Þjóðviljinn - 01.08.1989, Side 7
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Vesturland
Sumarferð í Flatey
Sumarferð kjördæmisráðs Alþýðubandalagsins á Vesturlandi verður far-
in helgina 12. til 13. ágúst. Farið verður út í Flatey á Breiðafirði kl. 13 á
laugardag frá Stykkishólmi og tjaldað þar. Möguleiki á svefnpokaplássi.
Þátttaka tilkynnist fyrir 26. júlí til eftirtaldra aðila:
Akranesi: Þorbjörg s. 11608, Borgarnesi: Birna s. 71544, Grundarfirði:
Ingi Hans s. 86811, Hellissandi: Skúli s. 66619.
Stjórni kjördæmisráðs
Auglýsið í Þjóðviljanum
FLÓAMARKAÐURINN
Fyrir ungbarn
Viljum selja Maxi Cosy barnabilstól,
hopprólu, magaburðarpoka, skipti-
tösku og 2 bleyjufötur á hálfvirði. Not-
að af einu barni blátt að lit. Uppl. í
síma 13846 e. kl. 18.
Daihatsu bltabox og Charade
til sölu, 2 ágætis smábílar. Bitabox
árg. '84 og Charade árg. '82, sjálf-
skiptur. Uppl. í síma 17482.
Til sölu
sjö ára gamalt ITT litstjónvarpstæki í
góðu lagi. Selst ódýrt. Uppl. í síma
41494.
Ibúð í Barcelona
Til leigu íbúð í miðborg Barcelona í
ágústmánuði. Uppl. í síma 83695.
Vantar ódýrt sjónvarp
má vera hvort sem er svart/hvítt eða
litatæki. Uppl. gefur Hlín í síma
23542.
Til sölu
Nýr afturstuðari á Lada Safir árg.
1982 og 4 Dexion hillur og uppistöð-
ur, tilvalið í geymlu eða bílskúr.
Hvorttveggja selst á hálfvirði. Uppl. í
síma 622456.
Góð bílkerra
til sölu. Uppl. í síma 37374.
Fallegur kettlingur
fæst gefins, 11 vikna gamall. Uppl. í
síma 621336.
Óska eftir
notaðir leikgrind. Ragnhildur, sími'
41732.
Sóleyjarstólar
Óska eftir að kaupa svarta Sóleyjar-
stóla. Sími 91-21341.
Fuglabúr til sölu
með fylgihlutum. Notað í tæpt ár.
Uppl. í síma 29672.
Til sölu
Kortína 1300 árg. 1979, fernra dyra,
skoðaður 1989. Mjög heillegur bíll.
Verð 50 til 60 þúsund. Uppl. í síma
73829.
fsskápur
Óska eftir notuðum ísskáp, gefins
eða ódýrt. Á sama stað til sölu vara-
hlutir í Lada 1600 árgerð 1980. Uppl. í
síma 73829.
Húsnæði óskast
2 norðlenskir bændasynir, nýskráðir
til náms við Háskóla Islands óska eftir
ódýrri 3 herbergja íbúð. Uppl. gefur
Tryggvi á Þúfum, sími 95-37470.
Tll sölu
Winther stúlknahjól, 16", vel með far-
ið. Uppl. í síma 688652 e. kl. 19.
Tll sölu
Ný Olympus AF1 myndavél, ónotuð.
Verð kr. 10.000,- Uppl. í síma 688652
e. kl. 19.
Lada 1600 árg. '81
fæst fyrir lítinn pening. Uppl. í síma
22439.
VII selja
örbylgjuofn, minnstu gerð, AEG,
sáralítið notaðan. Sími 83837.
Vil kaupa
regnhlifakerru. Uppl. í síma 641292.
Óska eftir að kaupa
ódýran ísskáp og þvottavél. Vinsam-
lega hringið í síma 680059 á kvöldin.
Til sölu
2 bjöllur VW1302 og VW1300 ásamt
dekkjum og felgum og varahlutum.
Fást fyrir lítinn pening. Uppl. í síma
78422 e. kl. 19.
Þvottavél
Gömul en gangfær þvottavól fæst
gefins. Uppl. í síma 36138 milli kl. 17
og 20.
Citroén BX 16 PRS
árg. '84 til sölu — gullbrons, rafdregn-
ar rúður, samlæsing. Öskabíll í
fullkomnu lagi. Verð 390.000 -
80.000,- kr. afsláttur gegn stað-
greiðslu. Uppl. í síma 15369.
