Þjóðviljinn - 29.06.1989, Qupperneq 1
Fimmtudagur 29. júní 1989 113. tölublað 54. árgangur
Hagvirki
Lífeyrisiðgjöld í vanskilum
30 miljóna skuld við lífeyrissjóðifjögurra stéttarfélaga. Lífeyrissjóðsgreiðslur í vanskilum allt að hálft annað ár aftur.
Stéttarfélög hóta innheimtuaðgerðum. Hagvirki daufheyristþráttfyrir frest
Hagvirki skuldar lífeyrissjóð-
um tugi miljóna króna auk
þess sem fyrirtækið skuldar
verkalýðsfélögum félagsgjöld og
gjöld í sjúkra- og orlofssjóði.
Þessar skuldir ná allt að einu og
hálfu ári aftur í tímann. Samtals
skuldar fyrirtækið um 30 miljón-
ir króna í lífeyrissjóði fjögurra
verkalýðsfélaga í Reykjavík og
Hafnarfírði og er Þjóðviljanum
kunnugt um að þessi félög hafi
komið saman í þessari viku til
skrafs og ráðagerða og kanna
hvort rétt sé að fara í sameigin-
legar innheimtuaðgerðir.
Hjá Félagi byggingariðnaðar-
manna í Hafnarfirði fengust þær
upplýsingar að Hagvirki skuldaði
félaginu öll opinber gjöld frá síð-
Þegar sólin skín kætast ungir sem gamlir og komast í sólarskap. vætutíðar. Annað gat ekki glöggt „smartaugað" greint í miðbæ
Blómarósir gerast léttklæddar og ungir sveinar varpa af sér drunga Reykjavíkur í gær. Ljósm.: Jim Smart.
Tekjukóngar ríkisins
303 miljónir til 100 manna
Arslaun 100 einstaklinga hjá ríkijafngilda árslaunum 550
„sóknarkvenna“. Hópinn fyllaháembœttismenn úrstjórnsýslu, lœknar
og einstaka stjórnmálamaður
Samkvæmt upplýsingum fjár-
málaráðuneytisins þágu
hundrað tekjuhæstu einstak-
lingar í störfum hjá ríkinu á síð-
asta ári í laun um 303 miljónir
króna. Það jafngildir því að hver
um sig hafí haft rúmar þrjár milj-
ónir í árslaun, eða ríflega þreföld
laun miðlungs aflamanns í kenn-
arastétt og um fímmföld laun
,rsóknarkonu“.
Flokk þeirra tekjuhæstu fylla
forsvarsmenn opinberra fyrir-
tækja, embættismenn úr
stjórnsýslukerfi, læknar, ein-
staka stjórnmálamaður, einn
framhaldsskólakennari og að-
stoðarskólameistari og forseti
lýðveldisins.
Að meðaltali höfðu sex skrif-
stofustjórar í þjónustu ríkisins
hæst árslaun eða ríflega þrjár og
hálfa miljón króna að meðaltali
hver. Aðrir sem fylla flokk þeirra
sem höfðu meira en þrjár miljón-
ir að meðaltali er einn framhalds-
skólakennari, tveir sendiherrar,
sjö ráðuneytisstjórar, efna-
hagsráðgjafi síðustu ríkisstjórn-
ar, tveir prófessorar, sjö yfir-
læknar sem einnig eru prófessor-
ar, tíu yfirlæknar, 16 sjúkrahús -
læknar, 20 yfirmenn ríkisstofn-
ana, 15 flugumferðarstjórar,
flugstjórar og flugvirkjar, fjórir
yfirverkfræðingar eða tæknifræð-
ingar og fimm yfirmenn löggæslu
og dómarar.
Fjórir einstaklingar ná ekki að
fylla þriggja miljón króna flokk-
inn, en það er forseti fslands, þá-
verandi forsætisráðherra, alþing-
ismaður sem einnig er hgskóla-
kennari og aiðstoðarskólameist -
ari. Þessir allir eru með ár-
stekjur á síðasfa ári rétt innan við
þrjár miljónir.
