Þjóðviljinn - 04.07.1989, Síða 2
r
Ilok júlí verður haldinn hlut-
hafafundur í Alþýðubankanum
og má búast við að skoðanir full-
trúa verkalýðsfélaganna, sem
eiga hlut í bankanum, verði mjög
skiptar um kaup bankans á
hlutabréfum Útvegsbankans og
samruna í einn stóran einka-
banka meðIðnaðarbankanum og
Verslunarbankanum.
Skoðanir eru mjög skiptar
innan verkalýðshreyfingarinnar
og sýnist sitt hverjum. Jón Agnar
Eggertsson, formaður Verka-
lýðsfélagsins í Borgarnesi, sagði
að ekki hefði verið fjallað sér-
staklega um þetta mál innan fél-
agsins þar en sjálfur teldi hann
það rétta stefnu að sameina
banka og gera þannig bankakerf-
ið einfaldara og skilvirkara.
„Hinsvegar má eflaust deila
um það hvort rétt hafi verið að
sameinast þessum bönkum en
ekki Samvinnubankanum ef það
hefði staðið til boða,“ sagði Jón
Agnar.
Verkalýðsfélagi Borgarfjarðar
var gefinn kostur á að auka hlut
sinn í Alþýðubankanum einsog
öðrum verkalýðsfélögum en fé-
lagið hefur ekki enn gert upp hug
sinn til þess, enda stendur félagið
í húsakaupum um þessar mundir.
Snær Karlsson, formaður
Verkalýðsfélags Húsavíkur,
sagði að menn þar á bæ mæltu
með því að Alþýðubankinn tæki
þátt í þessum kaupum. „Það
skiptir ekki höfuðmáli hvað
bankinn heitir. Banki er banki.
Því er svo ósvarað hver hlutur
verkalýðshreyfingarinnar verður
í þessum nýja banka. hann verð-
ur eflaust minni en innan Alþýð-
ubankans. Hitt er svo annað mál
að ef Alþýðubankinn hefði setið
eftir einsog lítill sparisjóður hefði
hann aldrei getað orðið öflugt
tæki fyrir verkalýðshreyfing-
una.“
Sigurður T. Sigurðsson, for-
maður Hlífar í Hafnarfirði, sagði
að farið hefði verið fram á það við
Hlíf að félagið yki hlut sinn í
bankanum en við því hefði það
ekki orðið. Að öðru leyti vildi
hann ekki tjá sig um bankasam-
eininguna.
Björn Grétar Sveinsson, for-
maður verkalýðsfélagsins Jökuls
á Höfn í Homafirði, hefur lýst
yfir andstöðu sinni við hlutdeild
Alþýðubankans í nýja einka-
bankanum. „Ég er enn þann dag í
dag jafn langt frá því að skilja
þetta og áður. Það hlýtar að hafa
Benedikt Bogason
látinn
Benedikt Bogason, þingmaður
Borgaraflokksins, er látinn eftir
hörð og langvinn veikindi, 56 ára
að aldri. Benedikt tók sæti á þingi
í apríl sl. í stað Alberts Guð-
mundssonar. Benedikt lauk
verkfræðiprófi 1961 frá T.H. í
Helsinki og starfaði lengstum
sem verkfræðingur eða að
skyldum störfum. Síðast starfaði
Benedikt sem fulltrúi forstjóra
Byggðastofnunar. Benedikt varð
varaformaður Borgaraflokksins í
Reykjavík í síðustu kosningum.
FRÉTTIR
Bankasameiningin
sýnist hverjum
Eiga þeir samleið? Brynjólfur Bjamason, framkvæmdastjóri Granda
og formaður bankaráðs Iðnaðarbankans, og Jón Sigurðsson
dómsmálaráðherra takast í hendur að lokinni undirskrift kaupsamn-
ings Alþýðu-, Iðnaðar- og Verslunarbankans á Útvegsbankanum.
Álengdar standa kampakátir Ásmundur Stefánsson, formaður banka-
ráðs Alþýðubankans og Gís'i V. Einarsson, formaður bankaráðs
Verslunarbankans. Mynd: Jim Smart.
átt sér stað grundvallar hugar-
fars- og stefnubreyting hjá Al-
þýðubankanum fyrir hönd ís-
lenskra verkamanna. Eftir þetta
get ég ekki séð að það sé til neinn
banki launafólks í landinu. Ef Al-
þýðubankinn væri banki launa-
fólks þá hefði hann átt að sýna
þann dug að kaupa hlut Sam-
bandsins í Samvinnubankanum
og vinna þannig að sameiningu
banka.“
Þá sagðist Björn Grétar eiga
bágt með að trúa því að almenn-
ingur myndi ekki láta heyra í sér
ef fara ætti að nota þá peninga
almennings sem geymdir eru í líf-
eyrissjóðunum til þess að kaupa
hlut í banka, en rætt hefur verið
um það að breyta reglugerðum
lífeyrissjóðanna þannig að þeir
megi fjárfesta 5% af ráðstöfunar-
fé sínu í fyrirtækjum.