Þvottavél
Óska eftir þvottavél. Upp. í síma
31805 e. kl. 18.
Þak yfir höfuðið
Móður og barn vantar 2-3 herbergja
leiguíbúð strax. Eru nánast á götunni.
Móðirin starfar á Borgarspítalanum
og barnið er í dagvist í Breiðholti.
Æskilegast væri því íbúð í Breiðholti.
Vinsamlega hringið í síma 73606 e
kl. 17.
Barnapössun
12 ára stúlka óskar eftir að passa
barn í ágúst, helst í Hlíðum, Norður-
mýri eða Þingholtum. Uppl. í síma
14807 e. kl. 17.
Til sölu
kerruvagn með burðarvagni - lítið
notaður. Uppl. í síma 678171.
Útimarkaður Hiaðvarpans
Tökum í umboðssölu handgerða
muni, t.d. skartgripi, útskurð, kera-
mik, föt, vefnað, leikföng og margt
fleira.
Til sölu
2 dekkjagangar undir Fiat 127 (vetrar
og sumar). Uppl. í síma 34597 e. kl.
18, eða í síma 985-20325.
Gólfið er kalt
Á einhver gamla ofna mottu (tusku-
mottu) til að gefa fótköldu fólki hjá
Útidelldinni í Kópavogi? Ef svo er,
vinsamlega hringið í síma 42902 milli
kl. 11 og 12.30 alla virka daga.
Bókband
Tek bækur í band, stakar bækur og
heil verk. Fágmaður. Sími 23237.
Hanna og smíða skilrúm
í stofur, forstofur o.fl. Kem og geri
verðtilboð. Vinsamlega leggið síma-
númer inn á símsvara 667655.
Til sölu
efni í gluggakappa o.fl., spónlagt ma-
hogany, lengd 2,5 metrar. Vinsam-
lega leggið símanúmer ykkar inn á
símsvara 667655.
Rússneskar vörur
í miklu úrvali til sölu í Kolaportinu alla
laugardaga. Uppl. í síma 19239.
Húsgagnasmiður tekur að
sér alhliða innréttingasmíði
Kem heim og geri verðtilboð ykkur að
kostnaðarlausu. Ath. símsvari tekur á
móti símanúmeri þínu og síminn er
667655.
/K
HE8
Sovétríkin
Andófsþingmenn stofna felag
Róttœkir umbótamenn eru uggandi um Gorbatsjov og segja mál til
komið að hann geri upp sinn hug og velji á milliperestrojku og
nómenklatúru
Róttækir umbótamenn á so-
véska þjóðþinginu og í Æðsta
ráðinu komu saman í bækistöðv-
um Sambands kvikmyndagerðar-
manna um helgina og stofnuðu
með sér félag í því augnamiði að
þrýsta á forystu flokks og ríkis að
hraða nýsköpun sovésks samfé-
lags. Félagar kusu sér forystu-
sveit sem í eiga sæti Borís Jeltsýn,
fyrrum flokksforingi í Moskvu,
og mannréttindafrömuðurinn
Andrej Sakharov auk þriggja
annarra.
Með stofnun þessa félags-
skapar er brotið blað í sögu So-
vétríkjanna. Skoðanahópar eða
„klíkur“ hafa ekki verið liðnar
þar eystra, hvorki í Kommúnista-
flokknum né öðrum stofnunum,
frá því Jósef Stalín gekk á milli
bols og höfuðs á vinstriandstöðu
Leons Trotskíjs og félaga um
miðbik þríðja áratugarins.
Forystumenn félagsins segja
að um 500 fulltrúar á þjóðþinginu
nýja (af 2.250 alls) hyggist eða
hafi nú þegar gengið til liðs við sig
og sömu sögu sé að segja af 90
fulltrúum af alls 542 í Æðsta ráð-
inu.
„Það sem hér hefur gerst stað-
festir að sovésk alþýða er póli-
tískt fullveðja og hefur tekið út
lýðræðisþroska," sagði Jeltsýn í
fyrradag. Auk þeirra Sakharovs
voru sagnfræðingurinn Júríj Af-
anasjev, hagfræðingurinn Gavriil
Popov og eistneski umbótamað-
urinn Viktor Palm kjörnir í fimm
manna forystusveitina.
Stofnfundurinn var sem fyrr
segir haldinn í húsakynnum kvik-
myndamanna sem helgaðist af
því að flokksskrifræðið í Moskvu
kom í veg fyrir að stofnfélagarnir
316 fengju inni í Kreml.
Afanasjev flutti aðalræðuna og
hét á Míkhaíl Gorbatsjov að taka
af skarið og ganga rösklega að
verki við róttækar breytingar á
sovésku samfélagi. Áskorunin og
viðbrögð fulltrúa við ræðunni
bera með sér að margir umbóta-
sinnar eru farnir að efast um að
Gorbatsjov vilji ganga á hólm við
íhaldsöflin í stjórnmálaráði
flokksins og keyra nýsköpunina
ur sporunum.
Afanesjev hrósaði að sönnu
Gorbatsjov fyrir að hafa hleypt
perestrojku af stokkunum fyrir
fjórum árum og stuðlað að því að
hafist var handa við breytingar á
stjórnmála- og efnahagskerfi sem
gengið hefði sér til húðar. „En sá
tími er á enda að hann geti með
góðu móti verið jöfnum höndum
forystumaður perestrojku og
leiðtogi forréttindafólksins
(nómenklatúrunnar). Hann
verður að velja og hafna.“
Jeltsýn tók þvínæst til máls.
„Fólk er búið að fá yfir sig nóg af
hálfvelgjulausnum sem ekki leiða
til eins eða neins. Verkfall kola-
námamanna bar vott um aukna
spennu í þjóðfélaginu og sýndi
svart á hvítu að verkamenn bera
ekkert traust lengur til þeirra sem
þykjast fulltrúar þeirra. Flokks-
aðaílinn er orðinn sérstök stétt.
Hreyfing verkamanna er fram
komin til höfuðs þeirri stétt,
jafnvel þótt þeir geri sér ekki
grein fyrir því sjálfir enn sem
komið er.“
Reuter/ks
Sovétríkin
Bækur
úr banni
Sovésk stjórnvöld hafa létt nán-
ast öllum takmörkunum af inn-
flutningi bóka eftir rithöfunda
sem fyrrum voru sagðir „andso-
véskir“ og dæmdir óalandi og óf-
erjandi.
„Nú eru aðeins settar hömlur á
innflutning bóka eftir höfunda
sem hvetja til þess að ríkisvaldinu
verði kollvarpað með ofbeldi og
ennfremur innflutning á klámi,“
sagði Vítalíj Bojarov, yfirtoll-
þjónn Sovétríkjanna, á frétta-
mannafundi í gær.
Ritskoðunarstofnunin, Gavlít,
hefur veitt heimild fyrir birtingu
allra verka Alexandrs Solzheníts-
yns í Sovétríkjunum, þar á meðal
Gúlag-eyjanna, og hafa sum
þeirra hafið göngu sína sem fram-
haldssögur í tímaritum. Gúlag-
eyjaklasinn mun byrja að koma
út hjá bókmenntatímaritinu
„Novíj-Mír“ síðar í þessum mán-
uði.
Bojarov kvað nýjar tollreglur
taka gildi um miðbik mánaðar-
ins. Eftir það yrði minna mál en
áður fyrir farþega sem ekki hefðu
tollskyldan varning í fórum sín-
um að komast inní landið. Þeir
myndu ganga um „grænar rásir“
einsog fyrirfinndust í flugstöðv-
um um allan heim. Reuter/ks
Iþróttamenn hlunnfamir
Heimsmeistarinn segir Iþróttanefnd Sovétríkjanna stríð á hendur
arríj Kasparov, heimsmeist-
ari í skák, réðst harkalega á
íþróttanefnd Sovétríkjanna í
blaðagrein fyrir helgi og bar
henni á brýn misnotkun verð-
launafjár og gerræði í skiptum
MINNING
f
við okkur oft stundir við að tala
saman í síma því hvorug okkar
hafði á síðustu árum heilsu til
ferðalaga.
En nú er hún farin og ég er
þakklát fyrir að hafa átt hana að
vinkonu og bið henni allrar guðs
blessunar í nýjum heimi.
Fjölskyldu hennar sendi ég
mínar innilegustu samúðarkveðj-
ur.
Rut Guðmundsdóttir
Það var árið 1951, eða fyrir
hartnær 40 árum, sem ég kynntist
þeirri fjölhæfu listakonu og hug-
sjónakonu, Guðrúnu Guðjóns-
dóttur. Menningar- ogfriðarsam-
tök íslenskra kvenna voru þá ný-
stofnuð og við vorum báðar í
stjórn samtakanna.
Það duldist engum við fyrstu
kynni við Guðrúnu Guðjónsdótt-
ur, að þar fór engin hversdags
kona. Þar var kona athafna ekki
síður en orða og áætlana. Mér er
minnisstætt, að þegar samtök
okkar, nýstofnuð og févana að
sjálfsögðu, ákváðu að þýða
skýrslu kvennanefndar sem Al-
þjóðasamband lýðræðissinnaðra
kvenna sendi til Kóreu til að
kanna stríðsglæpi í Kóreustyrj-
öldinni var Guðrún einn helsti
hvatamaðurinn að því að við gæf-
um hana út og hæfum þar með
starf okkar. Það varð úr að við
gerðum það, og reyndist útgáfan
okkur nokkuð kostnaðarsamaðri
en við var búist, auk þess sem
okkur gekk verr að selja skýrsl-
una en við höfðum reiknað með.
Þegar við komum saman á næsta
stjórnarfund eftir útgáfu skýrsl-
unnar vorum við því heldur fram-
lágar og svartsýnar á peningamál-
in, það var ekki gæfulegt fyrir ný-
stofnað félag að byrja starfsferil
sinn með skuldir í prentsmiðju.
Þá sagði Guðrún Guðjónsdóttir:
„Þetta lagast, við þurfum bara að
hafa tíma.“ Þetta sagði hún með
svo miklum sannfæringarkrafti,
að okkur létti mikið. Eg spurði
hana hvernig hún hyggðist bjarga
þessum málum. „Það eru til svo
margir góðir menn, sem vilja
leggja góðu málefni lið að ég veit
okkur tekst það,“ var hið
sannfærandi svar hennar. Og
okkur tókst þetta. Guðrún hafði
forgöngu um það, að við fórum af
stað og gengum milli manna og
báðum um fjárstyrk fyrir þetta
fyrsta verkefni samtakanna. Og
nokkrum mánuðum seinna gát-
um við borgað allar okkar skuldir
vegna skýrslunnar. Þessarar
gerðar var Guðrún. Hún gafst
aldrei upp þegar hún var að vinna
að hugsjónum sínum. Og ég held
að hún hafi sannað okkur að oft-
ast er „vilji allt sem þarf“.
Við Guðrún sátum árum sam-
an í stjórn Menningar- og friðar-
samtaka íslenskra kvenna, og við
unnum mikið saman þar fyrir
utan, og á ég margar góðar minn-
ingar um samstarf okkar.
Eitt af hugsjónamálum Guð-
rúnar var að koma upp tómstund-
aheimili fyrir börn, en þetta var á
þeim árum sem húsmæður voru
að fara út á vinnumarkaðinn, og
algengt að börnin væru eftirlits-
lítil heima með lykil um hálsinn.
Að tilhlutan Guðrúnar stofnuðu
Menningar- og friðarsamtök ís-
lenskra kvenna, ásamt Mæðrafé-
laginu, nefnd til að hrinda þessu
máli í framkvæmd. Nefnd þessi
starfaði nokkur ár, og safnaði
peningum í fyrirhugað tómstund-
aheimili. Eitt af því sem við gerð-
um var að hafa skyndihapp-
drætti, og hafði Guðrún forgöngu
um það eins og margt annað.
Hún ákvað að happdrættisvinn-
ingarnir allir skyldu vera listmun-
ir, og minnir mig að hún hafi safn-
að þeim öllum, eða a.m.k. flestu
sjálf. Happdrættið gekk vel, og
þá vildi Guðrún að við hæfum
starfsemi, þó í litlu formi yrði til
að byrja með. Hún bauðst til að
láta í té húsnæði og sjá um börn-
in, endurgjaldslaust. Þá var að
útvega húsgögn og annað sem
rekstrinum þurfti óhjákvæmilega
að fýlgja. En eftir að við höfðum
látið gera kostnaðaráætlun, þar
sem í ljós kom að við yrðum að
taka allnokkurt lán til að koma
jafnvel þessum frumstæða rekstri
á laggirnar, var það skoðun
meirihluta nefndarkvenna og
stjórna félaganna, að ekki væri
hægt að leggja í þess áhættu að
svo stöddu. Við héldum því
áfram að safna peningum, en það
varð í litlum mæli eftir þetta, og
peningarnir sem við áttum
brunnu á báli verðbólgu, og voru
síðar notaðir í annað. Man ég
hvað það voru Guðrúnu mikil
vonbrigði. Enn í dag sé ég eftir
því að við skyldum ekki leggja út í
þetta.
Þetta er fátt eitt af því sem er að
minnast af samvinnu minni við
Guðrúnu, en þetta lýsir vel þeim
stórhug sem þessi óvenjulega
kona var gædd.
Þá var Guðrún fjölhæf lista-
kona, hún samdi bækur, málaði
og hannaði prjóna- og vefnað-
armynstur, og hefur mér oft verið
hugsað til þess hve mikil tækifæri
kona með hennar hæfileika hefði
átt, ef hún hefði verið ung í dag,
en ekki á árum kreppu og ör-
birgðar.
Að síðustu þakka ég Guðrúnu
fyrir allt okkar samstarf, sem
aldrei bar skugga á í hartnær 40
ár. Ég votta aðstandendum henn-
ar mína dýpstu samúð.
María Þorsteinsdóttir
við íþróttamenn. Kasparov er
miðstjórnarmaður í Komsomol,
ungherjasamtökum Kommúnist-
aflokksins, og reit greinina í mál-
gagn samtakanna, Komsomol-
skaja Pravda.
Heimsmeistarinn velti því fyrir
sér hvað yrði eiginlega um ailt
verðlaunaféð sem sovéskum
íþróttamönnum er gert að skila í
hendur nefndarinnar við
heimkomu úr sigurför. „Nú þeg-
ar opin umræða er komin á það
stig að jafnvel varnarmálaráðu-
neytið gerir opinskátt hvernig
það ver sínu fé lúrir íþróttanefnd-
in á öllum upplýsingum um ráð-
stöfun verðlaunafjár íþrótta-
manna.“
Kasparov rifjar upp að þeir
Anatolíj Karpov, áskorandi og
fyrrum heimsmeistari, hafi
ákveðið fyrir einvígi sitt í Lund-
únum og Leníngrad 1986 að verð-
launafé beggja skyldi renna
óskipt til fórnarlamba kjarnorku-
slyssins í Tsjernóbýl.
Þetta voru alls tæpar 20 miljón-
ir króna og var íþróttanefndinni
falið að koma þeim til skila. En
Kasparov staðhæfir að hluti upp-
hæðarinnar hafi horfið í vörslu
nefndarinnar og krefst skýringa á
afdrifum þessa fjár.
Kasparov fullyrðir ennfremur
að sovéskir íþróttamenn séu
gjörsamlega réttlausir gagnvart
duttlungum og gerræði nefndar-
manna sem ráðskist með þá eins-
og eign sína. Máli sínu til árétt-
ingar nefnir hann sölu afreks-
manna í knattleikjum, ss. knatt-
spyrnu og körfuknattleik, til er-
lendra liða. Þeir fái engu að ráða
um það hvert þeir séu seldir né
hvaða skilmálar settir í samninga
þeirra né hvaða laun þeir þiggi.
Kasparov sagði mál til komið
að skerða völd íþróttanefndar
Sovétríkjanna og gera ítarlega út-
tekt á starfsemi hennar á umliðn-
um árum. Það væri einnig mál til
komið að afleggja þann ósið að
hirða obba verðlaunafjár sov-
éskra afreksmanna af þeim við
heimkomuna. ks
Sitt sýnist hverjum um ágæti kínverska hersins. Dátum ekið til orrustu við „gagnbyltingarmenn" á Torgi
hins himneska friðar.
Kína
Hvað er sannleikur?
Vestrœnir erindrekar sniðganga hátíðarhöld á „degi hersins“ íPekíng.
Pindarlaus áróðurssíbylja stjórnvalda ber árangur
Dagur hersins var haldinn há-
tíölegur af hershöfðingjum og
flokksöldungum í Pekíng í gær.
Fóru ræðumenn á hátíðarfundi
mörgum orðum og fögrum um
hetjuskap hersins í baráttunni við
„gagnbyltingaröfl“ í öndverðum
fyrra mánuði. Enginn vestrænna
sendiherra mætti á samkundu
þessa. Einnig hjuggu menn eftir
því að Deng Xiaoping var fjarri
góðu gamni. Annars er það helst
að frétta úr Kínaveldi að linnu-
laus áróður stjórnvalda í fjöl-
miðlum er farinn að bera nokk-
urn ávöxt. Til marks um þetta eru
orð skrifstofustúlku sem segist
hafa heyrt svo oft hina opinberu
útgáfu á atburðarásinni aðfarar-
nótt 4. júní að hún sé farin að
efast um áreiðanleika minnis síns:
það sem hún hafí séð hafí bara
alls ekki gerst.
Það vekur svosem enga stór-
furðu þótt Deng hafi verið fjar-
verandi í gær enda er hann vanur
að hverfa úr höfuðborginni yfir
hásumarið og láta svala vinda
leika um sig í sumarbúðum hinn-
ar nýju stéttar við ströndina. Svo
virðist sem opinber dýrkun per-
sónu hans færist jafnt og þétt í
aukana. Kvikmynd um ævi hans
og störf er sýnd í kvikmyndahús-
um vítt og breitt um Kína, ljós-
myndum af honum hefur verið
komið fyrir allstaðar og hvergi í
Pekíng og þulir sjónvarps og út-
varps tönnlast sýknt og heilagt á
hinum miklu afrekum hans.
Aðalræðumaður hátíðarfund-
arins í gær, Qin Jiwei hershöfð-
ingi og landvarnaráðherra, brá
ekki út af þessari venju. „Undir
forystu Dengs Xiaopings létu
eldri félagar úr röðum byltingar-
öreiga mikið að sér kveða í bar-
áttunni gegn gagnbyltingaröflun-
um. Hermenn úr Frelsisher al-
þýðunnar, sem stofnaður var
fyrir réttum 62 árum, óttuðust
ekki að þurfa að færa fórnir þegar
þeir brutu gagnbyltinguna á bak
aftur.“
Þótt Qin legði á það áherslu að
kínversk stjórnvöld ættu enn
hauka í horni í röðum erlendra
ríkisstjórna var sláandi hversu
fáir sendiherrar og sendifulltrúar
létu svo lítið að þiggja boð á há-
tíðarhöld til heiðurs kínverska
hernum. Einn erlendur sendi-
boði kvað rfkisstjórn sína og ann-
arra vestrænna fulltrúa hafa slitið
öll hernaðartengsl við Kína og
því sniðgengi hann samkunduna.
Qin gat ekki látið sem hann yrði
þessa ekki var: „Erlend öfl
blanda sér í kínversk innanríkis-
mál og reyna að þrýsta á yfirvöld
en fjölmargar ríkisstjórnir hafa
lýst yfir stuðningi við okkur eða
sýnt samúð og skilning eftir að
við sigruðum gagnbyltingar-
sinna.“
Hverju trúa Kínverjar
sjálfir?
Hér á vesturhveli jarðar urðu
menn vitni að atburðum á Torgi
hins himneska friðar aðfararnótt
4. júní fyrir tilstilli sjónvarps og
biandast því ekki hugur um sekt
eða sýknu stjórnvalda. Málið
horfir öðruvísi við heima-
mönnum. Þeir eru á einu máli um
að hermenn og skriðdrekar hafi
látið til skarar skríða gegn
mótmælendum en tvennum sög-
um fer af mannfalli og markmið-
urn og framferði andófsmanna.
Og í því áróðursstríði er leikurinn
næsta ójafn.
Bændur og þorpsbúar úti á
landsbyggðinni hafa við fátt að
styðjast annað en frásagnir fjöl-
miðla og trúa þeim svo fremi ein-
hverjir ættingja þeirra hafi ekki
verið við nám í Pekíng og borið
,þeim fregnir af því sem gerðist í
raun og veru. íbúar borga eru
hinsvegar efagjarnir, einkum
Pekíngbúar sem urðu vitni að
framferði hermanna dagana 3.-5.
júní. Stjórnvöld halda því fram
að 200 óbreyttir borgarar hafi
fallið í valinn og nokkrir tugir
hermanna. 9000 manns hafi
særst. En sjónarvottum og vest-
rænum fréttaskýrendum og
sendimönnum ber saman um að
fallnir skipti þúsundum, ef ekki
tugum þúsunda, og hafi þorri
þeirra verið úr röðum náms-
manna og annarra mótmælenda
og látist í fjöldamorðum hersins í
miðborg Pekíng.
Yfir landsmenn hefur gengið
holskefla áróðurs sem ekki stenst
samjöfnuð við neitt nema menn-
ingarbyltinguna. Dagblöð, út-
varp og sjónvarp hafa verið lögð
undir linnulausa tuggu hinnar op-
inberu útgáfu atburðarásarinnar,
kvikmyndir um hetjudáðir „al-
þýðuhersins“ og mikið ágæti
Dengs og félaga eru það sem boð-
ið er uppá í kvikmyndahúsum.
Námskeið eru haldin á vinnu-
stöðum þar sem menn eru inntir
eftir því hvað þeir höfðu fyrir
stafni í ofanverðum maímánuði
og öndverðum júní, hvort gagn-
byltingaröflin hafi ekki verið
viðurstyggileg og framganga her-
mannanna vaskleg.
Pekíngbúar fá frímiða, einn
eða fleiri, á heimildamynd um
kínverska kommúnistaflokkinn
og baráttu hans við japanska
innrásarliðið á styrjaldarárum og
sigur yfir Kúomingtangliðum
Sjangs Kæs Sjeks 1949. Það er
ekki skylda að mæta en talið afar
æskilegt og nöfn manna færð til
bókar við inngang kvikmynda-
húsa. Starfsmenn umsvifamikilla
ríkisfyrirtækja og blaðamenn
þurfa að sækja „fræðslufundi'"
sem standa í 2 klukkustundir,
tvisvar í viku. Þar er hamrað á
sörnu atriðunum æ ofaní æ og
menn síðan spurðir útúr og beðn-
ir um að gera grein fyrir viðhorf-
um sínum til atburðanna á Torgi
hins himneska friðar. Skrifstof-
ustúlka sem Reuter tók tali sagð-
ist hafa sótt svo marga „fræðsluf-
undi“ næstliðna tvo mánuði að
hún væri farin að bera brigður á
minni sitt og efast um að hún
myndi rétt hvað borið hefði sér
fyrir sjónir í miðborg Pekíng.
Fyrir nokkrum dögum var hót-
elum í höfuðborginni fyrirmunað
að selja dagblöð og tímarit að
utan, einnig frá Hong Kong.
Þetta þótti ráðamönnum sjálf-
sögð varúðarráðstöfun því brögð
voru að því að heimamenn rækju
nefið niðrí blöð þessi og keyptu
þau jafnvel og létu ganga manna
á meðal.
En ekki eru allir Pekíngbúar
daufir í dálkinn þessa dagana.
Fréttaskýrendur herma að marg-
ir miðaldra og aldnir íbúa höfuð-
borgarinnar harmi síst hverjar
urðu lyktir lýðræðishreyfingar-
innar. „Það er búið að stilla til
friðar á ný og ég er ánægð með
það,“ er haft eftir „skúringakonu
á efri árum“. „Ég fór aldrei að sjá
þessi mótmæli. Og hvað hefði
það svosem haft uppá sig? Þetta
var bæði hættulegt og ruglings-
legt. Nú getum við farið okkar
ferða í friði.“
Yngri kynslóð menntamanna
er vondauf. Unga fólkið leggst til
svefns á gangstéttum við dyr er-
lendra sendiráða í von um að
verða framarlega í biðröð sækj-
enda um vegabréfsáritanir að
morgni. Sum stórfyrirtæki hafa
lagt bann við því að ungir sér-
fræðingar segi upp störfum því
brotthvarf þeirra leiðir óhjá-
kvæmilega til hnignunar. Emb-
ættismaður í höfuðborginni, sem
vitaskuld lét ekki nafns síns getið,
hafði þetta að segja: „Unga fólk-
ið örvæntir um framtíð Kína og
vill yfirgefa landið. Það hefur
ekki eirð í sinum beinum að sitja
og bíða þess að öldungarnir í
flokksforystunni deyi og nýir og
lýðræðislegri stjórnhættir verði
teknir upp.“
Reuter og fl./ks
Heildarupphæð vinninga
29.07 var 7.110.254.-2
höfðu 5 rétta og fær hvor kr.
2.103.448.- Bónusvinning-
inn fengu 4 og fær hvor kr.
107.668.- Fy rir 4 tölur réttar
fær hver 5.422 og fyrir 3 rétt-
ar tölur fær hver um sig 369.-
Solustaöir loka 15 mínútum fyrir út-
dráttíSjónvarpinu.
Upplýsingasímsvari 681511.
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 1. ágúst 1989
Þriðjudagur 1. ágúst 1989 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7