Athygli ber að vekja á því að
hér er um meðaltalstölur að ræða
fyrir hvern flokk starfsheita,
þannig að laun einstaklinga innan
hvers flokks um sig geta verið
mismunandi, - hærri eða lægri.
Þá er rétt að ítreka að inn í árs-
launum lækna eru teknar með
greiðslur frá Tryggingastofnun,
en þær eru reiknaðar til helminga
sem laun og kostnaður.
Til marks um stærðargráðu
þessara launagreiðslna til tekju-
kónga ríkisins má geta þess að
launagreiðslurnar í heild eru tæp-
lega þrisvar sinnum hærri en
framlög ríkissjóðs samkvæmt
fjárlögum síðasta árs til samans
til Þjóðminjasafnsins, Sinfóníu-
hljómsveitarinnar, Landsbóka-
safnsins, Vísindasjóðs og Menn-
ingarsjóðs, um helmingi hærri
heldur en framlög til Landgræðsl-
unnar og Skógræktarinnar og
sama upphæð og Framkvæmda-
sjóður lánaði til fiskeldis á síðasta
ári.
-rk
ustu áramótum. 13. júní sl. sendi
félagið fyrirtækinu bréf þar sem
krafist var greiðslu á þessum
skuldum fyrir 21. þessa mánaðar,
ella yrði farið með skuldina í inn-
heimtu. Enn hefur ekkert svar
borist frá Hagvirki þó rúm vika sé
síðan fresturinn rann út.
„Ég lýsi furðu minni á þeirri
óráðsíu sem virðist ríkja í fyrir-
tækinu hvað varðar skil á
greiðslum sem Hagvirki hefur
tekið af sínu starfsfólki," sagði
Gretar Þorleifsson, formaður Fé-
lags byggingariðnaðarmanna í
Hafnarfirði.
Grétar sagði að fyrirtækið
hefði alltaf trassað að standa skil
af gjöldum til félagsins og sagði
það nær einsdæmi af fyrirtæki af
þessari stærðargráðu.
„Svona framkoma varðar við
refsilöggjöf því þetta er hreinn og
klár þjófnaður þar sem hér er um
að ræða fé starfsfólksins og því
gjörsamlega ótæk framkoma,"
sagði Grétar.
Grétar Þorsteinsson, formaður
Trésmiðafélags Reykjavíkur
staðfesti í samtali við Þjóðviljann
að ekki væri allt með felldu varð-
andi skil Hagvirkis á greiðslum á
lögboðnum gjöldum til félagsins.
„Þessi mál mættu vera í betra á -
sigkomulagi hvað Hagvirki varðar
og reyndar fleiri. Eg get aðeins
sagt það að málið er ekki enn
komið í hendur á lögfræðingum,“
sagði Gretar, en um 40 félags-
menn TR vinna hjá Hagvirki.
-rk/sáf
Fornleifar
Fundinn
írski
bmnnur
í gær fann eldri maður, upp
alinn á Hellissandi, Sæmundur
Magnússon, svonefndan írska
brunn, sem menn höfðu sagnir
um að væri í landi Gufuskála.
Eldra fólk taldi sig muna eftir
þessum týnda brunni og sextán
tröppum niður í hann og stórt
hvalbein yfir. Hans hefur oft ver-
ið leitað - meðal annars gerði sá
mæti fræðimaður Lúðvík Krist-
jánsson leit að honum - en án ár-
angurs.
En á þriðjudag gengur Sæ-
mundúr sem fyrr frá segir að stað
skammt vestur af gamla bæjar-
stæðinu á Gufuskála og segir:
Hér er írski brunnur! Gekk það
eftir - þegar farið var að grafa
ofan af fundu menn hvalbeinið.
Ýmis örnefni önnur tengd
írum eru þar um slóðir og hafa
þótt bera vitni fornri búsetu
Papa.