Þjóðviljinn - 25.07.1989, Blaðsíða 2
FRETTIR
Óvíst
Lögfræðingar Tryggingastofn-
unar ríkisins hafa samið lög-
fræðilegt álit, varðandi það hvort
greiða beri ellilífeyrisþegum sér-
staka orlofsuppbót, sem samið
var um í nýgerðum kjarasamn-
ingum. Heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra, Guðmundur
Bjarnason, hefur verið í fríi en
kemur til vinnu í dag og mun þá
væntanlega taka afstöðu til lög-
fræðiálitsins.
Sú krafa hefur komið fram í
röðum verkalýðshreyfingarinn-
ar, að ellilífeyrisþegar fái greidda
sérstaka orlofsuppbót, eins og
launþegar. Um er að ræða tæpar
7 þúsund krónur. En samkvæmt
lögum um almannatryggingar
skal heilbrigðisráðherra hækka
lífeyri til samræmis við hækkanir
á dagvinnulaunum á almennum
launamarkaði, eigi síðar en 6
mánuðum eftir að þær verða.
Ingimar Sigurðsson, lögfræð-
ingur Tryggingastofnunar, tók
saman álitsgerðina ásamt Hilm-
ari Björgvinssyni. Hann sagðist
ekki vilja tjá sig um innihald
hennar fýrr en ráðherra hefði séð
hana. En vafaatriðið í málinu
snerist um túlkun 79. greinar al-
mannatryggingalaganna. Þar
væri kveðið á um samræmi trygg-
ingabóta og vikukaups almenns
verkafólks. Spurningin væri
hversu langt ætti að teygja þá
grein þegar kæmi að sértækum
hækkunum eins og desember-
uppbót og orlofsuppbót, og sam-
ið væri um í kjarasamningum. Að
sögn Ingimars vakna margar lög-
fræðilegar spurningar varðandi
Fiskveiðasjóður
Enn með
Patrek BA
Már Elísson: Ymsir
hafa sýnt áhuga á
kaupum. Salan
auglýst þegar skipið
hefurfengið nýtt
haffœrniskírteini
- Þegar þar að kemur munurn
við auglýsa skipið til sölu en hve-
nær það verður nákvæmlega veit
ég ekki. Fyrst verður skipið að fá
nýtt haffærniskírteini og til þess
þarf að kippa i liðinn um 30 at-
riðum sem starfsmenn Siglinga-
málastofnunar hafa fundið að,“
sagði Már Elísson forstjóri Fisk-
veiðasjóðs.
Eins og kunnugt er keypti Fisk-
veiðasjóður nýlega Patrek BA
frá Patreksfirði á nauðungarupp-
boði fyrir 146 miljónir króna, en
kvóti skipsins er um 700-800 þor-
skígildistonn. Að sögn Más hafa
ýmsir sýnt áhuga á að kaupa
skipið og meðal þeirra eru einnig
heimamenn. Fyrir Fiskveiðasjóði
vakir fyrst og fremst að fá sem
mest fyrir skipið, alveg óháð því
hverjir kaupendurnir, eru svo
framarlega sem þeir eru loðnir
um lófana. Það virðist ekki skipta
sjóðinn neinu máli né koma hon-
um neitt við þótt skipsmissirinn
höggvi skarð í viðkvæmt atvinnu-
líf Patreksfjarðar sem þegar er
ekki nema svipur hjá sjón miðað
við það sem var fyrir einum ára-
tug eða svo.
- Fiskveiðasjóður hefur ekki
eignast skip með sama hætti og
Patrek BA síðan 1985 og við
munum reyna að selja það eins
fljótt og auðið er,“ sagði Már El-
ísson forstjóri Fiskveiðasjóðs.
-grh
Kínverskur matur, kínversk hrísgrjónavín og nú síðast; kínverskur bjór á Sjanghæ við Laugaveg. Mynd: Jim
Smart.
Tsingtao á Sjanghæ
Almenningur og veitingahús
geta serpantað bjór hjá
Áfengis- og tóbaksverslun ríkis-
ins. Þennan möguleika hafa
eigendur vcitingastaðarins Sjang-
hæ við Laugaveg notfært sér, því
þar er nú á boðstólum kínverskur
bjór sem heitir Tsingtao. Geta
matargestir valið á milli tveggja
tegunda, venjulegs ljóslitaðs
bjórs og dökks bjórs.
Ljósi bjórinn er ekki svo frá-
brugðinn þeim vestrænu tegund-
um sem hægt er að kaupa hér-
lendis. Þó er annar keimur af
honum sem kannski má skrifa á
vatnið sem í hann er notað. Það
kemur frá Laos, samkvæmt upp-
lýsingum á umbúðum. Dökki
bjórinn er hins vegar einhvers
konar maltbjór.
Samkvæmt upplýsingum sem
fengust hjá ÁTVR, er ekki mjög
mikið um að almenningur og
veitingahús notfæri sér mögu-
leikann til sérpantana. Mest er er
sérpantað af þýsku bjórtegund-
unum Becks, Holstein og Bit-
burg. Hafa umboðsmenn þessara
tegunda garfað í því að veitinga-
hús bjóði gestum sínum þessar
tegundir. Til skamms tíma hefur
fólki gefist kostur á að sérpanta
vín. En samkvæmt heimildum
ÁTVR hefur snarlega dregið úr
þeim. -hmp
Loðdýrarœkt
Reddað
fyrir hom
Fóðurstöðvum gert
kleift að starfa áfram.
