Þjóðviljinn - 07.09.1989, Side 6
Li Peng
fær sér Audi
Li Peng, forsætisráðherra
Kína, hefur látið af höndum tvær
Mercedes-límósínur, sem hann
hafði til afnota og fengið sér í
staðinn einn Audi. Sá bfll er einn-
ig vesturþýskur, en eitthvað fá-
brotnari en Mercedesar og þar að
auki eru Audi-bílar Kínverja
settir saman þarlendis. Váldhafar
Kína reyna nú að afla sér trausts
með herferð gegn spillingu og
lúxuslifnaði og með það í huga
mun Li Peng hafa haft bflaskipti.
15 sjómenn
fórust
Sovéskur togari fórst með allri
áhöfn, 15 mönnum, út af austur-
strönd sænsku eyjarinnar Got-
lands í fyrrinótt eftir árekstur við
finnskt olíuflutningaskip. Voru
mörg fiskiskip á veiðum þar á litl-
um bletti og segir skipstjóri olí-
uskipsins að hann hafi verið að
víkja til að forðast að sigla á ann-
an togara, er áreksturinn varð.
Togarinn mun hafa sokkið sam-
stundis við áreksturinn.
Bandaríkin
loka sendiráði
Bandaríkjastjórn lét í gær
flytja úr landi allt starfslið sendi-
ráðs síns í Beirút og lokaði sendi-
ráðinu til bráðabirgða. Óttast
Bandaríkjamenn að kristnir Lí-
banar muni að öðrum kosti taka
sendiráðið á sitt vald og halda
sendiráðsmönnum síðan í gísl-
ingu, eftir fyrirmyndinni frá íran.
Kastast hefur í kekki milli stjórn-
ar kristinna Líbana og Banda-
ríkjastjórnar undanfarið og sakar
sú fyrrnefnda Bandaríkjamenn
um hirðuleysi um örlög trú-
bræðra sinna í Líbanon, er í vök
eiga að vefjast gegn ofurefli Sýr-
lendinga og líbanskra banda-
manna þeirra. Hefur eitthvað
verið um mótmælafundi við
sendiráðið, sem er í kristna
austurbænum í Beirút, af þessu
tilefni sfðustu daga. Um 800
manns hafa verið drepnir og um
3300 særðir og limlestir í viður-
eign kristinna Libana og Sýrlend-
inga, er hófst í mars s.l.
Fluttu eitursalar
kontrum vopn?
Daniel Ortega Níkaragvafor-
seti hélt því fram í ræðu, er hann
flutti í gær á leiðtogaráðstefnu
Ríkja utan hernaðarbandalaga í
Beograd, að alian þennan áratug
hefðu eiturlyfjasalar verið
Bandaríkjunum hjálplegir við að
flytja kontrum vopn. Ortega sak-
aði Bandaríkin einnig um að
reyna að hindra framgang
samkomulags Mið-Ameríkuríkja
um afvopnun kontra, sem í næst-
um áratug hafa barist gegn Níkar-
agvastjórn fyrir bandarískt fé og
með bandarískum vopnum. Or-
tega sagði og að „heimsvalda-
stefna, kynþáttahyggja og síon-
ismi“ væru verstar af þeim
plágum er á mannkynið leita.
Olíubrák drap
300.000 fugla
Yfir 300.000 sjófuglar drápust
af völdum hráolíu, sem vall út í
Prince William Sund við suður-
strönd Alaska úr risatankskipinu
Exxon Valdez, eftir að það
strandaði þar 24. mars s.l. Er
þetta samkvæmt upplýsingum frá
bandarískri stjórnarstofnun, er
sinnir fiskimáíum og villidýra-
/ vernd. Olíumengunarslys þetta
/ er hið versta í sögu Bandaríkj-
anna. Jan White, dýrafræðingur í
Aiaska, segist óttast að olía hafi
komist í fæðukeðju dýralífsins og
muni halda áfram að drepa fugla
fleiri kynslóðir fram í tíman.
ERLENDAR FRETTIR
Finnland
Karjalainen launar flokki
sínum lambið gráa
Samkvæmt endurminningabók hansstóð Paavo Váyrynen, núverandi formaður Miðflokksins,
íleynimakki við KGB íþvískyniaðfá miðflokksmann á forsetastól eftir Kekkonens dag
í finnskum stjórnmálum hefur
síðustu daga heldur betur hitnað f
koiunum út af nýútkominni bók,
sem inniheldur æviminningar
Ahtis Karjalainen, er lengi var
einn helstu forustumanna Mið-
flokksins (sem hét áður Bænda-
flokkur).
í bókinni er því haldið fram að
annar forustumaður þess flokks,
Paavo Váyrynen sem lengi var
utanríkisráðherra, hafi haft slík
sambönd við sovéska sendiráðið í
Helsinki að mörgum þykir jaðra
við landráð.