Hrafn Magnússon hjá Sam-
bandi almennra lífeyrissjóða
sagði að lögum SAL sjóðanna
hefði verið breytt í júlí í fyrra
þannig að sjóðunum væri leyfi-
iegt að fjárfesta 5% af ráðstöfun-
arfé sínu í fyrirtækjum sem væru
skráð hjá Verðbréfaþinginu.
Sjóðirnir mættu þó ekki eiga
meira en 5% í hverju fyrirtæki.
Að sögn Hrafns þarf svo hver
sjóður að breyta reglugerð sinni
til að sjóðunum sé heimilt að fjár-
festa í fyrirtækjum.
Ásmundur Stefánsson, forseti
ASÍ, fór til Vestmannaeyja sl.
föstudag og ræddi við formenn
verkalýðsfélaganna þar, en Eyja-
menn hafa gagnrýnt þessa banka-
sameiningu.
„Menn eru ekki tilbúnir að
gleypa þetta svona hrátt. Okkur
finnst svolítið einkennilegt að
það eigi að teygja sig í sjóði félag-
anna og lífeyrissjóðanna til þess
að fjármagna þessi kaup. Ég ótt-
ast að þessi sameining verði okk-
ur í Eyjum ekki til hagsbóta,“
sagði Elías Bjömsson, formaður
Sjómannafélagsins Jötuns, við
Þjóðviljann í gær.
-Sáf
Jafnréttisráð
Aldrei fleiri kærur
Jafnréttisráð afgreiddi 6 kærur
á síðasta ári vegna meintra
brota á jafnréttislögum við stöðu-
veitingar bjá hinu opinbera. í
einu tilviki var ákveðið að höfða
mál fyrir dómstólum. í fjórum til-
fellum komst jafnréttisráð að
þeirri niðurstöðu að ekki væri um
brot á jafnréttislögum að ræða en
í tveimur tilfellum var niðurstað-
an sú að stöðuveitingin bryti í
bága við lög. Þar er annars vegar
um að ræða ráðningu i stöðu
þjóðgarðsvarðar í Skaftafelli og
hins vegar ráðningu sparisjóðs-
stjóra þjá Sparisjóði Norðfjarð-
ar. Jafnréttisráð hefur nú höfðað
mál á hendur Sparisjóðnum í
Neskaupstað.
Fyrir utan kæmr vegna stöðu-
veitinga fjallaði jafnréttisráð um
nokkur tilvik sem vörðuðu efni
auglýsinga.
- Þær kærur eða ábendingar
sem okkur berast era aðallega
auglýsingar sem unnar era af öðr-
um en fagfólki í auglýsingaiðnaði
eða eru hluti af því auglýsingaefni
sem umboðsmönnum hérlendis
berst að utan en það kemur varla
fyrir nú orðið að auglýsingastofur
Allt að 42% verðmunur var á
dýrustu og ódýrustu inn-
kaupakörfu innan sömu verslun-
ar í nýafstaðinni könnun Verð-
lagsstofnunar.
Verðlagsstofnun hafði þann
hátt á í þessari könnun, sem gerð
var í maílok, að áætla þriggja
daga neyslu vísitölufjölskyldunn-
ar á ýmsum algengum vöruteg-
eða annað atvinnufólk í þessu
fagi fari út fyrir þau mörk sem
sett eru í jafnréttislögunum og
siðareglum SÍA, sagði Stefanía
Traustadóttir hjá Jafnréttisráði.
•Þ
undum, mat-, snyrti- og hreinlæt-
isvörum eða 45 alls. Niðurstaðan
bendir til þess að fólk geti með
útsjónar- og eftirtektarsemi spar-
að sér all nokkur fjárútlát. Engu
að síður er rétt að hafa hugfast að
í „könnuninni var litið framhjá
hugsanlegum gæðamun...,“ eins-
og bent er á í fréttatilkynningu
Verðlagsstofnunar.
ks
Innkaup
42% verðmunur
Benedikt lætur eftir sig eiginkonu
og tvö uppkomin börn. Ásgeir
Hannes Eiríksson verslunarmað-
ur mun fylla sæti Benedikts á
þingi í vetur.
Eldsvoði
í minkabúi
Stórtjón varð í eldsvoða í
minkabúi að Miðengi í Austur-
Skaftafellssýslu sl. fimmtudags-
kvöld. Mikill fjöldi dýra kafnaði
vegna reykeitrunar og enn eru
dýr að drepast af þeim sökum.
Búið er um 350 læðu bú og í gær
voru um 100 læður enn lifandi.
Eldsins varð ekki vart fyrr en
reyk tók að leggja frá minkabú-
inu. Slökkviliðinu á Höfn tókst
greiðlega að ráða niðurlögum
eldsins. Búið er tryggt hjá Sam-
vinnutryggingum og Brunabót,
en margt er á huldu um bætur
vegna brunans.
Mannslát
í Miðbænum
Rannsóknarlögregla ríkisins er
að rannsaka mannslát í miðbæn-
um í Reykjavík sl. laugardag.
Hinn látni var á fertugsaldri.
