Þjóðviljinn - 25.07.1989, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 25.07.1989, Blaðsíða 6
ERLENDAR FRETTIR Heildarupphæö vinninga 22.07 var 3.752.604,-. Enginn hafði 5 rétta sem var kr. 1.727.811,-. Bónusvinninginn fengu 7 og fær hver kr. 42.910,-. Fyrir 4 tölur réttar fær hver 4.585,- kr. og fyrir 3 réttar tölur fær hver um sig 321,-' kr. Sölustaðir loka 15 mínútum fyrir útdrátt í Sjónvarpinu. Sími 685111. Upplýsingasímsvari 681511. Lukkulína 99 1002 Sovétríkin Verkföllin em örþrifaráð Kommúnistaflokkurinn og verkalýðsfélögin hafa brugðist verkafólki ogþvígrípurþað tilþess örþrifaráðs að leggja niður vinnu. Opinskáar umrœður á neyðarfundiÆðsta ráðsins ígœr Verkföll námamanna um ger- völl Sovétríkin eru örþrifaráð því Kommúnistaflokkurinn og hin opinberu verkalýðsfélög hafa brugðist þeirri skyldu sinni að verja rétt verkamannna, sagði einn fulltrúa í Æðsta ráði Sovét- ríkjanna, löggjafarsamkomu þeirra, á miklum hitafundi í gær en til hans var boðað gagngert í því augnamiði að fjalla um vinnu- deilurnar þar eystra. Ekki sér fyrir endann á þeim. Umræðurnar þóttu óvenju op- inskáar. Ýmsir þingmanna vöktu athygli á hættunni á því að verk- föll skyllu á í öðrum atvinnu- greinum og sögðu mikla spennu ríkja á kolanámusvæðum. „Þetta er örþrifaráð," sagði Júríj Golik, þingfulltrúi frá Kúz- bass í Síberíu, en þar hófst verk- fallið. „Fyrsta sprengjan er sprungin og nú má búast við keðju sprenginga,“ sagði Alexej Bojko, fulltrúi frá Donbass í Úkraínu þar sem fjölmargir námamenn sitja auðum höndum. „Það er ekki sápuskorturinn sem veldur ókyrrð heldur hið algera réttleysi. Námamenn í Dónetsk treysta engum og trúa engu lengur. Svona er nú komið fyrir okkur...enginn snýst til varnar verkamönnum, ekki vinnunefnd- ir, ekki verkalýðsfélög, ekki flokksdeildir. Enginn gætir hagsmuna þeirra, þetta er kjarni málsins." Níkolaj Fjodorov, fulltrúi frá borginni Tsjebokharíj við rætur Úralfjalla, lagði þetta til mál- anna: „Þetta eru ekki bara verka- menn í verkfalli. Þetta er þjóðin öll á barmi örvæntingar.“ Forseti Sovétríkjanna, Míkhaíl Gorbatsjov, hlýddi alvarlegur í bragði á þessa vitnisburði um ör- væntingu verkamanna og ógnar- mikla erfiðleika við framkvæmd perestrojku, stefnu hans um ný- sköpun í efnahagslífinu. Hann kom fram í sjónvarpi á sunnudag og hét á námamenn í þriðja skipti að láta af verkföllum sínum og snúa aftur til vinnu. Hermt er að hann hafi verið áberandi þreytu- legur í sjónvarpi og á köflum rek- ið í vörðurnar. Hann endurtók síðan áskoran- ir sínar við upphaf neyðarfundar- ins í Æðsta ráðinu í gær. Hann ítrekaði fyrri ummæli um að verkföllin væru þjóðarbúinu afar þung í skauti og gætu hæglega breiðst út. Fréttir frá verkfallssvæðum í gær hermdu að nám væri hafið á ný í kolanámum Kúzbass í Síber- íu og Karaganda í Mið-Asíu. Hinsvegar væri ekkert unnið í námunum í Petsjóru og við borg- irnar Pavlovgrad og Voroshílov- grad, vestan og norðan Dónetsk. Námamenn í Kúzbass héldu til vinnu um helgina eftir að sérstök samninganefnd frá valdhöfum í Moskvu féllst á obbann af kröf- Georgía Niður með Rússaveldi! Rúmlega 20.000 Georgíumenn örkuðu um götur Tbílísí, höfuðborgar lýðveldisins, í gær, veifuðu fánum og hrópuðu slagorð á borð við: Niður með Rússaveldi! Meðan þessu fór fram var allt athafnalíf borgar- innar í lamasessi. Mannfjöldinn hélt sem leið lá að torginu þar sem herinn framdi fjöldamorð á Tbílísíbúum fyrir þremur og hálfum mánuði. Gangan lagði aðalstræti