Þjóðviljinn - 01.06.1989, Qupperneq 2
Magnúsarmál
Þagnargildi
um heimild
Borgardómur úrskurðaði í gær
að fréttamanni útvarps bæri ekki
að gefa upp hver væri heimildar-
maður að frétt Ríkisútvarpsins
um áfengiskaup Magnúsar Thor-
oddsens fyrrverandi forseta
Hæstaréttar.
Lögmaður Magnúsar, Jón
Steinar Gunnlaugsson, óskaði
eftir úrskurði dómsins eftir að
fréttamaður útvarps, Arnar Páll
Hauksson, neitaði að gefa upp
heimild sína fyrir fréttinni. Jón
Steinar lýsti því yfir að hann
myndi ekki áfrýja úrskurðinum
til Hæstaréttar, því slíkt myndi
tefja mjög fyrir framgangi máls-
ins, þar eð endurskipa yrði Hæst-
arétt. -Ig.
FRETTIR
Heimavarnarliðið
Þjóðleg andspyma æfð
Sjálfsprottin hreyfingþjóðlegra andspyrnuafla gegn yfirgangi erlends
hers á íslandi boðar til œfinga seinni hluta júnímánaðar á sama tíma og
Bandaríkjaher heldur herœfingar sínar. Soffía Sigurðardóttir: Okkur
að mæta ef herinn æfir utan girðingar
arkmiðið með þessum að-
gerðum er að sporna við
þeirri gegndarlausu hernaðar-
uppbyggingu sem hér fer fram og
sem aldrei hefur verið meiri en
einmitt núna. Jafnframt er hér
um ákveðna stefnubreytingu að
ræða í baráttu herstöðvaand-
stæðinga sem felst í því að nú
beinum við spjótunum beint gegn
hernum í stað þess að leggja höf-
uðáherslu á að vekja athygli al-
mennings á þessu ófremdar-
ástandi og mótmæla afstöðu
stjórnvalda. Þá er það á hreinu að
ef herinn ætlar sér að æfa fyrir
utan þau svæði sem honum eru
merkt, þá er okkur að mæta,
sagði Soffía SigurÖardóttir hjá
Heimavarnarliðinu.
Heimavarnarliðiö, sem er
sjálfsprottin hreyfing þjóðlegra
andspyrnuafla gegn yfirgangi er-
s,rpU^USAN m,nisters i
hCE DES MINISTRES EUROPÉE
for sport
LES DU SPC
Svavar Gestsson stýrir fundi íþróttamálaráðherra Evrópuráðsins á Kjarvalsstöðum. Mynd: Þóm.
Iþróttir
Ráðheirafundurinn hafinn
Fulltrúar 29 landa þinga á Kjarvalsstöðum
r
Igær hófst á Kjarvalsstöðum
fundur íþróttamálaráðherra
aðildarríkja Evrópuráðsins.
Fundinn sækja fulltrúar allra
ríkjanna, þar af 17 ráðherrar,
auk fulltrúa Póllands og Ung-
verjalands sem ekki eru í Evrópu-
ráðinu.
1 gær var ma. rætt um efnahags-
legt mikilvægi íþrótta og sérstöðu
smáþjóða í þeim efnum. Þá verð-
ur á fundinum rætt um aðgerðir
varðandi ofbeldi á kappleikjum,
sérstakan sáttmála um lyfjanotk-
un íþróttamanna og önnur mál
sem efst eru á baugi á íþróttasvið-
inu.
Svavar Gestsson er ráðherra
íþróttamála hér á landi, en al-
gengt er að menningarmálaráð-
herra fari einnig með íþróttamál-
in. Svavar er fundarstjóri á Kjar-
valsstöðum en ásamt honum hafa
Reynir G. Karlsson og Erlendur
Kristjánsson annast undirbúning
fundarins í samvinnu við utan-
ríkisráðuneytið og Evrópuráðið.
-þóm
lends hers á íslandi, hefur boðað
til námskeiðs til að æfa and-
spyrnu gegn bandaríska hernum
hér á landi. Þegar er fólk farið að
skrá sig til þátttöku og er búist við
miklu fjölmenni. Þó er hætt við
að færri komist að en vilja því
takmarkaður fjöldi kemst á
hverja æfingu. Þá kemur Dagfari
út á næstunni í 10 þúsund ein-
tökum og verður blaðinu dreift í
sem flest hús á landinu.
Æfingarnar verða seinni part-
inn í júní og byrja með mótmæl-
aaðgerðum þann 17. og 20. júní,
sama dag og Bandaríkjaher byrj-
ar sínar heræfingar, mun Heima-
varnarliðið mótmæla þeim sem
næst vettvangi og þann 4. júlí, á
þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna,
lýkur mótmælunum með blaða-
mannafundi.
Æfingar Heimavarnarliðsins
verða ma. á ströndinni milli
Stafness og Hafna og verður þá
látið reyna á umgengnisrétt og
stöðu íslenskra náttúruverndar-
laga gegn bandarískum her-
lögum. Einnig verður kannaður
ýmis herbúnaður við ströndina
td. ratsjárstöð og SOSUS - stöð.
Ennfremur verða lýsingar og kort
af varnarsvæðum bornar saman
við girðingar hersins.