Granur leikur á að afleiðingar
ryskinga hafi orðið hinum Iátna
að aldurtila. Rannsóknarlö-
greglan verst allra frétta af mál-
inu en þegar hafa einhverjir verið
yfirheyrðir vegna þess.
íslendingur hreppir
blásaraverðlaun
Áshildur Haraldsdóttir flautu-
leikari hreppti fyrir skemmstu
fyrstu verðlaun blásara í alþjóð-
legri keppni ungra einleikara í
Royal Tunbridge Wells í Eng-
landi. Þátttakendur í keppninni
vora 160 frá 24 löndum. Með-
leikari Áshildar á tónleikunum
var Nína Margrét Grímsdóttir pí-
anóleikari en hún stundar tón-
listarnám í City University í
London. Auk verðlauna fyrir
blástur voru veitt verðlaun fyrir
frammistöðu í píanóleik,
strengjaleik og söng. Tilgangur
keppninnar er að koma ungum
einleikurum á framfæri. Sigur-
vegaramir fjórir munu koma
fram á sameiginlegum verð-
launatónleikum í London í októ-
ber nk. Áshildur lauk masters-
prófi frá Juilliard tónlistarskólan-
um í New York vorið 1988.
Blýmengun
við dagheimili
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur
hefur afráðið að verða við þeirri
ósk Foreldrasamtakanna að
kanna blýmengun af völdum út-
blásturs bifreiða í námunda við
nokkur útileiksvæði og dagvistar-
heimili í borginni sem liggja á
svæðum þar sem umferðarþungi
Farsóttir
Svipaður fjöldi
og í fyrra
830 manns leituðu til læknis
vegna kvefs eða annarrar veiru-
sýkingar í efri loftvegum í maí-
mánuði samkvæmt skýrslu sem
borgarlækni hefur borist frá
læknum. Af öðrum sjúkdómum
má nefna að 63 fengu lungna-
bólgu, 14 inflúensu og 78 iðra-
kvef.
Þetta eru ekki heildartölur um
sjúklinga sem leitað hafa til lækn-
is vegna þessara sjúkdóma í
Reykjavíkurumdæmi vegna þess
að það senda ekki allir læknar inn
skýrslu. Að sögn Heimis Bjarna-
sonar aðstoðarborgarlæknis er
hins vegar hægt að fylgjast ágæt-
lega með ástandinu frá ári til árs í
gegnum þessar skýrslur því það
eru alltaf sömu læknarnir sem
senda inn skýrslunar. Heimir
sagði að þessar tölur sýndu að
ástandið í ár væri mjög svipað því
sem verið hefði á síðasta ári, eina
merkjanlega muninn mætti sjá í
því að inflúensutilfellum fækkaði
í maímánuði á þessu ári saman-
borið við sama mánuð í fyrra en
skýringarnar á því eru m.a. þær
að þá var inflúensan frekar seint á
ferð. iþ
Eyjafjörður
Stéttarfélög
vilja stóriðju
10 verkalýðsforingjar
skrifa iðnaðarráðherra
og lýsa yfir stuðningi við
stóriðjuþreifingar
Oddvitar 10 stéttarfélaga við
Eyjafjörð, aðildarfélaga Alþýðu-
sambands Norðurlands, hafa
samþykkt ályktun og sent Jóni
Sigurðssyni iðnaðarráðherra þar
sem lýst er yfir fullum stuðningi
við þær sveitastjórnir landshlut-
ans sem áfram eru um stóriðju
við Eyjafjörð.
Ennfremur er ráðherrann
minntur á samþykkt 17. þings AI-
þýðusambands Norðurlands en
þar segir m.a.: „í framhaldi af
Blönduvirkjun ber að gera sér-
staka athugun á hvaða mögu-
leikar era á Norðurlandi til að
nýta þá orku, sem skapast til al-
mennrar atvinnuuppbyggingar
og nýiðnaðar. Nefna má í því
sambandi orkufrekan iðnað við
Eyjafjörð..."
er mikill, s.s. Valhöll við Hring-
braut og Grænuborg við
Eiríksgötu. Tilefni þess að For-
eldrasamtökin fóru þessa á leit
við Heilbrigðiseftirlitið era
fregnir um að blýmengun frá út-
blæstri bifreiða í jarðvegi í Dan-
mörku væri orðin það mikil að
heilsu barna og þroska stafaði
ógn af.
Stjórnarfundur
Alþjóða fimleika-
sambandsins
í síðustu viku fór fram í
Reykjavík stjórnarfundur Al-
þjóða fimleikasambandsins. Slík-
ir fundir eru haldnir einusinni til
tvisvar á ári og hafa smáþjóðir til
þessa ekki þótt fýsilegur kostur til
þess að hýsa slíkar samkundur. í
fundinum tóku þátt fulltrúar frá
31 þjóðlandi og hafði enginn
þeirra komið til Islands áður. Á
fundinum var m.a. rætt um nýja
skýrslu um lyfjanotkun fimleika-
manna, en sambandið hefur
ákveðið að setja saman nýjar og
strangari reglur varðandi lyfjaát
fimleikamanna.
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 4. júlí 1989