Þjóðviljinn - 17.05.1989, Blaðsíða 16
Steingrímur Sigurðsson
listmálari:
Já, æði mikið. Ég var að koma að
norðan og það voru ekki komnar
leysingar, allt í fannfergi. Til-
breytingin gleður. Mín vorverk
eru skriftir um þessar mundir, þó
ekki í kaþólskum skilningi.
Sigurbjörn Friðriksson
heildsali:
Já, ég er að fara að bera á tún og
leigja mér traktor.
Guðlaugur Jónsson
hárgreiðslumeistari:
Ég er ekki með neinn garð.
Ólafur Hannibalsson
blaðamaður:
Nei, eru til einhver sérstök vor-
verk núna á miðjum vetri?
Gyða Kristína Hrafnsdóttir
sjúkraliði:
Nei, ég er ekki byrjuð að fást við
nein vorverk. Ég fer mikið i
göngutúra úti í náttúrunni.
—SPURNINGIN—
Ertu farinn að huga að
vorverkum?
þlÓÐVIUINN
Mlðvikudagur 17. maf 1989 88. tölublað 54. örgangur
SÍMI 681333
Á KVÖLDIN
ÁLAUGARDÖGUM
681663
Fréttamannafundur Ingvars og Steingríms
Hressir og samlyndir forsætis-
ráðherrar á blaðamannafundin-
um í gær. Mynd Jim Smart.
Ingvar Carlsson, forsætisráð-
herra Svíþjóðar, sem staddur
er í opinberri heimsókn hér á
landi, hélt í gær ásamt Steingrími
Hermannssyni, forsætisráðherra
íslands, fund með fréttamönnum
í Ráðherrabústaðnum. Um
morguninn fyrir fréttamanna-
fundinn höfðu forsætisráðherr-
arnir haldið fund með embættis-
mönnum og rætt ýmis mál, þ. á
m. norrænt samstarf, samruna
Vestur-Evrópu, samskipti aust-
ur- og vesturblakkar og viðskipti
íslands og Svíþjóðar.
Carlsson sagði m.a. að ísland
og Svíþjóð væru á einu máli um
að stefna ekki að aðild að Evr-
ópubandalaginu, en að stuðla
hinsvegar að svo víðtæku sam-
starfi með því bandalagi og Frí-
verslunarbandalagi Evrópu
(EFTA) og mögulegt væri, sem
og að tryggja að það samstarf yrði
til frambúðar. í því sambandi
kæmi til greina að koma upp
stofnunum, sem bandalögin bæði
stæðu að.
Eins og kunnugt er hefur flogið
fyrir að sænska stjórnin væri ekki
með öllu sannfærð um, að íslend-
ingar réðu við það að hafa á hendi
formennskuna í EFTA. Aftók
Carlsson að nokkur minnsta hæfa
væri fyrir þessu, þvert á móti bæri
sænska stjórnin fyllsta traust til
íslendinga þessu viðvíkjandi.
Hefði einhver sænskur embættis-
maður orðað slíkar efasemdir við
mig, sagði Carlsson, hefði það
ekki orðið frama þess hins sama
til framdráttar. Steingrímur bætti
því við að íslendingar hefðu eftir-
minnilega sannað hæfni sína í al-
þjóðasamskiptum á háu plani er
þeir hefðu á tíu dögum skipulagt
ráðstefnu þeirra Gorbatsjovs og
Reagans í Höfða.
Carlsson lagði enn frekar
áherslu á, að hann væri
sannfærður um að íslendingar
þyrftu engrar hjálpar við til að
leiða EFTA, en á hinn bóginn
væri mikið að gerast á þeim vett-
vangi og því nauðsyn á nánu sam-
starfi milli aðildarríkjanna. Ekki
myndi með því draga úr mikil-
vægi norrænnar samvinnu, held-
ur þvert á móti. Leiðtogar
Norðurlandaríkja myndu standa
í stöðugu sambandi sín á milli
vegna aðildar sinnar að EFTA og
samskipta þess við EB og aðra
aðila.
Hvalamálið kom til tals og
kvað Steingrímur íslendingum
umhugað um jafnvægi í náttúr-
unni, og ætti það jafnt við um
hvali sem fiska og annað sem lifði
í sjó. Hefðu fslendingar ætíð gætt
þess að veiða ekki hvali af þeim
tegundum, sem ætla mætti að
væru í einhverri útrýmingar-
hættu. Carlsson kvaðst ekkert
hafa á móti hvalveiðum sem slík-
um, en nauðsynlegt væri að fylgj-
ast með hversu hvalastofnunum
vegnaði og gaf í skyn að hann
teldi íslendingum vel til þess
treystandi.
Minnst var á viðskipti íslands
og Svíþjóðar, en þau standa
þannig að ísland flytur miklu
meira inn frá Svíþjóð en Svíþjóð
frá íslandi. Kvaðst Carlsson
gjarnan vilja aukinn íslenskan
innflutning til Svíþjóðar.
dþ.
Ekkert ,vantraust
í garð Islendinga
Nauðsyn á nánu samstarfi EFTA-ríkja viðvíkjandi samskiptum við Evrópubandalagið
Með því að gefa loforðin 1985 og 1987 þá
náðust samningar og svo voru loforðin svikin. \
Nú er ekki búið að ná neinum samningum og
bar af leiðandi hafa engin loforð verið svikin.
Ég verð bara að segja það: Stundum skil ég_
hreinlega ekki hvað blaðamenn geta spurt
heimskulega! //rv 5
y1-
X