borgar- innar, Prospekt Rustaveli, alveg undir sig en þegar að torginu kom dóu slagorðin út og grafarþögn ríkti í mínútu meðan mótmæl- endur minntust 20 landa sinna sem hermenn myrtu með eitur- gasi, kylfum og hvesstum skóflu- blöðum þann 9. apríl. Áður var skollið á allsherjar- verkfall í borginni, sögðust þátt- takendur krefjast sjálfstæðis lýð- veldisins og ennfremur vera að mótmæla framkomu stjórnvalda í Moskvu í róstunum í Abkhasíu, sjálfstjórnarhéraði í Georgíu. Þar hafa Georgíumenn og Abkhasar borist á banaspjót að undanförnu og a.m.k. 20 menn fallið í valinn. Um þær deilur sagði ung mót- mælakona í Tbílísí: „Þetta er okkar land en þeir lögðu það undir sig og stjórnin í Moskvu hlýðir aðeins á þeirra fulltrúa.“ Reuter kom einnig að máli við þekktan þjóðernissinna í Georg- íu, Zviad Kaltaradze, sem út- skýrði markmið mótmælenda: „Við krefjumst frelsis. Og með frelsi á ég við algjört sjálfstæði til handa Georgíu. Við erum sannfærð um að við getum öðlast það. Við munum sigra!“ Reuter/ks Gorbatsjov stýrir þingfundi. Enn syrtir í álinn. um þeirra, þar á meðal um aukið úrval neysluvarnings og matvæla, vaktaálag og að heimamenn fengju að hafa hönd í bagga með ráðstöfun ágóðans af vinnslu námanna. Bæði Gorbatsjov og Níkolaj Ryzhkov forsætisráðherra hafa lýst yfir að öllum kolanáma- mönnum standi til boða ávinn- ingar Kúzbass-samningsins en ýmsir hagfræðinga fullyrða að slíkt gæti haft ófyrirsjáanlegar af- leiðingar og jafnvel riðið sovésku efnahagslífi að fullu. En varaforsætisráðherrann og umbótahagfræðingurinn Leóníd Abalkín varði stefnu stjórnvalda með svofelldum orðum á þing- fundi í gær: „Það er algjört for- gangsverkefni að reyna að tryggja pólitískan stöðugleika og stemma stigu við frekari vinnu- deilum." Reuter/ks Japan Þáttaskil í þingkosningum Sosuke Uno, forsætisráðherra Japans, lýsti í gær ábyrgð á hendur sér eftir ósigur Frjáls- lynda lýðræðisflokksins í þing- kjöri á sunnudag og kvaðst hafa í hyggju að víkja úr embætti. Hann lýsti yfir að söluskattshækkun og fjármálaspilling ættu sök á óför- um flokks síns en vék ekki orði að eigin fjöllyndi. Hermt er að það hafi ekki síður stuðlað að því að stjórnarflokkurinn galt afhroð í kosningunum til efri deildar þingsins og hefur ekki lengur á að skipa meirihluta fulltrúa. Annað eins hefur ekki gerst í Japan frá því Frjálslyndi lýðræðisflokkur- inn var stofnaður 1955. „Ég ber höfuðábyrgð á óförun- um. Þjóðin hefur kveðið upp dóm og við verðum að beygja okkur undir hann,“ sagði forsæt- isráðherrann á fréttamannafundi í gær. Uno sagðist ætla að gegna embætti uns arftaki fyndist. Það getur tekið drjúgan tíma því reyndir forystumenn með hreinan skjöld virðast ekki liggja á lausu í öflugasta stjórnmála- flokki Japans. Reuter/ks Útboð Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd Vatnsveitu Reykjavíkur óskar eftir tilboöum í framkvæmdir viö efnisskipti í lagerplani á lóö Vatnsveitu Reykjavíkur. Uppgröftur og brottflutt efni er áætlaö 12000 m3 og fylling (Bögglaberg) er áætlað 5000 m3. Útboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri aö Frí- kirkjuvegi 3, Reykjavík gegn kr. 10.000,- skila- tryggingu. Tilboðin veröa opnuö á sama staö þriöjudaginn 1. ágúst 1989 kl. 11. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Friklrkjuvegi 3 - Simi 25800 Stór hverf i í Þingholtunum þiÓDVILIINN Hafið samband viö afgreiðslu Þjóöviljans í síma 681663/681333

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.