Æfingar verða einnig í Helgu-
vík, umhverfis Rockville og rat-
sjárstöðina H -1. Þá verður hern-
aðarskrani safnað í hauga og
fylgst verður með viðbrögðum
hermanna og vallarlögreglu við
þessum þrifnaðaraðgerðum og
við umferð við girðingar. Ein æf-
ing verður við girðingar setuliðs-
ins kringum austurhluta her-
stöðvarinnar á Miðnesheiði frá
Höfnum að Grænási. Skoðaðar
verða orkuveituæðar inn til
stöðvarinnar, girðingar, horn-
staurar, vegir og hlið. Einnig
verður æft við Grindavík. Staðs-
etningar og hlutverk fjarskipta-
stöðva verða athugaðar og fyrir-
huguð varastjórnstöð hersins
skoðuð.
-grh
Það er nóg að gera þessa dagana við flokkun á tómötum hjá Sölufé-
lagi garðyrkjumanna.
Tómatar lækka í verði
Á sama tíma og flestar landbúnaðarvörur hækka allverulega, lækka
tómatar í verði. Hér er um ársbundna niðursveiflu í verði að ræða, þar
sem mest framboð er af tómötum á þessum tíma. Frá því í aprfl hefur
hvert kg af tómötum lækkað í heilsölu úr 410 kr. í 149 kr. eða um 64%.
Samkvæmt upplýsingum frá Sölufélagi garðyrkjumanna eru góðar
horfur um uppskeru í sumar og jafnvel búist við að hún verði meiri en í
fyrrasumar.
5. þing KÍ
hefst í dag
Fulltrúaþing Kennarasambands
íslands, það fimmta í röðinni,
hefst í dag og stendur fram á laug-
ardag. Þingið munu sitja um 170
fulltrúar en aðalumræðuefni
þingsins að þessu sinni eru kjara-
mál og kjarabarátta, endur-
skoðun á skólastefnu sambands-
ins, samstarf Kf og HÍK auk um-
ræðna um skólamál, skólaþróun,
sérkennslu og fleiri mál. Um 3500
félagar eru í KÍ, en fulltrúaþing
sambandsins er haldið annað
hvert ár. Núverandi formaður KÍ
er Svanhildur Kaaber.
Opið svæði fyrir
utilistaverk
Borgarfulltrúar Alþýðubanda-
lagsins hafa lagt til að menning-
armálanefnd borgarinnar verði
falið að koma upp svæði eða
svæðum fyrir sýningar á útilista-
verkum í höfuðborginni, þar sem
listamönnum bjóðist að sýna
verk sína tímabundið. Gerir til-
lagan ráð fyrir að leitað verði eftir
samvinnu við Myndhöggvarafé-
lag Reykjavíkur um val á svæði
og tilhögun sýninga. Tillagan
verður tekin til afgreiðslu á fundi
borgarstjórnar í dag.
Þórbergs
skjöldur
í dag kl. 11 árdegis verður af-
hjúpaður minningarskjöldur um
Þórberg Þórðarson. Athöfnin
verður við Hringbraut 45 í
Reykjavík þar sem skáldið bjó
lengstum. Það er Félag áhuga-
manna um bókmenntir sem
stendur fyrir uppsetningu skjald-
arins.
Hreinsað
í Firðinum
Gaflarar ætla að taka til hendinni
í næstu viku en þá fer fram árleg
hreinsunarvika í Firðinum.
Starfslið Vinnuskólans mun að
venju vera bæjarbúum innan
handar og fjarlægja allt rusl, en
takmarkið er hreinn bær fyrir há-
tíðahöldin 17. júní.
Hafskipskærur
halda
Hæstiréttur hefur synjað kröfum
11 forsvarsmanna Hafskips og
Útvegsbankans um að ákærum
sérskipaðs saksóknara í málinu
verði vísað frá dómi. Áður hafði
Sakadómur Reykjavíkur komist
að sömu niðurstöðu. Málið verð-
ur því tekið upp að nýju þar sem
frá var horfið í Sakadómi, en
ákveðið hefur verið að vitna-
leiðslur og dómsrannsókn hefjist
í haust að loknu réttarhléi.
Rætt um veiru-
sykingu í heila
f dag hefst í Reykjavík alþjóðleg
ráðstefna þar sem fjallað verður
um veirur og mannsheilann, en
ráðstefna þessi er haldin á vegum
norrænna taugameinafræðinga.
Alls sitja um 160 ráðstefnuna frá
16 löndum. Meginumfjöllunar-
efni eru veirusýkingar og hvernig
nota má veirur í tilraunum til að
kanna þróun og gerð heilans og
einnig verður sérstaklega fjallað
um svonefndar retroveirur en til
þeirra teljast m.a. eyðniveiran og
visnuveiran.
Sumaráætlun
hjá SVR
Að venju gengur sumaráætlun
Strætisvagnar Reykjavíkur í gildi
í dag 1. júní. Helstu breytingar
eru þær að vagnar á leiðum 2-12
aka nú á 20 mínútna fresti frá 7 til
19 en akstur á kvöldin verður
óbreyttur og vagnar á leiðum 13
og 14 aka á 60 mínútna fresti
kvöld og helgar en akstur þeirra á
öðrum tímum verður óbreyttur.
Áskriftarverð
hækkar
Frá og með 1. júní hækkar á-
skriftarverð Þjóðviljans og verð-
ur kr. 1.000.
Verð Þjóðviljans í lausasölu
verður kr. 90. Verð Nýs helgar-
blaðs í lausasölu verður kr. 140.
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 1. júní 1989