandl: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Rltstjórar: Ámi Bergmann, Mörður Ámason, SiljaAðalsteinsdóttir.
Fréttastjóri: Lúðvík Geirsson.
Aðrirblaðamann: DagurÞorleifsson, ElíasMar (pr.), Elísabet
Brekkan, Guðmundur Rúnar Heiðarsson, Hildur Finnsdóttir (pr.), Jim
Smart (Ijósm.), Kristófer Svavarsson, Ólafur Gíslason, Páll
Hannesson, Siguröur Á. Friðþjófsson (umsjm. Nýs Helgarblaös), Þor-
finnurómarsson (íþr.), Þröstur Haraldsson.
Framkvœmdastjórl: Hallur Páll Jónsson.
Skrif atofuatjóri: Jóhanna Leópoldsdóttir.
Skrifstofa: Guðrún Geirsdóttir, Kristín Pótursdóttir.
Auglýsingastjóri: Olga Clausen.
Auglýsingar: Guðmunda Kristinsdóttir, Unnur
Ágústsdóttir.
* Sfmavarsla: Sigrfður Kristjánsdóttir, Þorgerður Sigurðardóttir.
: Bflstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Húsmóðir: Erla Lárusdóttir
Útbrelðslu- og afgreiðalustjóri: Bjöm Ingi Rafnsson.
Afgreiðsla: Halla Pálsdóttir, Hrefna Magnúsdóttir.
Innheimtumaður: Katrín Bárðardóttir.
Útkeyrsla, afgreiðsla, rltatjóm:
Síðumúla 6, Reykjavík, símar: 681333 & 681663.
Auglýaingar: Siðumúla 6, símar 681331 og 681310.
Umbrotog aetning: Prentsmiöja Þjóðviljanshf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lauaasölu: 80 kr.
Nýtt Helgarblað: 110 kr.
Áakrtftarverð á mánuði: 900 kr.
6 SfÐA - ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 4. maí 1989