Málið er þannig vaxið að
haustið 1981, er Urho forseti
Kekkonen, sem lengi hafði
stjórnað Finnum styrkri hendi,
hafði orðið að láta af störfum
sökum vanheilsu, var hart deilt
um það milli og innan flokka hver
verða ætti eftirmaður hans. Jafn-
aðarmenn tefldu þá fram Mauno
Koivisto, er náð hafði almennum
vinsældum sem forsætisráðherra.
Bréfið og
Vladímírov
Miðflokksmenn, sem lengi
höfðu ráðið mestu í finnskum
stjórnmálum undir forustu Kekk-
onens, sáu þá fram á að jafnaðar-
menn kynnu að ná þeirri aðstöðu
frá þeim. Fyrst voru þeir helst á
því að bjóða fram á móti Koivisto
Karjalainen, sem lengi hafði ver-
ið „krónprins" Kekkonens
gamla.
Karjalainen skýrir svo frá að á
þessum dögum hafi hann fengið
bréf frá Váyrynen, sem þá var
utanríkisráðherra, þess efnis að
Váyrynen hefði rætt málið við
Viktor nokkurn Vladímírov, full-
trúa við sovéska sendiráðið í
Helsinki. Almælt var að Vladím-
írov, sem á að hafa verið auk ann-
ars háttsettur í KGB, réði mestu
þar á bæ. Að sögn Karjalainens,
sem styðst við bréfið og vitnar í
það, leitaði Váyrynenvið þetta
tækifæri hófanna um sovéska
hjálp til að koma Karjalainen á
forsetastól. Samskipti Finnlands
og Sovétríkjanna höfðu verið góð
á stjórnarárum Kekkonens, svo
að ætla má að sovéska stjórnin
hafi gjarnan viljað að annar mið-
flokksmaður tæki við af honum.
Hrakföll
Karjalainens
Að sögn kvaðst Vladímírov
vera allur af vilja gerður til að
greiða fyrir Karjalainen og
bregða um leið fæti fyrir Koi-
visto. Hann á t.d. að hafa getið
þess, að e.t.v. mætti hleypa ein-
hverjum kulda í samskipti Finna
og Sovétmanna. Gera mætti sér
vonir um að Koivisto yrði kennt
um það, þar eð hann var þá orð-
inn þjóðarleiðtogi vegna
veikinda Kekkonens. Samkvæmt
beinni tilvitnun í bréfið stakk Vá-
yrynen upp á því að stillt yrði svo
til í vöruskiptaverslun ríkjanna
að Karjalainen fengi út á það
góða pressu, t.d. með auknum ol-
íuinnflutningi frá Sovétríkjun-
um. Þessi viðskipti eru Finnum
mjög mikilvæg, og Karjalainen
var þá formaður áhrifamikillar
nefndar, sem fjallaði um þau.
Út úr þessu kom þó hvorki fisk-
ur né fugl fyrir Karjalainen. í
flokki hans náðist ekki samstaða
um hann, og báru sumir því við
að hann hefði lengi verið í ónáð
hjá Kekkonen landsföður en aðr-
ir að hann drykki fullstíft. Varð
niðurstaðan sú að Johannes Viro-
lainen, þáverandi þingforseti, var
kjörinn forsetaframbjóðandi
Miðflokksins. Og ekki var hrak-
fallabálkur Karjalainens á enda
þar með, því að 1983 var honum
vikið úr stöðu aðalbankastjóra
finnska ríkisbankans. í því sam-
bandi voru brennivínssögur um
Karjalainen enn á kreiki. Og einn
af þeim, sem beittu sér fyrir því
að koma honum úr bankanum
var Váyrynen.
Hefndarhugur að baki
Nú er það mál manna í Finn-
landi að með því að segja frá sam-
böndum Váyrynen við sovéska
sendiráðið sé Karjalainen að
koma fram hefndum á flokksb-
róður sínum vegna brottreksturs-
ins úr bankanum. Má það kald-
hæðni kalla, því að í gegnum þau
Herferðin gegn kókaíni
Smygl til Bandaríkjanna stöðvað
Talsmaður bandarískra tollyf-
irvalda segir að smygl á kóka-
íni frá Suður-Ameríku til Banda-
ríkjanna hafl hér um bil stöðvast,
a.m.k. í bráðina. Þakka yflrvöld-
in þetta herferð þeirri, sem Kól-
ombíustjórn hefur hafíð á hendur
eiturlyfjahringunum þarlendis.
Sagði talsmaðurinn að
tollverðir hefðu varla orðið varir
við neitt kókaín á leið inn í
Bandaríkin að sunnan síðustu tíu
dagana. Telur hann að verulegur
árangur muni nást í baráttunni
gegn eiturlyfjaplágunni ef Kól-
ombíustjórn haldi áfram að herja
á kókaínhringana með sömu að-
ferðum og hún beitir þá nú.
Heildsöluverð á kókaíni, sem
bandarískir söluaðilar greiða,
hefur þegar hækkað um helming
síðan herferðin hófst vegna
þverrandi birgða.