Jöfnunargjald áfóður
hœkkað.
Byggðastofnun:
Samkeppnisstaðan
vonlausfái danskir og
finnskir
loðdýrabændur
ríkisstyrk
Ríkisstjórnin ákvað á dögun-
um að létta undir með loðdýra-
bændum, vegna þcirra gífurlegu
erfíðleika sem greinin á við að
etja. Jöfnunargjald á fóður var
hækkað um 2,50 krónur á hvert
kíló fóðurs út framleiðsluárið og
ákveðið hefur verið að hraða
endurgreiðslum söluskatts, þann-
ig að loðdýraræktin standi
jafnfætis öðrum útflutningsgrein-
um.
Þessar aðgerðir miða að því að
fóðurstöðvar geti haldið áfram
rekstri út framleiðsluárið. Gera á
úttekt á afkomumöguleikum
greinarinnar og hvaða hag-
kvæmniaðgerða væri hægt að
grípa til, þar með talið hvernig
best sé að standa að óhjákvæmi-
legum samdrætti.
í svari sem Byggðastofnun gaf
ríkisstjórninni um framtíð loð-
dýraræktar í landinu, er dregin
upp mjög dökk mynd af ástand-
inu. Áðgerðir á aðgerðir ofan
hafi ekki nægt til að tryggja rekst-
ur loðdýrabúa og fóðurstöðva og
ef ríkisstjórnir Finnlands og Dan-
merkur ákveði að styrkja
greinina hjá sér, geti íslendingar
hætt strax að framleiða skinn.
Samkeppnisaðstaðan yrði von-
laus.
Þegar farið var af stað með loð-
dýrarækt hér á landi, var hún
álitin góð aukabúgrein vegna lágs
fóðurkostnaðar. Þessar vonir
hafa reynst byggðar á fölskum
forsendum. Fóðurkostnaður er
mjög hár, aðallega vegna þess
hvað loðdýrabúin eru dreifð um
landið, að sögn Byggðastofnun-
ar.
Stigsmunur er á afkomu refa-
búa og minkabúa. Þjóðhags-
stofnun segir ekki borga sig, út
frá sjónarhóli þjóðarbúsins, að
fóðra refi fram að pelsun. Hins
vegar séu horfur slíkar í minka-
ræktinni, að það borgi sig að
fóðra þá fram að pelsun. Árið
1987 var útflutningsverðmæti
loðskinna 0,35% af vöruútflutn-
ingi.
-hmp
Bankasameiningin
Jökull alfariö á móti
Verkalýðsfélagið Jökull á Höfn: Nái tillaga bankaráðs
Alþýðubankansfram að ganga á hluthafafundi 26. júlí eru forsendur
fyrir eignaraðild Jökuls að Alþýðubankanum brostnar
Stjórn verkalýðsfélagsins Jök-
uls í Austur-Skaftafellssýslu
er andvíg kaupum Alþýðubank-
ans á þriðjungi eignarhluta ríkis-
ins í Útvegsbanka íslands með
þeim kvöðum sem þeim fylgja,
það er að rekstur Alþýðubankans
verði sameinaður Iðnaðar- og
Verslunarbanka.
í ályktun stjórnar verkalýðsfé-
lagsins segir ma.: „Við teljum að
ef tillaga bankaráðs Alþýðu-
bankans um áðurnefnd atriði nær
fram að ganga á hluthafafundi 26.
júlí þá séu forsendur fyrir eignar-
aðild verkalýðsfélagsins Jökuls
að Alþýðubankanum brostnar.
Stjórnin vill að óþvinguð sam-
vinna við aðra byggist á grund-
vallarsjónarmiðum verkalýðs-
hreyfingarinnar og því til stuðn-
ings vísum við til stefnuyfirlýsing-
ar Alþýðusambands íslands.
Viðskipti fólks við peningastofn-
anir er eitt af stærri
hagsmunamálum neytenda í nú-
tímaþjóðfélagi. Stefnuyfirlýsing
ASÍ segir að þar skuli verkalýðs-
hreyfingin og samvinnuhreyfing-
in vinna saman.“
- Þá segir ennfremur í ályktun
stjórnar verkalýðsfélagsins
Jökuls: „Við munum leggjast af
öllu afli gegn því að lífeyrissjóðs-
fé okkar félaga verði notað til
kaupa á hlutafé til framgangs
þessa máls og teljum ekki verj-
andi að hundruðum miljóna
króna af lífeyrispeningum verka-
fólks sé ráðstafað á þennan hátt.
Við viljum að gefnu tilefni taka
fram að á engum stigum þessa
máls var leitað eftir skoðunum
okkar af hálfu formanns bankar-
áðs Alþýðubankans eða annarra
sem með málið hafa farið.“
-firh
Ellilífeyrisþegar
um orlofsuppbót
túlkun á umræddri grein al- uðust menn ekkert við málið að innar hefði verið rauðglóandi,
mannatryggingalaganna, þegar öðru leyti en því sem komið hefur þar sem fólk hefði mikið hringt til
mál sem þetta koma upp. fram f fjölmiðlum. Þar fengust að spyrja um þetta atriði.
Hjá Tryggingastofnun könn- þau svör í gær, að sími stofnunar- -hmp
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriftjudagur 25. júlí 1989