Virgilio Barco, Kólombíufors-
eti, fyrirskipaði umrædda herferð
í s.l. mánuði eftir að forkólfar
kókafnhrínga landsins höfðu
látið myrða vinsælan stjórnmála-
mann, sem boðið hafði sig fram
til forsetaembættisins og Iýst því
yfir að hann myndi í engu hvika
fyrír eiturlyfjahringunum. Eignir
kókaínbarónanna, eins og ráða-
menn þessara auðhringa dauðans
Maður grunaður um eiturlyfjasölu (á milli tveggja lögreglumanna)
handtekinn í Washington - aðgerðir Kólombíustjórnar gegn kókaín-
hringunum bera drjúgan árangur.
eru gjarnan kallaðir, hafa verið
gerðar upptækar, svo og vopn
einkaherja þeirra. Margir menn á
vegum hringanna hafa og verið
handteknir og gert er ráð fyrir að
sumir þeirra verði framseldir til
Bandaríkjanna en það er þeim
verst við, því að þeir gera sér
frekar vonir um að geta sloppið
við refsingar heimafyrir með
mútum og morðhótunum.
Bush Bandaríkjaforseti hvatti
til þess í ræðu á þriðjudagskvöld
að Bandaríkin veittu Kólombíu,
Perú og Ekvador efnahags- og
hernaðaraðstoð upp á tvo milj-
arða dollara næstu fimm árin, í
þeim tilgangi að kókaínfram-
leiðslan í þessum löndum yrði
upprætt.
Reuter/-dþ.
sambönd á Váyrynen einmitt að
hafa reynt að styðja Karjalainen
á forsetastól.
Almennt er litið svo á, að
Karjalainen segi hér satt frá að
mestu eða öllu, og þykir Finnum
sem von er forljótt mál að sjálfur
utanríkisráðherra landsins skuli
hafa reynt að hagræða viðskipt-
unum við Sovétríkin flokki sínum
til framdráttar í innanríkismál-
um, og þó enn frekar að hann
skuli yfirhöfuð hafa staðið í
leynimakki við erlent stórveldi
um stjórnmál lands síns. Auðvit-
að bætir það ekki úr skák fyrir
Váyrynen að sambandsmaðurinn
á að hafa verið KGB-foringi.
Ætla má að þetta verði Váyryn-
en, sem nú er formaður Mið-
flokksins, til alvarlegs hnekkis
sem stjórnmálamanni, og að lík-
indum verulegt áfall fyrir flokk
hans allan. Annars hefur Mið-
flokkurinn verið í sókn undanfar-
ið og var farinn að gera sér vonir
um að endurheimta forustuhlu-
tverkið úr höndum jafnaðar-
manna. En nú eru líkur á að búið
sé með það.
Viðkvœmt mál
fyrir marga
Váyrynen var greinilega
brugðið, er hann mætti í sjón-
varpi út af málinu. Hann hefur
haft við orð að stefna Karjalainen
og öðrum, sem að samningu og
útgáfu bókarinnar stóðu, fyrir að
birta í leyfisleysi sínu setningar úr
bréfinu. Hann kveðst sjálfur eiga
afrit af bréfinu, en neitar að birta
það í heild sinni.
Sumra hald er að einskonar
þegjandi samkomulag muni nást
um það með stjórnmálamönnum
allra flokka að gera ekki mikið
veður út af þessu til frambúðar.
Samskipti Finnlands við grann-
ann stóra í austri hafa verið mikil
og náin frá lokum heimsstyrjald-
arinnar síðari. Því er hvíslað og
raunar sagt upphátt að hætt sé við
að allir stjórnmálaflokkar lands-
ins hafi eitthvað af óhreinu mjöli í
pokanum, svipuðu því sem með
bók Karjalainens er komið á dag-
inn um Miðflokkinn, viðvíkjandi
samböndum við Sovétríkin.
______________________dj>_
Foreldrar
pynduðu
stúlku-
barn
Bóndahjón í kínverska fylkinu
Jiangsu hafa verið fundin sek um
að hafa beitt fimm ára dóttur sína
pyndingum og misþyrmingum af
því að maður, sem þau trúðu að
sæi fram í tímann, hafði fullyrt
við þau að telpan myndi leiða
ógæfu yfir son þeirra. Eitt sinn
hafði faðir telpunnar t.d. bundið
hana aftan í dráttarvél og dregið
hana síðan um 80 metra spöl.
Sagðist hann hafa gert þetta af
því að telpan hafi verið löt til
vinnu á akrinum. Einnig höfðu
hjónin barið dótturina misk-
unnarlaust. í Reuter-frétt um
þetta er þess ekki getið að að
hjónin hafi verið dæmd til ref-
singar fyrir þetta athæfi, en fram
kemur hinsvegar að þau hafi fyrir
dómstóli lofað að hætta að mis-
þyrma barninu og að dómstóllinn
hafi fyrirskipað þeim að gera
sjálfsgagnrýni um þetta opinber-
lega.
6 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN